Tíminn - 29.07.1989, Qupperneq 18
Tíminn 30
Laugardagur 29. júlí 1989
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum:
Tvísýnt um sigur í spjótkasti
Einar Vilhjálmson í harðri baráttu við Sigurð Einarsson og Sigurð Matthíasson um landsliðssæti
keppir í kringlukasti. Eggert Boga-
son, ÍR, er þar einnig á meðal
keppenda og verður gaman að sjá þá
saman í keppni. Vésteinn kastaði
vel fyrri hluta sumars og setti þá
glæsilegt fslandsmet, 67,64 m, en
hefur ekki gengið eins vel að undan-
förnu. Eggert hefur hins’vegar verið
að sækja í sig veðriðað undanförnu.
Pétur Guðmundsson, HSK, kepp-
ir í kúluvarpi og verður spennandi að
sjá hvort honum takist að varpa yfir
20 metra, en hann hefur sýnt að
hann hefur alla burði til þess, þó
ekki hafi það tekist í sumar.
íslandsmetinu í sleggjukasti,
60,74 m, verður eflaust ógnað af
Guðmundi Karlssyni, FH, en hann
hefur kastað 60,10 m í sumar. Eggert
Bogason mun þó ef að líkum lætur
veita Guðmundi harða keppni.
Hlaupagreinarnar verða eins og
svo oft áður skemmtilegar á að
horfa, en þar verður einnig barist
um landsliðssæti. í 800 m hlaupi
karla, á laugardeginum, koma þeir
Steinn Jóhannsson, FH, Erlingur
Jóhannsson, UMSK, og Guðmund-
ur Skúlason, FH, eflaust til með að
berjast hart um meistaratignina. Er-
lingur á fslandsmetið sem hann setti
fyrir tveimur árum, 1:48,83 mín., en
hann átti við meiðsli að stríða í
fyrra. Steinn hefur náð bestum tíma
ársins, 1:51,8 mín., Erlingur er með
1:53,6 mín. og Guðmundur er með
1:54,06 mín.
Oddur Sigurðsson, KR, keppir í
200 og400m hlaupi en þar mun m.a.
Gunnar Guðmundsson, UÍA, etja
kappi við hann og Erlingur Jóhanns-
son í 400 m hlaupinu.
Gunnlaugur Grettisson, ÍR, sem
á íslandsmetið í hástökki, 2,15 m, og
Einar Kristjánsson, FH, sem stokkið
hefur 2,06 koma eflaust til með að
bítast um landsliðssætiö en Gunn-
laugur hefur stokkið 2,07 m í sumar.
Þó íslandsmetið sé vart í hættu í
5000 m hlaupinu, þá verður þar
mikil barátta. Aðeins einu sinni
áður hafa jafn margir hlauparar, eða
þrír talsins, hlaupið undir 15 mínút-
um á sama árinu. Hér verða á
ferðinni þeir Jóhann Ingibergsson,
FH (14:52,37 mín.), Kristján Skúli
Ásgeirsson, ÍR (14:55,0), og Gunn-
laugur Skúlason, UMSS (14:57,53).
Már Hermannsson, UMFK, hefur
hlaupið best á 15:00,40 í sumar, en
hann á best 14:44,98, þannig að gera
má ráð fyrir að hann verði einnig í
fremstu röð í 5000 m hlaupinu.
Meðal keppenda í kvennagreinum
má nefna þær Súsönnu Helgadóttur,
FH, spretthlaupara og langstökkv-
ara, Oddnýju Arnadóttur, 1R, í 200
m og 400 m, Mörthu Ernstdóttur,
ÍR, í lengri hlaupunum, Þóru Ein-
arsdóttur, UMSE, í hástökki og
Guðbjörgu Gylfadóttur, USAH, í
kúluvarpi.
Súsanna hefur haft talsverða yfir-
burði í 100 m hlaupi og langstökki í
sumar, en þær Oddný og Guðrún
Keppni í spjótkasti á meistaramótinu hefst kl. 15.30 í dag. Fuil ástæða er til að hvetja fólk til þess að mæta
Laugardalinn og fylgjast með spennandi keppni, ekki einungis í spjótkastinu heldur í fleiri greinum.
Lyftingar:
Heimsmeistaramót öldunga
- Guömundur Sigurðsson keppir fyrir íslands hönd
Mcistaramót íslands í frjálsum
íþróttum fer fram nú um helgina í
Laugardal. Mótið hefst á laugardag
kl. 14 og verður fram haldið á
sunnudag kl. 14 og mánudag kl.
18.30. Þátttakendur verða milli 160
og 170 talsins. Mótið verður mjög
sterkt að þessu sinni og mikil keppni
í mörgum greinum um sæti í liði
íslands sem keppir um aðra helgi í
Evrópubikarkeppninni í Dublin.
Hápunktur mótsins verður án efa
keppni í spjótkasti karla sem fram
fer á laugardaginn, þar sem Einar
Vilhjálmsson, UÍA, Sigurður Ein-
arsson, Ármanni, og Sigurður Matt-
híasson, UMSE, koma til með að
berjast um sigurinn. Sigurður Ein-
arsson hefur kastað lengst í ár, 82,10
m, en Einar hefur náð lengst 80,50
metrum, en hann setti íslandsmet í
fyrra, 84,66 m. Sigurður Matthías-
son hefur bætt árangur sinn mikið í
ár eins og Sigurður Einarsson og
kastað lengst 78,10 m í sumar.
Vésteinn Hafsteinsson, HSK,
Margt smátt
Amsterdam. Hollenski lands-
liðsmarkvörðurinn Hans van Breu-
kelen verður frá keppni næstu 5
vikurnar vegna þess að lítið bein í
hönd hans er brotið. Hollenska I.
dcildarkeppnin hefst eftir 2 vikur,
on þá mun varamarkvörður PSV
verða í markinu. Hann heitir Jan
Nederburgh og var nýlega keyptur
frá Roda JC.
íþrótta-
viðburðir
helgarinnar
Knattspyrna
Laugardagur
2. deild karla kl. 14.00
Vopnafjarðarv. Einherji-Tindastóll
Selfossvöllur Selfoss-Afturelding
3. deild karla kl.14.00
ísaljarðarvöllur B.ísfj.-Þróttur R.
Dalvíkurvöllur Dalvík-Huginn
Hvammstangavöllur Kormákur-
Austri E.
Árskógsstrandarv. Reynir Á-Valur
Rf.
4. deild karla kl. 14.00
Gervigrasvöllur Fjölnir-Ernir
Ólafsvíkurvöllur Víkingur ól.-Hafn-
ir
Melar,Hörgárdal SM-TBA
Laugalandsvöllur (JMSEb-
Ungm.f.Neisti
Laugavöllur Aðaldal Efling-Hvöt
Hornafjarðarvöllur Sindri-Leiknir
F.
Mánudagur
1. deild karla kl. 20.00
Valsvöllur Valur-FH
2. deild karla kl. 20.00
Stjömuvöllur Stjarnan-Völsungur
KópavogsvöUur UBK-ÍR
GarðsvöUur Víðir-Leiftur
Um helgina fer fram úrslitakeppni 2.
flokks kvenna. Leikið verður á Akr-
anesi og hefur kattspymudeUd ÍA
umsjón með keppninni. Einnig verð-
ur haldið Landsbankamót á Akran-
esi um helgina fyrir 5. flokk drengja.
Frjálsar íþróttir
Um helgina fer fram Meistaramót
íslands í frjálsum fþróttum. Mótið
fer fram á LaugardalsveUi, sjá nánari
umfjöUun annarstaðar á íþróttasíð-
unni.
Guðmundur Sigurðsson lyftinga-
maðurinn kunni tekur þátt í Heims-
meistaramóti öldunga sem fram fer
í Álaborg í Danmörku nú um þessar
mundir. Guðmundur mun keppa í
100 kg flokki í dag.
Guðmundur er gamall í hettunni
og hefur keppt í rúm 20 ár og er
árangur hans hingað til frábær. Hann
hefur 19 sinnum orðið Islandsmeist-
ari, tvisvar orðið Norðurlandameist-
ari, auk þess að hafa hlotið einn
silfur- og þrjá bronsverðlaunapen-
inga. Á Olympíuleikunum í Montre-
al 1976 varð Guðmundur í sjötta
sæti og hefur hann fjórum sinnum
keppt á heimsmeistaramótum og í
framhaldi af því verið þrisvar valinn
á lista yfir tíu bestu lyftingamenn í
heiminum. Árið 1985 varð Guð-
mundur í fyrsta sæti í Olympíuleik-
um smáþjóða og hefur hann að auki
unnið fjöldann allan af alþjóðlegum
mótum vítt og breitt um veröldina.
Guðmundur er einn af tveimur ís-
lendingum sem hlotið hafa „elit
merkið", sem er einskonar Stór-
meistaramerki lyftingamanna og eru
einungis 35 Norðurlandabúar sem
fengið hafa það frá upphafi.
Góður árangur á heimsmeistara-
mótinu er því góð viðbót við annars
frábæran íþróttaferil sem að sögn
Guðmundar er langt frá því að enda
sem hann og sannaði svo eftirminni-
lega á síðasta Norðurlandameistara-
móti er hann hlaut bronsverðlaun
eftir harða keppni um silfrið.
Arnardóttir hafa veitt henni harða
keppni í 200 m hlaupinu. Martha
hefur haft mikla yfirburði í sínum
greinum og ekki er líklegt að þær
Margrét Brynjólfsdóttir, UMSB, og
Fríða Rún Þórðardóttir, UMSK, nái
að ógna henni, þó svo þær hafi verið
í mikilli framför að undanförnu.
Þóra hefur verið í mikilli framför
í hástökkinu og hefur stokkið hæst
1,77 m og er til alls líkleg á næstunni.
Kringlukastkeppnin kemur til
með að verða spennandi, því þrír
kastarar hafa kastað milli 38 og 40 m
í sumar. Guðbjörg Gylfadóttir,
USAH, hefur kastað 39,74 m, Halla
Heimisdóttir, Ármanni, hefur kast-
að 39,44 m og Margrét D. Óskars-
dóttir hefur kastað 38,08 m.
Frjálsíþróttadeild ÍR sérum fram-
kvæmd mótsins.
Tímaseðill
Laugardagur 29. júlí
klukkan 14:00
14:00 Mótssetning
14:05 400 m grindahlaup karla,
ÚRSLIT - Stangarstökk
Hástökk kvenna - Spjótkast
kvenna
14:25 400 m grindahlaup kvenna,
undanrásir
14:30 Kúluvarp karla
14:45 200 m hlaup karla, undanrásir
- Langstökk karla
15:10 200 m hlaup kvenna, undan-
rásir
15:25 Spjótkast karla
15:30 3000 m hlaup kvenna - Kúlu-
varp kvenna
15:45 5000 m hlaup karla
16:05 400 m grindahlaup kvenna,
ÚRSLIT
16:20 200 m hlaup karla, ÚRSLIT
16:30 200 m hlaup kvenna, ÚRSLIT
16:40 800 m hlaup karla
16:50 800 m hlaup kvenna
17:00 4x100 m boðhlaup karla,
undanrásir
17:15 4x100 m boðhlaup kvenna
17:45 4x100 m boðhlaup karla,
ÚRSLIT
Sunnudagur 30. júlí
klukkan 14:00
14:00 110 m grindahlaup karla,
undanrásir - Hástökk karla
Kringlukast karla - Lang-
stökk kvenna
14:25 100 m grindahlaup kvenna,
undanrásir
14:50 100 m hlaup kvenna, undan-
rásir
15:10 100 m hlaup karla, undanrásir
15:30 Kringlukast kvenna
15:35 400 m hlaup kvenna, undan-
rásir
15:40 Þrístökk karla
15:50 400mhlaupkarla,undanrásir
16:05 1500 m hlaup kvenna
16:20 110 m grindahlaup karla,
ÚRSLIT
16:30 Sleggjukast karla
16:35 100 m grindahlaup kvenna,
ÚRSLIT
16:50 100 m hlaup karla, ÚRSLIT
17:00 100 m hlaup kvenna, ÚRSLIT
17:10 1500 m hlaup karla
17:20 400 m hlaup karla, ÚRSLIT
17:30 400mhlaupkvenna,ÚRSLIT
Mánudagur 31. júlí,
klukkan 18:30
18:30 Fimmtarþraut karla: Lang-
stökk
18:50 3000 m hindrunarhlaup
19:15 Fimmtarþraut karla: Kringlu-
kast - 4x400 m boðhlaup
kvenna
20:00 Fimmtarþraut karla: 200 m
hlaup
20:15 4x400 m boðhlaup karla
20:40 Fimmtarþraut karla: Kringlu-
kast
21:30 Fimmtarþraut karla: 1500 m
hlaup