Tíminn - 02.09.1989, Page 4

Tíminn - 02.09.1989, Page 4
4 Tíminn Laugardagur 2. september 1989 Frá framkvæmdum við Byggðasafnið á Skógum. Tímamynd: Sigurgeir Byggðasafnið á Skógum stækkað Frá fréttaritara Tímans undir Fyjafjöllum, Sig- urgeiri Ingólfssyni: Vinna við stækkun Byggðasafns- ins á Skógum undir Eyjafjöllum hófst þann 29. ágúst sl. Að sögn Þórðar Tómassonar safnvarðar er ætlunin að byggja grunninn á þessu ári og steypa upp húsið á því næsta. Nýbyggingin, sem er 300 fermetra jarðhæð og 343 fermetra kjallari, mun stækka sýningarplássið um rúman helming. Segir Þórður að það sé ánægjulegt að verkið sé hafið einmitt núna, því í ár eru liðin 40 ár frá því að fyrst var stillt upp munum í byggðasafninu. „Gamla húsið var orðið allt of lítið fyrir löngu síðan og sýningarhlutir eru til staðar til að fylla nýbygginguna nú þegar,“ sagði Pórður. Stefán Örn Stefánsson og Grétar Markússon arkitektar hönnuðu húsið, Jón og Tryggvi hf. á Hvols- velii sjá um jarðvinnu, en áætlað er að fjarlægja þurfi um 13 til 1500 rúmmetra af jarðvegi. Ás hf. mun sjá um uppslátt. Byggðasafnið á Skógum er í eigu Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga. TOSHIBA 28" sjónvarpstækið með FST myndlampanum gefur þér meira fyrir peningana. Kr. 78.900,- • FSTflaturmyndlampi • Euro-scarttengi • SuperVHStengi • Kapaltengi • Fjarstillt • 2hátalarar • Skipanirfráfjarstýringu birtastáskjá • Íslenskurleiöarvísir Toshiba - tæki sem þú getur treyst. Einar Farestveit&Co.hf. BORQARTIÍN 2B, SÍMAR: (91) 16995 OQ 622900 - NffiQ BÍLASTÆÐI Hugsanlegt að Patreksfjörður verði ekki eina kvótalausa sveitarfélagið: Glatar Hofsós aflakvótanum? Hofsóshreppur hefur leitað til Byggðastofnunar og Hlutafjársjóðs vegna þess að hreppurinn getur ekki lagt fram tilskilið hlutafé í Útgerðar- félagið Skagfirðing og er því hætta á að hreppurinn missi kvótann af staðnum komi ekki til aðstoð fyrr- nefndra aðila. Hofsóshreppur á Hraðfrystihúsið á Hofsósi ásamt sveitarfélögunum í kring. Nú liggur fyrir sú staða að þörf er á að auka hlutafé í Útgerðar- félagi Skagfirðinga sem er ætlunin að eigi tvö skip í framtíðinni. Þeir á Hofsósi þurfa að leggja fram hlutafé upp á 30 milljónir króna á móti Sauðárkróki til að halda sínum helmingi í útgerðarfélaginu og tryggja þar með að fiskur berist til vinnslu í frystihúsinu. Hefur Hofsós sent beiðni til Byggðastofnunar um aðstoð og hafa mál hreppsins verið rædd í stjórn Hlutafjársjóðs. Félagsmálaráðuneytið svipti Hofsóshrepp fjárforræði í desember síðastliðnum og jafnframt var skipuð fjárhaldsstjóm. Á þeim tíma námu skuldir sveitarsjóðsins um 54 millj- ónum króna, eða þreföldum til fjór- földum árstekjum hreppsins. Petta jafngilti nærri 200 þúsund króna skuld á hvern íbúa hreppsins sem voru um 270 á árinu 1986. Hefur svipting fjárforræðisins verið fram- lengd þrisvar síðan þá, nú síðast vegna viðræðna um sameiningu Hofsóshrepps, Hofshrepps og Fellshrepps. SSH Hið nýja Borgarleikhús verður afhent á sunnudaginn. Undirbúningur er í fullum gangi en eins og sjá má hefur áhorfendasætunum verið komið fyrir. Til að svala forvitni væntanlegra leikhúsgesta má geta þess að þau eru fagurblá. Tímamynd: Árni Bjama Borgarleikhús afhent Næstkomandi sunnudag fær Leik- félag Reykjavíkur Borgarleikhúsið afhent til afnota. Formleg vfgsla leikhússins og fyrstu frumsýningar eru fyrirhugaðar helgina 20. og 22. október. Davíð Oddsson mun afhenda leik- félaginu hið nýja leikhús á stóra sviði leikhússins klukkan 17:00 á sunnudaginn. í tilefni afhendingar- innar munu aðstandendur Leikfé- lags Reykjavíkur fara í skrúðgöngu frá Iðnó klukkan 16:00 að Borgar- leikhúsinu. Leikfélagið leigði Iðnó í 92 ár og kvaddi húsnæðið formlega í lok síðasta leikárs. Nýja leikárið hófst með æfingum á Ljósi heimsins og Höll sumarlands- ins sem eru leikgerðir Kjartans Ragnarssonar á Heimsljósi Halldórs Laxness. Frá og með mánudeginum 4. september mun Leikfélagið starfa í Borgarleikhúsinu við Listabraut en að undanförnu hafa æfingar farið fram á tveimur stöðum í borginni. SSH Framkvæmda- stjórn LFK Núverandi framkvæmdastjórn Landssambands framsóknar- kvenna hélt nýlega sinn síðasta fund. Framkvæmdastjórn LFK er kosin til tveggja ára í senn á landsþingi og verður ný fram- kvæmdastjórn kjörin á landsþingi landssambandsins sem verður haldið að Hvanneyri dagana 9. og 10. september. Talið frá vinstri eru Helga Helgadóttir, Sigrún Sturludóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir, Inga Þyrí Kjartansdóttir, Þrúður Helgadóttir og Unnur Stefánsdóttir, sem jafn- framt er formaður Landssambands FRAMSOKNARFLOKKURINN framsóknarkvenna. Þess má geta ekki gefa kost á sér við kosningu að Ásta, Inga og Þrúður munu nýrrar framkvæmdastjórnar. SSH

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.