Tíminn - 02.09.1989, Blaðsíða 6

Tíminn - 02.09.1989, Blaðsíða 6
6 Tíminn Laugardagur 2. september 1989 Timinn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og ____Framsóknarfélögin i Reykjavík Framkvaemdastjóri: Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGIslason Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson Eggert Skúlason Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Skrifstofur: Lyngháls 9, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn, fréttastjórar 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Frá og með 1. ágúst hækkar: Mánaðaráskrift í kr. 1000,-, verð í lausasölu (90,- kr. og 110,- kr. um helgar. Grunnverð auglýsinga kr. 660,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Málefni bændastéttar Aðalfundur Stéttarsambands bænda stendur nú yfir og er haldinn á Hvanneyri í Borgarfirði. Stéttarsambandsfundurinn er að þessu sinni haldinn við erfiðar aðstæður á miðjum umþóttun- artíma bændastéttarinnar að nýjum framleiðslu- háttum. Þegar nýju búvörulögin voru samþykkt fyrir fjórum árum var sú stefna tekin að aðlaga búvöruframleiðslu að innlendum markaði og taka upp nýjar búgreinar sem lytu markaðslögmálum. Það er hin nýja landbúnaðarstefna. Liður í félagslega réttlátri framkvæmd þessarar meginstefnu var gerð búvörusamningsins í mars 1987. Án slíks samnings hefði framkvæmd búvöru- laganna m.a. orðið alltof harðneskjuleg gagnvart hundruðum fjölskyldna og einstaklinga í sveitum landsins og síst dregið úr félagslegum vandamálum þjóðfélagsins í heild. Hvað sem segja má um nauðsyn skipulagsbreytinga í landbúnaði, sem ekki er deilumál, þá verða menn að átta sig á, að hin nýja landbúnaðarstefna leiðir til félagslegrar röskunar í svo ríkum mæli að henni verður að mæta með félagslega réttlátum ráðstöfunum. Bú- vörusamningi Jóns Helgasonar var m.a. ætlað að milda afleiðingar hinnar félagslegu umbyltingar sem fyrirsjáanleg var í sveitum landsins. Formaður Stéttarsambands bænda, Haukur Halldórsson, segir að framkvæmd búvörusamn- ingsins frá 1987 hafi tekist vel að öðru leyti en því að markaðsáætlanir fyrir sauðfjárræktina hefðu ekki staðist. Hér bendir formaðurinn á þá stað- reynd sem almenningi er vel kunnug af fréttum að neysla kindakjöts hefur verið að dragast saman í landinu síðustu ár langt umfram það sem kunnug- ustu menn töldu líklegt að gæti orðið. Hvaða ástæður það eru sem valda minnkandi eftirspurn eftir lambakjöti er ekki ljóst, en vafalaust eru þær margar. Ein ástæðan er sú að lambakjötið er of dýrt út úr búð. Það hlýtur að vera sameiginlegt hagsmunamál bænda og neytenda að vinna að lækkun á kindakjötsverði. Þrátt fyrir það að áætlanir búvörusamningsins frá 1987 um markað fyrir kindakjöt hafi brugðist, þá hafa bændur fyllilega staðið við skyldur sínar í því að fækka sauðfé í landinu. í sauðfjárrækt á sér stað gífurlegur samdráttur, sem heiðarlegum gagn- rýnendum landbúnaðarmála má ekki sjást yfir. Eitt aðalmál aðalfundar Stéttarsambands bænda er að móta viðhorfin til áframhaldandi samninga við ríkisvaldið um aðlögun búvöruframleiðslu að markaðsmálum næstu ár. Forystumenn bænda hafa þegar birt hugmyndir sínar um efnisatriði nýs búvörusamnings. Hér skal ekki fullyrt að allt sem í þeim drögum stendur sé ófrávíkjanlegt, enda mun svo ekki vera, en hins vegar ber ríkisvaldinu að stofna til markvissrar viðræðu við bændastéttina um nýjan búvörusamning og eiga ekki síður frumkvæði að slíkum viðræðum og samningum en bændur fyrir sitt leyti. Landbúnaðarráðherra er treyst til að hafa forgöngu um farsæla lausn þessa máls. s W-Jtaða ríkisstjórnar Stein- gríms Hermannssonar hefur mjög verið til umræðu að undan- förnu og er enn. Það er ekki einasta að skoðanakannanir bendi til þess að ríkisstjórnin eigi andbyr að mæta, heldur er það staðreynd að hún er þing- ræðislega veik ríkisstjórn, sem er svo augljós annmarki á stjórn í þingræðislandi að varla þarf að útskýra hvers vegna. Hvað þingstyrkinn varðar þá hefur hann í sjálfu sér ekki breyst síðan á síðasta þingi. Ríkisstjórnin er studd af sömu þingflokkum og áður og hefur meirihluta í sameinuðu þingi. Hún verður því varin vantrausti, að óbreyttu. Nú dugir slíkt að vísu ekki eitt saman til þess að ríkisstjórn hafi starfhæfan meiri- hluta á Alþingi. Svo vill til að löggjafarstarf fer að mestu leyti fram í þingdeildum, efri og neðri deild, en ekki í sameinuðu þingi. Þess vegna er ekki hægt að tala um starfhæfan meirihluta á þingi nema ríkisstjóm hafi meirihluta í báðum þingdeildum. Núver- andi ríkisstjórn hefur skort meirihluta í neðri deild og hefur því átt undir fleiri að sækja um framgang þingmála en formlega stuðningsmenn sína. Áhættuleiðin Ef horft er til síðasta Alþingis og hvernig mál gengu fram á því þingi, þá er þess að minnast að þingstörf gengu stóráfallalaust og ekki verr en oft áður. Þá er fyrst og fremst átt við það að ríkisstjórninni tókst að koma þeim málum, sem hún bar fyrir brjósti hindrunarlítið í gegn. Þetta gerðist að sjálfstöðu með því að beita samningum og ná samkomulagi eða hreinlega með því að láta á reyna hvaða fylgi þingmál ríkisstjórnarinnar hefðu. Hvort heldur er um að ræða samkomulagsleiðina eða áhættuleiðina, þá má segja að hvor tveggja leiðin og báðar í senn feli í sér þá möguleika sem ríkisstjórnin hefur, miðað við óbreyttan þingstyrk. Að óbreyttum formlegum þingstyrk blasir því sama myndin við ríkis- stjóminni á komandi þingi eins og var í fyrra að hún þyrfti að semja sig áfram með mál sín eða eiga framgang þeirra undir óvissum atkvæðagreiðslum. Þær raddir hafa heyrst að ríkisstjórninni sé ekki vandara að treysta framvegis á samnings- og áhættuleiðina en var á síðasta þingi. Því skal engan veginn andmælt að þetta gæti staðist. Gallinn er bara sá að slík niður- staða verður aldrei sönnuð með rökum. Þar er um að ræða niðurstöðu af sérviskulegum vangaveltum og yfirlegum yfir alls kyns pólitískum þráteflis- möguleikum sem ýmsum er un- aður að leika sér að og halda að sé hluti stjórnmálasnilldar að sjá í gegnum. Þótt þeim möguleika verði ekki hafnað að ríkisstjórnin gæti haft fullt vald á framgangi þing- mála á næsta þingi eins og var á hinu síðasta, þá er það óefað rétt stefna, sem stjórnarflokk- arnir hafa haft, að ekki skuli láta neins ófreistað að auka beinan þingstyrk ríkisstjórnarinnar. Forsætisráðherra hefur verið þessa mjög hvetjandi og stutt það mál þeim rökum sem hér hafa verið nefnd og ekki verða véfengd, að ríkisstjórn í þing- ræðislandi tryggir ekki völd sín nema með nægum meirihluta í öllum starfsdeildum þingsins. Viðræðurnar við Borgaraflokk- inn er kjarni þeirrar viðleitni að auka þingstyrk ríkisstjórnarinn- ar, þótt óneitanlega hafi þessar viðræður verið langdregnar án þess að hér verði óyggjandi dómur á það lagður hvers vegna svo hefur þurft að vera. Á ritunartíma þessara orða hefur nokkuð miðað í átt til þess að Borgaraflokkurinn gangi til liðs við ríkisstjórnina, þótt ekki sjá- ist fyrir endann á því máli. Ætla verður að málalokin séu nærri og dragist ekki marga daga. Skoðanakannanir Tvennar skoðanakannanir hafa gefið í skyn að Sjálfstæðis- flokkurinn sé í örum vexti og það svo, að hann myndi fá hreinan meirihluta á Alþingi, ef kosið yrði til þings nú eða á næstunni. Varla þarf að taka það fram að þessar skoðana- kannanir leiða ekki í ljós sér- stakar vinsældir ríkisstjórnar- innar eins og stendur. Nú mun ýmsum þykja að niðurstaða þessara skoðana- kannana sé alveg skýr og ekki þurfi að setja sig í stellingar til að túlka hana. Slíkt er þó af ýmsum ástæðum misskilningur. Skoðanakannanir um pólitísk mál gefa oft gagnlegar vísbend- ingar og leiða vafalaust í ljós ákveðnar tilhneigingar um hug kjósenda gagnvart ríkisstjórn- um og stjórnmálaflokkum. Það væri því rangt, ef forysta og stuðningslið núverandi ríkis- stjórnar léti eins og hún hefði allt í hendi sér, en það væri jafn fráleitt að fara að líta á slíkar skoðanakannanir sem einhvers konar örlagadóm yfir framtíð stjórnarinnar. Viðbrögð varaformanns Sjálf- stæðisflokksins, Friðriks Soph- ussonar alþingismanns, við niðurstöðu síðustu skoðana- kannana eru athyglisverð að því leyti að hann vill ekki að sjálf- stæðismenn fari að hreykja sér hugsunarlaust af þeim góða ár- angri sem skoðanakannanir benda til, heldur reyni þeir að meta stöðu flokksins á öðrum forsendum en þeim einum að Sjálfstæðisflokkurinn kann í augnablikinu að vera í meira áliti en var fyrir nokkrum mán- uðum. Friðrik gerir sér það ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn verður að efla sig með sínum eigin verkum en ekki þvx að ríkis- stjórnin hefur orðið að gjalda þess í vinsældum í bili að bera ábyrgð á óhjákvæmilegum að- gerðum í efnahags- og fjármál- um sem fráfarandi ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar (fjórtán mánaða stjórnin) lét undir höfuð leggjast að takast á við. fræðu sinni á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna fyrir u.þ.b. 10 dögum lýsti Friðrik Sophusson því býsna skorinort, að Sjálfstæðisflokknum hefði „ekki tekist að marka nægilega skýra stefnu í mikilvægum mála- flokkum.“ Auk þess taldi hann að flokknum hefði „ekki tekist að leysa ágreining innan flokksins" um mikilvæga mála- flokka, s.s. landbúnaðarmál og fiskveiðistjórnun. Varaformað- urinn hefur þannig áhyggjur af því að „innri styrkur Sjálfstæðis- flokksins sé ekki nægilega mikill“, eins og hann orðar það. Fyrir sanngirnissakir er sjálf- sagt að geta þess að Friðrik Sophusson er ekki í neinum uppgjafarhug út af þessu nei- kvæða innanflokks ástandi Sjálf- stæðisflokksins og stefnuleysi hans í brýnustu þjóðmálum. Varaformaðurinn trúir því að Eyjólfur muni hressast, að Sjálf- stæðisflokkurinn eigi eftir að gefa sér tíma til að marka sér frambærilega stefnu. Hér verður ekki vísað öllu frekar í orð Friðriks Sophusson- ar, en af þeim og ýmsu öðru sem fram hefur komið af hálfu for- ystu sjálfstæðismanna má ljóst vera að Sjálfstæðisflokkurinn er varla við því að búinn að ganga til alþingiskosninga, þótt skoð- anakannanir spái honum sigri. Sú skýring hefur heyrst að ýmsir sjálfstæðismenn vilji bíða með kosningar til þess að auka sigur- líkur sínar enn frekar. Þessi skýring er afar ósennileg. Sigur- líkur flokksins í alþingiskosning- um verða varla meiri en þær eru samkvæmt skoðanakönnunum. Líklegast er að ýmsir í sjálf- stæðisforystunni trúi ekki á áreiðanleika skoðanakannan- anna og óttist að skyndilegar alþingiskosningar muni leiða í ljós, þegar til alvöru kemur í kosningabaráttu, þar sem allir eiga að standa jafnt að vígi, að Sjálfstæðisflokkurinn hefur eng- in úrræði í þeim málum, sem ríkisstjórnin kann að vera gagn- rýnd fyrir. Stjórnarforysta Porsteins Pálssonar Þess vegna er það skynsam- legt að forystumenn ríkisstjórn- arinnar og stjórnarflokkanna fari ekki að túlka úrslit skoðana- kannana sem tómt svartnætti fyrir sig og sínar aðgerðir frekar en Friðrik Sophusson lætur það henda sig að telj a úrslitin sönnun fyrir stefnufestu og forystuhæfi- leikum Sjálfstæðisflokksins. Ef til kosningabaráttu kæmi myndu ríkisstjórnarflokkarnir fá gott tækifæri til þess að greina kjós- endum frá verkum sínum og hvernig úr mörgu hefur greiðst þann stutta tíma sem ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar hef- ur setið að völdum. Þá mun gefast tilefni til þess að rifja upp hver aðdragandinn var að mynd- un núverandi ríkisstjórnar. Þá verður ekki sparað að rekja feril Þorsteins Pálssonar sem forsæt- isráðherra í ríkisstjórn sem hafði 2/3 þingsins á bak við sig, en var þó ekki maður til þess að halda lífi í henni nema 14 mánuði af 48 mánaða kjörtímabili. Friðriki Sophussyni þykja það firn mikil að menn skuli leyfa sér að nefna nafn Þorsteins Pálsson- ar án lofsvrða um þann fyrir stjórnarforystuna í fjórtán mán- aða stjórninni 1987-1988. Vara- formaður Sjálfstæðisflokksins

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.