Tíminn - 07.09.1989, Blaðsíða 11
10 Tínninn,
Fimmtudagur 7. september 1989
Fimmtudagur'7: septémber 1989
Tíminn 11
Búist við
300-400
titlum í
jólabóka-
flóðinu
Unnið er á fullu að íslenskum söguatlas
en þar er um mjög viðamikið verkefni að
ræða. Væntanlega mun fyrsta bindi þess
verks koma út fyrir jólin.
Almenna bókafélagið gefur út hljóð-
snældu í samvinnu við Blindrafélagið.
Þar er um að ræða lestur Stefáns Karls-
sonar á Egilssögu. Einnig er verið að
vinna að því að fá útgáfurétt á lestri
Viðars Eggertssonar á smásögum eftir
Edgar Allan Poe.
Allnokkrar barnabækur koma út m.a.
bók eftir Sigrúnu Davíðsdóttur. Nonni
og Manni eftir Jón Sveinsson verður
endurútgefin en bókin Nonni kom út á
síðasta ári. Iðunn Steinsdóttir hefur skrif-
að bók um dreka sem Búi Kristjánsson
hefur myndskreytt. Einnig Frændi töfra-
mannsins eftir C.S. Lewis en þetta er
sjötta bókin í þeim flokki.
Auk alls þessa hefur verið unnið að
útgáfu á verkum Gunnars Gunnarssonar
og Tómasar Guðmundssonar.
Reykjavík, sögustaður við sund
og Islandshandbókin merkastar
frá Emi og Órlygi
Örn og Örlygur gefa út nokkur stór og
viðamikil verk. Einna hæst ber fjórða
bindi Reykjavíkur, sögustaðar við sund.
Höfundur meginmáls er Einar S.
Arnalds. í þessari bók er rakinn annáll
borgarinnar allt frá landnámi Ingólfs og
til ársins 1986. Mikið er af myndum og
teikningum í bókinni. Auk þess eru 35
örnefnakort í bókinni sem hafa að geyma
öll helstu örnefni í borginni.
Stórt yfirlitsverk kemur út hjá Erni og
Örlygi en það er íslandshandbókin. Bók-
in er byggð á bókunum Landið þitt ísland
og hefur að geyma efni sem kemur fólki
■ ■ ■■
að góðum notum á ferðalögum. Bókinni
er skipt niður eftir sýslum. Kort er af
hverri sýslu og öllum helstu stöðum
hennar lýst í stafrófsröð. í bókinni verða
um 1200-1400 litmyndir en engin bók
hefur enn verið gefin út á íslandi með svo
mörgum litmyndum. Ritstjóri er Tómas
Einarsson.
Heimsmetabók Guinnes kemur út í 4.
sinn. Mikið er lagt upp úr íslensku efni.
Ritstjóri íslensks efnis er séra Kristján
Björnsson. Lögbókin þín eftir Björn Þ.
Guðmundsson prófessor verður endurút-
gefin, aukin og endurbætt. Stefán Már
Stefánsson prófessor hefur aukið bókina
ásamt Birni.
íslensk-ensk viðskiptaorðabók eftir
Þóri Einarsson prófessor og Terry Lacy
lektor kemur út. Þegar hefur komið út
ensk-íslensk viðskiptaorðabók við eftir
þau. Atli Magnússon hefur skráð ævisögu
Þorgeirs í Gufunesi. Einnig kemur út
Ævars saga Kvaran sem Baldur Her-
mannsson hefur skráð. Þá má nefna
Flugsögu íslands til stríðsloka en hana
hefur ritað Eggert Norðdahl. Að lokum
er svo gefin út matreiðsluhandbók eftir
Kristínu Gestsdóttur. Bókin er sérstak-
lega ætluð þeim sem vilja léttast en á
sama tíma njóta góðs matar.
Guðmundur Jaki segir sögu sína
í bók frá Vöku-Helgafelli
Einar Heimisson sagnfræðingur verður
með skáldsögu sem heitir Götuvísa gyð-
ingsins. Sagan fjallar um örlög gyðinga-
fjölskyldu sem flýr undan nasistum frá
Þýskalandi og til íslands. Sagan byggir á
staðreyndum sem áttu sér stað á stríðsár-
unum. Fleiri skáldsögur eru í athugun hjá
Vöku-Helgafelli en óvíst er hvort þær
koma út fyrir jólin.
Bókaútgefendur eru sem óðast að taka
ákvörðun um hvaða bækur þeir munu
gefa út í haust. Allar líkur eru á að svipað
verði gefið út af bókum fyrir næstu jól og
gefið var út um þau síðustu. Bókaút-
gefendur eru sammála um að fólk muni
halda áfram að kaupa bækur þrátt fyrir
að talað sé um samdrátt í þjóðfélaginu.
Of snemmt er að spá í metsölubækurnar
en líklegt er að Thor, Guðmundur Jaki,
Hrafn Jökulsson, Bjarni Guðmarsson
o.fl. blandi sér í toppbaráttuna.
Byr jað er að prenta jólabækurnar
Prentun á jólabókunum er löngu hafin.
Þar er einkum um að ræða þýddar
skáldsögur og reyfara. Knútur Signarsson
hjá prentsmiðjunni Odda treysti sér ekki
að segja til um hvort svipað yrði prentað
af bókum hjá þeim og á síðasta ári.
Svipaða sögu var að segja í prentsmiðj-
unni Eddu, en þar var eiginleg jóla-
bókaprentun ekki enn komin í fullan
gang. Bækur koma almennt miklu seinna
til prentunar en áður sem stafar af því að
prentun tekur nú miklu skemmri tíma.
Höfundar eða forlögin koma núna oftast
með handritin á tölvudiskum eða leiser-
prentuð og prófarkalesin. Þessi nýja
tækni gerir það að verkum að bækur
verða ódýrari í prentun.
Ástarsögur seljast verr en áður
Ólafur Ragnarsson formaður félags
íslenskra bókaútgefenda sagði í samtali
viö Tímann að bókaútgefendur áætluðu
að það yrði mjög svipaður fjöldi titla sem
kæmi út í haust og í fyrra eða um 300-400
‘titlar. Þetta liggur ekki fyrir enn því
1
forlögin eru ekki búin að kynna útgáfu-
Iista sína. Bókaútgáfa fer nokkuð eftir
árferði og nú er nokkur óvissa í efnahags-
málum þannig að búast má við því að
útgefendur haldi að sér höndunum. Flest-
ir bókaútgefendur hyggjast haida í horf-
inu en mjög ólíklegt er að þeir fjölgi
titlum. í fyrra varð minnkun í bóksölu.
Samdrátturinn kom fyrst og fremst niður
á afþreyingarbókmenntum s.s. ástarsög-
um og spennusögum. Margir munu sjálf-
sagt gráta það þurrum tárum. Flestir telja
að ástæðan fyrir þessu sé aukið framboð
á afþreyingarefni eins og t.d. myndbönd-
um. Þetta er þróun sem hefur orðið í
öllum grannlöndum okkar. Afþreyingar-
bækur eru nú gefnar út á öllum tímum
ársins og þá einkum í kiljuformi en ekki
innbundnar.
Tíminn hafði samband við flest öll
bókaforlögin og spurðist fyrir um hvaða
bækur kæmu út hjá þeim nú í haust. Sum
forlög gátu eða vildu ekki segja frá
bókunum á þessu stigi. Upptalningin hér
á eftir erþví alls ekki tæmandi. Hún gefur
þó smá innsýn inn í væntanlegt jólabóka-
flóð.
Nýjar bækur eftir Thor, Sjón,
Einar Kárason og fleiri
frá Máli og menningu
Hjá Máli og menningu verða gefnar út
álíka margar bækur og undanfarin ár eða
um 30 bækur fyrir fullorðna, skáldsögur,
ljóð og þýðingar. Álíka margir titlar
verða gefnir út fyrir börn. „Það skiptir
miklu máli að reyna að hafa fram-
leiðsluna hagkvæma og reyna að koma í
veg fyrir miklar verðhækkanir. Ég á von
á að bækur hækki minna en verðbólga
milli ára,“ sagði Halldór Gunnarsson
----------i------
útgáfustjóri hjá Máli og menningu.
Ný skáldsaga kemur út eftir Einar
Kárason. Bókin er sjálfstætt framhald af
eyja-bókunum svokölluðu. Þessi saga
gerist allmiklu seinna og verður síðasta
bókin í þessum flokki. Thor Vilhjálmsson
verður með nýja skáldsögu eða „spennu-
sögu úr undirheimum Reykjavíkur með
sakamála ívafi.“ Sjón verður einnig með
nýja sögu og Kristín Ómarsdóttir sendir
frá sér smásögur. Ný ljóðabók kemur út
eftir Stefán Hörð Grímsson. Gefin verð-
ur út heildarútgáfa á ljóðum Dags Sigurð-
arsonar. Björn Th. Björnsson sendir frá
sér bók sem hefur að geyma bernsku-
minningar hans. Stór bók kemur út eftir
Lúðvík Jósefsson um landhelgismálið og
það sem gerðist á bak við tjöldin.
Stærsta menningarverkið sem Mál og
menning sendir frá sér er upprunaorða-
bók, íslensk orðsifja bók eftir Ásgeir
Blöndal Magnússon. Bókin er 1250 blað-
síður í stóru broti þar sem hægt verður að
fræðast um alla íslenska málsögu. Segja
má að í bókinni liggi allt ævistarf Ásgeirs.
Þorbjörn Magnússon og Unnur Jökuls-
dóttir gefa út athyglisverða bók sem
fjallar um ferðalag þeirra á skútu sem þau
sigldu á í mörg ár um öll heimsins höf
m.a. niður með strönd Afríku, yfir At-
lantshafið og með strönd Suður-Ameríku
og alla leið til Ástralíu.
Meðal þýðinga má nefna stóra rúss-
neska skáldsögu sem heitir Börn Arbas
og er eftir Rybakov. Þetta er áhrifamikil
saga um ungt fólk á tíma Stalíns. Bókin
kom út í Sovétríkjunum í fyrra eftir að
hafa verið bönnuð þar í 25 ár. Bókin
hefur verið þýdd víða um heim. Rybakov
var nýlega kosinn formaður sovésku
Pen-samtakanna. Hann kemur væntan-
lega hingað til lands í nóvember.
Hestabækur koma frá
| bókaforlagi Odds Björnssonar
Hjá Prentverki Odds Bjömssonar á
Akureyri verða gefnir út 5 titlar sem er
svipað og undanf^rin ár. Út kemur annað
bindi af bókinni Jódynur, hestar og
mannlíf í Austur-Skaftafellssýslu. Guð-
mundur Birkir Þorkelsson bjó til prent-
unar. Þetta eru frásagnir af hestum,
ferðalögum ogsvaðilförum. Egill Jónsson
á Seljavöllum, Þorkell Bjarnason og
fleiri skrifa í bókina. Önnur hestabók
kemur út hjá sama forlagi en það er
fimmta bindið af ættbók og sögu íslenska
hestsins eftir Gunnar Bjarnason. Gunnar
birtir einnig í bókinni lok starfssögu
sinnar en hann hefur birt kafla úr henni í
þessum bókaflokki.
Guðjón Sveinsson sendir frá sér smá-
sagnasafn sem heitir Grallarar, spóar og
gott fólk. Ein þýdd skáldsaga kemur út
en það er Sandkorn tímans eftir Sidney
Sheldon.
Bók um ástandsárin frá Tákni
Bókaforlagið Tákn sendir frá sér bæk-
urnar, Islensku ástandsárin eftir þá Hrafn
Jökulsson og Bjarna Guðmarsson. í bók-
inni er fjallað um hemámsárin og sam-
skipti íslendinga við herliðið. Tákn gefur
einnig út bókina Lífið um borð í Gullfossi
en þar er um að ræða frásagnir nokkurra
valinkunnra íslendinga af lífinu um borð
í því fræga skipi. Þorsteinn Antonsson
sendir frá sér örlagasögu Hafnarstúdents-
ins Gísla Guðmundssonar en hann var
fæddur laust eftir miðja 19. öld. Bókin er
heimildaskáldsaga. Gefin verður út bók
sem hefur að geyma nærmynd af Davíð
Oddssyni en það er Eiríkur Jónsson sem
tók hana saman. Jón Örn Marinósson
sendir frá sér bók sem hefur að geyma
greinar og útvarpserindi hans frá liðnum
árum. Ein bamabók kemur út hjá Tákni
en það er Diogenes í tunnunni. Síðan
kemur út bókin Aulabandalagið eftir
Pulitzer-verðlaunahafann John Kennedy
Toole.
Ásgeir Hannes, Hrafn Gunnlaugs-
son, Elín Pálmadóttir o.fl. gefa út
bækur Hjá Almenna bókafélaginu
Nýr höfundur Kristján Kristjánsson
sendir frá sér skáldsögu sem ekki hefur
enn fengið nafn. Kristján hefur áður sent
frá sér 3 ljóðabækur. Nýtt smásagnasafn,
Stórir brúnir vængir, kemur út eftir
Sveinbjörn I. Baldvinsson. Hrafn Gunn-
laugsson verður einnig með smásagna-
safn sem nefnist Þégar það gerist. Þrjár
ljóðabækur koma út. Þær eru Stundir úr
lífi stafrófsins eftir Sigmund Erni Rúnars-
son og ljóðabækur eftir Birgittu Jónsdótt-
ur og Steinunni Ásmundsdóttur.
Ein athyglisverðasta bókin sem Al-
menna bókafélagið gefur út er bók sem
heitir, Snorri á Húsafelli, saga frá 18. öld
eftir Þórunni Valdimarsdóttur sagnfræð-
ing. Þórunn hefur unnið að bókinni í 3
ár. Elín Pálmadóttir sendir frá sér bókina
Frans í Biscay en hún fjallar um frönsku
íslandssjómennina. Elín hefur lagt mikla
vinnu í bókina og meðal annars ferðast
til Frakklands til að afla sér heimilda.
Illugi Jökulsson hefur tekið saman bók
um alla íslensku stórmeistarana. Tveir
íslenskir kennarar hafa tekið saman bók
um brandara í skólum sem heitir Brand-
arar í skólastofunni. Ásgeir Hannes Eir-
íksson hefur skrifað handbók um megrun
sem kemur út nú í haust. Hannes fór
sjálfur í megrun til Bandaríkjanna.
Eftir Egil Ólafsson
Unnið við prentun jólabóka hjá prentsmiðjunni Odda.
Tímamynd: Árni Bjarna
Af þýddum skáldsögum má nefna The
Russia house eftir John le Carré. Sagan
kom út í Englandi í vor. Hún segir frá
þeirri kreppu sem verður í njósnaheimin-
um þegar þíða verður í samskiptum
risaveldanna. Einnig kemur út.ástarsaga
eftir Viktoríu Holt.
Af barnabókum má nefna Víkingaferð
til Surtseyjar eftir Ármann Kr. Einars-
son. Kristín Steinsdóttir verður með bók
sem heitir Stjörnur og strákapör.
Merkasta endurminningabókin er bók
Ómars Valdimarssonar um Guðmund J.
Guðmundsson. Bókin á án efa eftir að
vekja mikla athygli. Þrjár aðrar samtals-
bækur munu að öllum líkindum koma út
en nöfnum þeirra verður haldið leyndum
enn um sinn.
Jóhanna Kristjónsdóttir verður með
framhald af ferðaþáttum sínum. Jóhanna
segir frá kynnum sínum af flökkurum og
forsætisráðherrum í fjarlægum löndum.
Fyrir næstu jól koma út tvær bækur í
flokknum Heimur í hnotskurn. Önnur
heitir Mannkyn í mótun og er þýdd af
Haraldi Ólafssyni mannfræðingi. Hin
heitir Tónlistarhljóðfærin og fjallar um
hvernig hljóðfæri eru notuð í tónlistinni.
Guðmundur Emilsson og Árni Böðvars-
son hafa haft yfirumsjón með þýðingunni
en í henni eru þýdd ýmis orð og hugtök
sem aldrei hafa verið þýdd á íslensku
áður.
Eftir Halldór Laxness kemur greina-
safn frá 3. áratugnum. Eftir Gunnar
Gunnarsson kemur Sonettu sveigur.
Bókin hefur að geyma ástarljóð Gunnars
til Fransisku konu sinnar. Gunnar skrif-
aði ljóðin upp og Gunnar sonur hans
myndskreytti þau í tilefni af gullbrúð-
kaupi þeirra hjóna. Bókin er nú gefin út
ljósprentuð með þýðingu á ljóðunum
sem Helgi Hálfdanarson hefur gert.