Tíminn - 14.12.1989, Qupperneq 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 14. desember 1989
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — Staðfest hefur
verið að Mikhaíl Gorbatsjof
forseti Sovétríkjanna bauðst til
að segja af sér embætti á fundi
miðstjórnar sovéska kommún-
istaflokksins um síðustu helgi
eftir að harðlínumenn höfðu
ráðist harkalega á umbóta-
stefnu hans. Brást Gorbatsjof
reiður við þegar háttsettir
meðlimir kommúnistaflokksins
sögðu að stefna hans væri
röng. Fréttir þessa efnis birtust
á mánudag, en voru ekki stað-
festar fyrr en nú. Þá gerðist
það á þessum vígstöðvum að
Nikolai Ryzkhov forsætisráð-
herra Sovétríkjanna hvatti að-
ildarríki Comecon, viðskipta-
bandalags Austur-Evrópu-
ríkja, til þess að hefja undir-
búning að því að láta viðskipti
innan bandalagsins fara eftir
heimsmarkaðsverði og frjáls
gjaldeyrisviðskipti myndu að
líkindum hefjast árið 1991.
BRUSSEL — Alþjóðagjald-
eyrissjóðurinn mun að líkind-
um veita efnahagsstefnu
pólsku ríkisstjórnarinnarbless-
un sína, en það er grundvöllur
þess að Pólverjar fái milljarða
dollara lán úr sjóðnum.
PARÍS — Francois Mitter-
rand forseti Frakklands tók af
öll tvímæli um það að franska
hernum yrði ekki beitt til að
koma evrópskum málaliðum
frá völdum á Comoro eyjum.
Hins vegar sagði Mitterrand að
Frakkar myndu tryggja þegn-
um sínum á eyjunum fullt ör-
yggi með öllum tiltækum ráð-
um ef þess gerðist þörf. Þrjátíu
málalioar halda nú öllum völd-
um á þessum eyjum í Ind-
landshafi undir forystu hins
reynda franska málaliða Bob
Denard og hafa gert frá því
Ahmed Abdallah forseti lands-
ins féll fyrir byssukúlu 26. nó-
vember, Ríkisstjórnir Frakk-
lands og Suður-Afríku eru enn
í samningaviðræðum við Den-
ard og eru samningamenn
staddir í Moroni höfuðstað eyj-
anna.
KAÍRÓ — Líbýumenn hafa
ákveðið að leggja blessun sína
yfir fund stjórnarerindreka Ar-
abaríkja með embættismönn-
um Evrópubandalagsins í
næstu viku og hafa dregið til
baka hótanir um að setja við-
skiptabann á þau Arabarfki
sem taka þátt í fundarhöldun-
um. Frá þessu gekk Hosni
Mubarak forseti Egyptalands,
en hann dreif sig í heimsókn í
Bedúínatjald Muammars
Gaddafis leiðtoga Líbýu nú í
vikunni.
Suöur-Afríka:
De Klerk forseti Suður-Afríku fékk Nelson Mandela leiðtoga Afríska
Þjóðarráðsins í heimsókn í gær og voru lögð drög að viðræðum blökkumanna
og hvítra um framtíð landsins.
Nelson Mandela leiðtogi Afr-
íska þjóðarráðsins sem setið hef-
ur í fangelsi utanfarna áratugi
sakaður um að vilja kollvarpa
hinum hvítu valdhöfum, hitti
F.W. de Klerk forseta Suður-
Afríku að máli á skrifstofu for-
setans í Höfðaborg. Fundurinn
var haldinn að kröfu Mandela
og var rætt um það hvernig hægt
væri að koma á raunverulegum
viðræðum milli blökkumanna og
stjórnvalda þar sem lagðar yrðu
línurnar fyrir nýja Suður-Afríku
þar sem aðskilnaðarstefnan
heyrði sögunni til.
Viðræðum þessum mun verða
framhaldið strax eftir áramótin, ef
marka má yfirlýsingu dómsmálaráð-
herra Suður-Afríku, sem skýrði frá
fundarhöldunum.
-Forsetinn fagnaði þessu tækifæri
sem væri áframhald viðræðna sem
fyrirrennari hans hafði hafið, auk
þess sem viðræðurnar pössuðu inn í
áætiun De Klerks um að kynna sér
öll viðhorf í stjórnmálalífinu, sagði í
yfirlýsingunni.
Talið er að Nelson Mandela verði
brátt sieppt úr haldi, en slíkt er talið
forsenda þess að viðræður getir haf-
ist milli stjórnvalda í Pretoríu og
leiðtoga Afríska þjóðarráðsins um
framtíð landsins. Fyrsta skrefið í þá
átt var stigið í októbermánuði þegar
sjö öldnum blökkumannaleiðtogum
var sleppt úr fangelsi.
Á fundi Mandela og De Klerks
voru einnig þeir Kobie Coetsee
dómsmálaráðherra og Gerrit Vilj-
oen stjórnarskrárráðherra, en De
Klerk hefur falið honum um að
semja drög að nýrri stjórnarskrá þar
sem aðskilnaðarstefnan verði útlæg
gerð.
Herskáirmúslímarí Kasmír
fengu kröfum sínum
framgengt:
Dóttir
innan-
ríkisráð-
herrans
frelsuð
í gær hlaut Rubia Sayed 23 ára
gömul dóttir Mufti Mohammad
Sayed innanríkisráðherra Indlands
frelsi sitt, en hún hafði verið í
höndum herskárra aðskilnaðar-
sinna múslíma í Kasmír í sex daga.
Mannræningjarnir sem tilheyra
hinni herskáu Þjóðfrelsishreyfingu
Jammu í Kasmír, sem berst fyrir
aðskilnaði Kasmír frá Indlandi,
höfðu hótað að myrða stúlkuna ef
fimm félögum þeirra yrði ekki
sleppt úrfangelsi. Héraðsyfirvöld í
Kasmír sáu sér þann kost vænstan
að sleppa fimmmenningunum og
var Rubia Sayed þá látin laus.
Þjóðfrelsishreyfing Jammu og
Kasmír er stærsta skæruliðahreyf-
ingin sem berst gegn yfirráðum
Indverja. Skipan Mufti Moham-
mads Sayeds sem innanríkisráð-
herra í nýrri stjórn V.P. Singh var
ekki hvað síst hugsuð til að ganga
til móts við múslíma í Kasmír og á
Indlandi öllu, því Sayed er bæði
múslími og frá Kasmír. Sayed er
fyrsti múslíminn sem gegnir emb-
ætti innanríkisráðherra Indlands
og hafði hann aðeins gegnt því
embætti í þrjá daga er dóttur hans
var rænt.
Forystuhlutverki kommúnista-
flokks Búlgaríu nú lokið
UMSJÓN:
Hallur
Mamússon
Forystuhlutverk kommúnista-
flokksins í Búlgaríu er nú á enda
runnið. Miðstjórn flokksins ákvað á
fundi sínum í gær að fara þess á leit
við þing landsins að tvær greinar
stjórnarskrárinnar þar sem kveðið
er á um forystuhlutverk kommún-
istaflokksins verði á brott numdar.
Er talið næsta víst að þingið verði
við þessari bljúgu bón kommúnista-
flokksins.
Það var hin opinbera fréttastofa
Búlgaríu sem skýrði frá þessari
ákvörðun miðstjórnarinnar.
-Búlgarski kommúnistaflokkurinn
hefur látið af forystuhlutverki sínu í
þjóðfélaginu og innan ríkisins, sagði
í frétt fréttastofunnar.
Yfirýsing þessi kom í lok þriggja
daga fundarhalda miðstjórnar
kommúnistaflokksins þar sem framt-
íð flokksins var rædd. Hafa tugþús-
undir manna með kertaljós í hendi
safnast saman fyrir framan höfuð-
stöðvar flokksins í Sofíu þar sem
fundurinn var haldinn og krafist
þannig fullkomins lýðræðis í land-
inu.
Fyrr um daginn í gær hafði komm-
únistaflokkurinn rekið Todor Zhik-
ov fyrrum leiðtoga sinn og forseta
Búlgaríu úrflokknum ásamttveimur
öðrum fyrrum stjórnarnefndar-
meðlimum.
Filippseyjar:
Þingið fær Aquino
víðtæk neyðarvöld
Þingið á Filippseyjum samþykkti í
gær að gefa Corazon Aquino sér-
stakt neyðarvald næstu níutíu daga
til að takast á við efnahagsringulreið-
ina í landinu og koma á röð og reglu
eftir uppreisnartilraunina sem gerð
var gegn henni á dögunum. Mun
Aquino að líkindum undirrita neyð-
arlögin í næstu viku og hefur eftir
það mun frjálsari hendur til ýmissa
efnahagsaðgerða og aðgerða gegn
hugsanlegum uppreisnarseggjum.
Aquino mun fá völd til þess að
fyrirskipa víðtæka vopnaleit og láta
gera skotvopn upptæk, taka yfir
almenningsfyrirtæki og skyld fyrir-
tæki, ákveða verðlag og útdeila mat-
vælum.
Reyndar fékk Aquino ekki öll þau
völd sem hún viidi. Þingið samþykkti
ekki að veita Aquino rétt til að
banna verkföll og afnema lög er
varða vinnumarkað, auk þess sem
hún vildi fá ákveðna heimild til
lagasetningar. Þá hafði Aquinofarið
fram á að neyðarlögin giltu í hálft ár,
en þingið fékk henni neyðarvöld í
einungis þrjá mánuði.
Skref stigiö í átt til friðar í Miðausturlöndum:
Arafat býður fsraelum
til viðræðna í Varsjá
Yasser Arafat leiðtogi Palestínumanna hefur boðið ísraelum til
friðarviðræðna í Varsjá, höfuðborg Póllands. Frá þessu skýrði pólska
utanríkisráðuneytið í gær.
Stefan Staniszewski talsmaður utanríkisráðuneytisins sagði að Jan
Majewski utanríkisráðherra Póllands hefði hitt Arafat að máli í Túnis í
gær og hefði Arafat farið þess á leit við Majewski að hann kæmi boðinu
um fríðarviðræður til fsraela.
-Við munum upplýsa ísraela um að Pólverjar bjóða bæði Palestinu-
menn og ísraela velkomna til Póllands, sagði Staniszewski við fréttamenn
í gær.
Talsmaður sendiráðs Palestínu í Varsjá staðfesti að Arafat hefði Jagt
tilboðið fyrir Majewski, en ísraelskir stjórnareríndrikar neituðu að tjá sig
um málið að sinni.
Majewski utanríkisráðherra Póllands var staddur í Tunis til að ræða við
forsvarsmenn PLO um þær fyrirætlanir Pólverja að taka upp stjórnmála-
samband við ísraela að nýju í byrjun næsta árs.