Tíminn - 17.05.1990, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 17. maí 1990
Tíminn 3
Úthafskarfaveiðum togara Sjólastöðvarinnar lokið:
327 tonn af úthafs-
karfa á fjórum vikum
Úthafskarfaveiðum togara Sjólastöðvarínnar í
Hafnarfirði er lokið að sinni. Að sögn Helga Kríst-
jánssonar hjá Sjólastöðinni gengu veiðamar að
þessu sinni þokkalega. Samanlagt komu togaramir
tveir með um 327 tonn að landi.
Togarar Sjólastöövarinnar fóru á
úthafskarfaveiðamar þann 20 apríl
sl. Sjóli HF 1 kom aö landi eftir 24
daga veiðiferð með um 130 tonn af
frystum karfa og í gær var Haraldur
Kristjánsson HF 2 á landleið, eftir
27 daga veiðiferð með um 197 tonn,
en áætlað var að hann legðist að
bryggju um miðnætti. Karfinn er
hausaður og ffystur um borð. Nokk-
uð er um sníkjudýr í karfanum, en
að sögn Helga er karfinn fyrsta
flokks vara, þegar búið er að hreinsa
karfann með sníkjudýrunum ffá.
Togarar Sjólastöðvarinnar fóru á
þessar veiðar í fyrra. Að sögn Helga
var árangurinn að þessu sinni betri
en þá. Að auki hefúr sala afúrðanna
gengið betur, en allur karfinn fer nú
á Japansmarkað, en í fyrra var hann
seldur til Kóreu og fieiri landa íyrir
mun lakara verð en nú. „Það er tölu-
verð eftirspum eftir karfanum nú,“
sagði Helgi. Meðalverð á kíló er um
80 krónur, þegar miðað er við fob.-
verð. Búast má við að Sjóli og Har-
aldur Kristjánsson fari aftur á þessar
veiðar eftir miðjan júní, en á meðan
verður haldið á grálúðu.
Uppbótin sem togaramir fá fyrir að
fara á þessar veiðar em 10 tonn af
grálúðu fyrir hvem dag eftir 7 daga
veiðiferð, en þó að hámarki 14 dag-
ar. Þannig að uppbótin getur aldrei
orðið meiri en 140 tonn. Aðspurður
sagði Helgi að óneitanlega væri
þetta ágætis búbót. „Það er svo ro-
saleg skerðingin í grálúðunni að það
nær engu tali. Ef við hefðum þetta
ekki þá veit ég ekki hvað við gerð-
um,“ sagði Helgi.
Aðspurður hvort það væri hag-
kvæmt fyrir þá að senda skipin á
þessar veiðar, sagði Helgi að þær
skiluðu ekki miklu. „Við litum samt
svo á að betra væri að senda skipin á
þessar veiðar en að láta þau liggja í
höfn,“ sagði Helgi. Hvað þessar
veiðar skila miklum verðmætum að
ffádregnum öllum kostnaði hefur
ekki endanlega verið reiknað út, en
Helgi sagði að búast mætti við 3 til 4
milljónum. „Það saxar aðeins á.
Betra en að borga hafnargjöldin á
meðan,“ sagði Helgi. 130 tonnin gera
um 11 milljónir króna. Laun mann-
anna um borð eftir mánuðinn em um
110 til 150 þúsund, eftir íjögurra
vikna úthald.
Skipin notuðu svokallaða stoppdaga
til þessara veiða. Hafnarfjarðartogar-
inn Ymir fór einnig á úthafskarfann
en er komrnn heim á ný. Veiðisvæðið
sem skipin vom á er rétt vestan við
Reykjaneshrygginn um 250 til 400
mílur suður af Reykjanesi. 27 skip
vom á þessum slóðum í fyrradag. Þar
af 6 norsk skip, A-Þjóðveijar, 3 jap-
önsk skip, auk skipa ífá öðmm þjóð-
um. ABÓ
Áhöfnin í síðasta flugi DC8 í áætlunarflugi fýrir Flugleiðir. Frá vinstri: Hrafnhildur Ármannsdóttir, Auður Guð-
mundsdóttir og Sigurlín Scheving flugfreyjur, Óiafur Frostason flugmaður, Magnús Nordal flugstjóri, Búi Snæ-
bjömsson flugvélstjóri, Gyða Þórhallsdóttir fyrsta freyja, Þórey Jónmundsdóttir og íris Hilmarsdóttir flugffeyj-
ur og Sigurður Helgason, forstjóri Flugleiða.
Garðlöndin að Korpúlfsstöðum fara undir íbúðabyggð:
SETT NIÐUR í
SÍÐASTA SINN
Flugleiðir fengu
fyrstu DC8-63 vél-
arnar fyrir 20 árum
Átturnar
kveðja
Sl. sunnudag lauk merkum kafia í
íslensku fiugsögunni þegar DC8 þota
fiaug síðasta áætlunarfiug sitt fyrir
Flugleiðir. Þá vantaði aðeins einn
dag upp á að 20 ár væm liðin ffá því
er Loftleiðir, forveri Flugleiða, tóku
„áttumar" fyrst í notkun. Þotufiug
Loftleiða hófst 14. maí 1970 með
DC8-63 vél og fyrirtækið tók aðra
sömu tegundar í notkun skömmu síð-
ar. Flugstjóri í fyrstu ferðinni var
Dagfinnur Stefánsson.
Áttutímabilinu lauk 13. maí 1990,
þegar Vesturfari Flugleiða lenti á
Keflavíkurflugvelli. Flugstjóri í
þessari síðustu ferð var Magnús Nor-
dal, Ólafúr Frostason var flugmaður,
Búi Snæbjömsson flugvélstjóri og
Gyða Þórhallsdóttir fyrsta fiugfreyja.
Mest höfðu Flugleiðir 5 DC8 þotur í
fomm en síðasta eina og hálfa árið
vom þær tvær. Þessar flugvélar hafa
dugað Flugleiðum mjög vel í Norð-
ur- Atlantshafsflugi en eftir því sem
nýjar, spameytnari og hagkvæmari
flugvélar hafa komið á markað hefúr
samkeppnin reynst erfiðari. Flugleið-
ir seldu allar eldri flugvélar sínar í
fýrra og hitteðfyrra. Þær vom svo
leigðar félaginu þar til nýjar flugvél-
ar komu í flotann í vor og fyrravor.
Áttumar vom seldar breska fyrirtæk-
inu Electra Aviation sem mun leigja
þær áfram.
Um leið og áttumar hverfa úr rekstri
flugleiða taka nýjar Boeing 757 þotur
að fullu við Norður- Atlantshafsflugi
félagsins. Þótt fjármagnskostnaður
vegna kaupa þeirra sé mikill gerir
hagkvæmari rekstur meira en vega
það upp. Jafnframt er markaðsstaða
fyrirtækisins nú betri þar sem allur
millilandaflugfloti verður nýr í sum-
ar og hinn yngsti meðal millilanda-
flugfélaga í Evrópu. B757 flugvél-
amar em með um 19% færri sæti en
DC8 vélamar en geta farið fleiri ferð-
ir. Sætaffamboð verður því svipað.
Sigrún Magnúsdóttir, borgarfúlltrúi
Framsóknarmanna, lagði fyrir
nokkm fram tillögur í borgarráði
m.a. um að í borgarskipulagi yrði
gert ráð fyrir nýjum garðlöndum
borgarbúa í stað kartöflugarðanna að
Korpúlfsstöðum sem byrjað er að
setja niður í - í síðasta sinn. Svæðið
hefúr verið skipulagt fýrir ibúða-
byggð.
I tillögum Sigrúnar var gert ráð fýr-
ir því að borgin hlúði betur að hinum
mannlega þætti meðal þegna sinna á
ýmsa lund, m.a. með þvf að leggja
reiðvegi og auðvelda umferð hesta-
fólks um borgarlandið o.fl. Jafnframt
yrði í borgarskipulagi gert ráð fýrir
litlum borgargörðum þar sem fólki
gæfist kostur á að reisa smáhýsi og
rækta matjurtir og blóm en borgin
sæi um að afmarka lendumar með
skjólbeltum.
Þessar tillögur Sigrúnar voru ein-
róma samþykktar í borgarráði en hins
vegar er ekki enn búið að fella efúis-
atriði þeirra að ramma skipulags
borgarinnar. En er það þá í síðasta
sinn á þessu vori sem íbúum Reykja-
víkur gefst kostur á að vera með kart-
öflugarð innan borgarlandsins? Jó-
hann Pálsson garðyrkjustjóri: „Nei,
ekki er það svo. Nýr staður fýrir kart-
öflugarða hefur þó ekki verið fast-
ákveðinn enn, en mestar líkur eru þó
á þessari stundu á því að garðlöndin
verði ffamvegis í landi Úlfarsár."
Garðyrkjustjóri sagði að hingað til
hafi verið hægt að sinna öllum ósk-
um um garðlönd. Eftirspum hafi ver-
ið nokkuð mismunandi ffá ári til árs -
mikil eftir góð sumur og góða upp-
skem en minni þegar verr hefúr árað.
Þeir sem vilja gerast handhafar
garðlanda, sækja um land hjá garð-
yrkjustjóra borgarinnar og greiða
leigugjald. Gjald þetta stendur undir
kostnaði við girðingar, eftirlit og
jarðvinnslu. —sá
Vor í vesturbæ er kjörorð hreinsunar-
vikunnar sem nú stendur yfir í vestur-
bænum í Reykjavík á vegum íbúa-
samtaka þessa borgarhluta. Sérstakt
átak verður helgina 19. og 20. maí.
Ruslapoka, sem fást ókeypis í versl-
unum á svæðinu, má skilja eftir á
Sendiherra Frakka, Jacques Mer,
sæmir Sigurð Pálsson orðu bók-
mennta Og lÍSta. (Timamynd Aml).
Riddaraorða
fyrir bók-
menntastörf
Föstudaginn 4. maí sl. boðaði franska
sendiráðið til athafnar í Iðnó, þar sem
Sigurður Pálsson rithöfundur tók við
ffanskri orðu riddara bókmennta og
lista úr hendi sendiherra Frakka hér á
landi, Jacques Mer. Þessi sama orða
hafði verið veitt Thor Vilhjálmssyni
rithöfundi fýrir nokkru, en hún er
veitt eftir' sérstakri ákvörðun mennta-
málaráðherra Frakka, sem nú er Jack
Lang. Að sögn Mer sendiherra er
mikillar hófsemi gætt við veitingu
hennar.
Sendiherrann ávarpaði Sigurð og
gat um starf hans að því að kynna
ffanska menningu hér á landi með
ljóðaþýðingum og á margvíslegan
annan hátt. í þakkarræðu sinni árétt-
aði Sigurður Pálsson sterk tengsl sín
við franskan menningarheim og
þakkaði íslenskum skáldum er hefðu
orðið til að kynna sér ungum mörg
ffönsk úrvalsskáld með þýðingar-
störfum, svo sem þeirra Jóns Oskars
og Sigfúsar Daðasonar. Varpaði hann
ffam þeirri hugmynd að vís grund-
völlur væri fýrir starfrækslu á lat-
neskri menningarmiðstöð hér á landi
í líkingu við norræna húsið.
Margmenni var við athöfnina, leik-
inn var tvíleikur á flautur og lesin
ljóð er Sigurður hefúr þýtt úr frönsku
og textinn á frummálinu til saman-
burðar.
Kvikmyndamenn:
Virðisaukaskatt
á myndbönd
Kvikmyndagerðarmenn, kvik-
myndaframleiðendur og - leikstjórar
telja að nái tekjuákvæði frumvarps
um Kvikmyndastofnun ffam að
ganga óbreytt, verði stutt í að íslensk
kvikmyndagerð leggist af í eitt skipti
fyrir öll.
Frumvarpinu er ætlað að bæta
stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar.
Kvikmyndamenn telja að frumvarp-
ið sé því miður ekki líklegt til að
skila árangri því að í því sé gert ráð
fýrir framlagi sem tryggi gerð aðeins
einnar myndar á ári. Reynsla síðustu
tíu ára sýni hins vegar að kvik-
myndagerð geti ekki þrifist hér nema
að framleiddar séu minnst fjórar
myndir á ári.
Til að bæta hér úr leggja forsvars-
menn félaga kvikmyndamanna til að
virðisaukaskattur verði lagður á
leigu myndbanda og andvirði hans
renni til innlendrar kvikmyndagerð-
ar. —sá
gangstéttum þar sem þeir verða tekn-
ir. Ruslagámar verða í Selsvörinni,
auk gáma hreinsunardeildar í Litla
Skerjafirði.
Ibúasamtök vesturbæjar ná yfir
gamla vesturbæinn, sunnan hring-
brautar, auk Bráðræðisholts.
Vor í vesturbæ