Tíminn - 21.06.1990, Side 4
4 Tíminn - *
Fimmtudagur-21. júní.1990
HHHI ÚTLÖND ;—
Gorbatsjov:
Hætti sem leiðtogi
kommúnistaflokksins
Míkael Gorbatsjov. i vanþakklátu starfi.
FRÉTTAYFIRLIT
BONN - Haft var eftir Hel-
mút Kohl kanslara V-Þýska-
lands að hann vænti þess að
Austur- og Vestur-Þýska-
land sameinist 9. desember
næstkomandi. Hann hafði
áður sagt leiðtogum ríkis-
stjórnarflokkanna að þetta
væri líklegasta dagsetning
kosninga í öllu Þýskalandi
sem Ijúka munu 40 ára
klofningi landsins.
BÚKAREST - Forsetinn
Jón lliescu hét því að leiða
Rúmeníu áfram á braut til
lýðræðis og sagðist vilja
vinna bug á því sem hann
kallaði siðferðilegri hnignun
landsins. Engir fulltrúar
Bandaríkjastjórnar voru við-
staddir embættistöku lliesc-
us en hún vill mótmæla því
að ríkistjórn hans sendi
námuverkamenn til að berja
á andstæðingum ríkistjórn-
arinnar.
NEW YORK - Nelson
Mandela kom til New York-
borgar og fékk ofsafengnar
móttökur. Hann lýsti því að
hann „sæi Ijós við enda
ganganna" og boöaði enda-
lok stjórnar hvítra manna í
S-Afríku og aðskilnaðar-
stefnunnar.
JERÚSALEM - Samtök
gyðinga í heiminum, en
stuðningur beirra er mikil-
vægur fyrir Israel, hættu við
að samþykkja ályktun gegn
búsetu sovéskra gyðinga á
herteknu landi araba eftir
harðar umræður. Forsæti-
ráðherra Israels, Yizhak
Shamir, sagði Heimssam-
tökum Zíonista að hótun um
stríð vegna sovéskra gyð-
inga væri bragð araba sem
vildu hefta flutning gyðinga
til ísraels.
HUNTSVILLE, Alabama -
Talsmaður Hvíta hússins
sagði að forseti Bandaríkj-
anna, Georg Bush, gæfi út
yfirlýsingu seinna um daginn
(miðvikudag) sem fjallaði um
frelsisamtök Palestínu-
manna, PLO. Búist var við
því að Bush myndi slíta við-
ræðum við PLO sem staðiö
hafa í 18 mánuði.
LA BAULE, Frakkland -
Forseti Frakklands skoraði á
leiðtoga Vesturlanda að fara
að dæmi Frakka og minnka
skuldabyrði Afríkuríkja.
Hann sagði meiri þörf á því
en kennslustundum í lýð-
ræði.
Leiðtogi Sovétríkjanna, Míkael
Gorbatsjov, sagði á miðvikudag
að hann yrði ef til vill ekki leiðtogi
kommúnistaflokks Sovétríkjanna
eftir nokkra daga. Hann hefur orð-
ið að sæta harðrí gagnrýni á þingi
rússneskra kommúnista sem hafa
ákveðið að stofría eigin kommún-
istaflokk. Það var ekki Ijóst hvort
Gorbatsjov var að hóta því að
segja af sér eða hvort hann bygg-
ist við að verða settur af á þingi
sovéskra kommúnista í næsta
mánuði.
Gorbatsjov er forseti Sovétríkjanna
auk þess að vera leiðtogi sovéskra
kommúnista. Hann hefúr reynt að
halda flokknum saman en honum hef-
ur gengið æ verr að feta meðalveg
milli róttækra umbótamanna og
þeirra sem vilja hægfara breytingar. I
nýstofhuðum flokki rússneskra
kommúnista eru harðlínumenn ráð-
andi og þeir hafa gagnrýnt Gorbat-
sjov harðlega. Meðal annars gaf Jeg-
or Lígatsjov í skyn í gær að hann ætti
að segja af sér formennsku í komm-
únistaflokknum og sakaði hann um
að taka ákvarðanir um mikilvæg mál-
efni án samráðs við flokksfélaga sína.
í fréttaskýringum Reuters frá
Forsætisráðherra Frakklands, Mich-
el Rocard, hefur samþykkt tillögur
nefndar um franskt tungumál sem
gera eiga rétta stafsetningu auðveld-
ari. í tillögunum „Conseil Superieur
de la Langue Francaise" er Iagt til að
hætt verði að nota bandstrik í orðum
eins og „picque- nique“ sem verði
skrifað „picquenique“ en í ensku er
þetta orð skrifað „picnic". I tillögun-
um er líka gert ráð fyrir að broddum
yfir stöfúm verði fækkað en Frakkar
hafa brodda yfir stöfum sem halla
í frétt Tass fréttastofunnar í gær
sagði að þing Mið-Asíulýðveldisins
Úsbekistans hefði lýst yfir fúllveldi.
Þetta dregur enn úr völdum Gorbat-
sjovs. I ályktun, sem samþykkt var á
fyrstu samkomu nýkjörins þings, var
sagt að lög lýðveldisins giltu ofar
sovéskum lögum og að öll innanrik-
is- og utanríkismál heyrðu nú undir
stjóm lýðveldisins. Orðalag yfirlýs-
ingarinnar er líkt og í yfirlýsingu
Á þriðjudag ákváðu ríkisstjómar-
flokkar vestur-þýsku ríkisstjómar-
innar að viðurkenna vestur-landa-
mæri Póllands en Pólverjar fengu
mikil landsvæði frá Þjóðverjum í lok
seinni heimsstyrjaldar. Aðeins sjö
meðlimir ríkisstjómarinnar greiddu
atkvæði gegn ályktun um þetta sem
nú er talið ömggt að verði samþykkt
Bandaríkjunum segir að nú sé í æ rík-
ari mæli litið á Gorbatsjov sem hug-
rakkan leiðtoga sem opnaði dymar
fýrir öflugum umbótaöflum sem hann
á endanum gæti ekki ráðið við.
„Verður Gorbatsjov sá maður í sög-
unni sem opnaði flóðgáttina en varð
fýrir flóðinu?" spyr Dimitri Simes,
sérfræðingur í málefnum Sovétríkj-
ýmist áfram eða afturábak auk tví-
brodda. Þessar breytingar snerta um
] 200 orð í frönsku og verða teknar
upp í skólum á næsta ári.
Frakkar halda mjög fram tungumáli
sínu í samskiptum við aðrar þjóðir. í
síðustu viku mótmælti Mitterand for-
seti því við forseta Evrópubandalags-
ins að enska væri nær eingöngu notuð
í sumum stofnunum bandalagsins í
Brassel. Hann sagði að Frakkar væra
ákveðnir í að berjast gegn aukinni
notkun ensku.
rússneska þingsins um fullveldi 8.
júní. Þjóðemisátök hafa átt sér stað í
Úsbekistan að undanfomu. Eystra-
saltslöndin, Rússland og Úsbekistan
hafa nú öll lýst því að lög þeirra séu
æðri lögum Sovétríkjanna og að þau
séu fullvalda en aðeins Lithaugaland
hefur lýst þvi yfir að það telji sig ekki
vera lengur hluta af Sovétrikjunum
og sé sjálfstætt ríki.
á þingum beggja þýsku ríkjanna.
„Við verðum nú að greiða fyrir sam-
einingunni með þessum hætti, eða
eiga á hættu alþjóðlega einangran",
sagði Theo Waigel, fjármálaráðherra
V-Þýskalands, sem áður hafði likt og
Kohl kanslari neitað að ábyrgjast
landamærin og sagt að sameinað
Þýskaland gæti eitt viðurkennt þau.
anna. Það gæti komið í ljós á ráð-
stefnu sovéskra kommúnista 2. júlí. Á
þeirri ráðstefnu mun Gorbatsjov ef til
vill segja af sér stöðu sinni sem leið-
togi kommúnistaflokksins en hann
gæti reynt að efla stöðu sína sem for-
seti Sovétríkjanna um leið og hann
hættir að stjóma flokki sem verður æ
óvinsælli. Embættismenn í Banda-
rikjunum hafa velt því fýrir sér hvort
Gorbatsjov stefni að því að firra sjálf-
an sig ábyrgð á efnahagsmálum
landsins með því að koma á forseta-
embætti að franskri fýrirmynd þar
sem forsetinn einbeitir sér að utanrík-
is- og öryggismálum en lætur ríkis-
stjómina sinna vanþökkuðum efna-
hagsmálum. Ónefndur embættismað-
ur bandarisku ríkisstjómarinnar
sagði: „Fyrir Gorbatsjov er tvennt
sem skiptir máli, að bjarga Sovétrikj-
unum og að bjarga sjálfúm sér. Hvort
tveggja er mikilvægara en að bjarga
kommúnistaflokkinum".
Simes segir áð á ráðstefnu sovéska
kommúnistaflokksins gæti Gorbat-
sjov orðið að taka ákvörðun um hvort
hann gengur heilshugar til liðs við
umbótamenn eða að flokkurinn
klofni að öðram kosti. Gorbatsjov
hefúr ffemur verið eins og drekabani
en húsasmiður. „Við dáumst að
drekabönum en aðeins í fjarlægð.
Þeir sem verða að vera með þeim á
vígvellinum era ekki eins hrifnir".
sagði Simes. „Leiðtogar era á endan-
um dæmdir fýrir það sem þeim tekst
að byggja upp en ekki fýrir það sem
þeim tekst að eyðileggja", bætti hann
við.
Nú er nóg framboð af vörum (Póllartdl en færri hafa efni á að kaupa
þær.
Pólland:
Verðlagið
hækkar meir
en kaupið
Rauntekjur i PóUandi minnk-
uðu enn í maí og stærstu verka-
lýðssamtök landsins sögðu í gær
að miklar verðhækkanir í næsta
mánuði myndu gera venjulegu
fólki enn erfiðara að framfleyta
sér. Tölur hagfræðistofnunar-
innar GUS sýna að rauntekjur
minnkuðu um meira en 6 af
hundraði í maí og hafa minnkað
um 35.1% frá áramótum eftir að
ríkisstjórnin hóf strangar að-
haldsaðgerðir sem rétta eiga af
efnahag landsins. Tölurnar
sýndu líka að nokkrum árangri
hefur verið náð í baráttunni við
verðbólgu en hún var „aðeins“
1176% míUi ára í maí og hafði
lækkað um 90% frá því i febrúar
þegar hún náði hámarki og var
1266%. í apríl hækkaði verðlag
aðeins um 5% en um 8.1% í.
mánuðinum á undan.
Að sögn verkalýðshreyfingar-
innar OPZZ hefur rikisstjórnin
sagt verkalýðsleiðtogum að 1.
júlí hygðist hún tvöfalda verð á
jarðgasi, heitu vatni og mið-
stöðvarhitun. Verð á rafmagni á
að hækka um 80%, póstburðar-
gjald um 60% og sjónvarps-
áskrift um 50%. I tilkynningu
OPZZ segir að verðhækkanirn-
ar muni bitna harðast á ellilíf-
eyrisþegum og fjölskyldum
verkamanna. Leiðtogi OPZZ,
Alfred Miodowicz hefur boðið
leiðtoga Samstöðu Lech Walesa
og Öðrum verkalýðsleiðtogum tU
fundar á föstudag tU að ræða
þessar verðhækkanir. Blað Sam-
stöðu, Gazeta Wyborcza sagöi aö
Samstððu hefði líka verið tU-
kynnt um verðhækkanirnar og
að hún væri að móta svar sitt við
þeim.
Frönsk stafsetning:
Broddum fækkar
og bandstrikum
Úsbekistan lýsir
yfir fullveldi
Vestur-Þjóðverjar:
Viðurkenna landamæri