Tíminn - 29.12.1990, Side 2
£ nnimJT
2 Tíminn
. 069 r isdrna^h j-V i i i
Laugaraagur 29. desember 1990
Kveikt í brennum milli níu og tíu
Búast má við að kveikt verði í
flestum brennum á höfuðborgar-
svæðinu milli kl. 21.00 og 22.00 á
gamlárskvöld.
í Hafnarflrði verður brenna við
Reykjanesbraut ofan Hvamma-
brautar, í Garðabæ verður brenna í
Krókamýri og f Bessastaðahreppi
verður brenna á sjávarbakkanum í
Gestshúsalandi. I Kópavogi verða
brennur yst á Kársnesi, í Vatns-
endahverfi og við Kópavogshæii.
í Mosfellsbæ verða brennur við
Hafravatnsveg ofan Reykholts, f
Mosfellsdal, sunnan Teigahverfis
og vestan Brekkutanga. Á Akur-
eyri verða brennur vestan Hlíða-
brautar gegnt Gúmmívinnustof-
unni og við Bárufellsklöpp í Gler-
árhverfi.
í Tímanum í gær birtist listi yfir
allar brennumar í Reykjavík.
khg.
Alþingismenn spyrja um réttarstöðu glasabarna,
ferðakostnað ráðherra, sérþjálfaðar leynisveitir o.fl.:
Spurt um sjálfsvíg
á síðustu 10 árum
Ingi Bjöm Albertsson alþingismað-
ur hefur lagt fram á Alþingi fyrir-
spum til dómsmálaráðherra um
sjálfsvíg á síðustu 10 ámm.
STAÐGREIÐSLA
Skatthlutfall
og persónuafsláttur
árið 1991
Aríðandi er að launagreiðendur kynni sér
rétt skatthlutfall og skattafslátt 1991
Þrátt fyrir breytingar á almennu skatt-
hlutfalli og persónuafslætti verða ný
skattkort ekki gefin út til þeirra sem
þegar hafa fengið skattkort.
Frá og með 1. janúar 1991 ber launa-
greiðanda því að reikna staðgreiðslu af
launum miðað við auglýst skatthlutfall
og upphæð persónuafsláttar og taka
tillit til þess hlutfalls persónuafsláttar
sem tilgreint er á skattkorti launamanns.
Ný skattkort sem gilda fyrir árið 1991
verða einungis gefin út til þeirra sem
öðlast rétt til þeirra í fyrsta sinn. Á þeim
verður aðeins tilgreint hlutfall persónu-
afsláttar auk persónubundinna upplýs-
inga um launamanninn en skatthlotfall
og upphæð persónuafsláttar kemur þar
ekki fram.
Frá og með 1. janúar 1991 eru fallin úr
gildi eftirfarandi skattkort: Skattkort
með uppsöfnuðum persónuafslætti og
námsmannaskattkort útgefin 1988-1990.
Skatthlutfall
staðgreiðslu er 39,79%
Áárinu 1991 verður skatthlutfall
staðgreiðslu 39.79%. Skatthlutfall
barna, þ.e. sem fædd eru 1976 eða
síðar, verður 6%.
Persónuafsláttur
er22.831 kr.
Persónuafsláttur ársins 1991 hefurverið
ákveðinn 273.969 kr. Mánaðarlegur
persónuafsláttur verður þá 22.831 kr.
Sjómannaafsláttur
er 630 kr.
Sjómannaafsláttur ársins 1991 verður
630 kr. fyrir hvern dag sem maður telst
stunda sjómannsstörf.
Breytingar síðar á árinu
Breytingar sem kunna að verða á upp-
hæð persónu- og sjómannaafsláttar
síðar á þessu ári verða auglýstar sér-
staklega. Auk þess fá allir launagreið-
endur sem hafa tilkynnt sig til launa-
greiðendaskrár RSK orðsendingu um
breytingar á fjárhæðum.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
Spurt er um aldur þeirra sem féllu
fyrir eigin hendi, skiptingu milli
kynja og hvenær ársins sjálfsvígin
voru framin. Einnig er ráðherra
spurður hvort einhver rannsókn
hafi farið fram á ástæðum sjálfsvíga
og hvort áform séu um fyrirbyggj-
andi aðgerðir. Þá er beðið um að í
svarinu, sem á að vera skriflegt,
verði tilgreindar ástæður sjálfsvíga í
þeim tilvikum þegar um það er vit-
að.
Ingi Björn hefur lagt fram aðra fyr-
irspurn af allt öðrum toga. Hann
spyr forsætisráðherra hvort hann
áformi að beita sér fyrir því að dag-
peningakerfi ráðherra ríkisstjórnar-
innar verði afnumið. Ingi Björn
kallar þetta kerfi „ferðahvetjandi" í
fyrirspurninni.
Guðrún Helgadóttir alþingismaður
hefur lagt fram fyrirspurn til dóms-
málaráðherra um réttarstöðu barna
sem getin eru við tæknifrjóvgun. í
fyrirspurninni vísar Guðrún til
þingsályktunar Alþingis frá árinu
1986 um að kanna réttarstöðu
barna, sem getin eru við tækni-
frjóvgun, og aðstandenda þeirra.
Þá hefur Hjörleifur Guttormsson
alþingismaður lagt fram fyrirspurn
til forsætisráðherra um sérþjálfaðar
leynisveitir hérlendis. Hjörleifur
spyr hvort hér á landi hafi starfað,
frá árinu 1951, sérþjálfaðir hópar
eða leynisveitir með tengsl við ís-
lensk stjórnvöld, NATO eða CIA til
að bregðast við hugsanlegu hernámi
landsins af hálfu Sovétríkjanna. f
þessu sambandi vísar Hjörleifur til
nýlegra uppljóstrana í löndum Vest-
ur-Evrópu um tilvist sérþjálfaðra
leynisveita. -EÓ
Aramóta-
veðrið vel
viðunandi
Horfur eru á sæmilegu veðri um
áramótin. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu er gert ráð fyrir
hægri norðanátt á landinu með élj-
um norðanlands og bjartviðri syðra.
Frost á bilinu 3 til 8 stig verður á
landinu öllu. Allt útlit er því fyrir að
snjórinn haldist áfram í byggðum.
Samkvæmt upplýsingum frá Vega-
gerð ríkisins er sæmilega góð færð
víðast hvar um land. Það er fært
austur um Suðurland, austur á ftrði
og á Austjörðum. Einnig er fært um
Hvalfjörð, vestur á Snæfellsnes,
vestur um Dali og vestur í Reykhóla-
sveit og Gufudalssveit. Það er fært
norður Holtavörðuheiði og mokað
var norður Strandir í gærmorgun.
Þá á einnig að vera fært til ísafjarðar.
Eins er fært um Botns- og Breiða-
dalsheiði fyrir vestan. Þá er fært á
Siglufjörð um Öxnadalsheiði og eins
er fært austur til Húsavíkur. Á með-
an veður helst tiltölulega óbreytt
verður stærsti hluti vegakerfisins
því fær um þessi áramót. GS.
Nýr aðstoðarmaður
landbúnaðarráðherra
Álfhildur Ólafsdóttir, sem starfað
hefur sem aðstoðarmaður landbún-
aðarráðherra frá haustinu 1988,
lætur af störfum nú um áramótin.
Hún mun snúa sér að búskap að
Akri í Vopnafirði sem hún stundar
þar ásamt fjölskyldu sinni.
Við starfi aðstoðarmanns landbún-
aðarráðherra tekur Gunnlaugur
Júlíusson hagfræðingur, sem hefur
starfað í landbúnaðarráðuneytinu
frá því í febrúar s.l. Gunnlaugur hef-
ur áður starfað m.a. sem ráðunautur
hjá búnaðarsamböndum í Eyjafirði
og á Vestfjörðum og sem hagfræð-
ingur hjá Stéttarsambandi bænda.
khg.