Tíminn - 29.12.1990, Blaðsíða 11
INNLENDUR
ANNÁLL
1990
Janúar
íslandsbankinn
opnar
fslandsbanki opnaði með pompi
og prakt í janúar. Samanlagður
fjöldi afgreiðslustaða þeirra fjög-
urra banka sem sameinuðust í ís-
landsbanka voru 38 við opnun,
þar af 18 í Reykjavík. En þeir fjór-
ir bankar sem sameinuðust voru
Útvegsbanki, Verslunarbanki,
Iðnaðarbanki og Alþýðubanki.
Samvinnu-
bankinn seldur
Meirihluti í Samvinnubankanum
var seldur til Landsbankans í
janúar. Þá ákvað stjórnarfundur
Sambands íslenskra samvinnufé-
laga að ganga að tilboði Lands-
banka íslands um kaup á hluta-
bréfum Sambandsins í Samvinnu-
bankanum. Landsbankinn eign-
aðist þar 52% í
Samvinnubankanum og greiddi
605 millj. króna fýrir.
Krossanes-
verksmiðjan
brennur
Árið 1990 byrjaði með fréttum af
brunanum í Krossanesverksmiðj-
unni sem átti sér stað aðfaranótt
gamlársdags. Bruninn olli gífur-
legu tjóni, verksmiðjuhúsið stór-
skemmdist og öll klæðning eyði-
lagðist. Mikið af tækjum eyði-
lagðist einnig, þar á meðal töívu-
kerfi verksmiðjunnar. Geir
Zoega, framkvæmdastjóri verk-
smiðjunnar, sagði að þessi bruni
væri ekki dauðadómur yfir verk-
smiðjunni.
Þjóðarþotan
seld
Ríkisþotan, eða öðru nafni þjóð-
arþotan, var seld fyrir 440 millj-
ónir króna í janúar. Fyrirtækið
sem keypti þotuna var Atlanta hf.
Ríkisábyrgðarsjóður hafði inn-
leyst ferþegaþotuna til sín tæpu
ári áður frá Arnarflugi, sökum
þess að ekki var staðið við kaup-
skilmála vegna hennar sem ríkið
gekkst í ábyrgð fyrir. Tvö önnur
kauptilboð bárust í þotuna, frá
Arnarflugi og frönsku flugfélagi,
en boð Atlanta hf. var hæst og því
var því tekið.
Buddan er
hagfræðingur
almennings
Sagt var frá könnun Félagsvís-
MIKIL LEIT fór fram að ungum Breta sem hélt einn og illa búlnn af stað í þeim tiigangi að klífa Hvannadalshnjúk. Hér sjást leitarmenn úr Björg-
unarsveitinni Ingólfur í Reykjavík við leitina sem stóð yfir í um 5 daga áður en lík Bretans fannst um 700 metra frá bænum Hofi í Öræfum, en hann
hafði lagt upp þaðan um 8 dögum áður. Heimafólkið að Hofi í Öræfum hafði mikið reynt til að fá hann ofan af ætlun sinni, en hann ætlaði að nær-
ast á berjum á leiðinni. Mynd: Matthias Slgurðsson
OFSAVEÐUR gekk yfirsuðurströnd landsins að morgni 9. janúar. Tjón varð einna mestá Stokkseyrí og Eyrarbakka og nam tugum milljóna. Hús
á Eyrarbakka stórskemmdust af völdum veðurofsans eins og sjá má á þessari mynd. Tímamynd Ámi Bjama
indastofnunar þar sem fram kem-
ur að fjármálahugtök samtímans
virðast latína fyrir flestum íslend-
ingum. í könnuninni kemur í ljós
að innan við þriðjungur þjóðar-
innar kann skil á hugtökum á
borð við verðtryggingu, raunvext-
ir og nafnvextir. Tíminn ræddi við
nokkra þjóðkunna menn um
þessa staðreynd, sem flestum kom
þetta mjög á óvart. Rætt var m.a.
við Einar Odd Kristjánsson form.
VSÍ sem sagði „ég hreinlega trúi
þessu ekki.“ Guðmund J. Guð-
mundsson sagði þó að þetta kæmi
sér ekki á óvart Því „stjórnmála-
menn og svokallaðir efnahagsráð-
gjafar hafa tamið sér sérstakt mál-
far sem er almenningi ákaflega
fjarlægt."
Stöö 2 skiptir
um eigendur
Salan á Stöð 2 var ofarlega á
baugi í janúar, en þá seldi Eignar-
haldsfélag Verslunarbankans hf.
hópi einstaklinga, Fjölmiðlun hf.,
100 milljón króna hlut í stöðinni.
En Fjölmiðlun hf. hafði áður
keypt 150 milljón króna hlut af
Verslunarbankanum. Þar með
urðu Jón Óttar og fleiri stofnend-
ur í minnihluta í stjórn stöðvar-
innar og áhrifalausir. Því skipti
Stöð 2 um stjórnendur.