Tíminn - 06.04.1991, Page 12
24 Tíminn
Laugardagur 6. apríl 1991
A sölulista
Traktorgrafa CASE 580 B. Lítið notuð 1100 v.st. á góðu
verði. Nýinnréttað hús.
Traktorgrafa Int. Harv. 6 cýl., mjög öflug, ek. 1800 v.st. á
sanngjörnu verði.
Panters vélsleði ‘87, eins og nýr, ek. 1100 (nýinnfl.), 72
hö. með yfirbr. Verð kr. 390 þús.
Yamaha vélsleði ‘87, eins og nýr, ek. 1400 (nýinnfl.),
með rafst. og yfirbr. Verð kr. 290 þús.
Trail Cat vélsleði ‘79 (nýinnfl.), ek. 2200, líturvel út, með
yfirbr. Verð 190 þús.
Polaris 400 vélsleði ‘88 (nýinnfl.), ek. 1800, lítur vel út,
með yfirbr. Verð 420 þús.
Polaris RXL vélsleði ‘90 (nýinnfl.). Tölvust., bein innsp.
Nýr sleði, 117 hö.
Fjórhjól, Suzuki Quatrasport 230 (nýinnfl.), lítið notað
árg. ‘87. Verð 160 þús.
Fjórhjól, Yamaha YFM 350 Warrior (nýinnfl.), lítið notað,
árg. ‘87. Verð 190 þús.
Tækjamiðlun íslands
Bíldshöfða 8,112 Rvk . Sími 91- 674727 frá 9-17, 91-
17678 frá 17-21
Verkamannafélagið Dagsbrún
Oriofshús
Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í orlofs-
húsum félagsins í sumar frá og með mánudegin-
um 8. apríl á skrifstofu félagsins að Lindargötu 9.
Þeir sem ekki hafa dvalið áður í húsunum ganga
fyrir með úthlutun til og með 12. apríl.
Húsin eru:
2 hús í Svignaskarði
1 hús í Vatnsfirði
1 hús að Vatni í Skagafirði
2 íbúðir á Akureyri
1 hús á lllugastöðum
2 hús á Einarsstöðum
1 hús í Vík í Mýrdal
5 hús í Ölfusborgum
Vikuleigan er krónur 7.000,00 nema að Vatni
krónur 10.000,00 og greiðist við pöntun.
Verkamannafélagið Dagsbrún.
ljí HAFNARFJÖRÐUR
JL - MIÐBÆR
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum
í miðbænum.
Um er að ræða nokkrar lóðir til byggingar at-
vinnuhúsnæðis af ýmsu tagi.
Umsóknarfrestur er til mánudags 15. apríl nk.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingur
FRÁ
FRÆÐSLUSKRIFSTOFU
REYKJAVÍKURUMDÆMIS
Nokkrar kennarastöður eru lausar við grunn-
skóla Reykjavíkur. Meðal kennslugreina eru tón-
mennt, heimilisfræði, myndmennt, eðlisfræði,
byrjendakennsla og sérkennsla.
Ennfremur eru lausar stöður við sérskóla ríkisins
í Reykjavíkurumdæmi. Óskað er eftir kennurum
með sérkennsluréttindi (2ja ára nám að minnsta
kosti).
Fræðslustjórinn í Reykjavík
MINNING _ ___ _________
Jakob Indríðason
kaupmaður
Fæddur ll.nóvember 1918
Dáinn 29. mars 1991
Árið 1918, sem einna frægast er
fyrir frostaveturinn mikia, fæddist
drengur í Snússu í Hrunamanna-
hreppi. Sonur hjónanna Gróu
Magnúsdóttur og Indriða Grímsson-
ar. Þau voru bláfátæk af veraldar
gæðum en rík af gjörvulegum börn-
um, tíu talsins. Þetta voru engin
stórtíðindi nema í Snússu. Eflaust
hefur gleðin verið blönduð áhyggj-
um, því enn bættist við lítill munn-
ur sem seðja varð. Og þrátt fyrir erf-
ið kjör á stundum óx drengur úr
grasi, var nefndur Jakob, og ólst upp
á meðal systkina í Snússu, einkar
fögrum reit undir Langholtsfjalli.
Tíminn leið. Hann líður hratt
nema þegar illa árar og kjör eru
kröpp. Eftir á að hyggja líður ævi-
stundin hratt, aðeins misjafnlega
hratt. Þjóðfélagið tók stakkaskipt-
um; fólkið flykktist úr sveitum í
þéttbýli. Allt breyttist, jafnvel
Snússa fékk virðulegra heiti, Ása-
tún.
Og Jakob fluttist til Keflavíkur þar
sem hann kynntist Ingibjörgu sinni.
Ingibjörg, dóttir Sigríðar Þórðar-
dóttur og Ingimundar Jónssonar
kaupmanns, varð lífsförunautur og
styrkasta stoð Jakobs. Gæflyndi og
dyggðir hennar féllu vel að skap-
lyndi Jakobs. Svo samrýmd voru þau
að dóttur mína Ingibjörgu kallaði
hann ætíð nöfnu sína.
Ingibjörg og Jakob eignuðust sjö
börn. Eitt dó nýfætt, en hin eru öll
uppkomin: Sigríður Gróa, Ingunn
Kristín, Kristinn, Elín Jónína, Ingi-
mundur og Helga. Og lánið hefur
blessað barnabörnin sex.
Kaupmennska varð aðalstarf Jak-
obs Indriðasonar. Fyrst vann hann
hjá tengdaföður sínum í Ingimund-
arbúð og síðar verslaði hann í
Brekkubúð. Hann varð „kaupmað-
urinn á horninu". Hann leit á kaup-
mennsku sem starf en ekki gróða-
brall. Löngunin til að græða fé var
víðsfjarri; nægjusemi var dyggð.
Mér er hugsað til sveitadrengsins
Jakobs, sveitadrengsins frá Snússu
og afans og ætíð er hann sjálfum sér
samkvæmur. Alltaf fann ég fyrir
sveitinni og víðáttu fjallanna í fari
Jakobs. Hann er einn þeirra sem
tóku sveitina og fjöllin með sér á
mölina og öll viðhorf fengu stoð frá
liðnum tíma; voru rakin fram og til
baka eftir vegi reynslu og þekkingar.
Hann var alþýðumaður; grandvar til
orðs og æðis, ræðinn, gamansamur
og glettinn; viðkvæmur og um-
hyggjusamur — og óvenjulegur
vegna þess að þessir eiginleikar
brugðust aldrei.
í lífinu er fátt víst nema dauðinn.
Hann býr með okkur allar stundir;
situr sem fastast í samfélagi lifenda
— og bíður. Samt kemur hann sí-
fellt á óvart, jafnvel þótt við vitum
að klukkan fari að kalla. Við söknum
þess að hafa ekki átt fleiri giaðar
samverustundir með indælum afa,
glímt við hann með orðum, fengið
að vita meira, sagt meira, tekist oft-
ar í hendur...
í morgun var sól og logn. Sól-
skríkja kvað við raust. En nú blæs
og gnauðar. Nepjuna leggur inn að
beini og regnið lemur. Rammíslensk
veðrátta. Sinustráin blakta. Þau eru
frá því í fyrra. Engu að síður stóðust
þau haustvinda og volk vetrarins.
Þau hafa lifað og samt — samt skýla
þau grasnálinni, nýgræðingnum.
Enn lifa rætur þeirra og eins mun
minningin um góðan dreng lifa og
verma hugskot og sálir.
Senn kemur vorið, sauðburður
hefst og hestamenn fá í sig fiðring
eins og blessaðar skepnurnar. Hlíðar
Langholtsfjalls, Leiran, jafnvel móar
Miðnesheiðar taka á sig nýjan bún-
ing, líkt og í fýrra og hitteðfyrra og
öll hin fyrri vor. Klakabönd bresta,
ár og vötn leysast úr vetrarfjötrum.
Sem og forðum kemur líka vor í ríki
Kerlingarfjalla þar sem Jakob gætti
sauða, ungur og frjáls. Ég sé hann
fyrir mér núna frjálsan á ný á
stjörnufáki í eilífum gróanda og í
víðfeðmri hálendisdýrð.
Guðmundur Páll Ólafsson
Ragnar Kristinn Bjamason
vélstjóri, Vestmannaeyjum
Fæddur 9. apríl 1924
Dáinn 26. mars 1991
í dag er til moldar borinn frá
Landakirkju í Vestmannaeyjum,
Ragnar Kristinn Bjarnason, mágur
okkar og vinur.
Hann lést á Sjúkrahúsi Vestmanna-
eyja 26. mars síðastliðinn, eftir
langa baráttu við mjög erfiðan sjúk-
dóm.
Foreldrar Ragnars voru Halldóra
Jónsdóttir frá Gerðisstekk í Norð-
firði og Bjarni Sigfússon frá Barðs-
nesi í sömu sveit, þau bjuggu á
Gerðisstekk og var Ragnar fæddur
þar og uppalinn. Ragnar Bjarnason
er okkur mjög minnisstæð persóna
og á árunum 1942-1955 vorum við á
vertíð úti í Eyjum eins og það var
kallað í okkar heimabyggð.
Þá kynntumst við oft austfirskum
vertíðarmönnum, einn af þeim var
Ragnar Bjarnason frá Noröfirði. Það
var eftirtektarvert hvað Ragnar var
alltaf glaður og hress og hafði góð
áhrif á félaga sína, hann var hár,
grannur og vasklegur í allri fram-
komu.
Á þessum árum stundaði hann sjó-
mennsku en fór síðar í Vélstjóra-
skólann og var lengst af vélstjóri á
bátum frá Vestmannaeyjum, ávallt
var hann á góðum bátum, sýnir það
að hann var eftirsóttur og farsæll í
sínu starfi.
Ragnar var sú manngerð sem ávallt
kom sér vel, hann vildi hafa hlutina
í lagi. Samviskusemi, snyrti-
mennska og vönduð vinnubrögð
voru honum í blóð borin, hann var
hógvær en glettinn og léttur í lund
með vinum og kunningjum.
Allt í fari hans gerði það að manni
leið vel og það var gott að vera í ná-
vist hans. í Vestmannaeyjum kynnt-
ist Ragnar eftirlifandi konu sinni,
Pálínu Jónsdóttur, f. 23.01.1923, frá
Norðurhjáleigu í Álftaveri. Þau
gengu í hjónaband á jóladag 1957.
Höfðu þá stofnað heimili að Mið-
stræti 9 í Vestmannaeyjum. Hjóna-
band þeirra var til fyrirmyndar, þau
voru samhent í að skapa sér hiýiegt
og gott heimili, gestrisni og vinátta
var þeirra aðalsmerki.
Eins og fleiri Vestmannaeyingar fór
Ragnar ekki varhluta af þeim hörm-
ungum sem Heimaeyjargosið hafði í
för með sér fyrir Eyjaskeggja. Hafði
hann þá komið upp nýju og vönduðu
húsi og búið í því skamman tíma, en
það fór undir hraun eins og fleiri
mannvirki í austurhluta bæjarins.
Það var mikill örlagadagur fyrir alla
Vestmannaeyinga að þurfa að flýja
eyjarnar undan hrauninu sem rann
óðfluga að byggðinni. En frá þeim
hamförum komust þeir með sigri.
Tryggðin við eyjarnar togaði þó aft-
ur marga til síns heima, þótt að-
koman hafi verið döpur eftir nátt-
úruhamfarirnar. Ragnar og Palla
voru samhent í því að endurreisa
heimilið á nýjum stað á eyjunum.
Ragnar heitinn vildi hvergi frekar
vera. Vestmannaeyjar áttu hug hans,
þar vildi hann eyða kröftum sínum
og tíma til allra góðra verka.
Ragnar og Pálína eignuðust tvær
dætur, sem báðar eru uppkomnar og
búnar að stofna heimili. Þórunn,
sjúkraþjálfi, fædd 03.04.1957, búsett
í Reykjavík, maður hennar er Matt-
hías Magnússon og eiga þau tvö
börn. Sigríður, fóstra, fædd
21.02.1960, búsett í Vestmannaeyj-
um, maður hennar er Jón Oddsson,
eiga þau tvö börn.
Palla mín, það má öllum ljóst vera að
erfiðleikar þeir sem á undan eru
gengnir hafa verið þungbærir þér og
fjölskyldu þinni. Minningin um góðan
dreng mun geymast í hugum okkar,
við biðjum góðan guð að fýlgja þér og
fjölskyldu þinni allri um ókomin ár.
Sigþór og Sigurður
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að þær þurfa
að berast a.m.k. tveimur dögum fyrir bírtingardag.
Þœrþurfa að vera vélritaðar.
AUGLÝSINGASÍMAR TÍMANS:
680001 & 686300