Tíminn - 15.02.1992, Síða 8

Tíminn - 15.02.1992, Síða 8
8 Tíminn Laugardagur 15. febrúar 1992 Búrfell KE-140 á sér farsæla sögu I útgerðinni. Þaö var mikiö aflaskip, en nú hafa Samskip eignast nafniö á eitt strandferöaskipa sinna. Nú er ætlunarverki þess lokiö og þaö bfö- ur úreldingar, Bergþór Hávarösson hefur nýtt hlutverki handa fleyinu. Tfmamynd Pjetur Bergþór Hávarðsson, sæfarinn sem náði landi eftir margra vikna hrakningar eftir fellibyl á leið sinni til íslands frá Plórída í sept- ember síðastliðnum, hefur ekká í hyggju að leggja árar í bát. Hann hefur hafið undirbúning að nýrrí för suður um höf að sól- gylltum ströndum. Breytir úreldu 100 tonna Honum hefur áskotnast rúmlega 100 tonna stálskip, Búrfell KE-140, sem stendur til að úrelda og Bergþór hyggst breyta skipinu í „seglskip með hjálparvél", eins og hann orðar það sjálfur. í lestinni ætlar hann, að setja upp vélaverkstæði og síðan að sigla um heimsins höf og selja þjónustu sína til skútukarla. „Þetta þróaðist svona smám saman. Ég fór í heimsókn til frænda míns, sem býr í Vogum og vinnur í skipa- smíðastöðinni í Njarðvík, og ég viðr- aði við hann þessa hugmynd sem ég hef alið f brjósti um að virkja báta sem ætti að úrelda. Þá sagði hann við mig: Það er nú minnsta málið. Ég held að það séu einir þrír bátar hér suður frá sem þú gætir notað. Það týndist nú úr þeim og á endanum kom ég niður á Búrfellið. Þorsteinn Erlingsson útgerðarmaður var þá bú- inn að láta bátinn til Þorsteins Más Baldvinssonar í Samherja á þeim tíma og því þurfti ég í raun að fá leyfi þess fyrirtækis líka til að fá bátinn. Eg hafði samband við hann til að fá bát- inn og hann sagði: Ekkert mál, viltu ekki fá tvo í viðbót? Þannig stendur nú málið að ég er að ganga frá skrán- ingu á bátnum," sagöi Bergþór Há- varðsson í samtali við Tímann. Bergþór er ekki alls ókunnugur því skipi sem hann hefur nú í höndun- um, því hann hóf sjómennsku sína á einu systurskipa Búrfells, Heimi, sem var keypt nýtt árið 1963 til Stöðvar- fjarðar. Það skip heitir nú Happasæll og er gert út frá Keflavík. Alls voru systurskipin sjö talsins, en eitt þeirra hefur þegar verið úrelt. Vegna reglna um úreldingu verður annaðhvort að sökkva bátnum eða að selja í brotajám. Þó er sá möguleiki fyrir hendi að skrá bátinn erlendis og það er einmitt það sem Bergþór er að gera. Að öllum líkindum siglir Ás- bjöm, eins og upphaflega nafn báts- ins er og Bergþór hyggst taka upp aft- ur, undir fána Svíþjóðar með Stokk- hólm sem heimahöfn. Bergþórs bíður mikil vinna við breytingar á bátnum. I honum er vél, sem þarf að gera gangfæra, og þá ætl- ar hann að gera umfangsmiklar breytingar á yfirbyggingu bátsins, skera bátadekkið af, hækka mastur, lækka brúna og fjarlægja alla óþarfa hluti sem taka á sig mikinn vind. Þá munu verða fjarlægðir ýmsir þungir hlutir úr skipinu, en flestar breyting- ar sem Bergþór gerir miðast að því að gera skipið léttara að ofanverðu og færa þyngdarpunktinn neðar, þannig að það sé betur í stakk búið til að bera hærri reiða. Þá tekur hann mikinn þunga aftan af skipinu og við það á það að lyftast töluvert að aftan. Ekki mun þó Bergþór fullgera seglskipið hér heima. Þannig verða ekki sett upp segl og annað mastrið, en þar spilar kostnaðarþátturinn inn í. Segl eru mun dýrari hér á landi en erlend- is og hann mun því kaupa ýmsa hluti í skipið þar. Skipinu verður því siglt héðan fyrir eigin vélarafli. „Það verð- ur of gróft að kalla bátinn segiskútu eftir breytingamar, en ætli hann verði ekki skráður seglskip með hjálparvél," segir Bergþór Hávarðs- son. „Það sem gerir mér dálítið erfitt fyr- ir núna er þessi gífurlegi bölmóður og svartsýni sem er ríkjandi á íslandi. Að vísu er bölmóður ágætur í hófi til að halda aftur af mönnum svo ekki fari fyrir þeim eins og fór fyrir Ikar- usi, sem var svo ánægður með vax- vængina sína. Þegar hann flaug á móti sólinni, gleymdi hann sér og vaxvængimir bráðnuðu niður. Það er sama með okkur íslendinga, menn verða að geta haldið aftur af sér. En hins vegar gerir þessi svartsýni sem er ríkjandi núna mér dálítið erfitt fyr- ir við framkvæmdir," segir Bergþór. í lest bátsins ætlar Bergþór að starf- rækja vélaverkstæði, en eins og kunnugt er á Bergþór seglskútu þá sem hann kom á til íslands f haust og nsaBBHaBzn

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.