Tíminn - 15.02.1992, Blaðsíða 9

Tíminn - 15.02.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 15. febrúar 1992 Tíminn 9' Bergþór Há- varðsson hefur ekki við sjóinn þrátt fýrir þá sem hann lenti í þegar hann sigldi skútu sinni til byl síðastlið- ið haust: Bergþór Hávarösson nýtur sln vel um borö I Búrfellinu, eöa Ásbirni eins og þaö kemur til meö aö heita. Ásþjörn RE-400 hét skipiö þegar þaö kom fyrst til landsins fyrir tæpum 30 árum og Bergþór trúir því aö skip beri ávallt sitt fyrsta nafn best. Tímamynd Pjetur Skissur að seglskútu Bergþórs. Bergþór geröi sjálfur þessar skissur að seglskipinu Ás- birni, eins og hann hugsar sér skipið eftir breytingarnar. Eins og sjá má veröur skipiö hið glæsilegasta og mun færast meira í seglskútustíl, meö lækkaöa yfirbyggingu og breytt stefni. í framtíðinni hefur Bergþór jafnvel hugsaö sér aö íslendingar á ferö um suðurhöf gætu feröast meö seglskipinu, því afbragðsaöstaöa er um borö, 10 manna matsalur og svefnpláss fyrir á annan tug manna. r "V k í * ij hana ætlar hann að selja og fyrir þá peninga ætlar Bergþór að kaupa vélar og tæki til að starfrækja vélaverk- stæðið. Þegar báturinn verður tilbú- inn til brottfarar ætlar Bergþór að sigla suður á bóginn, dvelja á stöðum þar sem stórar skemmtibátahafnir eru og viðhaldsverkefni eru mörg og selja þar sína vinnu og fjármagna með því ferðalög sín. „Það er ekkert ferðaplan tilbúið. Maður verður bara að fara á staðinn og finna út hvar eft- irspumin er mest og síðan að færa sig eftir henni milli staða, eftir því hvar flotinn er og hvar menn hafa eitthvað umleikis. Það er stór hópur fólks sem gerir ekkert annað en að sigla um heimsins höf og þó að það sé ekki mikið sem hvem einstakling vantar af þjónustu, þá er það alveg nógu mikið ef maður er til staðar til að grípa verkefnin," segir Bergþór Hávarðsson. Bergþór hefur sett sér tímamörk við framkvæmdimar og ætlar að fara frá íslandi ekki síðar en í apríl 1994. Að hans sögn hefur hann mannað áhöfn skipsins, en hann bendir þó á að ef menn vilja komast með skuli þeir endilega panta pláss. .Auðvitað hlakkar maður til að fara og auðvitað kemur maður einhvem tímann aftur. kipið er íslenskt og ætli það sé ekki eins og með hestana að það þurfi að komast í heimahagana öðru hverju," segir Bergþór. Eftir þær hrakningar sem Bergþór lent í síðastliðið haust, segir hann að aldrei hafi hvarflað að honum að segja skilið við sjóinn. Þetta sé einhver vír- us sem einu sinni komi inn í kropp- inn og fari ekki þaðan aftur. Hann segist vera búinn að ná sér bæði and- lega og líkamlega eftir hrakningana, þó að blóðrásin í höndunum hefði þurft sinn tíma til að komast í fyrra horf. En hver hafa viðbrögð fólks ver- ið þegar Iíða fór frá, er ekki sagt við þig að þú sért kolruglaður að gera svona lagað? „Nei, það hefur nú ekki borið mikið á því, en hins vegar eru menn misjafnlega tillitssamir og kurteisir. Sumir slengja því beint framan í mig hverslags bjáni ég sé og af hverju í ósköpunum mér hafi dott- ið til hugar að leggja í þessa för. Aðrir eru meira hugsandi yfir þessu og það em meira menn að mínu skapi,“ sagði Bergþór Hávarðsson sæfari að lokum í samtali við Tímann. -PS Tsr oo O O

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.