Tíminn - 15.02.1992, Side 11
lOTíminn
Laugardagur 15. febrúar 1992
Laugardagur 15. febrúar 1992
Tíminn 11
DRYKKJARKER
fyrir kýr, hesta og sauðfé
Flotholtsventlar fyrir vatnsker og tanka
TUlésúdfy
HÖFÐABAKKA 9-112 REYKJAVÍK SÍMI 91-670000
M E N NTAMÁL ARÁÐU N EYTIÐ
Rannsóknastyrkir
frá J.E. Fogarty International Research
Foundation
J.E. Fogarty-stofnunin ( Bandaríkjunum býðurfram
styrki handa eriendum vísindamönnum til rannsókna-
starfa við vísindastofnanir í Bandaríkjunum. Styrkir
þessir eru boðnir fram á alþjóðavettvangi til rann-
sókna á sviði læknisfræði eða skyldra greina (biomed-
ical or behavioral sciences), þar með talin hjúkrunar-
fræði. Hver styrkur er veittur til 12 eða 24 mánaða frá
miðju ári 1993 og á að standa straum af dvalarkostn-
aði styrkþega (19.000 til 23.000 bandaríkjadalir), auk
ferðakostnaðar til og frá Bandaríkjunum. Einnig er
greiddur ferðakostnaður innan Bandaríkjanna.
Til þess að eiga möguleika á styrkveitingu þurfa um-
sækjendur að leggja fram rannsóknaáætlun í samráði
við stofnun þá í Bandaríkjunum sem þeir hyggjast
starfa við.
Umsóknargögn og nánari upplýsingar um styrki þessa
veitir Atli Dagbjartsson læknir, barnadeild Landspítal-
ans (s. 91-601000). — Umsóknir þurfa að hafa borist
menntamálaráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykja-
vík, eða Atla Dagbjartssyni, barnadeild Landspítalans,
101 Reykjavík, fyrir 15. júlí eða 1. nóvember á
þessu ári. Umsækjendur, sem skila umsóknum fyrir
15. júlí, fá vitneskju um styrkveitingu í lok febrúar
1993, en umsóknir, sem skilaö erfrá 15. júlí til 1. nóv-
ember, verða afgreiddar fyrir 15. júní 1993.
Menntamálaráðuneytið,
11. febrúar 1992.
ÚTBOÐ
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar borgar-
verkfræðings, óskar eftir tilboðum i gerviefni á 8 brauta, 400 m
hlaupabraut á aðalleikvanginn í Laugardal.
Um er að ræða 6050 m2 af efni og útlögn.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 31. mars 1992,
kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
c Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Íc ooo w
• tHPJ
%
'^NGAV1^
Aðalfundur
Félags starfsfólks í veitingahúsum
Aðalfundur Félags starfsfólks í veitingahúsum verður
haldinn mánudaginn 24. febrúar 1992 kl. 16.00 í Baðstof-
unni 6. hæð, Ingólfsstræti 5. Auk venjulegra aðalfundar-
starfa eru laga- og reglugerðabreytingar á dagskrá. Félag-
ar eru hvattir til þess að mæta.
Stjórn F.S.V.
Japanir
ásaka hann
um dóna-
skap og
verkalýðs-
foringjar um
græðgi
Lee lacocca, hinn marg-
frægi forstjóri Chrysler- .
bílaverksmiðjanna, er
síðasta fórnarlamb við-
skiptastríðsins milli
Bandaríkjamanna og
Japana. lacocca hefur
löngum látið sér fjöl-
miðlaathyglina vel líka,
en þeir dagar, þegar sér-
hver „uppi“ í viðskiptalíf-
inu þaut til og keypti sér
æviminningar hans, eru
liðnir.
Japanir bálreiðir
Maðurinn, sem þakkað var að hafa
bjargað þriðja stærsta bifreiðafram-
leiðanda Bandaríkjanna frá gjald-
þroti, sætir nú hörðum árásum fyrir
óheppileg orð, sem hann lét falla í
garð japanskra keppinauta fyrir
skömmu, og ekki síður þær óheyri-
Iega háu launagreiðslur sem hann
þiggur. Kór gagnrýnendanna hefur
sótt í sig veðrið eftir að Iacocca slóst
í för með Bush forseta í ferð hans til
Japans fyrir nokkru, en sú ferð varð
sannkölluð óheillaför.
Fyrir þrem vikum sakaði Iacocca
Japani um að hafa brugðist heiti
sínu um að tvöfalda kaup á banda-
rískum hlutum til bifreiðafram-
leiðslu fram til 1994. Ávítur hans
urðu til þess að Yutaka Kume, fram-
kvæmdastjóri Nissan, jós úr skálum
reiði sinnar, sem aldrei hafði fyrr
gerst: „Framkoma herra Iacocca og
ummæli eru hneykslanleg og móðg-
andi í okkar garð,“ sagði hann.
Hefur laun 188 verka-
manna
Japönsk dagblöð vöktu athygli á
launum Iacocca og hinna fram-
kvæmdastjóranna í fylgdarliði
Bush. Þeir 21 frömuður úr banda-
rísku viðskiptalífi, sem hér um
ræddi, höfðu að meðaltali 3.4 millj-
ónir dala í árstekjur, eða sexföld
laun Japana í sömu stöðum. Þetta
voru líka 188-föld laun hins al-
menna verkamanns í Bandaríkjun-
um. Japanskir framkvæmdastjórar
eru þó ekki með „nema“ tíu eða
tuttuguföld laun búðarlokunnar.
Chrysler á
fallanda fæti
Nú hefur bandarískur almenning-
ur gert aðsúg að Iacocca vegna
launa hans, sem hafa hækkað þrátt
fyrir að óðum hallar undan fæti hjá
Chryslerverksmiðjunum.
Árið 1990 dró úr hagnaði bílarisans
um 80%, og arður til hlutahafa
lækkaði um helming. Iacocca fékk
þó 15% launahækkun og námu
launagreiðslurnar einar nú 4.58
milljónum dala. Formaður Sam-
bands varkamanna í bílaiðnaði, Ow-
en Bieber, segir: „Sé einhver rökræn
ástæða til slíkra launagreiðslna,
Opinn fundur á Hótel Sögu:
Stefnir í frjálshyggju-
ráöstjórn á íslandi?
fyrir geimferðaáætlanir Bandaríkj-
anna, til þess að fé skorti til þróunar
í bifreiðasmíðum fyrr en varði.
Chrysler mun nú verða að eyða 16.5
milljörðum dala næstu fjögur árin
til þess að endurnýja úreltar bíla-
gerðir.
Enn er því farið að velta vöngum
yfir hvort Chrysler lifi eða deyi, en
laun Iacocca eru ósnertanleg. Sam-
keppnissérfræðingur einn f New
York, Graef Crystal, segir að miðað
við frammistöðu Iacocca að undan-
förnu sem framkvæmdastjóra hefðu
launin átt að lækka um 46% — í 2.4
milljónir dala.
Fleiri sporslur
Athyglin beinist líka að öðrum
sporslum, er Iacocca hefur. Launin
eru ekki nema lítill hluti tekna
hans. Á síðasta ári greiddi Chrysler
honum 1.65 milljónir fýrir tvær
húseignir og var önnur í Florida og
hin í Michigan. Þetta gerðist er fast-
eignaverð fór hríðlækkandi. Tals-
menn fyrirtækisins segjast hafa gert
þetta, svo hann „gæti að fullu helg-
að sig hagsmunamálum Chryslers".
Hvorki almenningur né fjölmiðlar
sættu sig vel við þá skýringu. Þá
bauðst hinum roskna viðskiptajöfri
að eignast sérlega ábatasöm hluta-
bréf með ótrúlegum kjörum: Hann
fékk 60 þúsund hluti gefins fýrir að
Ijá máls á að gegna framkvæmda-
stjórastarfinu eitt ár til viðbótar.
Enn mun hann fá 62.500 hluti fría
fýrir hvern ársfjórðung, er hann
mun hafa starfað á nýju ári. Alls
verða þetta 310.000 hlutir í árslok.
Ekki er allt talið enn. Hann hefur
fengið forkaupsrétt á 720.000 hlut-
um á 33.50 dali hvern hlut, en
markaðsverðið er 187.500 dalir.
Verðgildi hlutaeignar Iacocca fer
að vísu eftir því hvernig Chrysler
reiðir af á árinu, en núvirði hennar
er minnst 9 milljónir dala ofan á
laun hans og bónusgreiðslur. Hann
ætti því að geta talið sér minnst 14
milljónir dala vísar, sem er bærileg
trygging fýrir náðugum ellidögum.
Hitnar
undir Lee
lacocca
önnur en græðgi, þá fáum við
ómögulega komið auga á hana.“
Fyrir rúmri viku skýrðu Chrysler-
verksmiðjurnar frá uggvænlegum
tölum um reksturinn á síðasta ári:
Fyrirtækið tapaði 795 milljónum
dala á 29.4 milljarða dala sölu. Árið
1990 varð þó 68 milljón dala hagn-
aður af 30.6 miljarða dala sölu. Það
þykir grátbroslegt að ekkert nema
japanskt fjármagn kom í veg fýrir að
niðurstöðurnar urðu ekki enn verri.
Chrysler fékk greiddar 127 milljónir
dala, er fýrirtækið lét japönskum
meðeigendum (Mitsubishi) í Diam-
ond-Star Motors hlut sinn eftir í
fyrra, en Diamond- Star var rekið í
samvinnu bandarískra og japanskra
aðila. Án þessarar sölu hefði tapið á
síðasta fjórðungi ársins 1991 numið
30 milljónum dala og tap ársins 900
milljónum.
Sölutregða á
heimamarkaði
Chrysler hefur orðið sérlega hart
út í eyðslusamdrætti í Bandaríkjun-
um. Skýringin er að fýrirtækið á
ekki jafn sterka markaði utan
Bandaríkjanna og keppinautar þess,
General Motors og Ford. Hefur
Chrysler orðið að neyta rándýrra úr-
ræða til þess að halda viðskiptavin-
um og koma í veg fyrir vaxandi
straum þeirra til japanskra bíla-
framleiðenda. Þriðji hver bíll, er
selst í Bandaríkjunum nú, er jap-
anskur.
Lét reka á reiðanum
Enn er Iacocca legið.á hálsi fyrir að
hafa látið stjórnunina reka á reiðan-
um um 1985, er vel áraði hjá fýrir-
tækinu. Á þeim tíma varð ýmis til-
raunastarfsemi, svo sem framleiðsla
lacocca: Firnaháar launagreiðslur og óheppilegar yfirlýsingar
kynda undir gagnrýni.
Undanfarið hefur Framsóknarflokkur-
inn efnt til opinna stjórnmálafunda í
kjördæmum landsins.
Þriðjudaginn 18. febrúar n.k. verður
haldinn fundur í Reykjavík á Hótel Sögu
(Súlnasal) kl. 20.30.
Fundarefni:
Stefnir í frjálshyggjuráðstjórn á íslandi?
Frummælendur:
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins,
og Finnur Ingólfsson alþingismaður.
Fundarstjóri verður
Valdimar K. Jónsson prófessor.
Fundurinn er öllum opinn.
Illl Framsóknarflokkurinn
Steingrímur Hermannsson
Finnur Ingólfsson
Jo^ooooöoooóðíFLJÖó
/•
/
I KREPPUNNI
/• /
SPAÐUI