Tíminn - 09.05.1992, Side 3
Laugardagur 9. maí 1992
Tíminn 3
Yfir 3.500 einstaklingar gjaldþrota á síðustu
fimm árum:
Gjaldþrot á 1
af hverjum
25 heimilum
Tvöföldun varö á fjölda gjaldþrota einstaklinga árið 1990 miöað
við næstu ár þar á undan. Ails voru um 1.050 einstaklingar lýstir
gjaldþrota þetta eina ár og aðeins litlu færri á síðasta ári, þannig að
alls 2.015 einstaklingar hafa verið iýstir gjaldþrota á aðeins tveim
árum. Áin 1988 og 1989 voru gjaldþrot einstaklinga um hálft
sjötta hundrað hvort ár og hafði þá fjölgað um rúmlega hundrað frá
1987. Alls hafa því um 3.540 einstaklingar verið lýstir gjaldþrota á
Upplýsingar um þennan gífurlega
fjölda gjaldþrota einstaklinga á síðustu
árum komu fram á Alþingi í svari
dómsmálaráðherra vegna fyrirspumar
þarum.
Þessi fjöldi gjaldþrota, um 3.540
manns, þýðir um 1 af hverjum 50 upp-
komnum íslendingum, þ.e. um einn
gjaldþrotamann í hverri stórflölskyldu
(td. meðalfermingarveislu). Sé hins
vegar miðað við fjölda íbúða (heimila)
í landinu og/eða meðalfjölskyldustærð
svara gjaldþrotin til þess að kringum
25. hvert heimili í landinu (rúm 4%)
hafi verið tekið til gjaldþrotaskipta á
aðeins fimm árum. Og ef miðað væri
við að um 70% þessa gjaldþrotafólks
hafi áður verið búið að koma sér upp
eigin íbúð er kannski ekki fjarri lagi að
um 8. til 10. hver eigendaskipti á íbúð-
um sl. fimm ár hafi verið af völdum
gjaldþrots eða yfirvofandi gjaldþrots,
þ.e. íbúðin annaðhvort verið boðin
upp eða verið seld vegna yfirvofandi
uppboðs.
í fyrirspuminni var jafnframt spurt
hve mörg þessara gjaldþrota stöfuðu af
því að viðkomandi einstaklingar höfðu
gengið í ábyrgð fyrir skuldum annarra
einstaklinga eða fyrirtækja gagnvart
bönkum eða öðmm lánastofhunum.
Upplýsingar um slíkt sagði dóms-
málaráðherra ekki liggja fyrir, enda
tíðkist ekki að málaskrár séu svo ítar-
legar að rekja megi uppmna hvers og
eins gjaldþrots með þeim hætti. „Eftir
því sem næst verður komist mun þó
fattítt að gjaldþrot einstaklinga stafi af
því að þeir hafi verið í ábyrgðum fyrir
aðra," sagði ráðherra. Þótt þar hafi
hann kannski rétt fyrir sér, sýnist vart
vafamál að stór hluti hinna 3.500
gjaldþrotamanna hafi verið með
ábyrgðir skyldfólks og vina á einhvers
konar pappímm og að það fólk hafi
margt hvert neyðst til að borga hærri
eða Iægri fjárupphæðir af þeim sök-
um.
Einnig var spurt hvort ríkisstjómin
hygðist gera eitthvað til að tryggja
stöðu ábyrgðarmanna betur en nú er.
Dómsmálaráðherra sagði ekki ljót
hvað átt væri við með orðunum
..tryggja betur stöðu ábyrgðarmanna".
Ábyrgð nefnist það þegar maður
skuldbindi sig til að greiða skuld ann-
ars manns, ef hann greiði hana ekki
sjálfur, og mönnum sé það „í sjálfsvald
sett hvort þeir taka á sig slíkar ábyrgð-
ir eður ei“. - HEI
Njálsgötuvöllurinn, einn elsti gæsluvöllurinn í Reykjavík, er oröinn eins og nýr eftir miklar endurbæt-
ur að undanförnu. Um 5.000 heimsóknir voru á völlinn í fyrra og varla ætti þeim að fækka í ár. Völlur-
inn er t.d. á afar þægilegum stað fyrir fólk sem koma vill bami í gæslu á meðan það bregöur sér í búð-
arferð á Laugaveginn. Tímamynd Ami Bjama.
28. gæsluvöllur Reykjavíkurborgar opnaður í Grafarvogi í sumar:
Njálsgötuvöllurinn
orðinn eins og nýr
Nýtt og fallegt hús og nýuppgert leiksvæði og leiktæki vöktu athygli
Tímamanns sem nýlega átti leið um innsta hluta Njálsgötunnar. Að
sögn Bergs Felixsonar, forstöðumanns Dagvistar bama, er Njáis-
götuvöllurinn einn elsti völlur borgarinnar og hefur alltaf verið
ágætlega sóttur. í gamla skúraum hafi aðstaðan tæpast verið starfs-
fólki bjóðandi lengur.
„Við lögðum því nokkuð í að bæta að-
stöðuna, m.a. með því að byggja stofú
framan við gamla skúrinn þannig að
hægt sé að kippa bömum inn þegar
veður gerast válynd. Einnig var bætt
við nokkrum nýjum leiktækjum. Við
emm mjög ánægð með útkomuna og
vonum að þetta verði aldeilis fyrir-
myndarvöllur."
Á gömlu völlunum segir Bergur
næst á dagskránni að gera upp Freyju-
götuvöllinn, sem einnig er orðinn
margra áratuga gamall. Bergur segir
nú inniaðstöðu fyrir böm hafa verið
komið upp á liðlega helmingi gæslu-
vallanna. Annaðhvort með byggingu
nýrra gæsluvallarhúsa ellegar með
færanlegum húsum, sem komið hafi
verið fyrir á völlum í öllum nýrri
hverfunum. Bergur tekur frarn að
með þessu sé ekki verið að koma upp
leikskólum heldur aðstöðu til að geta
tekið böm inn þegar veður gerast vá-
lynd. Markmiðið sé að bjóða upp á
nokkuð góða aðstöðu, bæði fyrir
starfsfólk og böm, í öllum hveriúm.
Heimsóknir á gæsluvellina voru
kringum 180 þúsund í fyrra og haföi
þá fjölgað nokkuð á ný ffá fyrra ári. Að
sögn Bergs hefur nokkrum völlum í
eldri borgarhverfunum verið lokað á
undanfömum ámm, eftir að aðsókn
hafi verið dottin niður. En á móti hafi
nýir vellir verið opnaðir í nýjum
hverfúm. Flestir hafi gæsluvellir í
Reykjavík orðið 33. Núna séu þeir 27
og ætlunin sé að bæra þeim 28. við í
sumar, í Grafarvogi. Þar sé aðeins
kominn einn völlur, í Foldahverfi, sem
alveg sé að springa vegna bamafjölda.
Heimsóknir á þennan eina völl hafi
verið kringum 14.500 í fyrra og þá
fjölgað úr 12 þúsund árið áður, eða
um 20% milli ára. Þá fagnaði Bergur
aukaljárveitingu sem borgarráð hafi
samþykkt til ráðningar afleysinga-
fólks. Þar með hafi nú verið ákveðið að
halda öllum gæsluvöllum borgarinn-
ar opnum í allt sumar. - HEI
Nýir menn taka við
í atvinnulífi á Höfn
Heiöurs-
borgari
Siglufjarðar
Siguijón Sæmundsson var sföast-
liðinn þriðjudag útnefndur heið-
ursborgari Siglufjaröarbæjar og er
Siguijón fjórði maðurinn sem
hlýtur þessa nafnbót og er jafh-
framt sá eini sem er nú Iifandi.
Hann héh upp á áttræðisafmæli
sht á Hótel Höfn á þriðjudag og við
það tækifæri var honum afhent
heiðurborgaraskjalið.
Sigurjón hefur komið mjög við
sögu uppbyggingar Siglufjarðar
síðustu fjörutíu og tvö árin, en
hann fluttist til Siglufjarðar 1931.
Hann var kjörinn í bæjarstjóm ár-
ið 1950 og sat til ársins 1966 fyrir
Alþýðuflokkinn. Hann var endur-
kjörinn 1972 og sat þá í fjögur ár.
Þá var Sigurjón bæjarstjóri í 8 ár,
ffá 1958 til 1966. Sigurjón á og
rekur Siglufjarðarprentsmiðju og
hefúr gert það allar götur síðan
1953 og starfar þar enn af fullum
krafti. Allt frá því Sigurjón fluttist
til Siglufjarðar hefur hann verið
mjög virkur í sönglífi bæjarins og
söng hann einsöng með Vísiskóm-
um í fimmtíu ár.
Sigurjón kvæntist eiginkonu
sinni, Ragnheiði Jónsdóttur, árið
1935 og eiga þau tvö böm, Stellu
Margréti og Jón Sæmund. -PS
I
Gengið hefur verið formlega frá
ráðningu nýrra stjómenda tveggja
stærstu atvinnufyrirtækja á Höfn í
Homafirði. Halldór Ámason hefur
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Borgeyjar hf. og Pálmi Guðmunds-
son hefur verið ráðinn kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Austur-Skaftfell-
inga. í samræmi við samþykkt aðal-
fundar KASK er unnið að því að fær
fiskvinnsluþátt kaupfélagsins til
Borgeyjar.
Halldór Árnason er 41 árs gamall
efnafræðingur og hagfræðingur.
Hann var iðnráðgjafi Austurlands
1980- 1982, starfaði hjá Iðntækni-
stofnun 1982-1984 og forstjóri Rík-
ismats sjávarafurða 1985-1990.
Hann hefur undanfarin tvö ár unnið
á vegum sjávarútvegsráðuneytisins
við altæka gæðastjórriun, sem kom-
ið hefur verið á fót í samvinnu við
þrjú sjávarútvegsfyrirtæki. Kona
Halldórs er Þórunn Einarsdóttir og
eiga þau 5 börn. Halldór hefur þegar
hafið störf hjá Borgey.
Pálmi Guðmundsson er tæplega 33
ára Borgnesingur. Hann lauk prófi
frá Samvinnuskólanum í Bifröst
1980 og hefur starfað við verslunar-
störf hjá verslun Einars Guðfinns-
sonar í Bolungarvík, vömhúsi KÁ á
Selfossi og Kaupstað í Mjódd, auk
starfa fyrir KB í Borgarnesi. Haustið
1989 hóf Pálmi hagfræðinám við
Aalborg Universitetscenter í Álaborg
í Danmörku og mun Ijúka námi þar í
júnímánuði. Hann hefur þá störf hjá
KASK. Kona Pálma er Elín Magnús-
dóttir og eiga þau 5 böm.
í samræmi við samþykkt aðalfund-
ar KASK í vor er nú unnið að undir-
búningi þess að fiskvinnsluþáttur
KASK flytjist yfir til hlutafélagsins
Borgeyjar hf. Stefnt er að því að
breyting þessi komi til framkvæmda
þann 1. júlí næstkomandi. Undir-
búningsvinnan er allumfangsmikil,
en þess er vænst að hægt verði að
leggja málið fyrir hluthafafund í
Kaupfélaginu í síðari hluta júnímán-
aðar og einnig hluthafafúnd Borg-
eyjar.
Gert er ráð fyrir að jafhframt eigna-
breytingunni fari fram heildampp-
gjör félagsins og dótturfyrirtækja
þess miðað við 30. júní og verði nið-
urstöður þess hinn endanlegi gmnd-
völlur fyrir nýtt rekstrarform. Sam-
tímis verður unnið að fjárhagslegri
endurskipulagningu fyrirtækjanna,
eignasölu og öflun nýs hlutafjár.
Fráfarandi kaupfélagsstjóri, Her-
mann Hansson, mun láta af því starfi
30. júní, en starfa áfram hjá félaginu
um stuttan tíma vegna uppgjörs og
annarra frágangsverkefna.
-EÓ
Borgarstjóm afgreiddi tillöguna um skýli til matargjafa handa bágstöddum:
„Súpuskýli“ vísað
til Félagsmálaráðs
Töluverðar umræður urðu í borg-
arstjóra um þá tillögu Alfreðs
Þorsteinssonar að borgin komi
upp skýli þar sem séð verði um
matargjafir til bágstaddra. í máli
Alfreðs kom m.a. fram að starf-
semi Félagsmálastofnunar nái
raunverulega ekki utanum þann
hóp sem tillagan fjallar um, þ.e.
að hann sé á vissan hátt utan við
kerfið.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins
lagði til að tillögunni yrði vísað
frá. Fulltrúi Nýs vettvangs taldi
hins vegar mjög óskynsamlegt að
vísa tillögunni frá án frekari at-
hugunar, og lagði til að efni
hennar yrði rætt í Félagsmála-
ráði. Og sú varð niðurstaðan, að
samþykkt var að þetta mál komi
til umfjöllunar í Félagsmálaráði.
- HEI