Tíminn - 09.05.1992, Side 6
6 Tíminn
Laugardagur 9. maí 1992
SVEINN RUNÓLFSSON landgræöslustjóri. Mynd og texti: Siguröur B.
„ Fólk hefur trú
Landaræöslan
á því sem
er að gera
„Sem betur fer hefur fólk trú
á því, sem Landgræðslan er
að gera, og vill leggja starfi
hennar lið. En það, sem
skortir kannski helst á, er að
fólk beiti sína pólítísku um-
bjóðendur, sem eiga sæti á
Alþingi, harðari þrýstingi um
auknar fjárveitingar til þessa
málaflokks." Þetta sagði
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri í samtali, sem
blaöamaður átti við hann fyr-
irskömmu, meöal annars um
verkefni þau sem Land-
græðslan á fyrir höndum í
sumar. Við byrjuðum samtal-
ið á aö spyrja Svein um hvort
einhverjar skemmdir hefðu
orðið á gróðri i ofsaroki því,
sem gerði á sunnanverðu
landinu í lok síðasta mánað-
ar.
„Við höfum nú ekki kannað
það sem skyldi, en einhverjar
skemmdir hafa orðið, það er
ljóst. Þá einkum í ofanverðri
Landsveit," sagði Sveinn í upp-
hafi samtalsins. „Þá sjáum við
að sandur hefur talsvert fokið í
landgræðslugirðingunni við
Þorlákshöfn, en skemmdir þar
eru ekki miklar. Þar er melgresi
aðalgróðurinn og það er býsna
sterkt. Og eitthvað er um að
moldarflög og opin jarðvegsflög
hafi stækkað. Þar sem ég hef
farið um, eftir þetta mikla rok,
hef ég séð að rofabörð hafa ýfst
upp, meðal annars á svæðum
þar sem gróður var í framför á
síðastliðnu hausti að undan-
gengnu góðu sumri. Á heildina
litið er þó ljóst að skemmdirnar
hafa ekki orðið miklar.
Hins vegar erum við ekki enn-
þá búin að bíta úr nálinni með
ofsaveðrið, sem kom í byrjun
febrúar 1991. Þá þegar urðu
miklar gróðurskemmdir. Sá vet-
ur var, eins og þessi, snjóléttur
og slíkir vetur eru óhagstæðir
gróðri landsins. Best er að hafa
snjóhulu yfir landinu, sem það
kæmi síðan undan að vori. Á
svona snjólitlum vetrum iyftir
holklaki jarðveginum, sem er
því miklu opnari fyrir áhrifum
vindsins," sagði Sveinn.
Eldhraun oa
Mýrdalssandur
Vorið og sumarið er annatími
Landgræðslunnar. Þá starfa hjá
stofnuninni allt að 120 manns,
þegar mest er að gera fyrripart
sumars, og eru þeir að störfum
víða um landið. Við spurðum
Svein hver yrðu helstu verkefni
þessa fólks og þá Landgræðsl-
unnar í heild á þessu sumri:
„Fyrstu sáningarverkefni
sumarsins byrjuðu strax þriðju-
daginn eftir páska. íslenska mel-
gresið er enn sem fyrr okkar
sterkasta tæki til að hefta sand-
fokið og víðsvegar um landið
leggjum við gífurlega áherslu á
notkun þess. Byrjað var að sá
melgresisfræi í sandfláka í Eld-
hrauni í Skaftártungu, en þar
hafa á allra síðustu árum orðið
mikil landspjöll. Þar er ekki
hægt að kenna sauðkindinni
blessaðri um, heldur eru þar
eingöngu náttúruöflin að verki.
Á síðustu árum eru flóð tíðari í
Skaftá, og menn eystra telja sig
sjá merki þess að framburður
jökulleirs og sands sé meiri en
áður. í flóðum fer hluti árinnar
þarna niður eftir Eldhrauninu
og skilur þá eftir sig sand og
leir, sem síðan hefur verið að
ijúka yfir algróið land. Ljóst er
að vandamálin á þessu svæði
eru orðin mjög stór, ekki þá að-
eins í Eldhrauninu heldur með-
fram allri Skaftá, allt inn að
jökli.
í fyrri viku var verið að sá
melfræi meðfram veginum yfir
Mýrdalssand, svo hefta megi
sandfok á hann. Eins og sáning-
in í Eldhrauninu er hún gerð
með sérstökum raðsáðvélum.
Okkur voni gefnar þrjár slíkar
nýlega af íslandsbanka hf., Hag-
kaupum, Ingvari Helgasyni,
Glóbus hf. og nokkrum tann-
læknum, og ber að þakka þær
höfðinglegu gjafir. Þegar verk-
efnunum í Vestur-Skafta-
fellsýslu sleppir, það er í Eld-
hrauni og á Mýrdalssandi, verð-
ur farið áfram um landið og
unnið víða, en stærstu verkefn-
in við sáningu með vélunum
verða á Hólsfjöllum og í Skútu-
staðahreppi. Aðallega sáum við
melfræi með þessum vélum, en
einnig verður lúpína talsvert
notuð.
Mikið starf á
Hólsfjöllum
Á Hólsfjöllum verður mikið
starf unnið í sumar. Sem kunn-
ugt er tókust á síðasta ári samn-
ingar við bændur á því svæði
um að hætta sauðfjárbúskap.
Þeir, sem búa þar áfram, munu
vinna við landgræðslustörf nú í
sumar, en mikil vinna er fram-
undan við að hefta jarðvegseyð-
ingu á Hólsfjöllum. í búvöru-
samningnum — þ.e. samningi
bænda og ríkisvalds um aðlög-
un búvöruframleiðslunnar að
markaðsaðstæðum — er gert
ráð fyrir að bændur geti fækkað
fé eða brugðið búi og snúið sér í
staðinn að landgræðslu og
skógrækt. Það, sem verið er að
gera á Hólsfjöllum og jafnframt
á nokkrum stöðum á Suður-
landi, er að fá bændur til að
bregða búi og snúa sér í staðinn
Tíminn 7
Laugardagur 9. maí 1992
að landgræðslu og skógrækt.
Ein bókun samningsins kveður
á um að á samningstímanum
verði veitt allt að tveggja
milljarða króna upphæð til
þessa.
Áburöarflug
Áburðarflugið verður með
mjög hefðbundnu sniði og
byrjar um mánaðamótin maí-
júní. Douglas DC-3 flugvélin,
Páll Sveinsson, byrjar með því
að fljúga frá Reykjavík og dreifir
áburði á Reykjanessvæðið.
Um miðjan júni kemur vélin
síðan hingað austur í
Gunnarsholt og flýgur héðan til
áburðardreifingar á
landgræðslusvæði á Suðurlandi,
svo sem á Biskupstungnaafrétti,
við Þorlákshöfn og víðar. Því
næst fer vélin norður á Sauðár-
krók og dreifir þaðan á upp-
græðslusvæði í nágrenni
Blönduvirkjunar, og er þetta
verkefni kostað af Landsvirkjun.
Loks fer vélin til Húsavíkur og
dreifir frá flugvellinum þaðan á
ýmis svæði í Suður-Þingeyjar-
sýslu, þar sem uppblástur er
mikið vandamál. Þar get ég
meðal annars nefnt svæðið við
Krákárbotna. Með landgræðslu-
aðgerðum þar er verið að hefta
sandburð í Kráká. Áin sú rennur
í Laxá og hefur farið óhemju-
mikill sandur niður ána, með
þeim afleiðingum að hrygning-
arstöðvar laxins í ánni hafa
eyðilagst og sömuleiðis hafa
hverflar Laxárvirkjunar
skemmst.
Mikiö til af fræi
Á síðasta ári safnaðist meira af
fræi en nokkru sinni áður. Það
helgast af því að árin 1990 og
1991 voru mjög góð ár fyrir
fræsetu, því þau voru þurr og
hiý. Þannig má nefna að alls
söfnuðust um 20 tonn af mel-
fræi og 18 tonn af beringspunti,
auk mikils magns af öðrum fræ-
tegundum. í vetur varð síðan
ljóst að við hefðum ekki fjár-
magn til að kaupa áburð með
öllu því fræi sem við eigum, og
því var gripið til þess ráðs að
selja beringspuntsfræ til Alaska,
alls 6,5 tonn. Það var fyrir milli-
göngu Glóbus hf. að þetta hafð-
ist í gegn og verðið, sem við
fengum, var geysilega gott, 900
þúsund á tonnið.
í raun megum við ekkert við
þessu, að selja frá okkur fræ. En
Sveinn
Runólfsson
landgræðslu-
stjóri segir
undan og ofan
af gróður-
verndar- og
landgræðslu-
málum og
helstu
verkefnum á
þeim vettvangi
í sumar
okkur var nauðugur einn kost-
ur, því við verðum á næstunni
að efla fræverkunarstöðina hér í
Gunnarsholti, með tilliti til
þeirra verkefna og stóru fyrir-
ætlana sem virðast blasa við.
200 milljóna
fjárveiting
Á ijárlögum þessa árs eru ætl-
aðar til landgræðslustarfa rétt
um 200 milljónir króna, fyrir ut-
an frjáls framlög sem eru alltaf
talsverð og mjög þakkarverð. í
krónum talið eru þessar 200
milljónir um 16% aukning milli
ára, og það er út af íyrir sig
gleðileg staðreynd. Hins vegar
neita ég því ekki að áður en þess-
ar fjárhagshremmingar dundu
yfir þjóðina hafði ég gert mér
mun meiri væntingar um fjár-
veitingar á þessu ári. í mars 1990
var samþykkt á Alþingi ályktun
þess efnis að stöðva beri fýrir
aldamót alla hraðfara gróður- og
jarðvegseyðingu, þar sem þess er
kostur. Er þessi ályktun síðan
staðfest í stefnu- og starfsyfirlýs-
ingu núverandi ríkisstjómar. Áð
koma þessari ályktun í verk er
gífurlega mikið verkefni, sem
mun kosta mikla fjármuni. En
við stefnum að þessu, og síðan
ályktunin var gerð hefur verið
unnið mikið starf við skipulagn-
ingu og áætlanagerð.
En allt þetta gefur okkur til-
efhi til að vera bjartsýn á að á
næsta ári fáum við aukið fjár-
magn í samræmi við nýja land-
græðsluáætlun, sem gilda á til
næstu aldamóta. Við erum að
tala um verkefni sem kallar á
margföldun fjárframlaga til okk-
ar, eigi þetta markmið að nást.
Ég tel að þetta markmið sé vel
raunhæft, en til þess þarf náttúr-
lega meiri beitarstjómun og ekki
síst tiltrú þjóðarinnar allrar. Sem
betur fer hefur almenningur trú
á því, sem Landgræðslan er að
gera. Það sýna í verki allar þær
þúsundir íslendinga, sem reiðu-
búnir em að Ieggja hönd á plóg-
inn. Það, sem mér finnst kannski
skorta helst á, er að almenning-
ur beiti sína pólítísku umbjóð-
endur á Alþingi harðari þrýstingi
um auknar fjárveitingar tií þessa
málaflokks.
Kynningarstarf er
hornsteinn starfsins
Hvað varðar önnur verkefni á
árinu, þá munum við leggja
mikla áherslu á fræðslu- og
kynningarstarf, sem á í raun að
vera einn af hornsteinum land-
græðslustarfsins. Eftir því sem
stofnuninni vex fiskur um hrygg,
þarf að leggja enn frekari áherslu
á þetta, meðal annars með út-
gáfu á miklu meim af vönduðu
fræðsluefni til skóla landsins.
Það er mikilvægt að kynna þessi
mál, sem við er að glíma, fyrir
æskunni, en hún hefúr sýnt það
í vilja og verki að hún hefur
áhuga á því sem Landgræðslan
er að gera.“
Beitarstjómun er
grundvöllur árangurs
Að mati Sveins Runólfssonar
er aukin stjórn á beitarmálum á
afréttum landsins sem og í
heimahögum gmndvöllur þess
að aukin árangur náist í gróður-
verndarmálum. Hann segir að á
síðustu ámm hafi Landgræðslan
átt gott samstarf við bændur og
sveitarstjórnir um gróðurvemd
og út úr þessu samstarfi hafi
komið að beitartími á afréttun-
um hafi verið að styttast um leið
og fénaði hafi fækkað. ,Á flestum
afréttum Sunnlendinga er nú
orðið mjög fátt fé. Samt sem áð-
ur er það mat okkar að þetta fáa
fé hamli mjög eðlilegri gróður-
framvindu. Hins vegar er það
viðhorf okkar og raunar einnig
fjölmargra bænda að við ætlum
ekki að framleiða kjöt á þessum
eyðimörkum, sem margir sunn-
lensku afréttanna því miður em.
Það er nóg beitiland til í byggð,
um það vitna þessir sinubrunar
sem hafa verið tíðir síðustu vik-
urnar.
Ef við tökum afréttina hér í
Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-
Skaftafellssýslum, þá er það í
raun svo að ekki nema tiltölu-
lega fáir bæir þurfa að reka fé á
þá. í vetur höfum við átt fundi
með fulltrúum allra þeirra
hreppa, sem eiga rétt á upp-
rekstri á þessa afrétti, og hafa
þær viðræður verið mjög gagn-
legar. Næstu mánuðir verða
notaðir til ýmiskonar upplýs-
ingaöflunar um afréttarmálefn-
in, til dæmis hvaða aðgerða
skuli grípa til í heimalöndum
verði upprekstri hætt. Undir-
tektir sveitarstjórnarmanna
hafa verið mjög góðar, enda
gera menn sér grein fyrir því að
það er mjög slæmt fyrir ímynd
landbúnaðarins og allra, sem
byggja þetta fagra en hrjóstruga
land, að verið sé að beita á land
sem er að eyðast. Ég er sann-
færður um að upprekstur á slík
svæði mun heyra sögunni til
innan mjög skamms tíma,“
sagði Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri.
FRÁ HÁSKÓLA ÍSLANDS
SKRÁSETNING
NÝRRA STÚDENTA
Skrásetning nýrra stúdenta til náms í Háskóla Is-
lands háskólaárið 1992-1993 fer fram í Nemendaskrá
Háskólans dagana 1.-12. júní 1992. Umsóknareyöu-
blöð fást í Nemendaskrá, sem opin er kl. 10-16 hvern virk-
an dag á skráningartímabilinu.
Einnig verður tekið við beiðnum um skrásetningu nýrra
stúdenta dagana 6. til 17. janúar 1993.
Viö nýskrásetningu skrá stúdentar sig jafn-
framt í námskeiö á komandi haust- og vormiss-
eri.
Umsóknum um skrásetningu skal fylgja:
1) Ljósrit eða staðfest eftirrit af stúdentsprófsskirteini.
2) Skrásetningargjald: kr. 22.350,-.
Ljósmyndun vegna nemendaskírteina fer fram í skólanum
í september 1992.
tækniskóli
íslands
Háskóli og
framhaldsskóli
vekur athygli á því að umsóknarfrestur um skólavist árið 1992-93
rennur út 31. maí næstkomandi. Áætlað er að taka inn nemend-
ur í eftirtaldar deildir og námsbrautir:
Frumgreinadeild: undirbúningur undir nám i sérgreina-
deildum.
Byggingadeild: byggingaiðnfræði og byggingatæknifræöi.
Rafmagnsdeild:
Véladeild:
rafmagnsiðnfræði, sterkstraums- og
veikstraumssviö, rafmagnstæknifræði.
véliðnfræði, vél- og skipatæknifræöi.
Rekstrardeild:
Heilbrigðisdeild:
útvegstækni, iðnrekstrarfræði og iðnað-
artæknifræði.
meinatækni og röntgentækni.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, sem er opin dag-
lega kl. 8:00-16:30.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa skólans og deildarstjórar i
síma 91-414933.
Rektor
GARÐYRKJUSKÓLIRÍKISINS
REYKJUM - ÖLFUSI
Auglýsingar um laus-
ar stöður við Garð-
yrkjuskóla ríkisins
Fagdeildarstjórastaða við skrúðgarðyrkjubraut.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið námi í landslagsarkitekt-
úr eða hafa aðra fullnægjandi framhaldsmenntun í skrúð-
garðyrkju.
Fagdeildarstjórastaða við umhverfisbraut.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólanámi í líffræði
og/eða umhverfisfræðum, eða hafa aðra fullnægjandi
framhaldsmenntun til starfsins.
Störfin veitast frá 1. ágúst og nauðsynlegt er að viðkom-
andi geti hafið störf ekki síðar en 1. september n.k.
Umsóknarfrestur er tii 20. maí 1992.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans í síma
98-34340.
Bændur
Strákur á 15. ári óskar eftir sveitaplássi i sumar. Getur byrjað um
20. mai. Er vanur. Upplýsingar i síma 98-22308.