Tíminn - 04.07.1992, Side 17
Laugardagur 4. júlí 1992
Tíminn 17
Auglýsing
eftir ábendingum um borgar-
listamann 1992
Samkvæmt reglum sem samþykktar voru í borgarstjórn 3.
maí 1990, er heimilt að veita árlega starfslaun til listamanns
eða listamanna í allt að 12 mánuði.
Menningarmálanefnd velur listamennina, sem starfslaun
hljóta.
Þeir einir koma til greina við úthlutun starfslauna, sem bú-
settir eru í Reykjavík og að öðru jöfnu skulu þeir ganga fyr-
ir úthlutun, sem ekki geta stundað listgrein sína sem fullt
starf. Listamennirnir skuldbinda sig til að gegna ekki fast-
launuðu starfi meðan þeir njóta starfslauna.
Menningarmálanefnd auglýsir hér með eftir rökstuddum
ábendingum frá Reykvíkingum, einstaklingum, sem og
samtökum listamanna, eða annarra um hverjir skuli hljóta
starfslaunin. Menningarmálanefnd er þó ekki bundin af slík-
um ábendingum.
Ábendingar, sbr. ofanritað, sendast Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar, Ráðhúsinu, fyrir 15. júlí 1992.
Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar
Auglýsing
um starfslaun listamanna
til 3ja ára
Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti árið 1990 að veita þrí-
vegis sérstök starfslaun til listamanna, en þau eru til 3ja
ára.
Þeir einir listamenn koma til greina við veitingu starfslauna,
sem búsettir eru í Reykjavík og að öðru jöfnu skulu þeir
ganga fyrir, sem ekki geta stundað listgrein sína sem fullt
starf. Skulu listamennirnir í umsókn skuldbinda sig til þess
að gegna ekki fastlaunuðu starfi meðan þeir njóta starfs-
launanna.
Starfslaunin verða kunngerð á afmælisdegi Reykjavíkur,
hinn 18. ágúst, og hefst greiðsla þeirra 1. septembereftirtil-
nefningu.
Umsóknum um starfslaunin skal skila til Menningarmála-
nefndar Reykjavíkurborgar, Ráðhúsinu, fyrir 1. ágúst n.k.
Sumartími skrifstofu
Framsóknarflokksins
Frá 18. maí er skrifstofa okkar í Hafnarstræti 20, III. hæð, opin frá kl. 8.00 til 16.00
mánudaga-föstudaga.
Verið velkomin.
Framsóknarflokkurinn.
Þórsmörk
Hin viðfræga og fjölsótta Þórsmerkurferð ungra framsóknarmanna verður farin dag-
ana 3. til 5. júli n.k. Tjaldað verður í Langadal. Vinsamlega tilkynnið þátttöku til SUF
I síma 91-624480. - Athugið: Takmarkað sætaframboð
Feróamálaráð SUF.
Sumarhappdrætti
Framsóknarflokksins 1992
Drætti í Sumarhappdrætti Framsóknarflokksins hefur verið frestað til 10. júli n.k. Vel-
unnarar flokksins, sem enn eiga ógreidda miða, eru hvattir til að greiða heimsenda
giróseðla fyrir þann tima.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða I sima 91-624480.
Framsóknarflokkurinn
Framsóknarkonur
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir hópferð á Kvennaþingið á Egils-
stöðum 20.-23. ágúst n.k.
Vinsamlegast látið skrá ykkur strax hjá Jafnréttisráði. simi 91-27420, og á skrifstofu
Framsóknarflokksins. simi 91-624480.
Framkvæmdastjórn L.F.K.
Sumarferð
framsóknarmanna
Fariö verður Kjöl að Blönduvirkjun laugardaginn 8. ágúst.
Nánar auglýst síðar.
Fulltrúaráðlð.
Madonna hefur hingaö til ekki verið feimin að sýna af sér ýmislegt
sem blygðunarfullu fólki finnst ósæmilegt. Henni létti samt mikið
þegar hún fékk aftur skilað myndum sem stolið hafði verið, kannski
vegna þess að sumar þeirra eiga að birtast I bók.
Madonna
fær
skilað
stolnum
klám-
myndum
FBI og sunnudagsslúðurblað hafa
komið til skila til söngkonunnar
Madonnu 44 ljósmyndum af
henni, sem þykja vart sæmilegar
og stolið hafði verið. Blaðinu hafði
verið boðnar þær til kaups fyrir
um 6 milljónir króna.
Madonna hefur hingað til ekki
þótt sérlega feimin við að sýna á
sér ýmsar hliðar. Þessar myndir,
sem sýna hana nakta og í djörfum
stellingum, eru þó sagðar þær al-
kæruleysislegustu sem hingað til
hafa sést af henni. Og Madonna er
ekki komin lengra á siðsemis-
brautinni en það, að sagt er að
margar hinna umtöluðu mynda
eigi að birtast í væntanlegri bók,
„Madonna’s Dreams“.
Haft er eftir starfsmanni FBI,
sem þátt tók í myndaleitinni, að
Madonna sé ósköp fegin að mynd-
irnar séu komnar til réttra aðila.
„Djörfu myndirnar, sem stolið var,
ollu Madonnu miklum áhyggj-
um," segir hann.
Ronald Biggs tók þátt I lestarráninu mikla í Bretlandi fyrir tæpum 30 árum. Hann hefur búið í Brasilíu
undanfarin ár, þar af 17 þau síðustu meö Úrsúlu hinni argentínsku.
Ronald Biggs lestarþjófur á á hættu
að verða framseldur til Englands
Um fátt var meira rætt árið 1963
en heljarmikið lestarrán, sem
framið var í Englandi, þar sem
ræningjarnir höfðu á brott með sér
á þriðju milljón sterlingspunda.
Alft rannsóknarkerfi Scotland Yard
var sett í að upplýsa málið, þjófarn-
ir náðust og fengu langa fangelsis-
dóma.
Einum þeirra, Ronald Biggs, tókst
þó að strjúka úr steininum eftir að
hafa afplánað 2 ár af þeim 30, sem
honum var ætlað að sitja inni, og
þrátt fyrir mikinn eltingaleik tókst
breskum yfirvöldum ekki að hafa
hendur í hári hans, ekki heldur eft-
ir að hafðist upp á honum í Brasil-
íu. Ronnie, sem nú er 62ja ára,
hafði nefnilega tekist að geta son
við nektardansmey nokkurri. Sá
verður 18 ára 16. ágúst nk. og þá
nær vernd brasilískra laga, sem
kveða svo á að barn eigi rétt á að
hafa föður sinn til 18 ára aldurs,
ekki lengur til Ronnies.
Enginn framsalsréttur er milli
landanna. Undanfarin 17 ár hefur
Ronnie búið í ástúðlegri sambúð
með hinni argentínsku Úrsúlu.
Ekki hefur líf Ronnies svo sem
alltaf verið friðsælt þessi ár sem
hann hefur verið á flóttanum. Árið
1981 rændu málaliðar honum og
smygluðu honum til Barbados, en
þaðan var ætlunin að framselja
hann til Bretlands. Sonur hans,
sem þá var 6 ára, kom þá fram í
brasilísku sjónvarpi og bar fram
hjartnæma ósk um að pabbi hans
fengi frelsi á ný. Almenningur
hreifst mjög af snáðanum, sem fékk
óðar tilboð frá CBS auk þess sem
pabba hans var sleppt.
Nú er eftir að sjá hver örlög
Ronnies Biggs verða eftir 16. ágúst,
en bresk yfirvöld segjast enga
ákvörðun hafa tekið. Hann segist
taka því sem að höndum ber.
TYúlega er ránsféð nú uppurið, því
að sagt er að Ronnie hafi að undan-
förnu þurft að lifa á syni sínum,
sem er að koma fótunum undir sig
sem skemmtikraftur í þeirri einu
höfuðborg sem faðir hans vogar sér
ekki að stíga fæti í — London.
Reyndar hefur Ronnie ýmis jám í
eldinum. Hann gaf skipuleggjend-
um umhverfisráðstefnunnar í Rio
góð ráð um hvernig best væri að
komast hjá því að verða fómarlamb
þjófa og misindismanna. Og nú
stendur til að gera kvikmynd um
viðburðaríkt líf hans.
í spegli
Timans