Tíminn - 18.07.1992, Blaðsíða 3
Laugardagur 18. júlí 1992
Tíminn 3
Boðið upp á
vélsleðaferð
Hjónin hjalpast að við gróðursetningu í Vinaskógi.
Opinber heimsókn þýsku forsetahjónanna:
Þýskir ferðamenn á Þingvöllum
voru afar hrifnir af að rekast á for-
seta sinn í gær á ferð hans um
sögustaðinn. Forsetinn gaf sér
tíma til að heilsa upp á þá og kynnti
þá fyrir forseta íslands.
Opinberri heimsókn þýsku for-
setahjónanna heldur áfram í dag og
héldu þau norður í land í morgun.
Þar ætla þau að skoða Laxárvirkj-
un, Námaskarð og Dimmuborgir.
Hádegimat snæða þau í Höfða.
Því næst verður haldið til Akur-
eyrar þar sem gengið verður um
Lystigarðinn og Akureyrarkirkja
skoðuð. Einnig verður komið við í
Nonnahúsi.
Rétt fyrir 18:00 verður brottför frá
Akureyri og kvöldverður þeginn á
Hótel Höfn þar sem jafnframt verð-
ur gist.
A morgun verður boðið upp á vél-
sleðaferð á Vatnajökli og ekki komið
til Reykjavíkur fyrr en kl. 18:45.
Herra og frú von Weizsácker
fljúga heimleiðis kl.8:10 á mánu-
dagsmorgun og þar með er opin-
berri heimsókn þeirra lokið hér á
landi. —GKC.
Við komu herra og frú We-
izsácker og frú Vigdísar Finn-
bogadóttur til Þingvalla í gær.
Séra Hanna María Pétursdóttir
þjóðgarðsvörður tók meðal
annarra á móti þeim í fallegum
íslenskum þjóðbúningi.
Tímamynd Sigursteinn
Við komu herra og frú Weizsácker og frú Vigdísar Finnbogadóttur til Þingvalla í gær. Séra Hanna Mar-
ía Pétursdóttir þjóðgarðsvörður tók meðal annarra á móti þeim í fallegum íslenskum þjóðbúningi.
Sumarferð Framsóknarfélaganna í Reykjavík
laugardaginn 8. ágúst 1992
Fariö verður um:
Gullfoss- Geqsir
Hveravellir -
Blönduvirhjun
Kl. 08:00 Lagt af stað frá BSÍ og ekið að Geysi í Haukadal, þar sem fólki gefst kostur á
að skreppa í sjoppu.
Kl. 10:30 Lagt af stað frá Geysi. Ekið norður Kjöl að Hveravöllum. Þar munu ferðalangar borða
nesti sitt.
Kl. 15:00 Lagt af stað frá Hveravöllum og ekið norður að Blönduvirkjun, þar
sem virkjunin verður skoðuð í fylgd leiðsögumanns.
Kl. 18:00 Lagt af stað frá Blönduvirkjun og er ekið að Staðarskála.
Kl. 21:00 Lagt af stað frá Staðarskála og ekið til Reykja-
víkur. Áætlað er að koma til Reykjavíkur kl. 23:45.
Fargjald kr. 2.800,-.
Tekið verður á móti sætapöntunum í síma
624480 eða á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Hafnarstræti 20, 3. hæð, 4.-7. ágúst.
Teikn.: Sigurður Thoroddsen