Tíminn - 18.07.1992, Qupperneq 8

Tíminn - 18.07.1992, Qupperneq 8
8 Tfminn Laugardagur 18. júlí 1992 Rússneska þingið vill beita Eistlendinga refsiaðgerðum: Deilur meö Eistum og Rússum sem þróast gætu í alvarleg átök Rússneska þingið krafðist þess í gær að Eistar yrðu beittir tíma- bundnum refsiaðgerðum. Þingmenn sögðu að Eistar níddust mjög á Rússum sem búa í landinu og eru þar minnihlutahópur. Þing- menn samþykktu ályktun þar sem segir að ef hermdarverk í garð rússneskra borgara haldi áfram í landinu þá muni yfírvöld í Moskvu íhuga að fella úr gildi samninginn frá janúar 1991 sem kveður á um samskipti þjóðanna. í ályktuninni segir ennfremur að sumar gerðir Eista frá því að samn- ingurinn var undirritaður gangi þvert á margar greinar hans. Aðfarir Eista séu ekki til neins annars falln- ar en að koma á deilum milli þjóð- anna og stuðla að þjóðernisátökum. Rússneskir harðlínumenn hafa stöðugt tekið dýpra í árinni og látið falla ýmis orð um nauðsyn hernað- araðgerða til þess að vernda þær milljónir rússneskumælandi manna sem búa í Eystrasaltsríkjunum. Tálið er að þessi ályktun rúss- neska þingsins valdi ótta meðal íbúa Eystrasaltsríkjanna. íbúar þessara landa túlka slíkar yfirlýsingar sem löngun Rússa til þess að skipta sér af málum þeirra. Eins og kunnugt er af fréttum fengu Eistland, Lettland og Litháen sjálfstæði þegar bylting harðlínu- manna í Moskvu mistókst í ágúst síðastliðnum. Á þeim tíma sem lið- inn er hafa þessi ríki sett lög um rík- isborgararétt íbúanna en samkvæmt þeim lögum hafa aðeins þeir fullan borgararétt sem bjuggu í löndunum áður en Sovétríkin lögðu þau undir sig 1940 eða eru afkomendur þessa fólks. Fólk í Eystrasaltsríkjunum, sem talar rússnesku eða er af rússnesku bergi brotið, segir hins vegar að þessi lög mismuni því og séu til þess eins sett að hrekja það úr landi. Margir þessara Rússa hafa búið og starfað í Eystrasaltslöndunum í yfir 50 ár. Rússar eru nú 48% íbúa í Lett- landi og um 35% íbúa Eistlands. í ályktun rússneska þingsins segir ennfremur að stjórnvöldum Rúss- lands sé heimilt að undirbúa að- gerðir sem feli í sér efnahagslegar þvinganir gegn Eistum ef Rússar í Íandinu veröi áfram beittir misrétti. Eystrasaltsríkin eru ennþá mjög háð Rússum og Samveldisríkjunum á sviði efnahagsmála. í Samveldis- ríkjunum eru 11 fyrrverandi lýð- veldi Sovétríkjanna gömlu. Þegar Sovétríkin beittu Litháen viðskipta- þvingunum árið 1990 til þess að reyna að stöðva uppgang sjálfstæð- ishreyfinga þar, lenti Litháen á barmi gjaldþrots innan sex vikna. Annað bitbein Rússa og Eystra- saltsríkjanna er sú staðreynd að 130.000 rússneskir hermenn eru með bækistöðvar í þessum ríkjum. Eystrasaltsríkin vilja að Rússar kalli þessa hermenn heim hið bráðasta. Mikil spenna ríkir á milli rússneskra hersveita annars vegar og Eista hins vegar. Rússneskir hermenn segja að þeir hafí orðið fyrir árásum vopnaðra manna. í síðustu viku greindi Itar- Tciss fréttastofan frá því að hópur vopnaðra manna hafi skotið að Skilti fjarlægt af aðalstöövum kommúnistaflokksins í Lett- landi tveimur rússneskum herflutninga- bílum í Eistlandi og tekið sex rúss- neska hermenn höndum. Rússnesk- ur herflokkur náði síðar að leysa fé- laga sína úr haldi og „handtaka of- beldismennina" eins og það var orðað hjá fréttastofunni. Rússnesku þingmennirnir sem samþykktu ofangreinda tillögu Iögðu einnig til að „Sameinuðu þjóðunum yrði blandað í málið ef Eistar héldu áfram að níðast á mannréttindum.“ Viðræður fara nú fram á milli Rússa og Eista þar sem rætt er um samskipti þjóðanna og framtíðar- skipan mála. —Reuter/Krás. Flokksþingi demókrata lokið og Clinton útnefndur frambjóðandi flokksins: Clinton kallar stefnu sína „Nýja sáttmála"! Aðfaranótt föstudags hélt Bill Clinton lokaræðu á þingi Demókrata- fíokksins þar sem hann þáði formlega útnefningu sem forsetafram- bjóðandi. Það hafa margir beðið í ofvæni eftir ræðu þessari enda bú- ist við því að Clinton segði eitthvað bitastætt eftir að hafa umskrif- að ræðuna 19 sinnum. Áður hafði því verið spáð að ræða Clintons myndi skipta sköpum um gengi hans í kosningabaráttu þeirri sem fram undan er. Hann yrði að blása í baráttulúðra og kveikja eld- móð með flokkssystkinum sínum. Ræða hans var löng og lítið fór fyrir eldmóði þótt flokksfélagar væm sáttir við orð Clintons. Honum varö tíðrætt um æsku sína, hugrekki móður sinnar og þá framtíðarsýn sem hann sagðist hafa varðandi Bandaríkin. Ræöunni var greinilega ætlað að gefa kjósendum ákveðna mynd af Clinton, mynd hins „ekta ameríska drengs", og einnig að binda enda á vangaveltur um bresti hans. Clinton fór víða í ræðu sinni og vitnaði jafnt í Biblíuna sem Abraham Lincoln og John F. Kennedy. Hann skírskotaði til þess slagorðs sem Kennedy notaði í sinni kosningabar- áttu með góðum árangri, þ.e.a.s. „Ný markmið" og sagði að sín störf í emb- ætti forseta yrðu byggð á „Nýja sátt- málá'. „Hátíðleg skuldbinding milli þjóðarinnar og ríkisstjómarinnar sem byggir á liðveislu okkar allra við landið fremur en því sem við krefj- umst af því,“ sagði þessi yngsti leið- togi demókrata frá því að Kennedy leið. Clinton sagðist einnig vera af- sprengi „týndu miðstéttanna" og lof- aði því að þessar stéttir kæmu í leit- imar þegar hann væri kominn í emb- ætti. „Við bjóðum þjóðinni nýjan val- kost byggðan á gömlum gildum. Við bjóðum tækifæri. En við krefjumst ábyrgðar. Við erum hvorki frjálslynd- ir né íhaldssamir, demókratískir né repúblikanar. Okkar valkostur er öðmvísi. Hann er nýr og hann mun ganga,“ sagði Clinton. Mestu fagnaðarlætin urðu þegar Clinton lýsti því yfir að hann væri hlynntur sjálfsákvörðun kvenna í fóstureyðingarmálum. Demókratar slitu flokksþinginu glaðir í sinni og sannfærðir um að þeir hafi nú sigur- vegara í sínum röðum. Reuter/Krás. Félagi í kór frönsku óperunnar lét lífið og 39 aðrir söngvarar og tæknimenn slösuðust þegar göngu- brú sem var hluti sviðsmyndar í Maestranza óperunni í Sevilla hrundi. Slysið átti sér stað þegar félagar í Bastilluóperunni voru að æfa íyrir HEYÞYRLUR TIL AFGREIÐSLU SAMDÆGURS DRAG- EÐA LYFTUTENGDAR VINNSLUBREIDD 5 METRAR GOTTVERÐ OG GREIÐSLUKJÖR JKgfuiyXRDCRD uz uás orf HÖFÐABAKKA 9 • 112 REYKJAVIK ■ SIMI 91-634000 Slys í óperunni Otello skömmu fyrir frumsýn- ingu. Domingo slapp þegar: Kórfélagi lét lífið og margir söngv- arar slösuðust uppfærslu á óperunni Otello eftir Verdi sem vera átti hluti af menn- ingardagskrá heimssýningarinnar sem nú fer fram á Spáni. Heimildarmenn segja að söngvar- inn sem lést hafi verið 39 ára gömul kona sem söng í kór óperunnar. AIl- ir þeir sem slösuðust eru Frakkar utan tveir sem eru Spánverjar. Læknar sögðu að þrír þeirra sem slösuðust væru illa haídnir með brotin rif og brotnar mjaðmagrind- ur. Göngubrúin, sem hrundi ofan á hinn 60 manna kór óperunnar, var hluti sviðsmyndarinnar en ekki óperuhússins sjálfs. Óperuhúsið er hins vegar glænýtt og hafði sérstak- lega verið byggt fyrir heimssýning- una og vígt í maí síðastliðnum. Hinn ástsæli tenór Placido Dom- ingo, sem á aö syngja hlutverk Otel- los í þessari uppfærslu, var ekki í óperuhúsinu þegar slysið átti sér stað. Frumsýningin átti að fara fram í dag, laugardag, en henni hefur nú verið frestað. Ýmsum öðrum hátíð- arhöldum á heimssýningunni hefur einnig verið frestað eða við þau hætt vegna slyssins. Mikið húllumhæ var einmitt fyrirhugað nú um helgina vegna þess að sýningin er nú hálfn- uð en hún mun standa alls í sex mánuði. —Reuter/Krás. Mongólar lögðu ríki Araba í rúst- ir og þær þjóðir, sem þeim tókst ekki að eyði- leggja með her- valdi, vöndu þeir á hass- neyslu og þá vareftirleikurinn hægur að eyði- leggja heilu þjóðmenning- arnar. Kannabis hefur haft djúptæk áhrif í sögu mannkynsins. Enda þótt neysla þess sé bönnuð með lögum í Norðurevrópulöndum og í Ameríku og víða annars staðar, er það mikið notað, einkum meðal námsmanna og ungs fólks. Svo virðist sem hlut- verki þess í yfirstandandi umskipt- um menningarinnar sé langt frá því að vera lokið. Fyrir einum átta hundruð árum blómgaðist menningin í löndum Múhameðstrúarmanna. Úrvals- menn á sviði vísinda og heimspeki, skáld, listamenn og stjórnmálaskör- ungar máttu sín mikils í borgum Litlu-Asíu, og voru að byggja upp þjóðfélag lengra komið í vísindum og hverju því, sem til hámenningar heyrir, en nokkurt annað sem þá þekktist. Möguleikarnir, sem bjuggu í þeirri tilraun, urðu aldrei að veru- leika. Vöxtur hennar stöðvaðist skyndilega við það að Genghis Khan kom fram (herhlaup Mongóla árið 1206 og þaðan af) og sótti inn í þessi lönd og önnur með morðfúsar sveit- ir sínar. Jafnframt innrásinni var þar fylgt ákveðinni stjórnarstefnu, þeirri að eyðileggja ekki aðeins helstu byggingar og stofnanir í borgum þessara landa, heldur að út- rýma öllum íbúum borganna. Sér- stakt kapp var lagt á að útrýma öll- um, sem á einhvern hátt báru af: gáfumönnum og þeim, sem höfðu forustuhæfileika og gætu því farið að skipuleggja andstöðu gegn ofur- valdi innrásarliðsins. Ásamt hinum gífurlegu útrýming- araðgerðum (sem ekki voru þó látn- ar ná til sveitafólks) var notkun kannabisefna innleidd meðal hinna sigruðu þjóða til þess að tryggja það, að Arabaþjóðirnar skyldu aldrei end- urheimta vitsmuni sína og skapandi hæfileika. Það að þessi planta hefur verið not- uð þannig til þess að kúga heilt sam- félag siðmenningar, mætti vera til- efni til þess að staldra við, að líta á ástandið hér og nú, hjá okkar eigin kynstöfni og þjóð. Margar raddir hafa heyrst, sem láta mikið af því að þessi planta sé skað- laus, hættuminni en tóbak og brennivín, og að hún sé hentug og skemmtileg aðferð til að örva félags- leg samskipti. Þessir sérstöku með- mælendur hvetja til notkunar efnis- ins, heimta að sala þess verði lög- leyfð, og líta á það sem allt að því trúarlega reynslu að njóta þess sem þeir kalla „hugarvíkkandi áhrif". Með þessum fullyrðingum og kröf- um sanna þeir á sér eitt af einkenn- um þess að vera háður slíkum efn- um: þörfina til að draga aðra með sér niður í notkun þeirra. Fullyrð- ingarnar eru hinsvegar fjarri öllum sanni.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.