Tíminn - 01.08.1992, Síða 1

Tíminn - 01.08.1992, Síða 1
Laugardagur 1. ágúst 1992 141. tbl. 76. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- ÞAU VORU AÐ LEGGJA AF STAÐ með rútunni frá Umferöarmiöstöðinni { útilegu um verslunarmannahelg- ina. Ferðinni var heitið á útihátíðina Eldborg ‘92. Timamynd Sigursteinn Kvótaskerðing Austfjarðatogara nálægt 40% frá 1. september 1991. Utvegsmenn funda með þingmönn^n Austurlands eftir helgi. Eiríkur Ólafsson, formaður Útvegsmannafélags Austfjarða: Oviss framtíð fyrir- tækja og byggðarlaga Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um kvóta næsta árs kemur illa við byggðir víða um land og ekki síst á Austfjörðum. Útvegsmannafélag Austfjarða og Útvegsmannafélag Hornafjarðar hafa boðað sameigin- lega til fundar með þingmönnum kjördæmisins næstkomandi mið- vikudag í Valaskjálf. Eiríkur Ólafsson, formaður Út- vegsmannafélags Austfjarða, segir að skerðingin á Austfjörðum sé litlu minni en á Vestur- og Norðurlandi. Allir staðir á Austfjörðum verða fyr- ir skerðingu, en verst bitni hún á nyrstu stöðunum frá Bakkafirði til Seyðisíjarðar. Hann segir að skerðing á togurum Austfírðinga sé um 12% prósent milli ára og það komi ofan á um 25% skerðingu í fyrra. Einar segir að það gleymist oft að veiðar þeirra byggist mikið á ýsu og að veiðar á henni voru skertar mikið í fyrra ásamt veiðum á þorski. Skerðingin í fyrra kom verst niður á Austfjörð- um. Sé tekið mið af úthlutun ársins 1990, sem gilti til 1. september 1991, þá er skerðingin orðin 38- 40% í þorskígildum talið. „Fundurinn verður fyrst og fremst til upplýsingar fyrir þingmenn," segir Einar Ólafsson, „og við vænt- um náttúrlega ákveðinna svara frá þeim, hvort þeir eru tilbúnir til að styðja við byggðirnar hérna eða hvort þeir vilja ekki gera það. Ég vænti þess að sjá þá alla á þessum fundi, að þeir þori allir að koma. Þetta er það stórt hagsmunamál fyr- ir byggðirnar hérna.“ Einar segir að það hrikti þegar í mörgum fyrirtækjum á Austfjörð- um. Ofan á kvótaskerðingu nú hafi verið lækkandi gengi á dollar og lækkandi verð á mörkuðum og framundan sé erfiður tími, alveg sama hvað gert verði. Fyrirtækin geti ekki staðið undir því til lengdar að bæta við sig lánum úr Byggða- sjóði, eins og nefnt hefur verið, til þess að kaupa kvóta. Þegar séu mörg fyrirtækjanna alltof skuldsett og geti ekki bætt við sig skuldum til að afla einhvers kvóta. Það gengur alla- vega ekki á þessu verði sem verið er að tala um, sagði Einar Ólafsson að lokum. -BS Farsóttir í Reykjavík í júní: Kvef, iðrakvef og lungnabólga Samkvæmt skýrslum fjögurra heilsu- gæslustöðva, eins læknis og Lækna- vaktarinnar sf. var kvef og aðrar veiru- sýkingar í efri loftvegum algengasti kvillinn í Reykjavík í júnímánuði. Alls var vitað um 1158 tilfelli þessa kvilla. Iðrakvef (veirusýking í þörmum) var næstalgengast eða 66 tilfelli og 58 lungnabólgutilfelli komu upp. Vart varð við hálsbólgu af völdum sýkla í 47 tilfellum og hlaupabólu í 17 tilfellum. 5 fengu hettusótt og 6 greindust með maurakláða. Engin in- flúensutilfelli komu upp í borginni í júní. -BS Hreppsnefnd Patrekshrepps: Skerðing Pat- reksfirðinga 45-50% á tveimur árum Hreppsnefnd Patrekshrepps lýsir furðu sinni á og mótmælir harðlega þeirri ákvörðun ríkisstjórnar að skera niður aflaheimildir á þorski, án þess að til komi ráðstafanir til jöfnunar á aflaheimildum á milli svæða. Svo segir í fréttatilkynningu frá hreppsnefndinni. Þá er lýst furðu yfir að ráðherrar í ríkisstjórn íslands skuli skuli standa að slíkum ójöfnuði, skerðing á afla- heimildum þýði í raun aftaka heilla byggðarlaga. Bent er á að skerðing á aflakvóta Patreksfirðinga sé 18,33%, sem er 15,8% umfram landsmeðal- lag. Ef lögð er saman skerðing þessa árs og næsta, auk sölu skips úr byggðarlaginu, er heildarskerðing Patreksfirðinga á tveimur árum um 45-50% af aflaheimildum byggðar- lagsins. Því megi vera Ijóst að hvorki sjávarútvegsfyrirtæki né sveitarfé- lagið þoli slíka tekjuskerðingu ár eftir ár. Hreppsnefnd Patrekshrepps telur ákvörðun um að Byggðastofnun skoði og skilgreini ástand mála og geri tillögur til úrbóta gagnlausar, nema tilkomi Ijármagn til stofnun- arinnar, sem beitt yrði til jöfnunar- aðgerða. Það er því krafa hrepps- nefndarinnar að nú þegar líti dags- ins Ijós þær aðgerðir sem ríkis- stjórnin hyggst beita sér fyrir og þar með verði eytt því óvissuástandi er ríkir í atvinnu- og byggðamálum. -BS Félag smábátaeigenda á Austurlandi mótmælir aflaákvörðun ríkisstjórnarinnar: 60% skerðing á fjórum árum Á aðalfundi Félags smábátaeígenda á Austurlandi, sem haidinn var í vikunni, var samþykkt áiyktun þar sem mótmælt er harðiega nýakveðinni flatri skerðingu á þorskkvóta sem komi harðast nið- ur á smábátum í aflamarki. Bent er á að hjá þeim sem hafo aB- ar sínar heimildir í þorski nemi skerð- ingin 25%, en að meðaltali er skerð- ingin 18% í þorskígildum tab'ð þegar skeröing togara er 4%. Aflaheimildir smábáta í aflamarki hafl nú dregist saman um hartnser 60% á síðustu flúrum árum, sem muni höggva stórt skarð í þennan útgerðarflokk ef ekkert verður að gert Fundurinn telur brýntað stjórnvöld komi tii móts við þessa mildu skerð- ingu á aflamarki smábátanna. Bent er á tillögu aðalfundar L.S. frá sl. hausti, sem gerir ráð fyriT að smábátar með aflamarid, sem veitt hafi allan sinn kvóta, fái heimild tii önglaveiði á síð- ustu þrem mánuðum næsta fiskveiði- árs. Sú lausn hefbi enga útgjaldaaukn- ingu fyrfr rfldssjóð í för með sér og ógnaði vart afkomu þorskstofnsins, þar sem aðeins er verið að ræða um 1% meiri afla. Þá er skorað í stjórnvöld að heimlla nú þegar velðar sjávarspendýra og að gera stórátak í vemdun hrygningar- stofna. Varað er við bolfiskveiöum í af- kastamM veiðarfæri upp i kálgarða, sem á sér enn stað þrátt fyrir fyrir- Uggjandi uppfýsingar um staðbundna þorskstofna. Einnig beinlr fundurinn því tfl sjáv- arútvegsráðherra að hann felli úr gildi ákvæði reglugeröar sem bannar neta- veiðar fti 1. júlí til 15. ágúst. Bent er á að í þessum b'ma em veður hvað best og hægt að draga netin dagiega. Einnig að á þessum tíma hefur orðið vart við mikla ýsugengd og er neta- veiðibannið beiniínis hemill i að hægt sé að veiða hana. -BS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.