Tíminn - 01.08.1992, Síða 9
Laugardagur 1. ágúst 1992
Tíminn 9
Alls staðar voru brunnar. Baðstað-
ir voru bæði í opinberum bygging-
um og á hverju heimili. í borgun-
um voru lokuð skolpræsi, haglega
gerð úr brenndum tígulsteini.
Astæðan fyrir öllu þessu var trúin
á vatnaguðinn, sem þvegið hafði
hið blessaða land hreint. Hann er
arfur frá Úr. Það varð skylda hvers
manns að halda þessu helga landi
hreinu. Og þeirri skyldu var
greinilega hlýtt í borgum Indus-
menningarinnar, Harappa, Mo-
henjo-Daro og Lothal: Indus-
menningin er komin frá Mesópót-
amíu og beint framhald hennar.
Um hitt mætti fremur deila hvort
Indusmenningin er komin frá
Súmerum eða Ubeidfólkinu. Hið
síðarnefnda verður þó að teljast
mun líklegra. Súmerar gerðust
herraþjóð yfír Ubeidfólkinu. En
þeir tileinka sér þekkingu þess og
verklega menningu. Þetta má m.a.
sjá á þeim fjölmörgu nöfnum sem
Súmerar taka úr máli Ubeidfólks-
ins. Að vísu þekkja menn ekki
málfræði og gerð þeirra tungna
sem Ubeidfólkið talaði, en hins
vegar þekkja menn fjölda orða úr
málum þeirra, sem lutu að staðar-
nöfnum og starfsháttum, og Súm-
erar tóku í sitt mál. Nöfn stórfljót-
anna í Mesópótamíu, Idiglat og
Burnun eins og þau heita í textum
Súmera, eru orð úr máli Ubeid-
fólksins, en ekki úr máli Súmera.
Sama máli gegnir um helstu borg-
ir Súmera. Nöfri þeirra Úr, Larsa,
ísin, Abad, Kulleb, Lagash, Nippur
og Kish eru öll úr máli Ubeidfólks-
ins. Og jafnvel enn sterkari vís-
bending um menningu Súmera er
að flest stöðuheiti og skyld nöfn
taka Súmerar úr máli Ubeidfólks-
ins, sem augljóslega lagði grunn-
inn. Það má nefna orð eins og eng-
ar (bóndi), udul (hirðingi), shup-
eshdak (sá sem veiðir fisk), apin
(plógur), aprin (plógfar), mimbar
(pálmi), sulumb (daðla), tíbra
(málmgerðarmaður), simug
(smiður), mangar (trésmiður),
addub (körfugerðarmaður), isbar
(vefari), ashgab (sútari eða sá sem
býr til hluti úr skinni), pahar (leir-
kerasmiður), shidim (múrari) og
dangar (kaupmaður). Þessi orða-
listi sýnir betur en langt mál hvers
eðlis þessi menning er og hvaðan
hún er komin. Orðið Dilmun gæti
verið úr málum Ubeidfólksins, en
um það er ekki vitað. Hins vegar
hafa menn bent á skyldleika þess
við Bumun, sem er nafti úr máli
Ubeidfólksins á Efratfljóti.
Hér er um að ræða þjóð sem er
hin upphaflega menningarþjóð,
en er um 3000 f.Kr. orðin undirok-
uð f eigin landi. Súmerar, hin nýja
herraþjóð, talar aðra tungu. Þeir
trúa að hluta á aðra guði. Og þeir
hafa aðra siði.
Við þessar aðstæður er líklegra að
það hafi verið Ubeidfólkið sem tel-
ur sig nauðbeygt til að fara úr
landi. Súmerar eru tiltölulega ný-
lega komnir til landsins. Þeir em
herraþjóð og hafa enga ástæðu til
að fara. Það er eðlilegra að hinir
sigmðu yfirgefi landið en sigur-
vegaramir, sem drottna yfir því.
Eins og fyrr segir var Ubeidfólkið
trúhneigt fólk, sem byggði fyrsta
musterið sem vitað er um. Must-
erisprestarnir réðu mestu og vom
hinir eiginlegu stjórnendur þess-
arar þjóðar. Og á þrengingartím-
um afráða þeir að fara með þjóð
sína til landsins helga, Dilmun, og
iðka þar áfram trú sína og menn-
ingu. Þessi þjóð flytur þekkingu
sína með sér og hún reynir á
næstu öldum að láta draum skáld-
anna fomu um hið blessaða land
rætast. Afleiðingin varð forn-
menning Indverja.
Og nokkm síðar fór annar hópur
frá Úr til vesturs, undir forustu
Abrahams, og flutti arfinn frá Úr
til hins fyrirheitna lands.
Höfundur er lithöfundur.
sssa
••••:••:•»
wmm
»:-»::xí-:v»»»»8
:::::':::í»»:::v::::»»»
:»»::;»»»::::-»:;:-x
Michael Jackson: Búinn aö vera?
Fjölbragða-
glímumenn
stela senunni frá Jackson
Bandarískir fjölbragöaglímumenn hafa stoliö senunni.
Poppgoðið, sem er að leggja upp í hnattferð, þykir hafa látið á sjá
og vinsældirnar fara dvínandi
Dræm miöasala
Fyrir nokkm vom miðar á tónleika hans,
sem haldnir verða á Wembleyleikvanginum
í London, boðnir til sölu á Surreyhótelinu
þar í borg á aðeins þriðjung nafnverðs síns,
en nafnverðið er sem svarar 2300 ísl.kr. Á
sama tíma er vonlaust að fá sæti á sýningar
fjölbragðaglímumannanna „Síðasta stríð-
skappans" og „Óða villimannsins". Hvorki
meira né minna en 68 þúsund miðar seldust
á átta klukkustundum á hátíð, sem nefrid er
„Sumarslagurinn ‘92“.
Thlið er að 80% áhorfendanna séu böm
um níu ára aldur, en einmitt þessi aldurs-
hópur var tryggastur poppgoðinu Jackson.
Harvey Goldsmith, einn umsvifamesti um-
boðsmaður skemmtikrafta í Bretlandi, seg-
ist óneitanlega hafa veitt þessu athygli. Það
er hann sem gerst hefur umboðsmaður fjöl-
bragðaglímumannanna og hefur látið um-
boðsmanni stjama á borð við Tom Jones eft-
ir að selja Michael Jackson.
Von er á Jackson til London um mánaða-
mótin. Hann er nú 33 ára og ætlar að halda
fimm tónleika á Wembleyleikvanginum á
vegum Pepsi Cola. Þúsundir miða eru enn
óseldir. Þó hefur verið haldin útsala á þeim
hér og þar um England. Þeir eru sums stað-
ar seldir á sem svarar 700 krónum. Þá eru
miðamir boðnir ókeypis þeim, sem kaupa
gistingu á sumum skárri hóteíum í London
þessa dagana, þ.e. hótelum sem selja gist-
ingu á svo sem 5000 krónur. Sum vikublöð-
in hafa líka fengið slatta af miðum gefins, til
þess að nota sem verðlaun fyrir krossgátu-
lausnir og annað slíkt Von umboðsmann-
anna er að þetta verki sem ókeypis auglýs-
ing. Sagt er að 7000 miðar séu óseldir á tón-
leika, sem Jackson mun halda í Glasgow
þann 14. ágúst.
Ööruvísi mér áöur brá
Þetta er ólíkt því sem var 1988, þegar Jack-
son heimsótti Bretland síðast. Þá troðfyllti
hann Wembleyleikvanginn sjö sinnum og
þénaði að sögn 12 milljónir punda. Síðan
hefur ímyndinni hrakað. Til marks um það
er að síðasta platan hans seldist í „aðeins"
14 milljónum eintaka, sem er ekki mikið
miðað við að fyrri plata hans, „Thriller",
seldist í 45 miíljónum eintaka.
Ekki bætir núverandi útlit Jacksons úr
skák. Hann er orðinn fölur og tekinn og
nefið er þunnt og hvasst, eins og það sé úr
plasti og ætli að fara að bráðna í hita sviðslj-
ósanna.
Jackson er nú að leggja upp í 18 mánaða
hnattferð og hana hóf hann í Þýskalandi á
dögunum. Þá veittu ljósmyndarar athygli
einhverju sem líktist gati á öðrum nasa-
væng hans. „Hann var eins og gamall mað-
ur,“ sagði ljósmyndari Daily Mirror. ,Andlit-
ið var eins og sýrubrennt, sett þúsund ör-
smáum hrukkum sem minntu á köngulóar-
vef.“
„Barnavinurinn" falsímynd?
Eftir að hafa verið árum saman „á toppn-
um“ í sinni grein virðist Jackson nú láta
undan síga á öllum vígstöðvum. í nýrri bók,
sem komin er út í Bandaríkjunum um hann
og heitir „Töframir og geggjunin", em
bornar brigður á það hve hann sé elskur að
börnum.
Meðan bömin virðast líka vera að hlaupa
frá honum segja þeir aðra sögu hjá Sam-
bandi fjölbragðaglímumanna um söluna hjá
sfnum mönnum. Met var slegið hjá bókun-
arkerfi bresku símaþjónustunnar, þegar 25
þúsund manns hringdu á örskömmum tíma
að panta sér miða á slagsmálasýningamar.
125 tjöldum var svo slegið upp í grennd við
miðasöluna tveimur sólarhringum áður en
hún hófst, en miðarnir vom ýmist seldir á
1250 krónur eða 2500 krónur eftir því
hverjir slógust.
Einn mesti fjölbragðaglímumaður Breta,
Mick McManus, segir: „Krakkamir hafa
fengið nóg af Michaei Jackson. Henn leggur
sig um of fram við að vera eins og þau. Þau
vilja heldur sjá tveggja metra há vöðvafjöll
reyna með sér. Þeim finnst persónurnar úr
teiknimyndasögunum hafa verið vaktar til
lífsins. Áuðvitað finnst þeim það spenn-
andi!“
En umboðsmaður Michaels Jackson segir
að þetta sé allt í himnalagi, þótt hann vilji
ekki ræða miðasöluna. Og frúin sem sér um
að markaðssetja plötuna hans, Joanna
Burns, segir: „Það er næstum uppselt á fjóra
af hverjum fimm tónleikum. Og við megum
ekki gleyma að það er kreppa í efnahagslíf-
inu! Þetta mas um að Michael Jackson sé
búinn að vera er tómt bull“.
■t i
Töfrarnir eru á bak og burt. Poppgoðiö Michael Jackson með skræku röddina og æðisgengna
útlitið og framkomuna hefur glatað stöðu sinni í hjörtum áheyrenda, að því er virðist.
Merkilegt nokk þá virðast bandarískir fjölbragðaglímumenn hafa gerst arftakar hans.