Tíminn - 15.08.1992, Qupperneq 4

Tíminn - 15.08.1992, Qupperneq 4
4 Tíminn Laugardagur 15. ágúst 1992 Tíminn MÁLSVARI FRJÁLSLYNPIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Tlminn hf. Framkvæmdastjóri: Hrólfur Ölvisson Ritstjóri: Jón Kristjánsson ábm. Aöstoöarritstjóri: Oddur Ólafsson Fréttastjóran Birgir Guömundsson Stefán Ásgrlmsson Auglýsingastjóri: Steingrlmur Gfslason Skrifstofur: Lynghálsi 9, 110 Reykjavlk Slml: 686300. Auglýsingasfml: 680001. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjóm, fréttastjórar 686306, Iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setnlng og umbrot: Tæknideild Tlmans. Prentun: Oddi hf. Mánaöaráskrift kr. 1200,- , verö I lausasölu kr. 110,- Grunnverö auglýsinga kr. 725,- pr. dálksentimetri Póstfax: 68-76-91 Eggjað til landhreinsana Landhreinsun er nýtt hugtak i nútímapólitík en hefur þó viðgengist gegnum tíðina þar sem landvinningamenn fara yfír með sverði og huga- myndafræði. Flóttamannavandamál er tryggur förunautur landhreinsunar. Allt frá lokum heimsstyrjaldainnar síðari hafa landvinninga- menn hrakið fólk í stórum stíl úr heimabyggð- um sínum og látið sig engu varða hvað um það verður. Sumar þjóðir hafa talið sér skylt að taka við landlausu hrakningsfólki og öflugar alþjóða- stofnanir greiða götu þess inn í samfélög sem oft eru vanbúin að taka við flóttafólki í stórum stfl. Yfir 40 ára gamlar flóttamannabúðir Palestínu- manna í arabaríkjum eru dæmi um hvernig óleysanleg vandamál eru búin til og öll þau endalausu vandræði sem af landhreinsunum geta leitt. Margar hliðstæður eru til í öðrum heimshlut- um. Það hefur verið einkennandi í allri umræðu og áróðri um vandamálið til þessa, að landheinsun- armenn eru ávallt fríaðir af allri sök en þær þjóðir sem ekki taka endalaust við því fólki sem reyfarar og herstjórar reka af höndum sér til að komast yfir lönd og eignir, eru gerðar ábyrgar fyrir því að flóttafólki farnist bærilega. Þessi öfugsnúna afstaða hefur gefið landvinn- ingamönnum og harðstjórum fríar hendur að ofsækja fólk og hrekja úr löndum sínum. Á síðustu vikum eru augu manna að opnast fyr- ir því að þetta gengur ekki lengur. Farið er að tala opinskátt um ofsóknir á hendur þjóðabrot- um og landhreinsunum í fyrrum ríkjum Júgó- slavíu og það sem meira er, talsmenn fjölþjóð- legra stofnana eru farnir að krefjast þess að stjórnvöld og herstjórar virði mannréttindi allra þegna í þeim löndum eða landsvæðum sem þeir ráða. Það er jafnvel gengið svo langt að heimtað sé af yfirvöldum að þau séu ábyrg fyrir að ekki séu framin gróf mannréttindabrot á yfirráða- svæðum þeirra og að fólk sé ekki hrakið með of- sóknum frá heimkynnum sínum. Fram til þessa hefur öllum umkvörtunum af þessu tagið verið vísað frá þar sem um væri að ræða óeðlileg afskipti af innanríkismálum og hafa harðstjórar fengið dyggan stuðning á al- þjóðavettvangi til varnar því sjónarmiði. Engum þarf að koma það á óvart þar sem einræðisherr- ar og kúgarar ráða fyrir flestum þjóðríkjum, og kæra legátar þeirra sig ekkert um utanaðkom- andi afskiptasemi af stjórnarfari og meðferð þegna. Atli Magnússon Til Damaskus! Ofsóknir á hendur þeim sem fara um kring og boða orð Drottíns hér í táradalnum eru ekki nein ný bóla. Þetta sá Kristur fyrir þegar hann áminnti böm sín um að biðja fyrir ofsóknurum sínum og sjálfur fór hann ekki varhluta af ofsóknum. Þó þekkti Sál frá Társus fyrirbærið enn gerr, því hann blés ógnum og manndrápum að lærisveinum drottíns um hríð — en varð svo sjálfur fyrir því seinna að vera of- sóttur fyrir málstað kristinnar trú- ar. Það var eftir að leiftur af himni sló hann blindu á þjóðveginum til Damaskus og farið var að nefna hann Pál postula. _ Aðfarir að boðendum orðsins hafa svo viðgengist æ síðan, en stöðugt erfiðara hefur gerst að greina sundur hvort ofsóknarinn er í hlutverki Sál eða Páls. Kristnir menn hafa frá öndverðu borist á banaspjót og allir hafa þeir sagst vera sá eini og sanni „Páll“. En þjáningasaga er þetta orðin og löng er runa píslarvottanna í aldanna rás. íslendingar hafa ekki fremur en aðrar þjóðir svikist um að leggja sinn skerf til þeirrar sögu að fomu og nýju og má nú minnast þeirra Jóns Arasonar og Ögmundar Páls- sonar. Af dæmum í minni núlif- andi manna ber hvað hæst óöldina í Fríkirkjunni í Reykjavík og allt það fár er af henni leiddi fyrir prest- inn, séra Gunnar Bjömsson. Enn hefúr þó ekki fengist endanlega úr- skurðað hvort það var séra Gunnar eða sóknamefhdin sem fór með hlutverk Páls í því „drama“. Vom kannski báðir aðilar Páll—eða átt- ust þeir við Sál og Sál? Job í Keflavík En píslarsögumar þrýtur ekki og nú er það sóknarprestur Keflvík- inga sem Forsjónin hefur kosið að reyna í trúfestinni með því að stefna að honum ofsóknum og birtíst greinargerð eftir hann um þau mál öll hér í blaðinu síðastlið- inn þriðjudag. Það er margvíslegt sem á prestinum, séra Ólafi Oddi, hefur dunið og víst um að ástæða er til að bera sig upp yfir minna. En hann hefur bmgðist við með því að leggja raunir sínar „fram fyrir þann sem réttvíslega dæmir" og biður fyrirbæna góðra manna. Sé gert ráð fyrir að Ólafur Oddur sé hér staddur í sporum Páls ber sannar- lega að óska að úr rætist fyrir hon- um á endanum eins og Job, sem bar það er á hann var lagt með svo eftirminnilegri þrautseigju. Mætti þá einhver „Thunderball“- glampi ofan af Keflavíkurflugvelli slá sókn- amefhdina blindu á miðjum Kirkjuveginum þegar hún steðjar með ítrekun á uppsagnarbréfinu tíl séra Ólafs Odds og að villa nefndar- innar verði strokin af augum henni er henni gefst sýn á ný. jir Aron og kálfurinn Séra Ólafur Oddur segist fyrir nokkm hafa farið vestur til Banda- ríkjanna að auka við þekkingu sína á lögmálinu og er bert að margt hefur farið úrskeiðis heima í sókn hans á meðan. Er það ekki nýtt að lýðurinn hafi leiðst afvega um leið og hið andlega höfuð hans víkur sér frá að ráðslaga við Drottinn. Hann gleymir guði og tekur að til- biðja þá Baal eða Molok — eða þá gullkálfinn. Allir muna hvemig aðkoman var þegar Móse sneri of- an af fjallinu með lögmálstöflum- ar. Meðan hann var burtu hafði Ar- on látið steypa gullkálfslíkneskið sem menn dönsuðu í kringum. Svipað hefur blasað við séra Ólafi Oddi eftir Ameríkuförina. „Dem- onisk" öfl, eins og hann segir, höfðu tekið sér bólstað í hjörtum sóknamefndarinnar og undir því reri ekki síst sá Aron sem þjónaði í fjarvem hans — séra Helga Soffi'a. Séra Oddur segir frá því hvemig „hópefli" tókst með hinum van- helgu á aukasafnaðarfundi í júlílok og þeir fögnuðu lestri faðirvorsins með „sjúklegu klappi", eins og á fótboltaleik. Hvort sem það er Ólafi Oddi til lofs eða lasts, þá virðist hann hafa fylgst með framferði djöfladýrk- endanna í kirkjunni án þess að hafast neitt sérstakt að. Gamli Móses hefði þó tæplega sýnt slíkt langlundargeð, því hann fleygði frá sér lögmálstöflunum í bræði sinni og braut þær. Hann varð því að sækja nýjar á fjallið. En séra Ól- afi er eflaust vorkunn þótt hann haldi að sér höndum, því ekki er Iíklegt að sóknamefndin spandén á hann nýjum styrk til Ameríku- ferðar og ekki tókst Kjaradómi að leiðrétta prestalaunin sem menn muna. Brosir ekki nóg Séra Ólafur heldur því á upp- sagnarbréfinu og veit ekki sitt rjúkandi ráð. Þótt sóknamefndin segði að vísu af sér þá hefur hún látið kjósa sig aftur, greinilega í fullvissu þess að Keflvíkingar vilji kálfinn og Aron en engan Móses. Annars er að heyra sem það sé flest fremur smálegt sem fundið er að séra Ólafi Oddi og að mönn- um vefjist heldur tunga um tönn þegar þeir em beðnir að tíunda á honum gallana. Einhver finnur það að honum að „brosi ekki nóg“. Þetta er í sjálfu sér hugleiðingar- efni. En greinilega er þetta þó krafa tíðarandans. Ekki er þess getið í heilagri ritningu að spá- mennimir hafi verið síbrosandi eða að Kristi hafi verið tiltakan- lega hláturgjamt. Að vísu hló Sara þegar henni var spáð að hún yrði bamshafandi í elli sinni — en það er nú annað mál. En sem fyrr segir, þetta er tíðar- andinn og lýðurinn vill kálf og Molok, lófatak og húrra fyrir Guði, sem farinn er að útdeila náðinni skellihlæjandi svo það skelfur á honum bumban. Guðs- þjónustumar eiga að vera skemmtilegar og presturinn ljúf- ur eins og mjólkurís með heitri sósu útá. Hann heldur fjallræður í skíðalöndum í veikri von um að guðsbömin gefi sér tíma til að hlýða á uppbyggilegheitin meðan þau súpa úr svo sem einni kók- dós. Andaktina í augum sem falin em á bak við þumlungsþykk, svört íþróttagleraugu verður hann að láta nægja að geta sér til um.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.