Tíminn - 15.08.1992, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Laugardagur 15. ágúst 1992
■ ÚTVARP/SJÓNVARP
1B.30 Ekkl Mttlr Haukur Hauksson endurtekur
fréttimar slnar frá þvl fyrr um daglnn.
19.32 f|>róttaré*ln - Islandsmótið I knatt-
spymu, fyista delld karla Iþróttafréttamenn fylgjast
með og lýsa lelkjum Vals-FH og Breiðabliks-Fram.
20.30 Kvðldtónar
21.00 Vln«»ldallatl gðtunnar Hlustendur
velja og kynna uppáhaldslögin sln. (Einnig útvarp-
aö nk. laugardagskvöld).
22.10 Landlð og miðin Umsjón: Gyöa Dröfn
Tryggvadóttir (Úrvali útvarpað kl. 5.01 næstu nótt).
00.10 f háttlnn Gyöa Dröfn Tryggvadóttir leikur
Ijúfa kvöldtónlist.
01.00 Natturútvarp é samtangdum résum
tn morguns.
Fiéttk kl. 7.00,7.30,8.00,8.30,9.00,10.00,
11.00,12.00,1220,14.00,15.00,16.00,17.00,
18.00,19.00,22.00 og 24.00.
Sandasnar auglýsingar laust fyrtr kl. 7.30,
8.00, 8.30,9.00,10.00,11.00,12.00,12.20,14.00,
15.00,16.00,17.00,18.00,19.00,19.30, og22.30.
NÆTURÚTVARPIÐ
01.00 Sunnudagsmorguim mað Svavari
Gests (Endurtekinn þáttur).
02.00 Fiéttir. - Þáttur Svavars heldur áfram.
03.00 Næturtóiuir
03.30 Glefsur Úr dægurmálaútvarpi mánudags-
ins.
04.00 Ncturlðg
04.30 Veðurtingnlr. • Næturlögin halda áfram.
05.00 Fréttir af veðri, færó og flugsam-
gðngum.
05.05 Landið og miðin Umsjón: Gyða Dröfn
Tryggvadóttir. (Endurtekið únral frá kvöidinu áður).
06.00 Fréttir af veðri, færó og flugsam-
gðngum.
06.01 Morguntónar Ljúf lög I morgunsánö.
LANDSHLUTAÚTVARP A RÁS 2
Útvaip Noróuriand kl. 8.1(78.30 og 18.35-
19.00.
Mánudagur 17. ágúst
13.25 Alþingi sott Bein útsending frá guðs-
þjónustu I Dómkirkjunni og setningu Alþingis að
henni lokinni. Kynnir Ingimar Ingimarsson. Stjóm
útsendirtgar Anna Heiður Oddsdóttir.
15.00 Hló
18.00 Tðfraglugginn. Pála Pensill kynnir
teiknimyndir úr ýmsum áttum. Endursýndur þáttur
frá miövikudegi. Umsjón: Sigrún Halldórsdóttir.
18.55 TéknmélsMttir
19.00 Ffðlskyldulfl (76Æ0) (Families) Astr-
ölsk þáttaröö. Þýðandi: Jöhanna Þráinsdóttir.
19.30 Fólkið í Forsælu (18:23) (Evening
Shade) Bandariskur gamanmyndaftokkur með Burt
Reynolds og Marilu Henner I aöalhlutverkum. Þýð-
andi: Ólafur B. Guðnason.
20.00 Fréttir og veður
20.35 Úr riki néttúrunnar. Hringfuglinn á
Hegraey. (Silver Eyes in Paradise) Nýsjálensk
heimildamynd þar sem lýst er lifsháttum hringfugls-
ins og fteiri fugla á Hegraey undan strönd Ástraliu.
Þýðandi og þulur Ingi Kari Jóhannesson.
21.00 fþróttahomlð Umsjón: Kristín Heimis-
dóttir.
21.30 Stundardans (2:3) (Tlme to Dance)
Breskur myndaflokkur byggður á sögu eftir Melvyn
Bragg um ástarsamband miðaldra manns og ungr-
ar stulku. Leikstjóri: Kevin Billington. Aðalhlutverk
Ronald Pickup og Dervla Kirwan. Þýðandi: Vetur-
liði Guðnason.
23.00 BlefuMttir
23.10 Þingsjé Umsjón: Ingimar Ingimarsson
23.30 Dagskrérlok
STÖÐ E
Mánudagur 17. ágúst
16:45 Nágrannar Astralskur framhaldsmynda-
flokkur um lif og störf nágrannanna viö Ramsay-
stræti.
17:30 Ttausti hrautfti (Rahan) Spennandi
teiknimynd um ævintýri Trausta og vina hans.
17:50 SóAi Sniöug teiknimyndasaga fyrir yngri
áhorfendur.
18:00 Mímisbrunnur Fróölegur myndaflokkur
fyrir böm á öllum aldri.
18:30 Kjallarínn Blandaöur tónlistarþáttur.
19:19 19:19
20:15 Eerie Indiana Ðandarískur myndaflokkur
fyrir alla flölskylduna. Hvaö skyldu guttamir upp-
götva í kvöld? (10:13)
20:45 Á fertugsaldri (Thirtysomething) Banda-
riskur myndaflokkur um Hfiö og tilvemna í vinahóp
sem er aö upplifa fertugsaldurinn. (9:24)
21:35 Skýirslur um Elvis Presley (The Elvis
Files) (þessum heimildaþætti em dregnar fram I
dagsljósiö áöur óbirtar skýrslur um goöiö. Enn
þann dag i dag em menn ekki á eitt sáttir um
hvemig dauöa hans bar og sumir em þeirrar skoö-
unar aö hann sé enn á meöal okkar. (kvöld veröur
leitaö svara viö spumingum á borö viö: Hvers kon-
ar samband átti Elvis viö tvo af forsetum Banda-
rikjanna? Hvers vegna er nafniö hans ekki stafsett
rétt á legsteininum hans? Hvers vegna haföi
bandaríska alrikislögreglan svona mikinn áhuga á
honum? Þetta em aöeins nokkrar þeirra forvitni-
legu spuminga sem leitaö er svara viö í þessum
þætti.
22:25 Samskipadeildin Svipmyndir frá flór-
tándu umferö mótsins sem lýkur i dag meö leikjum
Vals og F.H. og U.B.K. og Fram. Stjóm upptöku:
Ema Osk Kettler. Stöö 2 1992.
22:35 Vindmyllur guöanna (Windmills of the
Gods) Spennandi og rómantisk framhaldsmynd i
tveimur hlutum sem byggö er á samnefndri sögu
metsölurithöfundarins Sidney Sheldon. Seinni hluti
er á dagskrá annaö kvöld.
00:05 Ástarþrá (Someone to Love) I þessari
rómantisku og gamansömu mynd getur aö iita Or-
son Welles i sinu siöasta hlutverki á hvita tjaldinu.
Hér segir frá leikstjóra nokkrum sem er i leit aö
hinni einu sönnu ást en hefur ekki vegnaö sem
best. Aöalhlutverk: Orson Welles, Sally Kellerman
og Michael Emil. Leiksljóri: Henry Jaglom. 1987.
Lokasýning.
01:50 Dagskáriok SftðAvar 2 Viö tekur næt-
urdagskrá Bylgjunnar.
Getum afgreitt
fjölmargar harðviðartegundir, fullverkaður viður
með stuttum afgreiðslufresti.
Beiki, askur, kirsuberjaviður, eik, japönsk og evr-
ópsk, iroco, mahogany, brasilískt og afríkanskt,
poplar USA, tæland teak, hnota, taranafura.
Vikulegar ferðir
Byggir hf.
Sími677190
Notuð landbúnaðartæki
Eigum fyrirliggjandi notuð landbúnaðartæki
MF 690 m/ámoksturstækjum 4x4
MF 240 2x4
Marshall 804 m/ámoksturstækjum 4x4
Krone KR 125 rúllubindivél
Krone KR 130 rúllubindivél
MF 128 baggabindivél
Carraro pökkunarvél
Greiðslukjör við allra hæfi - Kynnið ykkur málið
Sími 91-68326. Fax 91-674274
Til sölu heyhleðsluvagn
40 rúmmetra, tveggja hásinga.
Upplýsingar í síma 98-68858
Til leigu
Til leigu fyrrum skólaheimilishúsnæði að Egilsá í Skagafirði.
Fallegur staður nálægt þjóðvegi 1.
Upplýsingar í sfma: 95-38292, 91-676610 og 91-42342.
1 MINNING I —I—
Sigurgrímur
Vernharðsson
Fæddur 7. janúar 1958
Dáinn 9. ágúst 1992
Það er sunnudagskvöld þegar okkur
berast þau hörmulegu tíðindi að kær
vinur okkar, Sigurgrímur, hafi látist
af slysförum fyrr um daginn. í fyrstu
er erfitt að trúa því að þetta sé satt,
hann sem var svo fullur af lífi og
krafti fyrir örfáum dögum þegar
hann kom til okkar og sótti hey sem
hann síðan flutti í bæinn.
Stórt skarð er nú komið í vinahóp-
inn. Skarð sem aldrei verður fyllt aft-
ur.
Okkar fyrstu kynni hófust þegar
Sigurgrímur og Herborg fluttu í
Heiðarbæ í Villingaholtshreppi
ásamt Herdísi dóttur sinni. Fljótlega
tókst með okkur vinátta og saman
áttum við margar góðar samveru-
stundir. Árið 1986 eignuðust Heiðar-
bæjarhjónin Hildi dóttur sína. Báðar
voru stelpurnar mjög hændar að
pabba sínum enda kom það í hans
hlut að gæta þeirra meðan Herborg
var að vinna á Sjúkrahúsi Suður-
lands.
Sigurgrímur var mikill atorkumað-
ur og gott var að leita til hans ef við
þurftum að fá aðstoð við eitthvað hjá
okkur. Einnig var alltaf svo upplífg-
andi að spjalla við hann, þó ekki væri
nema smástund, því hann var alltaf
svo bjartsýnn og hress. Sveitamaður
var hann í eðli sínu og þó örlögin
hafi ekki ætlað þeim langa veru í
sveitinni hjá okkur, sagði hann að
seinna ætlaði hann í sveitina aftur, ef
ekki í okkar sveit, þá bara í einhverja
aðra.
Fyrir nokkrum árum flutti fjöl-
skyldan á Selfoss en síðan til Reykja-
víkur og var ætlunin að búa þar á
meðan Herborg kláraði nám sitt sem
ljósmóðir.
Margar minningar koma fram í
hugann þegar horft er til baka, hæst
ber þó ferðalag með þeim hjónum til
London fyrir tveimur árum. Alltaf
var ætlunin að fara í aðra ferð sam-
an, en af því getur ekki orðið, Sigur-
grímur vinur okkar er farinn í ferða-
lag, ferðalag sem aldrei tekur enda.
Við óskum honum góðrar ferðar og
þökkum honum fyrir allar þær góðu
samverustundir sem við áttum sam-
an.
Þó ég sé látinn, harmið mig ekki
með tárum. Hugsið ekki um dauð-
ann með harmi og ótta; ég er svo
nærri að hvert eitt ykkar tár snertir
mig og kvelur, þótt látinn mig hald-
ið ... En þegar þið hlæið og syngið
með glöðum hug, sál mín lyftist upp
í mót til ijóssins: Verið glöð ogþakk-
lát fyrir allt sem lífið gefur, og ég,
þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar
yfir lífinu...
(Óþekktur höfundur)
Elsku Herborg, Herdís, Hildur og
aðrir aðstandendur, við sendum ykk-
ur innilegar samúðarkveðjur og
megi guð styrkja ykkur í ykkar
miklu sorg.
Jónas og Birna
Egilsstöðum I
„Skrifa skaltu sorgina í sandinn
en klappa gleðina í stein."
Síst er mér gleði í hug þegar ég sest
niður til að minnast Sigurgríms
mágs míns, sem lést af slysförum
sunnudaginn 9. ágúst sl. Samt vil ég
reyna að leggja út af gleðinni.
Eg vil minnast unga mannsins sem
Herborg systir mín hitti austur í
sveitum á vorkvöldi árið 1977. Hann
hafði svo þétt handtak, brosmild
augu og örugga framkomu. Ég þótt-
ist sjá að þarna var samband í upp-
siglingu sem ekki yrði rofið og það
gladdi mig þegar þau gengu í hjóna-
band 1980.
Ég vil líka minnast hans sem stolts
og umhyggjusams föður dætra sinna
tveggja, Herdísar, sem fæddist 1980,
og Hildar sem fædd er árið 1986.
Ég minnist þess líka hvernig allt lék
í höndunum á honum sem hann
fékkst við. Sigurgrímur var búfræð-
ingur frá Hvanneyri og hugur hans
stóð alltaf til bústarfa. Þau hjónin
bjuggu í sveit um tíma en urðu eins
og fleiri að horfast í augu við það að
búið þeirra gaf ekki svo af sér að
hægt væri að lifa af því. En það áfall
bugaði hann ekki fremur en aðrar
kennslustundir sem hann hlaut í
skóla lífsins. Bjartsýnin og kjarkur-
inn var óbilandi og þau hjónin stóðu
saman sem einn maður þótt okkur
hinum þætti stundum nóg um þau
áföll sem forsjónin lét dynja á þeim.
Eitt verkefnið tók við af öðru og allt
var leyst af hendi af kostgæfni. Erfið-
leikar og vandamál voru orð sem
voru ekki til í orðasafni Sigga. Verk-
efni voru til að leysa þau og það sem
að höndum bar var fengist við og
greitt úr.
Ég vil einnig minnast náttúruunn-
andans og náttúrubarnsins Sigur-
gríms. Hann kunni skil á svo fjöl-
mörgu í ríki náttúrunnar og síðustu
ár eyddi hann flestum stopulla frí-
stunda sinna á fjöllum. „Þetta er
vanabindandi," sagði hann stundum
um þetta áhugamál sitt. Eitt af gleði-
efnum okkar er að í sumar komst
hann með fjölskyldu sfna í fjallaferð
sem hann hafði lengi langað til að
fara og þau nutu öll þessarar góðu
samveru.
Ég á einnig góðar minningar um
samtöl um trúmál og andleg efni.
Hann var að byrja að rækta hæfileika
sína á því sviði þegar Guð kallaði
hann til sín héðan úr heimi til ann-
arra verkefna.
Getum við ekki öll, vinir hans, ætt-
ingjar og venslafólk, glaðst yfir því
að fá að vera samvistum við Sigga
þann stutta tíma sem honum var
ætlaður hérájörð?
Klöppum gleðina í stein.
Veri Sigurgrímur mágur minn kært
kvaddur.
Gréta Pálsdóttir
Þegar maðurinn með ljáinn heggur
í fyrsta sinn einn úr röðum næstu
kunningja og skyldfólks og maður
gerir sér í fyrsta sinn Ijóst fyrir al-
vöru að slysin geta eins hent manns
nánustu eins og „einhverja aðra“
verður maður alveg höggdofa. Þann-
ig fór um mig þegar ég frétti að Sig-
urgrímur mágur minn hefði látist
síðastliðinn sunnudag og nú þegar
ég sest niður til að skrifa nokkur
minningarorð velkjast aðeins sund-
urlausar setningar um hugann.
Mér virtist alltaf að Siggi myndi
verða einn af þeim sem ná háum
aldri í stað þess að deyja í blóma lífs-
ins eins og raunin hefur orðið. Hann
var alltaf hraustur og lífsglaður og
oftast lifnaði yfir manni þegar maður
hitti hann. Hann var alltaf hress og
lét skoðanir sínar í ljós þó að ekki
væru allir sammála honum. Það
kom fyrir að ég væri ekki sáttur við
hann, en það risti aldrei djúpt.
Lífsbaráttan reyndist þeim Her-
borgu og Sigga ekki alltaf auðveld og
það varð til þess að hann varð að
vinna mjög mikið og þó að hann
væri dugnaðarforkur og gæti unnið
við flest held ég að hann hefði heldur
viljað vera meira með fjölskyldunni.
Hann var mikill fjölskyldumaður,
hann var systur minni góður eigin-
maður og dætrum sínum góður fað-
ir. Því held ég að vel eigi við orð úr
erlendum texta sem ég heyrði ný-
lega. Þau útleggjast eitthvað á þessa
leið: „Við verðum alltaf saman,
hversu langt sem kann að virðast á
milli okkar“ Ég held að Siggi verði
alltaf hjá fjölskyldu sinni og þeim
sem þekktu hann í minningunni og í
anda.
Þessar línur hafa lítið meira gert en
að sýna hvað orð fá illa lýst hugar-
ástandi og minningu. Ég vona að
Guð gefi systur minni og dætrum
hennar og foreldrum Sigga og systk-
inum til að bera þá sorg sem á þau er
lögð en jafnframt halda á lofti minn-
ingunni um góðan dreng.
Einar G. Pálsson
Elsku maöurinn minn, faöir okkar, sonur og tengdasonur
Sigurgrímur Vernharðsson
frá Holti, Stokkseyrarhreppl
sem lést sunnudaginn 9. ágúst veröur jarösunginn frá Stokkseyrarkirkju í
dag kl. 13.
Sætaferöir veröa frá Umferöarmiöstööinni kl. 11.30.
Fyrir hönd annan'a vandamanna.
Herborg Pálsdóttir
Herdís og Hildur Sigurgrimsdætur
Gyöa Guömundsdóttir Vemharöur Sigurgrimsson
Herdis Guömundsdóttir Páll Guðbjartsson
_________________________________________________________/