Tíminn - 22.08.1992, Síða 2
2 Tfminn
Laugardagur 22. ágúst 1992
Loðna 635.200 281.700
Sild 92.700 90.300
Rækja 32.400 26.400
Hcxpuskel 8.500 10.500
Humar 1.900 1.900
Botnfiskaflinn í júlílok um 66 þúsund tonnum minni en á sama tíma fiskveiðiárið á undan:
Rúmlega 69 þúsund
tonna afli í júlí
Heildarafli landsmanna í júlí var um 69.250 tonn samkvæmt bráða-
birgðatölum Fiskifélagsins, hvar af 25.560 tonn veiddust af þorski.
Þetta er aðeins um 2% minni heildarafli en í sama mánuði í fyrra.
Munurinn er hins vegar sá að í heildartölunum eru nú um 8.500
tonn af loðnu, en engin loðna veiddist í júlí í fyrra. Botnflskafli í júlí aaí ans;
var því hátt í 10 þúsund tonnum minni nú en í fyrra, hvar af mestu -
Samkvæmt tölum Fiskifélagsins var
botnfiskaflinn á yfirstandandi fiskveiðiári
kominn í nær 524 þúsund tonn í lok júlí-
lok, þ.e. þegar einn mánuður er eftir af
veiðiárinu. Þetta er nær 66 þúsund tonn-
um minni afli heldur en á sama tíma á
síðasta fiskveiðiári. Sá munur fekt að
langmestu leyti í 50 þúsund tonna minni
þorskafla á yfirstandandi fiskveiðiári.
Svo er hins vegar Ioðnunni fyrir að
þakka að heildarafli er 295 þúsund tonn-
um meiri á yfirstandandi fiskveiðiári en
því síðasta, eða um 1295 þúsund tonn
nú í júlflok. Þar af voru nú 635 þúsund
tonn af loðnu borið saman við aðeins 282
þúsund tonn í fyrra.
AfKí 11 mánuði ágústtil júlí
1991/1992 1990/1991
tonn tonn
Þonskur 236.300 286.100
Ýsa 41.800 48.200
Ufsi 74.900 85.500
Karfi 92.600 90.000
Steinbftur 13.700 14.500
Grálúöa 28.100 22.900
Skarkofi 8.300 10.800
A.Botnf.afli 28.200 22.900
Botnf.ails: 523.900 589.600
Samdráttur botnfisksafla kemur að lang-
mestu leyti fram hjá togaraflotanum,
sem veiddi um 44 þúsund tonnum
minna (um 288 þús.t) á fyrstu 11 mán-
uðum þessa fiskveiðiárs en þess síðasta.
Þar af er þorskaflinn nú um 37 þúsund
tonnum minni.
Afli bátanna hefúr minnkað kringum 17
þúsund tonn milli ára, í um 213 þúsund
tonn á þessu ári. Og afli smábáta var tæp-
lega 41 þúsund tonn á því sem liðið er af
yfirstandandi fiskveiðiári og hefúr því
minnkað um 3.600 tonn (8%) milli ára.
-HEI
Þorvaldur Garðar gefur út
6 þingræður:
Fjalla
um afnám
deilda
Alþingis
6 þingræður Þorvalds Garðars
Kristjánssonar hafa verið gefnar
út í sérprentun og ber hún heit-
ið „Deildir Alþingis aflagðar".
Þingræðurnar flutti Þorvaldur
Garðar á tímabilinu 1. febrúar
til 19. mars, þegar frumvarp var
tekið til meðferóar um stjórnar-
skrárbreytingar, sem kvað á um
afnám deilda Alþingis.
Þorvaldur Garöar var á móti því
og gerir grein fyrir viðhorfum,
sjónarmiðum og afstöðu sinni í
ræðunum. —GKG.
Fjórðungsþing Norðlendinga haldið í lok mánaðar
þar sem m.a. verða til umfjöllunar:
Atvinnumál og
byggöaþróun
34. fjórðungsþing Norðlendinga verður haldið á Hvammstanga dag-
ana 28.-29. ágúst nk. Að morgni 28. ágúst verða haldnir stofnfund-
ir samtaka sveitarfélag í Norðurlandskjördæmi eystra og í Norður-
landskjördæmi vestra.
KI. 15:00 verður sjálft þingið sett Dag-
inn eftir verður haldinn umræðufund-
ur um atvinnumál og byggðaþróun þar
sem framsögumenn verða Davíð Odds-
son forsætisráðherra og Halldór Blön-
dal landbúnaðar- og samgönguráð-
herra.
Einnig verður umræðufundur um
hlutverk landshlutasamtaka sveitarfé-
laga og uppstokkun á sveitarfélagskerf-
inu. Þar verða framsögumenn þau Jó-
hanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra, Þórður Skúlason ftamkvæmda-
stjóri SÍS og Áskell Einarsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssambands
Norðlendinga.
Hótel Verthsús á Hvammstanga býður
þinggestum upp á sérstakt tilboð á gist-
ingu og veitingum. Morgunverður og
gisting verða að Reykjaskóla í Hrúta-
firði, en aðrar veitingar í Félagsheimili
Hvammstanga og á fundarstað.
—GKG.
Ingunn Ósk Sturludóttir og Þórhildur Björnsdóttir halda tónleika í
Hafnarborg þann 23.ágúst.
Ingunn Ósk Sturludóttir og Þórhildur Björns-
dóttir leika og syngja:
Tónleikar í
Tónleikar verða í Hafnarborg 23.
ágúst nk. þar sem fram koma þær
Ingunn Osk Sturludóttir mezz-
ósópransöngkona og Þórhildur
Bjömsdóttir píanóleikari.
Ingunn og Þórhildur hafa stundað
nám við Sweelinck-tónlistarskólann
í Amsterdam síðastliðin 3-4 ár og
unnu þar saman mestallan tímann.
Á efnisskrá tónleikanna veröa lög
eftir Jóhannes Brahms, Jórunni Við-
ar og Jean Sibelius, en einnig verða
fluttir lagaflokkarnir Liederkreis óp.
39 eftir Robert Schumann og 5
Negrasöngvar eftir spænska tón-
skáldið Xaviar Montsalvatge.
Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.
—GKG.
Nýtt rit um tengsl manna í stjórnum fyrirtækja á íslandi:
„Kolkrabbinn“ krufinn og
samþjöppun valds könnuð
„Þaö er mjög orðum aukið að hinn svokallaði „kolkrabbi“ teygi
anga sína um allt íslenskt atvinnulíf. Megin iöurstaðan er sú að
tengsl milli fyrirtækja eru mjög lítil á Islandi,“ segir dr. ívar
Jónsson, annar höfunda bókarinnar „Innri hringurinn“ sem
kemur út um þessar mundir. Þar birta hann og Fannar Jónsson
niðurstöður sínar eftir athugun á nærri 800 fyrirtækjum á veg-
um Félags- og hagvísindastofnunar íslands.
ívar segir að bókin um Kolkrabb-
ann byggi ekki á nægjanlega
traustum grunni því þar sé ekki
um kerfisbundið val á fyrirtækj-
um að ræða. Hann segir þá félaga
hafa eingöngu athugað fyrirtæki
sem telji 15 ársverk eða meira.
ívar bendir á að í bókinni um
Kolkrabbann hafi ekkert verið
minnst á Sambandið en þar megi
einnig finna samþjöppun valds.
„Sá sem er með mestu völdin
samkvæmt mælingu okkar er
Guðjón B Ólafsson," segir ívar.
Hann bætir við að í „Kolkrabban-
um“ hafi heldur ekki verið minnst
á völdin innan sveitarfélaga því
þar séu oft mikil völd í höndum
fáeinna manna sem ráði flestum
fyrirtækjanna.
Gagnlegar upplýs-
ingar
Tilgang bókarinar segir hann
vera að leggja fram gagnagrunn
sem menn geti nýtt sér og haldið
áfram að rannsaka. T.d. sé hægt að
athuga ýtarlegar en áður hafi ver-
ið hægt fjölskyldutengsl manna
og samband þeirra við stjórn-
málaflokka. ívar segir að stjórn-
málafræðingar og hagfræðingar
ættu að geta nýtt sér þessar upp-
lýsingar. Þá álítur hann að ritið
ætti að gagnast blaðamönnum
sem geti t.d. tekið fyrir einn mann
og skoðað í hvaða fyrirtækjum
hann sé í stjórn og tengsl hans viö
önnur fyrirtæki.
Tengsl fyrirtækja og
nýsköpun
ívar getur þess að yfirleitt séu
bankafyrirtæki og verðbréfafyrirtæki
mjög tengd en tengslin milli stjóm-
armanna í öðrum geirum séu lítil.
„Sama er að segja um sjávarútvegs-
fyrirtæki," segir ívar. í bókinni er að
finna kafla um nýsköpun. ívar segir
að svonefnt .japanskt kerfi" sýni
fram á aö mikilvægt sé fyrir nýsköp-
un í atvinnulífinu að tengsl séu náin
milli bankafyrirtækja og iðnaðarfyr-
irtækja. „Þar tökum við tillit til ann-
ars vegar sjávarútvegs- og hins vegar
hátæknifyrirtækja, þ.e.a.s. fyrirtækja
sem miða að þróun í tölvugeiranum.
Þar eru tengslin einnig mjög lítil,"
segir ívar.
Tengsl fyrirtækja við embættis-
menn, háskólakennara og hagmuna-
samtök, sem einnig voru rannsökuð,
segir ívar vera sáralítil.
12 manna valdakjami
ívar álítur að völd safnist sjaldan á
fárra hendur en samt sé til ákveðinn
valdakjami sem hafi meiri völd en
aðrir. Þar á hann við 12 manna hóp
sem kom í ljós þegar skoðuð voru
fyrirtæki sem hafi 15 ársverk. Þenn-
an hóp segir hann vera um 5% af
stjómarmönnum íslenskra fyrir-
tækja og ráði u.þ.b. 23% ársverk-
anna. ívar segir að flestir þessir
menn stjómi fyrirtækjum sem teng-
ist fákeppnisgreinum. Þar á hann við
skipafélög, flugfélög, banka og trygg-
ingarfyrirtæki. „Þama virðist valda-
samþjöppunin vera mest,“ segir ívar.
Enginn alþingismaður tilheyrir
samt þessum hópi að sögn ívars og
þessa menn segir hann ekki vera
háttsetta innan stjómmálaflokka.
Tilviljunaikennd völd í
hagsmunasamtökum
Þeir félagar athuguðu einnig tengsl
stjómarmanna fyrirtækja við VSÍ,
LIÚ og Verslunarráð íslands. ,J>ar er
ekki hægt að sjá nein kerfisbundin
tengsl þannig að stærð fyrirtækja
ráði því hvort líklegra sé að menn
séu í þessum hagsmunasamtökum.
Þá er ekki heldur hægt að sjá að ein-
okunar- eða fákeppnisfyrirtæki eigi
fulltrúa í stjóm þessara samtaka.
Þetta virðist vera tilviljunarkennL“
segir ívar.
Hann segir þetta andstætt niður-
stöðum rannsókna í Bretlandi og
Bandaríkjunum. „Þar ræður stærö
fyrirtækja því hversu virkir menn
em í hagsmunasamtökum atvinnu-
rekenda,1' bætir ívar við.
Valdamestu íslending-
amir
Þeir einstaklingar sem töldust
valdamestir íslendinga samkvæmt
rannsókn þeirra félaga voru þessir
(árið 1991): Guðjón B Ólafsson, Indr-
iði Pálsson, Halldór H Jónsson (lát-
inn), Benedikt Sveinsson, Ámi Vil-
hjálmsson, Thor H. Thors, Þorvaldur
Guðmundsson, Einar Sveinsson,
Haraldur Gíslason, Brynjólfur
Bjamason, Sigurður Gils Björgvins-
son og Haraldur Sumarliðason.
-HÞ