Tíminn - 28.11.1992, Blaðsíða 9
Laugardagur 28. nóvember 1992
Tíminn 9
Breska þinghúsið (Houses of Parliament): hið andlega og veraldlega sameinað.
Biskupinn af Guildford, sem bar
fram tillöguna um kvenpresta á
kirkjuþinginu, sagði að tillagan
væri í „samræmi við Ritninguna
og studd hefðum (kristni og
kirkju)“. Biskupinn af Newcastle
bar svo eindregið á móti því að
hann „komst eins nálægt því og
einn biskup getur að kalla (Guild-
fordbiskup) Iygara," skrifar Geof-
frey Kirk í Sunday Times. „Þetta
eru svik við Biblíuna og hefðir
kirkjunnar," sögðu aðrir kven-
prestaandstæðingar.
Máli sínu til stuðnings vitna þeir
ekki síst í Pál postula, sem mælir
með því í Fyrra Korintubréfi að
konur séu sem fáorðastar á „safn-
aðarsamkomunum". í sama bréfi,
11. kafla, 3. versi, skrifar Páll: „En
eg vil, að þér skulið vita, að Krist-
ur er höfuð sérhvers manns, en
maðurinn höfuð konunnar, en
Guð höfuð Krists." í 5. kafla Efes-
usbréfsins, 21.-23. versi, kemur
svipað fram hjá postulanum: „Ver-
ið hver öðrum undirgefnir í ótta
Krists: Konurnar eiginmönnum
sínum eins og það væri Drottinn.
Því að maðurinn er höfuð kon-
unnar, að sínu leyti eins og Krist-
ur er höfuð safnaðarins ..."
Á enska kirkjuþinginu spunnust
út frá þessu langar guðfræðilegar
umræður um grfska orðið kefale í
ofangreindum textum hjá Páli. Al-
gengast er að þýða það „höfuð“
eða „forustu", en kvenprestasinn-
ar héldu því sumir fram að ekki
ætti að skilja það svo bókstaflega.
Illgjarn blaðamaður skrifaði að í
lok þingsins hefði svo virst sem
enginn vissi Iengur hvað orð þetta
þýddi, og áheyrendum hefði þótt
öll sú umræða álíka uppbyggileg
og rökræður miðaldaguðfræðinga
um það hversu margir englar
gætu setið saman á aðeins einum
títuprjónshaus.
Anglíkanskir
kaþólikkar
Anglíkanskir kvenprestaandstæð-
ingar benda einnig á, málstað sín-
um til styrktar, að Jesús hafi verið
karlmaður, Guð hafi þannig kosið
að birtast á jörðinni sem karlmað-
ur og fulltrúar hans þar eigi því að
vera karlkyns.
„Við teljum að þetta gæði kirkj-
una nýjum hug og dug, að hún
eflist að dirfsku og öðlist aukna
tiltrú," sögðu talsmenn hreyfing-
ar, sem barist hefur fyrir rétti
kvenna til prestsvígslu, eftir að
úrslit atkvæðagreiðslunnar um
það á kirkjuþingi höfðu verið
kunngerð. „Kirkja Englands er
komin á kaf í módernisma, frjáls-
Iyndi og femínisma, enda verður
hún senn ekki annað en rotnandi
hræ,“ sagði prestur að nafni
Francis Brown.
Hann er einn forustumanna ang-
líkanskra kaþólikka, sem svo eru
nefndir. Þeir eru sá armur ensku
kirkjunnar, sem næst stendur
kaþólikkum. Sú hreyfing hefur
verið við lýði allt frá siðaskiptum
og hefur látið talsvert að sér kveða
frá því á 19. öld. Anglíkanskir kaþ-
ólikkar hafa frá því að umræðan
um kvenpresta hófst í kirkju
þeirra beitt sér eindregnast allra
þar gegn því að konur verði prest-
ar. I um aldarfjórðung hafa verið
þreifingar milli kaþólsku kirkj-
unnar og þeirra anglíkönsku um
hugsanlega endursameiningu, en
Jóhannes Páll páfi annar tók skýrt
fram við Carey erkibiskup fyrir
skömmu að búið yrði með allt
slíkt ef enska kirkjan samþykkti
kvenpresta.
Traustir skulu horn-
steinar...
Nú er margra grunur að Páfa-
garður muni nota tækifærið til að
stuðla að klofningi í ensku kirkj-
unni, í þeim tilgangi að ná tals-
verðum hluta hennar til sín. Áð-
urnefndur Geoffrey Kirk segir vel
kunnugt að samtök anglíkanskra
kaþólikka hafi þegar haft samband
við kaþólska háklerka með það
fyrir augum. Graham Leonard,
fyrrum Lundúnabiskup, áður
kunnur að áhuga fyrir sameiningu
anglíkana og kaþólikka, er nú far-
inn að leggja til að sá hluti ensku
kirkjunnar, sem andvígur er kven-
prestum, athugi möguleika á að
ganga í kaþólsku kirkjuna sem
„úníatakirkja". Svo eru nefndar
kirkjur í Austur-Evrópu og Aust-
urlöndum nær, sprottnar úr rétt-
trúnaðarkirkjum og öðrum, sem
sameinast hafa kaþólsku kirkjunni
gegn því að halda ýmsu af eigin
sérkennum, einna helst helgisið-
um. Meginatriði af hálfu páfastóls
við slíkar sameiningar er að hlut-
aðeigandi kirkjur viðurkenni páfa-
valdið, sem er þungamiðja í kaþ-
ólsku kirkjunni.
Til eru þeir sem segja sem svo að
þessu hafi alltaf mátt búast við í
ensku kirkjunni. í írskri vísu segir
á þá leið að hornsteinar hennar
séu kynkirtlar Hinriks konungs
áttunda. Það, sem réði úrslitum
um að Englendingar snerust frá
kaþólsku á 16. öld, var að páfinn
vildi ekki leyfa Hinriki að skilja
við drottningu sína, Katrínu af
Aragóníu, til að kvænast Önnu
Boleyn (er varð móðir Elísabetar
fyrstu). Páfi vildi gjarnan láta
þetta eftir Hinriki, en þorði það
ekki fyrir Karli fimmta, Spánar-
konungi og Þýskalandskeisara, því
að hann var systursonur Katrfnar
og miklu voldugri en Hinrik. Fyr-
ir Hinrik var þetta svo mikið mál
að hann gerðist mótmælandi til að
fá sínu framgengt, þótt þangað til
hefði hann verið lítt hrifinn af
mótmælendum.
Andlegt og verald-
legt undir einni
kórónu
Hann gerði sjálfan sig að æðsta
manni ensku kirkjunnar í stað
páfans, og það hafa eftirmenn
hans verið síðan. Með vaxandi
þingræði hefur forsætisráðherra
Bretlands yfirtekið þetta hlutverk
konungs að miklu leyti, eins og
annað; þannig er það í raun hann
sem útnefnir biskupa ensku kirkj-
unnar. í samræmi við lýðræðið
hefur og breska þingið öðlast
hlutdeild í völdum innan kirkj-
unnar. Vilji kirkjan breytingar á
helgihaldi o.fl. öðlast þær gildi
fyrst eftir að þingið hefur sam-
þykkt þær. Samþykkt þings Eng-
landskirkju um kvenprestana
verður því ekki gild nema neðri
málstofa breska þingsins staðfesti
hana, en litlar líkur eru taldar á
öðru.
Kvenprestasinnar segja sem svo,
að fyrst Englendingar hafi í alda-
raðir unað því að konur væru
æðstu leiðtogar kirkju þeirra,
væru þær drottningar eða forsæt-
isráðherrar, eigi þeim ekki að
þurfa að verða mikið um að fá
konur í embætti óbreyttra sóknar-
presta.
Með því að slíta sig frá páfanum
og sameina hina andlegu hlið
samfélaga sinna og þá veraldiegu
undir einni stjórn má raunar
halda því fram að Englendingar og
fleiri Norður-Evrópumenn hafi
stigið skref aftur á bak til þess sem
var í heiðni. Að forminu til a.m.k.
er slíkur samruni harla óviðeig-
andi í augum kaþólsku kirkjunn-
ar, enda gagnstæður hefðum
hennar.
Frjálslyndir kaþól-
ikkar fagna
Samt sem áður er ekki víst að tíð-
indin frá Englandi séu kúríu Páfa-
garðs óblandið fagnaðarefni.
Einnig í kaþólsku kirkjunni deila
menn um margt. Frjálslyndir kaþ-
ólikkar, sem sterkir eru í Vestur-
Evrópu, gera sér vonir um að
enska kvenprestasamþykktin verði
þeim til framdráttar. Basil Hume
kardínáli, höfuð kaþólsku kirkj-
unnar í Englandi, sem talinn hef-
ur verið frekar hlynntur þeim
frjálslyndu í sinni kirkju, tók sam-
þykktinni svo vel að sumir kalla
það ögrun við Páfagarð. Einnig í
kaþólsku kirkjunni, sagði Hume,
verða menn að „leita að leiðum til
prestskapar fyrir konur“ og hafa
um það samráð við aðrar kirkjur.
Hume kardínáli, sleipur sagður í
kirkjupólitík og einn þeirra sem
taldir eru hafa mesta möguleika á
kjöri á páfastól er Jóhannes Pál
annan þrýtur, kann að gera sér
vonir um að sigur enskra kven-
prestasinna verði frjálslyndum í
kaþólsku kirkjunni til slíkrar upp-
örvunar að þeir kunni að ráða úr-
slitum er valinn verður eftirmað-
ur pólska páfans.
Mykjudreifarar
BÆNDUR!
Eigum fyrirliggjandi hina vinsælu
KASTDREIFARA
Stærð ca. 2,5 rúmm.
Afgreiðum dreifara án hjóla
ef kaupendur eiga hjól
sem þeirvilja nýta.
Vinsamlega leitið upplýsinga.
KAUPFÉLAG ÁRNESINGA
BIFREIÐASMIÐJUR
800 SELFOSS - SÍMI 98-22000
Láttu ekki Tímann
fljúga frá þér
Ég undirritaður/uð óska hér með að gerast áskrifandi að Tímanum Nafn áskrífenda: | pTíminn
wJ Heimilisfang: Póstnúmer: ghálsi 9.110 Reykjavík 68769. Pósthólf 10240
Lyr Sími: Póstfax