Tíminn - 28.11.1992, Blaðsíða 24
AUGLYSINGASIMAR: 680001 & 686300
Áskriftarsími Tímans er 686300 KERRUVAGNAR OG KERRUR Bamaíþróttagallar á frábærn verði. Umboðssala á notuöum bamavörum. Sendum í póstkröfu um land allt! BARNABÆR, Ármúla 34 Sfmar: 685626 og 689711.
|VEERIÐ VELKOMIN!|
Bilasala Kópavogs Smiðjuvegi 1, 200 Kópavogi
0S) m\
Vantar nýlega bíla. Mjög mikil eftirspurn. VERIÐ VELKOMIN 1í0)Æs\ TVÖFALDUR1. vinningur
Árnes hf. hefur sagt upp 67 starfsmönnum á Stokkseyri:
Vinnslan í Höfnina
Iíminn
LAUGARDAGUR 28. NÓV. 1992
KAPELLA í
KRINGLUNN1
Kapella verður opnuð á mánudag á
þriðju hæð Kringlunnar í Reykjavík
og er hún hluti starfs kirkjunnar á
aðventu. Kapellan verður opin
þeim, sem þangað vilja leita, og
verður prestur til viðtals frá kl.
16.00-18.00 alla virka daga. —HÞ
Stjórn Árnes hf. hefur ákveðið að segja upp 67 starfsmönnum fyrir-
tækisins á Stokkseyri með samningsbundnum fyrirvara og hefur jafn-
framt ákveðið að sameina tímabundið og til reynslu í eitt ár alla fisk-
vinnslu fyrirtækisins á einum stað í Þorlákshöfn. Á meðan mun hrað-
frystihús fyrirtækisins á Stokkseyri standa autt.
Fyrr í mánuðinum sagði Árnes hf.
upp öllum starfsmönnum fyrirtæk-
isins í Þorlákshöfn, 98 manns, sök-
um þess að ætlunin var að flytja alla
bolfiskvinnslu fyrirtækisins til
Stokkseyrar. Hagkvæmnisathugun
íyrirtækisins á þeirri ráðagerð leiddi
hins vegar í ljós að rekstrarkostnað-
ur í Þorlákshöfn verður mun lægri
en á Stokkseyri og því hefur verið
hætt við flutningana þangað í bili.
Þess í stað verður ráðist í nauðsyn-
legar lagfæringar á vinnsluhúsnæði
Árnes hf. í Þorlákshöfn.
Pétur Reimarsson, framkvæmda-
stjóri Árnes hf., segir að langflestir
starfsmenn fyrirtækisins í Þorláks-
höfn og á Stokkseyri muni verða
endurráðnir og fundnar verði leiðir
til að fjármagna þær nauðsynlegu
breytingar, sem verður að gera á
vinnsluhúsnæði fyrirtækisins í Þor-
lákshöfn.
Framkvæmdastjórinn segir að auð-
vitað sé það blóðugt að geta ekki
nýtt húsið á Stokkseyri, en til þess
þurfi fyrirtækið að fá meiri fisk til
vinnslu en það á kost á um þessar
mundir. Þar sem ekkert bendi til
þess að svo verði, sé ekki um annað
að ræða en að láta Stokkseyrarhúsið
standa autt á meðan á þessari til-
raun stendur í Þorlákshöfn. Að ári
verður svo þessi ákvörðun endur-
skoðuð í ljósi þeirrar reynslu, sem
þá hefur fengist, að hafa alla fisk-
vinnslu íyrirtækisins á einum stað í
Þorlákshöfn.
Þessi ákvörðun stjórnar Árnes hf.
stangast á við yfirlýst markmið fyrir-
tækisins, þegar það var stofhað við
samruna Hraðfrystihúss Stokkseyr-
ar hf. og Glettings hf. í Þorlákshöfn,
að jafnræði yrði milli byggðarlag-
anna og bolfiskvinnsla færi fram á
Stokkseyri. Að mati stjórnar Árnes
hf. er ekki um annað að ræða en að
grípa til þessara aðgerða í ljósi þess
að tap verður á rekstri fyrirtækisins
í ár og því sé nauðsynlegt að grípa til
allra hugsanlegra aðgerða til að
draga úr kostnaði.
Fyrirtækið mun kosta flutning
starfsmanna á milli og ennfremur
munu Stokkseyringar njóta jafn-
ræðis í vinnu við starfsfólk í Þor-
lákshöfn. Jafnframt munu tekjur
Stokkseyrar ekki skerðast, þótt
starfsemi Árnes verði að mestu leyti
í hinu sveitarfélaginu, samkvæmt
samkomulagi sem er að takast á
milli sveitarfélaganna um skiptingu
opinberra gjalda. Þá hafa verkalýðs-
félögin á Árborgarsvæðinu komið
sér saman um jafnan rétt til vinnu,
óháð búsetu. -grh
Árleg landssöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar hefst í dag:
Brauð handa
hungruðum heimi
Árleg landssöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar, Brauð handa
hungruðum heimi, er hafin. Að þessu sinni er leitað eftir stuðningi
við neyðarsjóð, innaniandsverkefni og þróunarverkefni á Indlandi
og í Kenýa.
Söfnunin hefst formlega í dag, á
bindindisdegi ijölskyldunnar, og eru
landsmenn hvattir til að gefa and-
virði einnar bjórkippu til starfsins.
Þessa dagana er verið að dreifa riti
með greinum og upplýsingum um
starf stofnunarinnar svo og gíróseðli
ásamt söfnunarbauki. Fjöldi neyðar-
beiðna til Hjálparstofnunar kirkj-
unnar hefur aldrei verið meiri en á
þessu ári. Þær hafa einkum borist
frá Afríku og Austur-Evrópu.
Heildartekjur Hjálparstofnunar
kirkjunnar námu 27.8 millj. kr.
fyrstu níu mánuði ársins. Heildarút-
gjöld voru 27.1 millj. kr. og eru
stærstu liðirnir neyðarhjálp til Sóm-
alíu og Balkanskaga ásamt aðstoð
við Kúrda og þróunarverkefni á Ind-
landi. —HÞ
Jónas Þórisson, framkvæmdastjórí Hjálparstofnunar kirkjunnar,
og Jóhannes Tómasson upplýsingafulltrúi. Timamynd Ámi Bjama
Við myndum til og með 19. des.
og afgreiðum allar myndatökur
og stækkanir fyrir jól.
Myndatökur af einu bami eða
fleiri bömum samana, frá kr.
11.000,00, innifalið 6 myndir
13x18 cm, tvær stækkanir
20 x 25 cm og ein stækkun 30
x 40 cm í ramma.
Ljósmyndastofumar:
3. ódýrastir:
Ljósmyndastofan Mynd sími:
65 42 07
Bama og fjölskyldu
Ljósmyndir sími,: 677 644
Ljósmyndastofa Kópavogs
sími: 4-30-20
...ERLENDAR FRÉTTIR...
CARACAS
Uppieisnartilraun í Venezúela
Hermenn, sem gerðu tilraun til upp-
reisnar í febrúar sl., hafa gert nýja at-
lögu aö rikisstjóm Venezúela meö aö-
stoö flugvéla, en forseti landsins, Carl-
os Andrés Perez, sagöi i gær aö her-
sveitir rikisstjómarinnar heföu staöist
árásimar, sem geröar voru á forseta-
höllina og hibýli forsetans annars staö-
ar i borginni
DUBLIN
Tvöfaldur ósigur Reynolds
Irskir kjósendur höfnuöu Albert Reyn-
olds á tvennum vígstöövum. Hann galt
afhroö I allsherjarkosningum og tilraun
hans til aö aflétta algeru banni kaþ-
ólska Irlands við fóstureyöingum var
felld. Dick Spring, formaöur Verka-
mannaflokksins, sem jók mjög fylgi sitt I
kosningunum, sagöi i gær aö hann ætti
aö veröa forsætisráöherra I komandi
samsteypustjóm, þar sem flokkur hans
heföi úrslitaáhrif.
SKELANI, SERBlA
Serbneskar konur hindra
hjálparflutninga
Æpandi serbneskar konur og böm lok-
uöu brú og komu þannig i veg fyrir aöra
tilraun hjálparflutningalestar Samein-
uöu þjóöanna til aö komast til Bosnlu
meö birgöir til umsetna bæjarins Sre-
brenica.
BELGRAD
Býóur sig fram gegn Milosevic
Dragan höfuösmaöur, dularfullur herfor-
ingi sem oröinn er serbnesk þjóöhetja,
hefur boöiö sig fram til aö keppa um
forsetaembætti Serbiu viö harölinu-
þjóöemissinnaöa foringjann Slobodan
Milosevic í kosningum, sem fram eiga
aö fara 20. desember.
VlN
OPEC hyggst lækka olíuveró
OPEC-ríkin komu sér i gær saman um
aö draga nógu mikiö úr framleiöslu
snemma á komandi ári til aö hækka ol-
iuverö á heimsmarkaöi, sagöi orku-
málaráöherra Gabon i gær. En Samtök
oliuútflutningsrikja misstu eitt 13 aöild-
arrikjanna úr hópnum. Ekvador skortir
fé og segist ekki hafa efni á aó greiða
félagsgjöld og ekki vilja aö framleiöslan
i landinu sé háö OPEC-kvótum sam-
tímis því sem þaö reyni aö byggja upp
efnahaginn.
VlN
Lipizzaner hestunum bjargaó úr
bruna
Eldsvoöi geisaöi um Hofburg-höllina I
Vín I gær, en hinum rómuöu Lipizzan-
er-hestum var bjargað úr hesthúsunum
i neöri hluta hallarinnar, aö því er tals-
maöur brunaliösins sagöi. Meira en 350
slökkviliösmenn böröust I meira en
fimm tíma viö aö ná stjórn á eldinum.
MOSKVA
Rússar rukkaóir, en geta ekki
borgaó
Ráðherra sagöi í gær aö Parisarklúbb-
ur lánveitandi þjóöa færi fram á aö
Rússar greiddu yfir 5 milljaröa I afborg-
anir á árinu 1993, en þetta væri ekki
raunhæft. Alexander Shokhin aöstoöar-
forsætisráöhen-a undirstrikaði aö
Moskvustjómin heföi ekki ráö á aö
greiöa meira en 3 milljaröa uppi skuldir
á næsta ári.
BONN
8 ungir nýnasistar handteknir
Alríkislögreglumenn tilkynntu i gær
handtöku 8 ungmenna, samverka-
manna ungs Þjóöverja sem haföur er I
haldi vegna gruns um að hafa stofnaö
glæpagengi nýnasista, sem henda eld-
sprengjum aö heimilum flóttamanna.
Áttmenningamir, á aldrinum 15 til 19
ára, voru teknir höndum vegna gruns
um aö vera félagar í hópi Michaels Pet-
ers, 25 ára, en rannsóknarmenn leita
nú tengsla þeirra viö eldsprengjuárás-
ina i Mölln I grennd viö Hamborg á
mánudag, þar sem þrjár tyrkneskar
konur létu lífiö.
DENNI DÆMALAUSI
I0-IS
§NAS/D.i<r BUUS
„Ég trúi ekki að einhver sé að kenna henni að
spila svona. “