Tíminn - 12.12.1992, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 12. desember 1992
Einkennileg stúlka
Vigdís Grímsdóttir:
Stúlkan i skóginum.
Iðunn, 1992.
Einhverra hluta vegna er ég van-
astur því að orðið stúlka eigi við
unga og kvenkyns mannveru,
gjaman fallega. Stúlkan í þessari
bók er hins vegar hvorki ung né
falleg. Hún er hátt á fimmtugs-
aldri, krypplingur og afskræmd í
útliti eftir bólur og ígerðir um all-
an líkamann. Skógur hennar er
ímyndunin einber, hreint hugar-
fóstur sem hún býr sér til og leitar
afdreps í þegar heimurinn kreppir
sem harðast að henni. Hún er auk-
heldur óvinnufær og allsendis
ófær um að bjarga sér, er á fram-
færi félagsmálastofnunar, býr í
óvistlegri kjallaraíbúð, og helsta
viðfangsefni hennar dags daglega
er að ganga um bæinn og gramsa í
sorptunnum, þar sem hún leitar
að bókum.
Hún er nefnilega forfallinn bóka-
safnari og á orðið dágott safn í
hillum heima hjá sér. Með öðrum
orðum hefur henni farið eins og
fleirum, sem reynt hafa að bæta
sér upp einhvern skort úti í dag-
lega lífinu með því að finna sér
áhugamál; í hennar tilviki em það
bækurnar, og er hún víst ekki ein
um það. Og sagan er rækilega
tíma- og staðsett, hún gerist í ág-
úst á síðasta ári í Reykjavík.
Það sem gerist svo hjá Guðrúnu,
en svo heitir konan, er að henni er
allsendis óvænt boðið í kaffiboð í
hús hér vestur á Brávallagötu.
Konan, sem býður henni, Hildur,
er listakona, býr til brúður og í ljós
kemur að tilgangur hennar er síð-
ur en svo góður, fyrir henni vakir
að myrða Guðrúnu til að geta búið
til sanna og raunverulega brúðu í
líkingu hennar. Áður en til þess
kemur tekst Hildi þó að koma
Guðrúnu í kynni við ástina í fyrsta
sinn á ævinni, og auk þess skipta
þær á líkama. Verður Guðrún eftir
heima hjá Hildi í líkama hennar,
en Hildur fer í líki Guðrúnar út í
bæ, þeirra erinda að kynnast sem
best líferni hennar. Allt er þetta
gert í nafni og undir forskrift list-
arinnar sem Hildur vinnur að.
Með þessari endursögn á efni
bókarinnar er þó síður en svo öll
sagan sögð. Það fer ekki á milli
mála að Vigdís Grímsdóttir er orð-
in ákaflega fær í allri rithöfunda-
tækni og kann prýðisvel að beita
henni. Hér tekst henni ágætavel
að segja sögu þeirra Guðrúnar og
Hildar; aðferð hennar er sú að gefa
lesanda efnið inn í smáskömmt-
um. Hún byrjar söguna í eldhúsi
Hildar, en í samtali þeirra og inn-
skotum úr hugarheimi Guðrúnar
fáum við smátt og smátt einstaka
drætti í heildarmyndina, svo að
þegar komið er fram um og yfir
miðja bók er myndin öll farin
verulega að skýrast. Þegar nær líð-
ur lokum verður frásögnin öll
hröð og ólgandi af fjöri og beinlín-
is hrífandi frásagnargleði höfund-
arins. Því fer fjarri að henni fatist
nokkru sinni í þeim vandasama
dansi, heldur grípur hún lesand-
ann með sér og hrífur hann af
mikilli snilli inn í frásagnargleði
sína.
Það fer þannig ekki á milli mála
að þessi bók er skrifuð af mikilli
tækni og góðu valdi á öllu því sem
til handverks rithöfundar heyrir.
Líka væri svo vitaskuld létt verk að
skrifa langt mál um táknmál þess-
arar sögu. Það liggur til dæmis á
Landbúnaðarsýningin
Agromek
27.-31.1.1993
Samvinnuferðir-Landsýn efna til hópferðar á þessa vin-
sælu landbúnaðarsýningu, sem haldin verður í Herning
á Jótlandi, dagana 27.-31. janúar 1993.
Ferðatilhögun er eftirfarandi:
27.janúar: Flogið til Kaupmannahafnar kl. 09:35 og lent í Kastrup kl. 13:45.
Ekið sem leið liggur til Videbæk á Jótlandi, sem er bær um 40
km vestan við Heming. Aksturinn tekur um 7-8 klst. Gist er á
Videbæk Kro, en þar er veitingastaður, kaffitería, setustofa og
innisundlaug. Öll herbergi em með baði, síma og minibar.
27.-30.janúar: Dvalið á Videbæk Kro. Rútuferðir á sýninguna í Heming dag-
lega.
30. janúar: Ekið til Kaupmannahafnar og gist á Star Hotel, sem er rétt við
aðaljámbrautarstöðina. Þetta er gott ferðamannahótel, nýlega
uppgert. Öll herbergi með baði, síma og sjónvarpi.
30. -3l.janúar: Dvalið á Star Hotel. Hér gefst góður tími til að skoða sig um í
þessari heillandi borg, versla, borða góðan mat og njóta lífsins.
31. janúar: Flogið ffá Kastmp kl. 19:40 og lent í Keflavík kl. 22:00.
Fararstjóri í þessari ferð er Agnar Guðnason.
Verð á mann í tvíbýli: 43.890 kr. stgr. 46.200 alm. verð
Verð á mann í einbýli: 50.350 kr. stgr. 53.000 alm. verð
Innifalið í verði: Flug, gisting með morgunverði, akstur til Jótlands og á
sýning una og íslensk fararstjóm.
Ekki innifalið: íslenskur og danskur flugvallarskattur: 1920 kr. samtals.
Bamaafsláttur er 12.000 kr. Staðfestingargjald er 14.000 kr. óendurkræft.
Verð er miðað við gengi og flugverð 7.12. 1992.
flugleiðirJS á / i • /
Saiíivininiferúir-Laiidsj/ii
Rayk|a*ík: Austurstræti 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbróf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241
Hótel Söqu við Hagatoro • S 91 - 62 22 77 • Slmbréf 91 - 62 24 60 Kaflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 - 13 400 • Slmbréf 92 - 1 34 90 Akureyrl: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87
á,AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAá
Vigdls Grímsdóttir.
borðinu að Guðrún er tákn fyrir
alla þá sem undir verða í þjóðfé-
laginu hér hjá okkur, af hvoru
kyninu sem er. Skógur hennar er
tákn fyrir þá undankomuleið sem
slíkt fólk býr sér gjarnan til sem
eins konar afdrep í mótlæti hvers-
dagsins. Líka mætti vafalaust
leggja eitthvað út af áhuga Guð-
rúnar á bókum, svo sem að hann
táknaði þjóðararf íslendinga og
nauðsyn þeirra á að gæta að þjóð-
erni sínu; gallinn þar er þó sá að
áhugi á bókum er hér mikill og
landlægur, og síður en svo sér-
kenni þeirra sem við hin erfiðari
kjörin búa. Þess vegna er svo sem
ósköp lítið sérkennilegt við bóka-
söfnun Guðrúnar.
En að því er að gæta að Vigdís
Grímsdóttir hefur nú án nokkurs
efa náð því að verða einn af
fremstu höfundum okkar. Þetta er
þriðja skáldsaga hennar, og eru
allar vel gerðar. Hér er aftur á móti
að því að gæta að skírskotun þess-
arar sögu er óneitanlega nokkuð
þröng. Fyrir okkur, jarðbundna og
hversdagslega púlsmenn á íslandi,
eru jafnt sálfarir sem samkyn-
hneigð kvenna óneitanlega atriði
sem eru dálítið fjarlæg þeim sam-
félagsveruleika sem við lifum og
hrærumst í dags daglega. Það Iigg-
ur við að brjáluð listakona, sem
hyggst fremja morð í þágu listar-
innar, sé töluvert líklegri til að
kveikja áhuga. Líkingamál sög-
unnar er vissulega vel gert, en þar
á það við að bæði undirstaða og
umgerð eru full veikbyggð.
Ég endurtek að bókin öll ber með
sér að Vigdís Grímsdóttir er orð-
inn fullþroska höfundur sem kann
vel til verka. Og handbragð hennar
er þannig að það er engin ástæða
til að efast um að fjöldi lesenda
hennar, gamalla og nýrra, á eftir
að eiga góðar stundir við lestur
bókarinnar, nú um jólin og síðar.
En fullþroska höfundar verða líka
að sætta sig við að til þeirra séu
gerðar meiri kröfur en til byrj-
enda. Ég er á því að meiri áhersla á
jarðbundinn söguþráð, meiri
tengsl við þjóðfélagið allt í kring-
um okkur, en minni áhersla á lík-
ingar og dæmisagnaefni hefði hér
orðið til þess að gera góða bók að
hreint ágætri bók.
Eysteinn Sigurðsson
Spennusaga
Heiður Baldursdóttir:
Háskaleikur.
Vaka-Heigafeil 1992.
Heiður Baldursdóttir hlaut ís-
lensku bamabókaverðlaunin 1989
fyrir Álagadalinn. Hún er því í tölu
þeirra sögumanna sem unnu sér til
frægðar á þeim vettvangi.
Þessi saga hennar snýst í það að
verða hörkuspennandi reyfari, en sá
reyfari heldur góðum höfundarein-
kennum, mannlýsingum og sögu-
stíl.
Á stöku stað hefði e.t.v. verið
ástæða til að laga orðafar í yfirlestri.
T.d. er sagt: „Ykkur var nær að vera
að skipta ykkur af.“ Þeim var nær að
vera ekki að.
Málfar á barnabókum skiptir máli
og því ber að vanda lestur á handriti
og próförk. Hér er þreifað eftir pen-
ingi í vasa en ekki á honum, hendur
settar fyrri aftan bak. Svo kunni ég
ekki við að landi „halli niður á móti“
þegar hallar undan fæti.
Hér er hressileg og spennandi saga
með persónum sem gaman er að
kynnast, þó að þær séu misjafnlega
gæfulegar. Það má sitthvað af þeim
læra. H.Kr.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur fariö fram níundi
útdráttur húsbréfa
í 1. flokki 1989,
sjötti útdráttur
húsbréfa í 1. flokki 1990
og fimmti útdráttur
í 2. flokki 1990.
Einnig þriðji útdráttur
í 2. flokki 1991.
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. febrúar 1993.
Öll númerin birtast í DV
mánudaginn 14. desember,
og í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess liggja upplýsingar
frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni áAkureyri,
í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFAOEILD ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 - 108 REYKJAVÍK ■ SÍMI 696900