Tíminn - 12.12.1992, Side 14
Tíminn
Laugardagur 12. desember 1992
Körfuknattleikur:
NBA úrslit
Úrsiit leikja i NBA deildinni banda-
rísku i fyrrínótt:
Chartotte-New York...110-103 (M)
NewJersey-LACIippers....111-105
Minnesota-Dallas...........111-88
San Antonio-Miami.......101-91
Ulah Jazz-Washington ....112-96
GoldenState-Mílwaukee...114-102
Indiana-Sacramento ........106-99
Enska knattspyrnan:
Stórleikur á Old Trafford
þegar Mark Robin snýr heim
Knattspyrna
Marseille
velur
Frönsku meistaramir Marseille eru
lentir í þeirri vandræðalegu stöðu
að þurfa að velja milli tveggja Aust-
ur-Evrópuleikmanna í liði sínu
vegna þeirra reglna í Frakklandi að
einungis megi tveir leikmenn leika
með liðinu frá löndum utan Evr-
ópubandalagsins. Eins og við sögð-
um frá hér f Tímanum hefur Mar-
seiiie fengið að láni Igor Dobro-
volski frá Moldóvíu, frá ítalska lið-
inu Genúa.
Félagið hefur fyrir Króatann Alen
Boksic og Júgóslavann Dragan
Stojkovic sem var í láni hjá Verona á
Ítalíu en sneri til baka til Marseille
nýlega.
Sá er meiddur og þarf að fara í
uppskurð á hné. Marseilles hefur
valið að Dobrovolski verði áfram hjá
félaginu og því þarf Júgóslavinn að
fara frá félaginu. Að Marseille skyldi
velja Dobrovolski þýðir að Stojkovic
getur farið til hvaða félags sem er í
Frakklandi án þess að greiða þurfi
fyrir hann. Marseille hyggst láta
hann ná sér af meiðslum sínum og
reyna að selja hann í vor til annars
lands.
Stórleikur þessarar umferðar í ensku
knattspymunni er tvímælalaust við-
ureign Man.Utd og Norwich á Old
lYafford en Norwich er nú á toppi úr-
valsdeildar og er nú með átta stiga
forskot á Blackbum sem er í öðru
sæti. Man.Utd hefur undanfarið verið
að sækja í sig veðrið eftir erfiöa byij-
un og er nú í fimmta sæti.
Það er athyglisvert við þessa viður-
eign að Mark Robins, sem hefur skor-
að 12 mörk fýrir Norwich í 19 leikjum
það sem af er tímabils, leikur nú í
fyrsta sinn á Old Trafford eftir að hann
var seldur frá Man.Utd í sumar fyrir
800 þúsund pund. Er talið að Norwich
hafi gert þar bestu kaup ársins. Á með-
an hefur Man.Utd eytt um 3,3 milljón-
um sterlingspunda í kaup á framherj-
unum Dian Dublin (2 millj.) og Eric
Cantona (1,3 millj.) en Dian Dublin
hefur verið meiddur frá því hann var
keyptur til félagsins og Canton hefur
ekki verið í byrjunarliði frá því hann
var keyptur.
Mark Robins er staðráðinn í því nú að
láta forráðamenn Man.Utd. sjá eftir
því að hafa selt hann. Það er hins veg-
ar dálítið sérkennilegt að fjölskylda
hans verður á leiknum eins og venju-
lega á heimaleikjum Man.Utd enda
eru þau miklir aðdáendur liðsins. Fað-
ir hans, bróðir, eiginkona og vinir
mæta öll, auk tengdaföður hans, sem
er aðalnjósnari Man.Utd. liðsins.
„Þetta verður gott próf fyrir okkur og
kemur til með að verða mælikvarði á
getu okkar,“ sagði Mark Robin. Liðið
hefur unnið góöa sigra í deildinni en í
vetur hefur því hins vegar gengið upp
og ofan á útivelli.
Kenny Dalgliesh verður ekki í ósvip-
uðum sporum og Mark Robins því lið
hans, Blackbum, mætir Liverpool á
Anfield Road á sunnudag og þarf
Dalgliesh ekki að búast við hlýjum
móttökum frá áhangendum Liverpo-
ol. Það er ljóst að allir þeir titlar sem
hann vann með félaginu sem leikmað-
ur og framkvæmdarstjóri verða
gleymdir þá og líklegt að áhangendur
liðsins muni einungis eftir skyndilegri
brottför hans.
Aston Villa mætir Notthingham For-
Glíma:
Vinnur Olafur þriðja
skjöldinn til eignar?
Eins og við sögðum frá í þriðju-
dagsblaðinu sigraði Ólafur Haukur
Ólafsson skjaldarglímu Ármanns
níunda sinni og tóku sjö glímu-
menn þátt í mótinu. Annar í glím-
unni varð Orri Bjömsson, félagi ÓI-
afs úr KR, með 4,5 vinninga og
IÞROTTIR
UMSJÓN: PJETUR SIGURÐSSON
þriðji varð efnilegur Ármenningur,
Ingibergur Sigurðsson, með 4
vinninga.
Eins og áður sagði hefur Ólafur
unnið Skjaldarglímuna níu sinnum
og hefur tvívegis unnið Ármann-
skjöldinn til eignar. Það hefur kom-
ið fram að Ólafur Haukur tilkynnti í
fyrra að hann væri hættur keppni í
glímu en hann mun hafa sagt við
sama tækifæri að hann myndi taka
þátt í Skjaldarglímunni í eitt eða tvö
ár enn og myndi því reyna að freista
þess að vinna þriðja sköldinn til
eignar. Eftir sigurinn nú hefur Ólaf-
ur unnið þriðja skjöldinn tvisvar og
má því fastlega búast við því að hann
reyni að eignast hann og taki þátt í
næstu glímu til að vinna þriðja
skjöldinn til eignar. Næsta Skjaldar-
glíma verður að öllum líkindum
haldin í febrúar næstkomandi.
Knattspyrna:
Bergkamp ekki
í landsliðhóp
Ein helsta stjarna Hollendinga í knattspyrnunni um þessar mundir,
Dennis Bergkamp verður ekki í hollenska landsliðinu sem mætir Tyrkj-
um á miðvikudaginn næstkomandi. Ástæðan fyrir þessu eru meiðsli á
fæti sem hafa verið að hrjá kappann í nokkrar vikur. Þó lék hann báða
leiki Ajax gegn Kaiserslautern í Evrópukeppni félagsliða. Eric Viscaal sem
leikur með AA Ghent kemur í landsliðshópinn í stað Bergkamps.
Knattspyrna:
Gary Stevens
aftur meiddur
Það á ekki af Gary Stevens, enska
landsliðsmanninum í liði Glasgow
Rangers, að ganga. Hann lék sinn
fyrsta leik eftir langvarandi hlé vegna
fótbrots í nóvember. í fjórða leik hans
með Rangers síðan, þann 1. desember,
meiddist hann illa. I gær úrskurðuðu
læknar hann svo til fjögurra til sex
vikna hvíldar frá knattspyrnu, vegna
sprungu í beini eftir að Gary hafði
fengið spark í hnéð. Þetta er slæmt
fyrir Rangers sem tekur nú þátt í und-
anúrslitakeppninni í Evrópukeppni
meistaraliða.
est á heimavelli sínum og þrátt fyrir
góða stöðu Villa í deildinni verða þeir
að vera á varðbergi með það í huga
hvernig botnliðið fór með Leeds Utd
um síðustu helgi. Einhverjar breyt-
ingar verða á Iiði Villa í leiknum með
endurkomu Shaun Teale eftir meiðsli
og fer hann aftur á miðjuna og Earl
Barrett fer í stöðu hægri bakvarðar en
Teale leikur stöðu miðvarðar.
Um helgina
LAUGARDAGUR
Handknattleikur
Bikarkeppni karla
ÍBV-Valur kl. 16.00
Bikarkeppni kvenna
Víkingur-Stjaman kl. 16.30
FH-Grótta kl. 16.30
ÍBV-Valur kl. 14.00
Fylkir-Fram kl. 12.30
Blak
1. deild karla
Stjarnan-KA kl. 16.00
SUNNUDAGUR
Handknattleikur
Bikarkeppni karla
Selfoss-Fram kl. 20.00
Grótta-Víkingur kl. 20.00
KA-Haukar kl. 20.00
Körfuknattleikur
Bikarkeppni karla
UMFS-KR kl. 14.00
Snæfell-Valur kl. 14.00
UBK-ÍBK kl. 17.00
UMFT-UMFN kl. 20.00
Bikarkeppni kvenna
UMFT-ÍBK kl. 17.00
Blak
1. deild karla
HK-Þróttur R. kl. 14.00
1. deild kvenna
HK-Víkingur kl. 15.15
MÁNUDAGUR
Körfuknattleikur
Bikarkeppni kvenna
ÍS-KR kl. 20.00
BABE RUTH
The Babe -k-kic
Handrít og framleiðsla: John Fusco.
Leikstjórí: Arthur Hiller.
Aðalhlutverk: John Goodman, Kelly
McGillis og Tríni Alvarado.
Laugarásbió.
Öllum leyfö.
Þessi sannsögulega mynd segir
sögu George Ruth, öðru nafni Babe
Ruth, besta hafnaboltaleikara fyrr
og síðar. Hann kunni eiginlega ekk-
ert. Hann kunni enga mannasiði,
var sífellt fullur og honum héldu
engin bönd, allra síst hjónabönd.
Hann var feitlaginn og gat varla
hlaupið en hann þurfti sjaldnast að
hlaupa hratt því hann sló boltann yf-
irleitt út fyrir völlinn með kylfunni
(„homerun"), ef hann hitti á annað
borð. Að slá boltann fastast af öllum
var í raun eini hæFileiki hans.
Við fylgjumst með í drungalegri
byrjun þegar komið er með Ruth á
kaþólskt munaðarleysingjahæli þar
sem einn guðsmaðurinn uppgötvar
þennan hæfileika hjá stráknum.
Hann fer síðar af hælinu og beint í
úrvalsdeildina þar sem hann byrjar
að setja hvert metið á fætur öðm.
Peningamir streyma til hans og fara
aðallega í skemmtanir og fyllerí.
Hann giftist Helen (Alvarado), ró-
legri og góðri stúlku, sem tekst aldr-
ei að róa þetta risavaxna barn. Babe
Ruth sankaði að sér titlum og met-
um á meðan hann gat leikið, en þeg-
ar honum fór að ganga verr var
komið að brotlendingunni.
Það ber að meta við myndina að frá-
sögnin er raunsæ allan tímann. Það
hefði verið auðvelt að taka þessa
goðsögn í þjóðaríþrótt Bandaríkj-
anna, framleiða mynd og sýna bara
góðu dagana. Það em sýnd greinileg
tengsl milli uppvaxtaráranna á hæl-
inu, þar sem Ruth var talinn ófor-
betranlegur, og erfiðleikanna sem
hrjáðu hann í hversdagslífinu
seinna á lífsleiðinni. Handrit John
Fusco gerir bæði goðsögninni á vell-
inum skil, sem og lífi hennar utan
vallar, og gerir það vel.
Auðvelt er að benda á sigurvegara
myndarinnar. John Goodman fer á
kostum í hlutverki Babe Ruth. Hann
leikur þetta barn í tröllslíkama frá-
bærlega og fipast hvorki innan vall-
ar né utan. Aðrir leikarar em í alger-
um aukahlutverkum og mynda bara
hringinn í kringum Babe Ruth.
Trini Alvarado er að vísu nokkuð góð
í aukahlutverki.
Leikstjórinn, Arthur Hiller, hefur
aðallega gert miðlungsgamanmynd-
ir fram að þessu. Hann var á hátindi
feriis síns 1970, þegar hann var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
Love Story, eina af mestu vasaklúta-
myndum sögunnar. Hiller gerir þó
vel með þessari mynd sem er hans
besta í langan tíma. Það er óhætt að
mæla með The Babe sem er fínasta
afþreying og skilur smávegis eftir
sig þar að auki.
Örn Markússon.