Tíminn - 12.12.1992, Blaðsíða 15
Laugardagur 12. desember 1992
Ttminn 15
r
Agangur af sandi
Stefán Júlíusson:
Ástir og örfok, skáldsaga.
Bókaútgáfan Björk, 1992.
Þessi nýja skáldsaga Stefáns Júlí-
ussonar, sem höfundur las raunar
í útvarp í fyrra, er sérstæð um það
að segja má að helsta viðfangsefni
hennar sé jöfnum höndum gamalt
og nýtt. Þar segir frá ungum bú-
fræðikandidat, sem nýkominn er
heim frá námi í landgræðslu, og
hefur stundað það nám bæði aust-
an hafs og vestan. Sagan gerist á
kreppuárunum svokölluðu, fyrir
heimsstyrjöldina, og heimkominn
lendir söguhetjan, sem Ármann
heitir, beint inn í vægast sagt um-
deilt verkefni. Þar er um að ræða
lagningu landgræðslugirðingar í
sveit hér sunnanlands og deilur
sem um það mál rísa.
Áfok sands er þar langt komið
með að eyðileggja búsældarlega
jörð, og landgræðslustjóri vill
bregðast til varnar með því að
girða af það svæði, sem er í mestri
hættu, og loka því fyrir sauðfjár-
beit á meðan landið sé að jafna sig.
Bóndinn á jörðinni er andvígur
þessu, að því er virðist af einni
saman þröngsýni og stundarhags-
munum, og verður það hlutskipti
söguhetjunnar ungu að leggjast á
sveif með landgræðslustjóra í mál-
inu.
Svo óheppilega vill hins vegar til
að bóndinn á unga og fjallmyndar-
lega dóttur, sem raunar er öðrum
ætluð, en með henni og Ármanni
takast heitar ástir.
Vitaskuld verða þar ýmis ljón í
veginum, bæði hreppstjórinn, sem
stúlkan er ætluð, og tryggð henn-
ar sjálfrar og skyldurækni við föð-
ur sinn og jörð hans. En þessi sér-
kennilega og tvíþætta togstreita,
annars vegar um ástina og hins
vegar um vamirnar gegn sandin-
um, em meginuppistaða spenn-
unnar í sögunni.
Málið er nefnilega að hafi menn
ferðast hér um hálendið og fylgst
með umræðunni nú undanfarið
um uppblásturinn og sauðfjárbeit-
ina þar, þá verður þessi saga býsna
nálæg okkur í samtímanum, þó að
svo sé látið heita að hún gerist fyr-
ir einum sex áratugum. Þarna tog-
ast á tvær kynslóðir, annars vegar
gamli tíminn, sem ekki sér hætt-
una sem því er samfara að ofbjóða
Stefán Júlíusson.
landinu, og hins vegar sá nýi sem
sér hina brýnu þörf á að bregðast
við aðsteðjandi vanda.
Að þessu leyti má segja að saga
Stefáns Júlíussonar eigi erindi til
nútímamanna. Vel má vera að enn
séu til ýmsir á meðal bænda og
talsmanna þeirra, sem sjái ekki
nógu skýrt þörfrna á því að standa
vörð um landið, láta það ekki fjúka
burt. Þó má vera að ekki sé í sög-
unni hamrað á því af nægilegu afli
að vitaskuld er það sérhverjum
bónda í hag að varðveita gróður-
lendið sem öll afkoma stéttar
þeirra byggist á.
Ef eitthvað er, þá má setja út á
þann eindæma þvergirðingshátt
sem bóndinn hér í sögunni er lát-
inn sýna. Bændur eru vitaskuld
upp og ofan, eins og aðrar stéttir,
en sjálfum hefur mér þó virst að
þeir geri sér upp til hópa fulla
grein fyrir þeirri hættu sem af-
komu þeirra allri geti stafað af of-
beit á landinu. Meðal annars er
skammt síðan ég las mjög skyn-
samlega skrifaða grein eftir bónda
norður í landi, þar sem hann gerði
mjög skilgóða grein fyrir þeim
arði sem hann hafði aflað búi sínu
með því að afgirða, bera á og rækta
tiltekinn hluta af beitarlandi sínu.
Og trúa mín er að þannig hugsi
flestir skynsamir bændur nú á
dögum.
Því er eiginlega varla trúandi að
jafn greindur og skilvirkur bóndi
og sá sem hér er lýst hafi ekki séð
það, sem haldið er fram í sögunni,
að hvíld frá sauðfjárbeit og mark-
viss ræktun væri eina færa leiðin
til þess að yfirleitt væri hægt að
halda áfram sauðfjárbúskap á jörð
hans.
Og ég sé ekki betur en að boðskap-
ur Stefáns Júlíussonar hér, um að
verjast þurfi með öllum ráðum
gegn ágangi sands og uppblásturs
á gróið land, eigi alveg jafn vel við
í dag og fyrrum. Að þessu leyti er
saga hans markviss og þörf áminn-
ing til fólks nú á dögum, þótt hann
kjósi að tímasetja hana upp undir
mannsaldur aftur í tímann.
Eysteinn Sigurðsson
% ...alltaftilað
atvinnu
KRAKKAR - KRAKKAR
Skíðagallar..........frá kr. 4.900,-
Ungbarnagallar ......frá kr. 2.900,-
Peysur...............frá kr. 1.200,-
llt á ykkur fyrir jólin 0-14 ára
'5% staðgr.afsláttur af öllu.
Sendum í póstkröfu.
í KRINGLUNNI S 689811
í HVERAFOLD S 676511
Sigurbjörn Einarsson tök saman
Þessi bók hefur að geyma íslenskar og erlendar tilvitnanir, - fleyg orð
úr ýmsum áttum. Bókinni er skipt í 40 efnisflokka. Dæmi: Líf og lífssýn
- Fjölskyldan - Ástin - Ættjörðin og móðurmálið - Reynsla og sorg
- Listir og menntun - Æskan - Ellin - Guð - Bænin - Hamingjan
- Satt og ósatt - Uppeldi - Gleði og gaman.
Orð til íhugunar og dægradvalar.
Verð: 2.450 kr.
SETBERG
Freyjugötu 14, sími 91 17667
VEL MÆLT
Nærrí 2000 innlend og erlend spakmæli
og tilvitnanir til íhuganar og dægradvalar