Tíminn - 30.01.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 30. janúar 1993
Tlminn 19
vv • ^CLVJ
m
:bUK UPTlAOSK
KAM
Fowv
HEöAL ^éeíblAW M VV&TYMN/U U-AS T Á MD
sív
Í?S'*
ANkN" ^'A h'~S^,A"TT^K ^
,Ai ^ r
I" '%
^ÍfRC VÍ í>Ap ®
\\jí ' &' 'jí ’ /7
FAIA
C |=gí-)
E)f,
B OM'A 15 LAkJDl Hý T-TA
m/r w# \m\m\
gjLSAR j sK0CiC,A
EE5
Lausn á jóla-krossgátunni
Lausnarorðið í jóla-krossgátunni um og kom upp nafn Steinunnar og verða þau send Steinunni. Les-
var: „Sjá himins opnast hlið“. Dreg- Hallgrímsdóttur, Sogavegi 127 A í endum er þökkuð ágæt þátttaka.
ið var úr réttum innsendum lausn- Reykjavík. Verðlaun voru kr. 7500
Lausn á áramóta-myndagátunni
Ráðning á áramótamyndagátunni, (krefst) sívaxandi samdráttar og búast við góða þátttöku. Dregið var úr rétt-
sem birtist í blaðinu þann 31. desem- margir við að bráðlega fari verðlag úr um lausnum og kom upp nafn Pál-
ber sl., er sem hér segir: „Gjaldþrota- skorðum á íslandi. Nýtt ár heilsar í meyjar Gróu Bjamadóttur, Brunnum
leiðin veldur upplausn meðal þegn- skugga EES.“ 22 á Patreksfirði. Gróa mun fá verð-
anna. Atvinnuástand ber merki Mikill fjöldi lausna barst og þökkum launin, kr. 7500, send innan skamms.
BÍLALEIGA
AKUREYRAR
MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM
LANDIÐ.
MUNID ÓDÝRU
HELGARPAKKANA OKKAR
REYKJAVÍK
91-686915
AKUREYRI
96-21715
PÖNTUM BÍLA ERLENDIS
interRent
Europcar
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar, f.h. byggingadeildar borg-
arverkfræðings, óskar eftir tilboðum í endurmálun á ýmsum
fasteignum Reykjavíkurborgar.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3,
Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miövikudaginn 17. febrúar
1993, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. byggingadeildar
borgarverkfræðings, óskar eftir tilboðum í dúkalagnir í
ýmsar fasteignir Reykjavíkurborgar 1993.
Um er að ræða vinnu og efni við dúkalagnir í ýmsum fast-
eignum 1993 og dúklagningarvinna vegna íbúaskipta í
íbúðum á vegum Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar
1993 til 1994.
Heildarflatarmál allra framkvæmda, sem útboðið nær til,
er um 7.000 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavik, gegn kr. 5.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuö á sama stað þriöjudaginn 23. febrú-
ar 1993, kl. 11,00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
33. ÞÁTTUR
í síðasta þætti spurðist eg fyrir um höfund vísunnar „Hingað
kom í hrossaleit". Tveir menn hafa haft samband við mig þar að
lútandi. Bóndi í Hvítársíðu segist hafa heyrt að vísan væri eftir
Guðmund Illugason frá Skógum f Flókadal. Guðmundur Guð-
mundsson á Dalsmynni í Eyjahreppi telur vfsuna eftir Benjamfn
Kristjánsson frá Haukatungu í Kolbeinsstaðahreppi. Nokkur ár
um 1930, voru haldnar skemmtanir á Stórahrauni. Á eina af þess-
um skemmtunum kom Höskuldur frá Hofsstöðum með marga
hesta og man Guðmundur það gjörla. Telur hann, að þá hafi vís-
an verið ort.
Margir hagyrðingar hafa kvatt vini sína og samferðamenn með
stöku eða ljóði, þá þeir voru allir. Einar Karl Sigvaldason, sem
lengi bjó á Fljótsbakka í Suður-Þingeyjarsýslu, kvað svo við fráfall
Þórhalls Bjömssonar á Ljósavatni:
Ljóma á þitt lífsstarf brá
listaþráin ríka.
Fjallabláa eyjan á
alltof fáa slíka.
Einar Karl kvað svo er hann hugsaði til þeirra bænda, er urðu að
bregða búi og skilja eftir jarðir sínar í auðn:
Á þá leggjast örlög grá
eins og hjam á runna.
Verða þeir nú að flýja frá
flestu, sem þeir unna.
Trúlega hafa skuldaskil verið erfið hjá Guðmundi Gunnarssyni,
fyrrum bónda á Tindum á Skarðsströnd, er hann kvað svo:
Skuldaótta að mér slær,
aldrei rótt má verða.
Vökunóttum valda þær,
vinnuþróttinn skerða.
Jónas Jónsson frá Grjótheimi hefur ekki verið ánægður með
þjónustuna er hann kvað:
Enga snilli eg hef spurt,
en okurvillur líðast.
Fékk með illu illa smurt
inn á Stilli síðast.
Þessi staka er eftir Gunnar Einarsson frá Bergskála:
Brostinn streng og flúinn frið
finn og genginn máttinn.
Stóð eg lengi lúinn við
lífsins engjasláttinn.
Rósberg G. Snædal kvað svo í Stafnsrétt:
Miðla eg tári á mannfundi
manni náradregnum.
Þessi árans andskoti
ætlar að klára úr fleygnum.
Jóhann Garðar frá Öxney kvað svo er roskinn maður kvæntist í
fjórða sinni:
Þó að ellin yggli brá
og andann hrella kunni,
samt hann féll í fangið á
fjórðu kellingunni.
Jón Guðnason, prestur og síðar skjalavörður, ljóðaði eitt sinn
þannig á Jóhannes úr Kötlum:
Ljóðdísar þú hrepptir hlut,
hlaust hann samt í meinum.
Leir í stafni, leir í skut,
lengi er von á einum.
Jóhannes svaraði:
Þú hefur lengi á lifs þíns dröfn
Ijóðdís haft að frillu.
Loksins henni leystist höfn,
lengi er von á illu.
Fyrir stuttu urðu mikil átök um stjóm Menntamálaráðs. Þá var
þetta kveðið, ekki veit eg um höfund:
Kvenmannsfressin fúl ogþvers
formannssessinn trega.
Nú hefur Bessí brugðið Kress
býsna hressilega.
Kristmundur Jóhannesson