Tíminn - 30.01.1993, Blaðsíða 12

Tíminn - 30.01.1993, Blaðsíða 12
12 Tíminn Laugardagur 30. janúar 1993 SÖLVHÓLSGATA 7, REYKJAVÍK Tilboð óskast í múrtiúðun útveggja, lagningu ofnakerfis og ein- angrun þaks 4. hæðar Sölvhólsgötu 7, sem er um 850 m2að gólffieti, og þar af innrétta að fullu um 250 m2. Auk þess setja upp loftræstisamstæðu á 4. hæö fyrir allt húsið. Verktími er til 10. september 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík, frá og með mánudeginum 1. febrúar til og með föstu- deginum 12. febnjar gegn 10.000,- kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað 18. febrúar 1993 kl. 11:00 í við- urvist viðstaddra bjóöenda. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK ÞRIF SKÓLAHÚSNÆÐIS Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU Innkaupastofnun rikisins fyrir hönd menntamálaráðuneytisins óskar hér meö eftir tilboöum ( þrif (ræstingu og hreingemingu) skólahúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Alls er um að ræða 23 skóla og er ræst rými þeirra 84.158 m2. Útboðiö er i þremur hlutum og eru kennitölur eftirfarandi: Hluti 1 Fjöldi skóla 17 Ræst rými 61.380 m2 Hluti 2 Fjöldi skóla 5 Ræst rými 10.782 m2 Hluti 3 Fjöldi skóla 1 Ræst rými 11.996 m2 Útboðsgögn verða seld hjá Innkaupastofnun ríkisins, Borgartúni 7,105 Reykjavlk, frá og með þriöjudeginum 2. febrúar og kosta gögnin kr. 10.000,-. Tilboð skulu hafa borist Innkaupastofnun ríkisins eigi síðar en þriðjudaginn 9. mars 1993 kl. 11:00 og verða þau þá opnuö í viöurvist þeirra bjóðenda sem viöstaddir kunna að verða. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7.105 REYKJAVÍK Varnarliðið: umhverfisverkfræðingar (Environmental Engineers) Varnarliðið óskar að ráða tvo umhverfisverkfræðinga til starfa hjá Stofnun verklegra framkvæmda, umhverfis- máladeild. Starfið felur í sér að framfylgja íslenskum og bandarískum lögum og reglum um umhverfismál og framkvæma önnur verkefni á sviöi umhverfismála innan varnarsvæðanna. Krafist er viðeigandi háskólamenntunar, mjög góðrar munnlegrar og skriflegrar enskukunnáttu, ásamt hæfileik- um til að vinna sjálfstætt. Samskipti við aðra eru áríðandi þáttur í starfi. Umsækjendur þurfa að hafa gilt ökuskírteini. Ráðning er tímabundin, en framlenging möguleg. Skriflegar umsóknir á ensku berist til Varnarmálaskrif- stofu, ráöningardeild, Brekkustíg 39, 260 Njarðvík, eigi síðar en 10. febrúar 1993. - v ■ Þorsteinn Hilmarsson hjá Landsvirkjun segir að hugsanleg lagning sæ- strengs til Evrópu kalli á umræðu um eignarhald á virkjunum á íslandi: Eiga útlendingar að fá að eiga hlut í íslenskum virkjunum? „Útlendingum er bannað með lögum að byggja og eiga virkjanir á íslandi,“ sagði Þorsteinn Hilmarsson, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, þegar hann var spurður hvort sá möguleiki hefði verið ræddur innan Landsvirkjunar að heimila útlendingum að byggja virkjanir hér á landi. Um þessar mundir íhuga Grænlend- ingar að bjóða útlendingum að virkja á Grænlandi. í grein um virkjun við Nuuk á Grænlandi í Tímanum í dag er sagt frá hugmyndum Grænlendinga að virkja jökulbráðið vatn sem renn- ur frá Grænlandsjökli. Það gildir um Grænlendinga eins og fleiri að þá skortir fjármagn og þess vegna velta þeir fyrir sér að bjóða útlend- um stórfyrirtækjum að virkja hjá sér. Hagur Grænlendinga yrði þá einungis sá að í efnahagslíf þeirra kæmi aukið fjármagn sem þýddi meiri vinnu og meiri umsvif á mörgum sviðum. Þorsteinn Hilmarsson sagði að lítið hefði verið rætt hér á landi um þennan möguleika að útlend- ingar byggðu og rækju virkjanir á íslandi. Fyrir löngu hefði sú stefna verið mörkuð að íslendingar hefðu einir rétt til að virkja fallvötn á ís- Iandi. Þessi stefna hefði verið lög- fest á Alþingi. Þorsteinn sagði að það væri verk- efni stjórnmálamanna að taka af- stöðu til spumingarinnar hvort breyta eigi lögum um eignarhald á íslenskum virkjunum og leyfa út- lendingum að eiga hlut í þeim. Þorsteinn sagði að menn hefði að sjálfsögðu velt þessum hlutum fyr- ir sér í tengslum við hugsanlegan útflutning á íslenskri raforku með sæstreng til Skotlands eða landa á meginlandi Evrópu. Sá möguleiki hefði talsvert verið ræddur að út- lend fyrirtæki ættu sæstrenginn og einnig hefðu menn nefnt þann möguleika að útlend fyrirtæki fjár- mögnuðu byggingu virkjanna hér á landi ásamt íslendingum. Þor- steinn sagði hins vegar að það væri stjórnmálamanna að svara spum- ingu um hugsanlega breytingu á eignarhaldi á virkjunum sem byggðar yrðu hér í framtíðinni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.