Tíminn - 13.02.1993, Qupperneq 1

Tíminn - 13.02.1993, Qupperneq 1
Laugardagur 13. febrúar 1993 30. tbl. 77. árg. VERÐ í LAUSASÖLU KR. 110.- Um 7.000 manns á atvinnuleysisskrá síðasta dag janúarmánaðar: Fjölgun atvinnulausra nær öll á höfuðborgarsvæðinu Skráð atvinnuleysi náði enn nýju meti í janúarmánuði, þegar það komst upp í 5% að meðaltali yfir landið í heild. Þetta býbir 56% aukningu frá sama mánuði fyrir ári, og skýrist því af ððru en árs- tíðasveiflum. Þessi fjölgun hefur að langmestu leyti orðið á hðfuð- borgarsvæðinu. Atvinnulausum fjölgaði þar úr rúm- um 143% á sléttu ári. Á landsbyggð- lega 1.200 upp í tæplega 3.000, eða inni fjölgaði atvinnulausum um 19% þúsund tonnum í 810 þúsund tonn anna samkvæmt aflahlutdeild kvótínn verði auldnn um 80 _ BVAJU) I'MUMUIUK” alþyngd hverrar loönu hefur aukist um 1,5 grömm. Þá nema tiL eftírstöðvar af kvóta------ 1 * IÉ------1 1 — um kvóta Norðmanna og Gnen- þúsund tonn. Jafnframt hefur Hafrannsóknastofnun lagt tíl að kvótinn verði autdnn um 80 ekki djöflast í kvótanum og heimtað svo ern búnir." Benedikt Vaisson, fram- kvæmdastjóri FFSÍ, segir að fijáls sókn mundi senniiega fera okkur nær því markmiði að geta náð öltum kvótanum, til hagsbóta fyrir alla aðila og þá eldá síst þjóöarbúlð. Hvert á að ferðast í næsta sumarleyfi? Hvert skal halda í sumarfríinu? nokkurra ferðaskrifstofa segja spyrja sjálfsagt margir sjálfa sig, frá því sem þeir hafa upp á að nú þegar vorið nálgast íslend- bjóða í sumar. ingum stendur margt til boða í Blaðsíður 10-13 og 16-17. þessum efnum og talsmenn á sama tíma. Þessi mikla fjölgun var að mestu komin fram fyrir áramótin, þannig að atvinnuleysi óx nú minna milli desember og janúar heldur en oftast áður. En sú 200 manna fjölg- un, sem fram kom, varð næstum öll á höfuðborgarsvæðinu og mest hjá körlum. Atvinnuleysisskráning í janúar svaraði til þess að 6.300 manns hafi verið án vinnu að meðaltali allan mánuðinn, borið saman við tæp- lega 6.100 í desember og 4.000 í janúar í fyrra. Þetta ár hefur körl- um án vinnu fjölgað um 1.300 upp í 3.400, en konum um 1.000 upp í 2.900. Skipting atvinnulausra eftir land- svæðum var þannig í janúar: Fjöldi: Konun Kariar. Vesturland 320 6,2% 3,4% Vestfirðir 100 2,0% 1,9% Nl. vestra 370 8,6% 6,5% Nl. eystra 890 7,6% 7,5% Austurland 400 6,7% 6,7% Suðurland 570 6,8% 5,7% Suðumes 690 14,4% 6,2% Landsb. 3.330 7,7% 5,7% Höfb.sv. 2.970 4,2% 3,9% í yfirliti Vinnumálaskrifstofunn- ar segir m.a.: .Atvinnuástandið er orðið mjög slæmt á nær öllu höf- uðborgarsvæðinu." Á þessu svæði hafi atvinnuleysi aukist hlutfalls- lega meira en víðast hvar annars staðar, bæði milli ára og milli mánaða. Rúm 31% atvinnuleysis á landinu sé í Reykjavík og þar hafi þeim líka fjölgað um 105 í mánuðinum, eða helming allrar fjölgunar á landinu. Atvinnu- ástandið er þó enn langverst á Suðurnesjum, sérstaklega hjá konunum. En um sjötta hver kona þar var án vinnu núna í des- ember og janúar. Um helmingur atvinnulausra á svæðinu er í Keflavík. Á Vesturlandi var yfirgnæfandi meirihluti atvinnulausra á Akra- nesi og í Borgarnesi (270 af alls 320). En flestir höfðu vinnu í plássunum á Snæfellsnesi. Á Vestfjörðum fækkaði atvinnu- lausum talsvert milli desember og janúar. Enginn var þá án vinnu í Súðavík og sárafáir í Bolungarvík, Flateyri og á Ströndum. Atvinnu- lausir eru raunar fremur fáir á öðrum stöðum á Vestfjörðum, nema á Bíldudal, Þingeyri og Suð- ureyri. Á Norðurlandi vestra er atvinnu- ástandið víða orðið mjög slæmt. Enda fjölgaði atvinnulausum þar um fjórðung milli desember og janúar. Á Siglufirði, Blönduósi og Skagaströnd voru 60 án vinnu á hverjum stað og 90 á Sauðár- króki. Á Norðurlandi eystra telur Vinnumálaskrifstofan ástandið það næst versta á landinu. Mest ber á Akureyri þar sem atvinnu- lausir voru 516 að meðaltali í janúar, hvar af karlar voru í mikl- um meirihluta (312). Á Austurlandi var mikill munur frá einum stað til annars í janúar. Þokkaleg vinna var t.d. á Höfn og Neskaupstað. En mun verra á Fá- skrúðsfirði, Egilsstöðum og Vopnafirði. Suðurland er eina svæðið þar sem atvinnulausir voru nú heldur færri en í janúar í fyrra og líka að- eins færri en í desembermánuði. Sérstaklega virðist staða Vest- mannaeyja góð, með aðeins 50 á skrá í stórum bæ. Það er sami fjöldi og á Eyrarbakka og m.a.s. færri en á Stokkseyri, sem eru þó níu sinnum minni byggðarlög en Eyjar. í Þorlákshöfn voru hins vegar á annað hundrað án vinnu og um 120 á Selfossi. - HEI Guðmundur Árni mokar Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafn- arfirði, tók fyrstu skóflustunguna aö hinu um- deilda stórhýsl í miðbæ Hafnarfjarðar {gær. Tímamynd Áml BJama.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.