Tíminn - 13.02.1993, Blaðsíða 26

Tíminn - 13.02.1993, Blaðsíða 26
26 Tíminn Laugardagur 13. febrúar 1993 BB DAQBÓK Breiöfirdingafélagiö verður með félagsvist sunnudaginn 14. febr. kl. 14.30 í Breiðfirðingabúð, Faxa- feni 14. Félag eldri borgara í Reykjavík Sunnudagur. 4ra daga bridgekeppni kl. 13. Félagsvist kl. 14. Gamanleikritið Sól- setur kl. 16 laugardag og kl. 17 sunnu- dag. Upplýsingar í síma 19662. Dansað í Goðheimum kl. 20. Mánudagur: Opið hús í Risinu kl. 13-17. Lomber og frjáls spilamennska. BÍLALEIGA AKUREYRAR MEÐ ÚTIBÚ ALLT í KRINGUM LANDIÐ. MUNIbÓDÝRU HELGARPAKKANA OKKAR REYKJAVÍK 91-686915 AKUREYRI 96-21715 PÖNTUM BÍLA ERLENDIS interRent Europcar Guörún Einarsdóttir sýnir á Kjarvalsstööum í dag, laugardag, opnar í austursal Kjar- valsstaða sýning á málverkum eftir Guð- rúnu Einarsdóttur. Guðrún Einarsdóttir (f. 1957) útskrifað- ist 1988 úr málaradeild Myndlista- og handíðaskóla íslands. Hún hefur verið með á samsýningum og haldið einkasýn- ingar undanfarin ár og hefur vakið mikla athygli fyrir myndir sínar. Sýningin að Kjarvalsstöðum er opin daglega frá kl. 10.00-18.00 og stendur til 7. mars. Bókmenntir í Listasafni Sigurjóns Listasafn Sigurjóns Ólafssonar gengst fyrir bókmenntadagskrá í dag, laugar- dag, kl. 16 í safninu í Laugamesi. Fimm skáldkonur, sem sendu frá sér athyglis- verðar bækur fyrir jól, munu lesa úr nýj- um bókum sínum ásamt dönsku skáld- konunni Susanne Jom, en á vegum safnsins vom á síðasta ári gefin út ljóð, sem hún hefur ort við nokkrar högg- myndir Sigurjóns Ólafssonar. Dagskráin hefst á því að Vilborg Dag- bjartsdóttir les úr ljóðabók sinni, „Klukkan f tuminum". Þá les Þómnn Valdimarsdóttir úr skáldsögu sinni, sem nefnist ,Júlía“, og Kristín Ómarsdóttir mun lesa úr bókinni „Svartir brúðarkjól- ar“, sem er fyrsta skáldsaga höfundar. Linda Vilhjálmsdóttir les úr ljóðabók sinni „Klakabömin" og Vigdís Gríms- dóttir les úr skáldsögunni „Stúlkan í skóginum". Að lokum mun Susanne Jom lesa úr bók sinni „TYacks in Sand" og em ljóðin fmmsamin á ensku. Steinunn Sigurðar- dóttir hefur þýtt nokkur Ijóðanna á ís- lensku og mun Helga Jónsdóttir leik- kona flytja þau. Jafnframt verða sýndar litskyggnur af þeim verkum Sigurjóns, sem Susanne hefur ort ljóð sín við. „Farðu og sjáöu“ sýnd íbíósal MÍR Hin fræga kvikmynd Elíms Klimov „Farðu og sjáðu" (Ídí í smatrí) verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á morg- un, sunnudag, kl. 16. Myndin lýsir at- burðum sem gerðust í Hvftarússlandi á stríðsárunum, en þar unnu Þjóðverjar einhver grimmilegustu illvirid sín í stríðinu. Myndin er ekki við hæfi bama. Texti er með myndinni á ensku. „Stríð og friður", stórmyndin fræga, sem gerð var eftir samnefndri skáldsögu Tolstojs, verður sýnd í heild laugardag- inn 20. febrúar. Aðgangur aðeins gegn framvísun aðgöngumiða sem afgreiddir verða á Vatnsstíg 10 næstu daga kl. 17- 18. Guöjón Ketjlsson sýnir á Sólon íslandus I dag, laugardag, kl. 16 opnar Guðjón Ketilsson sýningu í gallerí Sólon ísland- us í Bankastræti. Á sýningunni eru höggmyndir unnar í tré. Þetta er níunda einkasýning Guðjóns, en hann hefur tek- ið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Sýningin í Sólon íslandus er opin á opnunartíma kaffihússins og Iýk- ur 10. mars. Kolaportið: Barnadagar um helgina Kolaportið efhir til sérstakra Bamadaga um helgina, bæði laugardag og sunnu- dag, og mun hluti markaðstorgsins snú- ast þessa daga um ýmislegt sem bömum viðkemur. Félagasamtök munu kynna starfsemi sína sem viðkemur uppeldi, heilbrigði og þroska bama, en fyrirtæki með hvers konar bamavömr munu einnig kynna starfsemi sína í sölubásum. Mikil vinna hefur verið lögð í undirbún- ing bamadagsins og fjölmargir aðilar lagt þar hönd á plóginn. Gott samstarf hefur tekist með fjölmörgum félagasam- tökum og stofnunum sem munu taka þátt í Bamadögunum með ýmsum hætti og má þar Ld. nefha Kvennadeild Slysa- vamafélagsins, Slysavamafélag íslands, Lögregluna, Umferðarráð og Heilbrigö- isráðuneytið. Nemendasýning Nýja Dansskólans Mánudaginn 15. febrúar verður nem- endasýning Nýja Dansskólans haldin á Hótel Sögu, Súlnasal, kl. 19. Auk nemenda munu Esther og Haukur sýna, einnig Evrópumeistaramir Martin og Alison Lamb. Liðakeppni verður á milli nemenda Nýja Dansskólans, Dansskóla Jóns Pét- urs og Köm, Dansskóla Sigurðar Hákon- arsonar og Dansskóla Auðar Haralds. Forsala aðgöngumiða verður í Nýja Dansskólanum, Reykjavíkurvegi 72, Haffiarfirði, í dag og á morgun kl. 12-17. Miðamir verða númeraðir á borð. Ták- markaður sætafjöldi. Húsið opnar kl. 19. Miðaverð kr. 700. Frá Útivist Dagsferðir sunnudaginn 14. febrúar. Kl. 10.30 Skíðaganga. Cengið verður á Skálafell sunnan Hellisheiðar. Kl. 10.30 Skólagangan 4. áfangi: Flens- borg-Fjölbraut í Breiðholti-Kennarahá- skóli íslands. Þessum áfanga er ætlað að rifja upp sögu gagnfræðaskóla og kenn- araskóla á Islandi og einnig starfsemi fjölbrautaskóla og Kennaraháskóla ís- lands í dag. Cangan hefst við Garða á Álftanesi. Fylgdarmenn verða Kristján Bersi Ólafsson skólameistari Flensborg- arskóla, Kristín Amalds skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti og Svan- hildur Kaaber formaður Kennarasam- bands íslands. Brottför í báðar ferðimar er frá BSÍ, bensínsölu. Frítt er fyrir böm 15 ára og yngri f fylgd með fullorðnum. Æfing í björgunar- og ruónings- störfum á Seltjarnarnesi Sunnudaginn 14. febrúar verður haldin á Seltjamamesi æfing í björgunar- og ruðningsstörfum á vegum Slysavamafé- lags íslands, en það er verkeffii björgun- arsveita Slysavamafélagsins í skipulagi Almannavama. í æfingunni taka þátt björgunarsveitir Slysavamafélagsins á Reykjavíkursvæð- inu, Almannavamanefnd Seltjamamess og starfslið Heilsugæslustöðvarinnar á Seltjamamesi. Verkeffiin verða víða á Nesinu og vilja aðstandendur biðja Sel- timinga um að sýna tillitssemi og þolin- mæði á meðan æfingin stendur yfir, en það er frá kl. 10 til 14 á sunnudeginum. 5BDK3 K U B B U R ÆVISTARF AGÖTU 6698. Lárétt 1) Ritgerð. 6) Hundinn. 10) Slagur. 11) Vein. 12) Talar satt. 15) Fífls. Lóðrétt 2) Verkur. 3) Fugl. 4) Steikja. 5) Borða. 7) Óhreinka. 8) Ætt. 9) Skyld- ari. 13) Nýgræðingur. 14) Ónn. Ráðning á gátu no. 6697 Lárétt 1) Óskar. 6) Bardaga. 10) Elg. 11) II. 12) Innlend. 15) Blína. Lóðrétt 2) Sór. 3) Ata. 4) Óbeit. 5) Valdi. 7) Agn. 8) Dæl. 9) Gin. 13) Nfl. 14) Ein. Kvöld-, nætur- og helgidagavarsla apótoka I Roykjavík frá 12. februar til 18. febrúar er I Lytjabúöinni löunnl og Garðs Apóteki. Þaö apó- tek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22.00 aö kvöldi tll kl. 9.00 að morgni vlrka daga en kl. 22.00 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar I sfma 18888. Neyöarvakt Tannlæknafélags Islands er starfrækt um heigar og á stórhátiðum. Simsvari 681041. Hafnarfjörður Hafnarfjaröar apótek og Noröurbæjar apó- tek eru opin á virkum dögum frá W. 9.00-18.30 og Bl skiptís annan hvem laugardag kl. 10.00-13.00 og sunnudag kl. 10.00-12.00 Upplýsingar I simsvara nr. 51600. Akureyri: Akureyrar apótek og Stjömu apótek em opin virka daga á opnunartima búða. Apólekin skiptast á sina vikuna hvott aö sinna kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. Á kvöldin er opiö i þvi apóteki sem sér um þessa vörslu, til Id. 19.00. A hetgidögum er opiö frá kf. 11.00-1200 og 20.00- 21.00. Á öðmm tlmum er lyflafraeöingur á bakvakt Upptýs- ingar em gefnar i sima 22445. Apótek Keflavlkur: Opió virka daga frá kl. 9.00-19.00. Laugard., heigidaga og almenna fridaga M. 10.00-1200. Apitek Vestmannaeyja: Opið virka daga frá kl. 8.00- 18.00. Lokað I hádeginu milli Id. 1230-14.00. Seifoss: Selfoss apótek er opiö til Id. 18.30. Op'ið er á laug- ardögum og sunnudögum Id. 10.00-12.00. Akranes: Apótek bæjarins er opiö virka daga til Id. 18.30. Á laugard. Id. 10.00-13.00 og sunnud. Id. 13.00-14.00. Garðabsr Apótekiö er opió rúmhelga daga Id. 9.00-16.30, en laugatdaga Id. 11.00-14.00. Gengisskr 12. febrúar 1993 kl. 9.15 Kaup Sala Bandaríkjadollar ....65,100 65,240 Steríingspund ....92,182 92,380 Kanadadollar ....51,862 51,974 Dönsk króna ..10,2930 10,3151 Norsk króna ....9,2881 9,3080 ....8,7430 8,7618 11,2000 Finnskt tnark ..11,1760 Franskur franki ..11,6688 11,6939 Belgískur frankl ....1,9144 1,9185 Svissneskur franki.. ..42,5908 42,6824 Hollenskt gyllini ..35,0991 35,1746 Þýskt mark ..39,4964 39,5814 ..0,04226 0,04235 5,6199 Austurrískur sch ....5,6078 Portúg. escudo ....0,4338 0,4348 Spánskur peseti ....0,5536 0,5548 Japansktyen ..0,54054 0,54170 ....95,931 96,138 89,3299 Sérst. dráttarr ..89,1382 ECU-Evrópumynt.... ..76,7692 76,9343 HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. febrúar 1993. Mánaðargreiöslur HELSTU BÓTAFLOKKAR: 1. febrúar 1993. Mðnaðargreiðslur Elli/örotkulifeyrir (gronnilfeyrir)......... 12.329 1/2 hjónalífeyrir............................11.096 Full tekjutrygging ellilifeyrisþega..........22.684 Full tekjutrygging örorkulifeyrisþega........23.320 Heimilisuppbót................................7.711 Sérstök heimilisuppbót........................5.304 Bamallfeyrir v/1 bams........................10.300 Meðlag v/1 bams .............................10.300 Mæðralaun/feöralaun v/1bams...................1.000 Maaðralaun/feðralaun v/2ja bama...............5.000 Mæðralaun/feöralaun v/3ja bama eða fleiri...10.800 Ekkjubætur/ekkilsbætur 6 mánaða .............15.448 Ekkjubætur/ekkilsbætur 12 mánaöa ........... 11.583 Fullur ekkjulifeyrir.........................12.329 Dánarbætur 18 ár (v/slysa)...................15.448 Fæðingarstyrkur..............................25.090 Vasapeningarvistmanna .......................10.170 Vasapeningarv/sjúkralrygginga................10.170 Daggreiðslur Fullir fæðingardagpeningar....................1.052 Sjúkradagpeningar einstaklirtgs..............526.20 Sjúkradagpeningarfyrir hvert bam á framfæri ...142.80 Slysadagpeningareinstaklings.................665.70 Slysadagpeningar fyrir hvert bam á framfæri ....142.80 Tekjutryggingarauki var greiddur i desember og janúar, enginn auki greiðist I febrúar. Tekjulrygging, heimilisuppbót og séistök heimilisuppbót ero þvi lægri nú.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.