Tíminn - 13.02.1993, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Laugardagur 13. febrúar 1993
Helgl Pétursson, markaðsstjóri Samvinnuferöa-Landsýnar.
Vinsælt aö
fara til
Flórída og
írlands
HEILSUGÆSLUSTÖBIN Á ÍSAFIRBI
Hjúkrunarfræðingar
— sjúkraliðar
Lausar stöður
Óskum að ráða nú þegar eða eftir nánara samkomulagi:
Við heimahjúkrun:
Hjúkrunardeildarstjóra,
hjúkrunarfræðinga,
sjúkraliða og/eða aðstoðarfólk.
Við heilsugæslu:
Hjúkrunardeildarstjóra
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri (Þórunn) í síma
94-4500 alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Ferðir til Flórída og írlands telur Helgi Pétursson,
markaðsstjóri Samvinnuferða Landsýnar, vera meðal
vinsælli páskaferða í ár. Hann segir að verð áferðum
sé svipað og var i fyrra.
Tfmamynd Aml BJarna.
Helgi telur að leiðir landans muni
að öllum líkindum liggja víða um
páskana. Fyrir utan Flórída og ír-
íand nefnir hann sérstakar páska-
ferðir til Kanaríeyja. Eyjan Ma-
deira úti fyrir Norðvesturströnd
Afríku segir Helgi að sé nýr
áfangastaður ferðaskrifstofunnar.
Hann segir að ferðirnar séu mis-
langar en telur að fjögurra daga
ferð til Dyflinnar á írlandi njóti sí-
vaxandi vinsælda enda sé verðið
hagstætt, um 29.000 kr. fyrir
manninn. Þá álítur hann lengri
ferð til Flórída vera sérlega glæsi-
lega. við að ferðskrifstofan sjái
einnig um að skipuleggja ferðir
fyrir minni hópa og einstaklinga
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
Auglýsing um styrki
og lán til þýðinga á er-
lendum bókmenntum
Samkvæmt lögum nr. 35/1981, reglugerð nr. 638/1982 og breyt-
ingu nr. 102/1992 um þýðingarsjóð, er hlutverk sjóðsins að lána
útgefendum eða styrkja þá til útgáfu vandaöra erlendra bók-
mennta á íslensku máli. Greiðslur skulu útgefendur nota til þýð-
ingarlauna.
Skilyrði fyrir styrkveitingu skulu einkum vera þessi:
1. Verkiö sé þýtt úr frummáli, ef þess er kostur.
2. Upplag sé að jafnaöi eigi minna en 1000 eintök.
3. Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæöakröfum.
4. Eölileg dreifing sé tryggö.
5. Útgáfudagur sé ákveðinn.
Fjárveiting til þýðingarsjóös i fjárlögum 1993 nemur 6.900.000
krónum.
Eyðublöð undir umsóknir um framlag úr sjóðnum fást I af-
greiðslu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4,150 Reykja-
vik, og skulu umsóknir hafa borist ráöuneytinu fyrir 15. mars nk.
Reykjavik 12. febrúar 1993,
Menntamálaráöuneytlð
um allar jarðir.
Helgi telur ekki að ferðagleðin sé
bundin ákveðnum aldurshópum
og segir að það sé fólk á öllum
aldri sem sæki í páskaferðirnar.
„Ég held að menn láti nú margt
yftr sig ganga áður en þeir sleppa
því að ferðast til útlanda," segir
Helgi aðspurður um það hvort
hann óttist að efnahagsþrengingar
hér á landi dragi úr ferðagleði ís-
lendinga.
Viðvíkjandi sumarferðum segir
Helgi að yfirleitt séu í boði ferðir
til hefðbundinna staða. Þar nefnir
hann Mallorka og Benidorm á
Spáni, svo og grísku eyjuna Korfú.
„Þá munum við bjóða upp á Or-
lando í Bandaríkjunum,“ bætir
Helgi við.
Nýlega hóf ferðaskrifstofan sam-
starf við flugfélagið Atlanta. „Við
hyggjum gott til glóðarinnar með
því samstarfi. Allt leiguflug okkar
verður í dagflugi með glæsilegri
þotu. Þar um borð geta farþegar
hlýtt á tónlist og horft á kvik-
myndir," segir Helgi.
Helgi segir að verð á ferðum sé
mjög svipað og var í fyrra og nefn-
ir verð á ferðum til Benidorm til
merkis um það. „Þar er verðið frá
41.800 í sextán daga ferð,“ segir
Helgi og bendir á að þetta sé nán-
ast sama verð og í fyrra. -HÞ
auglýsingar
AUGLÝSIR í
Tímanum
AUGLÝSiNGASÍMI
680001
Helgi Pétursson, markaðsstjóri lijá Samvinnu-
ferðum-Landsýn, um páskaferðintar í ár: