Tíminn - 13.02.1993, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Laugardagur 13. febrúar 1993
onu
bænda:
Aukin áhersla á
sögulegar ferðir
Bændur í ferðaþjónustu veita flest-
ir helmings afslátt á þjónustu viA
ferðamenn yflr vetrartímann en að
sögn Margrétar Jóhannsdóttur,
ráðunauts Búnaðarfélags íslands í
ferðaþjónustu, leggja bændur
aukna áherslu á að tengja ferðir og
sögu saman. í því sambandi hefur
verið gefln út bók um handritin. Þá
nýta landsmenn í auknum mæli
ferðaþjónustu bænda um páska.
Perðaþjónustubæir á landinu eru
allt að 130 talsins að sögn Margrét-
ar.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram fimmti
útdráttur húsbréfaí tflokki 1991,
annar útdráttur í 3.flokki 1991
og fyrsti útdráttur í l.flokki 1992
Koma þessi bréf til
innlausnar 15. apríl 1993.
Öll númerin verða birt í
næsta Lögbirtingablaði
og í Degi áAkureyri
laugard.13. feb.
Auk þess liggja upplýsingar
frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni áAkureyri,
í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
db HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 696900
Húsbréf
_______ Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokld 1990
2. flokki 1991
Innlausnardagur 15. febrúar 1993.
1. flokkur 1989
Nafnverð:
5.000
50.000
500.000
Innlausnarverð:
7.265
72.654
726.544
1. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð:
5.000 6.414
50.000 64.145
500.000 641.449
2. flokkur 1990 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 12.662
100.000 126.620
1.000.000 1.266203
2. flokkur 1991 Nafnverð: Innlausnarverð:
10.000 11.770
100.000 117.697
1.000.000 1.176.966
Innlausnarstaður:
Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
Aðsóknin var
góð í haust
Margrét segir að aðsókn hafi verið
góð í haust en heldur hafi dregið úr
henni yfir vetrarmánuðina. Hún á
von á að aðsóknin fari að glæðast
með hækkandi sól. Hún segir að
margir ferðabændur hafi gripið til
þess ráðs að lækka verð á þjónust-
unni um helming yfir vetrartímann.
Þeir bjóði uppá gistingu í uppbún-
um rúmum og leigi einnig út sum-
arbústaði.
Sem dæmi um þetta segir hún að
sumarbústaður í dýrasta flokki sé
leigður á 2.700 kr. á sólarhring.
Fjögurra manna fjölskylda sem ætl-
aði sér að dvelja um helgi í tvo sólar-
hringa myndi því þurfa að greiða
rúmar 5.000 kr. fyrir dvölina. Ef
sama fjölskylda nýti sér heimagist-
ingu í uppbúnum rúmum kosti sól-
arhringurinn um 2.000 kr.
Margrét tekur fram að þetta afslátt-
artilboð gildi ekki um páskana.
Hvað hefur fólk að sækja í sveitir
landsins yfir vetrartímann? Margrét
telur að það sé upplagt fyrir böm úr
þéttbýli að kynnast búskap og um-
hirðu húsdýra.
„Þá fer fólk oft í sveitina til að kom-
ast úr hversdagsleikanum í þéttbýl-
inu. Það fer í gönguferðir og hefur
það annars bara huggulegt," segir
Margrét.
Hún bætir þó við að víða sé boðið
upp á dorgveiði sem að sjálfsögðu
Margrét Jóhannsdóttir, ráöunautur Búnaðarfélags íslands í feröaþjón-
UStU. Tlmamynd Árni Bjarna
fari eftir veðri. Þá segir hún að
skíðaganga njóti sívaxandi vinsælda
gestanna.
Öræfaferðir og
sögustaðir
Margrét segir að undanfarin ár hafi
vinsældir ferðaþjónustubæja um
páska farið vaxandi. Hún segir ýmis-
legt vera í bígerð í því sambandi. Þar
nefnir hún t.d. sérstaka páskaferð til
Kirkjubæjarklausturs sem aðilar í
ferðaþjónustu standi að. „Ég hef
heyrt í því sambandi talað um ferð í
Öræfin sem hefur sögulegt gildi frá
því áður en ámar vom brúaðar.
Samhliða því verða ýmsar göngu-
ferðir og uppákomur," segir Mar-
gréL
Hún segir að of snemmt sé að segja
til um hvort verð á ferðaþjónustu
bænda muni hækka í sumar. Hún á
þó von á að reynt verði að halda
verðlagi innan hóflegra marka.
Það er ýmislegt fleira á döfinni og
Margrét segir að í vor verði gefin út
bók sem ber titilinn Veiðiflakkarinn
og er handbók um stangveiði. Þetta
rit segir hún að hafi verið í sífelldri
þróun frá árinu 1988 og nái yfir
veiðisvæði um allt land. Hún telur
að vinsældir Veiðiflakkarans aukist
stöðugt og greinilegt sé að það hafi
vantað aðgengilegt rit um þetta efni
fyrir almenning.
Þá segir Margrét að ferðaþjónustan
leggi vaxandi áherslu á sögu í
tengslum við ferðalög. „Þá á ég við
að fólk ferðist á söguslóðir. Við höf-
um t.d. gefið út bók um handritin á
ensku þar sem fjallað er um sögu-
slóðir hér á landi.
Ritið er ekki mjög fræðilegt en er
lipurlega skrifað og með léttu yfir-
bragði. Ég tel að Islendingar gætu
fetað sömu slóð því svona lagað gef-
ur ferðalaginu meira gildi,“ álítur
Margrét.
Einnig segir hún að aukin áhersla
sé lögð á gerð göngustíga í nágrenni
ferðaþjónustubæja sem miði í sömu
átt.
„Ef við vitum um álfinn í hólnum
finnst okkur gönguferð þangað
merkilegri en ella. Þá eru víða eyði-
býli og svæði sem almenningur veit
ekki um en bændur gjörþekkja,"
segir Margrét. -HÞ
qn HUSNÆÐISSTOFNUN RIKISINS
U HÚSBRÉFADEILD SUOURLANDSBRAUT 24 108 REVKJAVlK SlMI 696900
Ferðaskrifstofa Reykjavíkur býður áhugaverðar ferðir til sól-
arstranda, Evrópu, Bandaríkjanna og víðar:
erny
solarstrond a Spam
.Ferðabæklingur Ferðaskrifstofu
Reykjavflcur kemur út nú um
helgina og af þvi tilefni verður
skrifstofa ferðaskrifstofunnar í
Aðalstræti opin. Ferðaskrifstofa
Reykjavtkur býður að venju upp á
fjölbreytta ferðamöguleika til
margra landa. Ferðir á sólar-
strendur skipa veglegan sess en
ferðaskrifstofan býður auk þess
uppá spennandi ferðir til áhuga-
verðra landa eins og lyridands og
Kýpur. íslaug Aðalsteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Ferðaskrif-
stofu Reykjavíkur, segir að ferða-
skrifstofumar reikni með því að
eínhver samdráttur verði í ferð-
um íslendinga tíl útlanda. Ástæð-
an sé minni tekjur fólks.
Að venju býður Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur uppá sígildar ferðir
til sólarstranda á Spáni s.s. Beni-
dorm, Barcelona og Costa Dorad-
ad en það er vinsæl strönd
skammt frá Barcelona. Ferða-
skrifstofa Reykjavflcur hefúr ekki
áður boðlð ferðir þangað. Þá
verða vikulegar ferðir til sólar-
stranda á Flórída.
Boðið er uppá flug og bíl eða
sumarhús í gegnum Kaupmanna-
höfn, Lúxemborg og Amsterdam
hjá Ferðaskrifstofu Reykjavíkur.
í boði eru skemmtilegar ferðir til
Bretlands en f þeim eru flug og
hfll og hagstæðir gistimöguleikar
vftt og breitt um iandið.
Ferðaskrifstofa Reykjavfkor er
Aðalsteinsdóttír,
Reykjavíkur.
framkvæmdastjóri Ferðaskrtfstofu
Tímamynd Aml BJama
umboðsmaður fyrir eina stærstu
ferðaskrifstofu Hollands, Arice
Reizen. Skrifstofan gefur út 19
sumarhæklinga. Allir ferðamögu-
leikar í þeim eru til sölu hjá
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur. Sér-
stök áhersla er hins vegar lögð á
ferðir tii Kýpur, Grikklands, Kan-
arí og lyridands, en áhugi á ferð-
um þangað hefur aukist mikið
síðustu ár.
Boðið er uppá ferðir tii Baltí-
tnore, flug og bíi og gistingu. Vlð-
skiptavinum er sérstaldega bent á
ýmsa ferðamöguleika um suður-
rðd Bandaríkjanna.
fslaug Aðalstcinsdóttir sagði að
verð á ferðum hefði ekld breyst
mikið milli ára. Gengisfellingin
og hátt gengi dollarans hefði auð-
vitað áhrif á verð á ferðum.en á
sumum ferðum hefði verðið ekk-
ertbreyst
„Ég held að forsvarsmenn ferða-
skrifstofa búist við samdrætti í
sölu ferða í ár. Það er hins vegar
erfitt að spá fyrir um hvemíg fólk
bregst við rninni tekjum. Hugs-
anlega leitar fólk frekar í styttri
ferðir, það fari frekar í tveggja
vikna ferðir en þriggja vikna,“