Tíminn - 13.02.1993, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Laugardagur 13. febrúar 1993
LJ rval-Útsýn:
^hugi landans á
^meiikuferðum
eykst stöðugt
Heimsókn til Hillary og Clinton — eða svo gott sem — er einn af þeim
fímm ferðamöguleikum sem Úrval- Útsýn hefur skipulagt fyrir ferðafúsa
um páskana. „Við auglýstum páskaferðimar um síðustu helgi og emm
strax búin að fá helling af bókunum," sagði Guðrún Sigurgeirsdóttir hjá
Úrvali-Útsýn er Tíminn leitaði upplýsinga um hvort landinn væri enn sem
áður fullur útþrár, hvað sem liði öllu krepputali og annarri óáran.
Guðrún segir Úrval-Útsýn að þessu dags ferðir þar sem farið verður í
sinni bjóða fólki páskaferðir til fimm
staða: „Vor í Washington", sé spenn-
andi nýjung þar sem boðið sé upp á
skipulagðar ferðir alla daga. Það sama
eigi við um páskaferð til Edinborgar.
Þeim sem frekar vilja slappa af og
sleikja langþráða vorsólina býður Úr-
val-Útsýn upp á ferðir til Kýpur,
Portúgals og gömlu góðu Mallorca.
Sökum stöðugt aukins áhuga land-
ans á Ameríkuferðum ákvað Úrval-Út-
sýn að setja upp vikuferð um pákana,
„Vor í Washington", með íslenskum
fararstjóra, Ragnhildi Vigfúsdóttur
sagnfraeðingi og ritstjóra. Meðal skoð-
unarferða sem boðið er upp á eru hálfs
Hvíta húsið, þjóðminjasafnið, Arling-
ton kirkjugarðinn og skoðuð minnis-
merki um hermenn sem féllu í Víet-
nam, svo nokkuð sé nefnt.
í Edinborgarferð veður einnig nóg
við að vera fyrir þá sem vilja ferðast og
fræðast — og kannski „græða" svolít-
ið í leiðinni með góðum innkaupum.
M.a. verður farið í í Edinborgarkastala
og Holyroadhouse sem er opinber bú-
staður drotningar í Skotlandi. Áhuga-
mönnum um viský gefst kostur á ferð
í brugghúsið Glenfiddich þar sem gef-
ið er svolítið „smakk“. Ferðir eru í
boði til fjölda þekktra staða og minna
þekktra þorpa í nágrenni borgarinnar.
Og verslunarferð í heildsölufyrirtækið
Makro verður sjálfsagt rúsfnan í
pylsuendanum fyrir suma.
Hvað varðar sólarferðir sumarsins
verður Úrval-Útsýn áfram með ferðir
til sinna hefðbundnu áfangastaða,
Costa del sol, Portúgals og Mallorca.
Guðrún var beðin að neftia nokkrar
þeirra nýjunga sem ferðaskrifstofan
hefur skipulagt fyrir komandi vor og
sumar.
,Af nýjungum sem við erum með vil
ég t.d. nefna að við bjóðum nú upp á
sólarlandaferð til Flórída í fyrsta sinn
að sumri til. Flórída hefur alltaf verið
vetrardvalarstaður. En nú fara Flug-
leiðir að fljúga til Orlando í hverri
viku. Það gefur fólki kost á að fara í
sólarferð til Flódída í eina, tvær eða
þrjár vikur, alveg eins og á Spánar-
strendur. í þessum ferðum er líka
upplagt að fá sér bfialeigubíl og ferð-
ast þannig um Bandaríkin á eigin veg-
Flughótel í Keflavík:
Guörún Sigurgeirsdóttir, deildarstjóri hjá Úrvali-Útsýn. Timamynd Árni Bjama
um, lengri eða skemmri ferðir.
í öðru lagi tökum við nú Kýpur inn
aftur. Ferðir þangað hafa legið niðri
hjá okkur í tvö ár. Það var fyrst og
fremst ófriðurinn við Persaflóa sem
því olli. En eftirspumin hefur verið
svo mikil að við ákváðum að taka Kýp-
ur með í ár. Fyrsta ferðin verður um
páska og síðan vikulega um London
frá 5. apríl og út október.
Mjög aukin áhersla verður líka á
skemmtisiglingar í sumar. Það varð
nánast sprenging í siglingunum hjá
okkur í fyrra þannig að í sumar ákváð-
um við að bjóða upp á sex skemmti-
siglingar með íslenskum fararstjóra
auk þess sem við seljum einstakling-
um líka slíkar ferðir.
Costa Brava er lfka enn ein nýjung
hjá okkur í sumar. Fyrir um tveim ára-
tugum eða svo var Costa Brava vinsæll
staður. í sumar hefja Flugleiðir þang-
að beint áætlunarflug vikulega til
Barcelona. Það verður því aftur auð-
velt að komast í sólarferð til Costa
Brava eliegar að fljúga þama suður
eftir og ferðast síðan í rólegheitum á
eigin vegum um sunnanverða Evr-
ópu." Guðrún bendir á að það sé t.d.
ekki nema um tveggja stunda akstur
Tilboðspakki á gistingu,
akstri og bílageymslu
Flughótel í Keflavík hefur í vetur boðið upp á tilboðspakka þar sem innifal-
in er gisting, auk ýmislegrar þjónustu annarrar. Flughótel er auglýst sem
lúxushótel og miðar því einkum við fólk í viðskiptaerindum og flugfólk en
samt sem áður segir Steinþór Júlíusson hótelstjóri að bókanir séu rvið
meiri nú en í fyrra.
Steinþór sagði í samtali við Tím-
ann að í gangi hjá þeim væri til-
boðsverð á gistingu a.m.k. til apr-
flloka. Tveggja manna herbergi
kostaði í þessu tilboði 7.990 krón-
ur eða 3.995 kr. á mann. Um svip-
að verð væri að ræða í eins manns
herbergi. Innifalið í þessu verði er
morgunverður, geymsla á bifreið í
upphitaðri og lokaðri bílageymslu,
akstur í Leifsstöð við brottför, og
akstur aftur á hótelið við komu.
Gestir hótelsins fá bllinn geymdan á meðan þeir eru erlendis í lokaöri
og upphitaöri bilageymslu.
Hótelið setur enginn sérstök tíma-
takmörk á það hversu bifreiðin er
lengi í geymslu og eru dæmi um
að bflar hafi verið geymdir þar í
allt að mánuð.
Steinþór sagði að töluvert væri
um að fólk nýtti sér þennan pakka
sem boðið væri upp á. Yfirgnæf-
andi meirihluti þess fólks væri af
landsbyggðinni. Hann sagði enn-
fremur að þetta fyrirkomulag
hentaði mjög vel þar sem flest flug
væru mjög snemma á morgnanna
og einungis tæki um fimm mínút-
ur að aka að Leifsstöð frá hótelinu
í stað þess að þurfa að aka frá
Reykjavík sem tekur um fjörutíu
mínútur, auk þess sem veðráttan
spilar þar inní.
Aðspurður um hvemig sumarið
liti út hjá Flughóteli sagði Stein-
þór að ekki væri minna bókað nú
en áður. Hann sagði að ekki væri
mikið um að á Flughóteli gistu al-
mennir ferðamenn heldur byggð-
ist reksturinn mest á fólki í við-
skiptaferðum og flugfólki. Það fólk
bókaði sig ekki með löngum fyrir-
vara en það sem komið væri virtist
vera ívið meira en f fyrra.
Flughótel í Keflavtk.