Tíminn - 13.02.1993, Qupperneq 11

Tíminn - 13.02.1993, Qupperneq 11
Laugardagur 13. febrúar 1993 Tíminn 11 Ferðaskrifstofan Aiís í Hafnarfirði: Með Spies í sólina Sem fyrr býður feröaskrifstofan Alts í HafnarfirÖi uppá fjölbreytta ferðamöguleika í sumar en fyrirtœkiö hélt uppá 5 ára afmœli sitt síðastliöiÖ haust. Laufey Jóhannsdóttir sölustjóri Alís segir að auk ferða til Kaupmanna- hafnar, London og Glasgow verður boðið uppá nýjungar í sumar og m.a. ferðir til Mílanó á Ítalíu og til Barcel- ona á Spáni. En eins og kunnugt er verða Flugleiðir með beinar ferðir til þessara borga í sumar. Einnig verður hægt að fljúga til Mílanó í gegnum Kaupmannahöfn í samstarfi Alís, Flugleiða og Air Italia. Auk þessa er Alís með umboð á ís- landi fyrir danska ferðarisann Spies síðan í nóvember síðastliðnum. Þetta gefur sólarþyrstum landanum kost á að fljúga til helstu sólarstaðanna í Evrópu gegnum Danmörku, til Spán- ar, Grikklands og Týrklands. „Við verðum með leiguflug í sumar til Billund á Jótlandi í Danmörku sem er sumarflugið okkar. Þangað höfum við sent fólk undanfarin fjög- ur ár. Frá Billund hefur fólk ferðast um landið og ennfremur hefur verið vinsælt að fara þaðan og til Norður- Þýskalands og Hollands með bfla- leigubflum. En við höfum náð einkar hagstæðum samningum við bflaleig- ur þarlendis." Hins vegar verður lögð áhersla á ferðir til Newcastle í haust en að sjálf- sögðu geta þeir sem vilja ferðast þangað með áætlunariflugi til Glasgow. Farþegum fjölgaði um 18% Laufey Jóhannsdóttir sölustjóri seg- ir að síðasta ár hafi að mörgu leyti verið gott hjá Alís. Farþegum fjölgaði um 18% miðað við árið þar á undan. Fátt bendir til annars en að yfirstand- andi ár verði svipað þar sem fargjöld standa í stað eða hafa hækkað lítil- lega, einkum vegna breytinga á gengi. Laufey segist ekki verða vör við hina margumtöluðu kreppu og telur að uppsveiflu fari að gæta í efnahagslíf- inu áður en langt um líður. Hinsveg- ar megi merkja að fólk velti kostnað- inum meira fyrir sér en oft áður og svo virðist sem kostnaðarvitund þess hafi aukist frá því sem áður var. „Utanbæjarfólk skiptir mikið við okkur og við seljum mikið gegnum síma þannig að við sjáum ekki endi- lega viðskiptavinina. Mikið er um RAUTT LJOS RAUTT LJOSf yU^EROAR Látum bíla ekki ganga að óþörfu! (UMFERÐAR RÁÐ kortagreiðslur og við höfum blessun- arlega sloppið að mestu við vanskil." Laufey Jóhannsdóttir söiustjóri. Tfmamynd Ami Bjama raftækjum og eldhúsáhöldum AFSLATTUR ALLT AÐ 70%!! Blomberg innbyggingarkæliskápur 215 lítra, vinstri eða hægri opnun. Fullt verð kr. 46.900. Útsöluverð kr. 28.140. Þúspararkr. 18.760. 20 gerðir kæliskápa og frysta. Blomberg undirborðsofn með hillum, sandlitur. Fullt verð kr. 94.800. Útsöluverð kr. 35.400. Þú sparar kr. 59.400. Fjöldi eldavéla og samstæða. Franke stálvaskur CF611. Fullt verð kr. 11.900. Útsöluverð kr. 3.570. Toshiba 25" Nicam Stereo . Textavarp. 2x30 watta hátalarar. Fullt verð kr. 98.500. Útsöluverð kr. 78.800. Þú sparar kr. 19.700. ti, :f Vi Petra kaffivél KM 200/750 w. Fullt verð kr. 2.850. Útsöluverð kr. 1.985. Hárblásarar - krullujárn - vöfflujárn. Hraðsuðukatlar á ótrúlegu verði. Fulltverð: Útsöluverð: Þúsparar: Blomberg bökunarofn, hvítur, með grilli og örbylgju 169.900 99.540 70.360 Blomberg örbylgjuofn 58.900 23.900 35.000 HM 228 ásamst töfrapotti 58.900 23.900 35.000 Blomberg uppþvottavél 69.900 55.920 13.980 Blomberg rafeindast. þurrkari 84.900 50.940 33.960 Ennfremur alls konar eldavélar, gufugleypar, kæliskápar og frystiskápar með 15-40% afslætti, kaffivélar, brauðristar, pelahitarar, partýgrill, hraðsuðukatlar, eldhúsvaskar og margt fleira með allt að 40% afslætti. Athugið að allar gerðir TOSHIBA örbylgjuofna verða seldar með 15% afslætti meðan á útsölunni stendur og með þeim fylgir frítt! Nú er um að gera að hafa hraðar hendur, því aðeins er um takmarkað magn af hverri vörutegund að ræða! Sérstök laugardagsopnun kl. 10-16 Einar Farestveit & Co hf. Borgartúni 28 - 622901 og 622900

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.