Tíminn - 13.02.1993, Síða 3
Laugardagur 13. febrúar 1993
Tíminn 3
NÝR FERÐABÆKLINCUR FLUCLEIÐA ER KOMINN ÚT!
Sólarstrendur, he 'msborgir, hraÓbrautir, sveitavegir, fjölskyldustaðir og framandi
lönd. Aldrei jafn bjart framundan d ferðadri Flugleiða. Ótal ferðamöguleikar.
Hagstœð kjör. Úrvalsþjónusta. Komdu mð Flugleiðum út í heim. - Nýi
ferðabceklingurinn dsamt verðskrd liggur frammi d söluskrifstofum
okkar, hjd umboðsmönnum um FLUGLEIDIR
allt land Og a ferðaskrifstofum. Traustur íslenskur ferðafélagi
Heillandi beirn-
borgir beggja vegna
Atlantsbafs. Beint
flug, gistimöguleikar við allra hcefi. Hress-
ing, skmmtun og verslun. Flug og borg:
einfalt, freistandi, hagstxtt og umfram
allt stór-skemmtilegt.
VERÐ TIL IONPON t.d.:
i frá 32.250 kr, á manninn m.v.
2 fullorðna og 1 barn (2-11 ára) í 4 daga.
(Frá 35.200 kr. m.v. 2 fullorðna í4 daga.)
FLUC
Frábærar ökuleiðir út
frá öllum áfangastöð-
um Flugleiða austan
hafs og vestan. Úrvals bílaleigubílar frá
Hertz. Einfalt, ódýrt, auðvelt og umfram
allt eins og þú vilt hafa það.
VERP FRÁ LÚXEMBORC t.d.\
28.560 kr. á manninn m.v. 2 ftdlorðtia
og 2 börn 2-11 ára) íbtl íB-flokki í
tvœrvikur. (Frá 38.600 kr.
m.v. 2 fullorðna í
bíl íA-fl. 12 vikur.)
>
1 íúdiz.
'ií.v' M
o
Florida-Orlando: Frá-
batr fjölskyldustaður
allan ársins hring.
- Nýtt: Barcelona,
' Mílanó. Sólar-
staðir allt í kringum
' Miðjarðarbaf. Flug og'sól: éinfalt,
yndislegt, hagstœtt og umfram allt bara œðislegu gott.\
>^-VERÐ TILORLANDO/.í/: flá 53.200 kr. á manninn
m.v. 2 fullorðna og 2 böm (2-11 ára) í9 daga íEnclave Suites.
(Frá 64.100 kr. m.v. 2 fullorðna í9 daga íEnclave Suites.)
K. Jónsson á Akureyri:
Kaupauk-
inn
afnuminn
Stjóm niðursuðuverksmiðju K.
Jónssonar á Akureyri hefur ákveðið
að afnema kaupauka starfsfólks, sem
þýðir að laun þess minnka um 17-29
þúsund krónur á mánuði. Af hálfú
fyrirtækisins er þetta gert til þess að
koma í veg fyrir að rekstur fyrirtæk-
isins stöðvist. -grh
Magnús Gunn hættir,
Einar Oddur byrjar
Einar Oddur Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og fyrrverandi for-
maður VSÍ, hefur verið kosinn
formaður Samstarfsnefndar at-
vinnurekenda í sjávarútvegi
(SAS). Einar Oddur tekur við af
Magnúsi Gunnarssyni, núverandi
formanni VSÍ, en Magnús hefur
verið formaður SAS frá upphafi
eða í fjögur ár.
Samstarfsnefnd atvinnurekenda í
sjávarútvegi hóf starfsemi sína í
lok árs 1988 og var markmið
hennar að stilla saman strengi
hagsmunaaðila í sjávarútvegi hér á
landi. Meðal atriða, sem nefndin
hefur beitt sér fyrir, er aukið innra
samstarf sjávarútvegsins, sam-
skipti sjávarútvegsins við ríkis-
valdið og samskipti íslensks sjávar-
útvegs við umheiminn, ekki síst í
sambandi við gerð EES- samn-
ingsins.
I stjórn SAS sitja auk formanns
fulltrúar frá Sölusambandi ís-
lenskra fiskframleiðenda, Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, ís-
lenskum sjávarafurðum, Lands-
sambandi íslenskra útvegsmanna,
Samtökum fiskvinnslustöðva og
sfldarsaltendafélögum.
i Ath. flugvallarskattar eru ekki innifaldir ítilgmndu vetði. Island: 1.250 kr., USA: 1.365 kr.
Tæplega sjötíu ára starfsemi fyrirtækja Einars Guðfinnsson-
ar hf. í Bolungarvík að Ijúka. Greiðslustöðvun rann út í gær
og gjaldþrot blasir við:
Fátt virðist geta komið í veg fyr-
ir að tæplega 70 ára starfsemi
fyrirtækja Einars Guðfinnssonar
hf. í Bolungarvík fari senn að
Ijúka, en gjaldþrot virðist blasa
við þeim þar sem ljóst þykir að
greiðslustöðvun fyrirtækjanna
verður ekki framiengd eftir að
Landsbankinn tók af skarið og
óskaði eftir því að EG verði gert
upp.
Eigendur EG hafa undanfarin ár
reynt að bjarga fyrirtækinu, en
allt kom fyrir ekki og í haust fór
það fram fram á greiðslustöðvun.
Á greiðslustöðvunartímanum hef-
ur fyrirtækið reynt að ná nauða-
samningum við helstu kröfuhafa
og m.a. leitað ásjár hjá stjórn-
völdum. Hins vegar hafa þau ekki
ljáð máls á sértækum aðgerðum
til hjálpar fyrirtækinu.
f áranna rás hefur EG-nafnið
verið tákn einstaklingsframtaks-
ins í íslenskum sjávarútvegi, en
það hefur verið í eigu sömu fjöl-
skyidunnar í þrjá ættliði. Jafn-
framt hlýtur það að vera kald-
hæðni örlaganna að bæjarstjórn-
in hefur lýst því yfir að hún muni
beita sér fyrir stofnun almenn-
ingshlutafélags um rekstur tog-
ara EG með þátttöku bæjarsjóðs
og íbúa Bolungarvíkur til að
halda togurunum Dagrúnu og
Heiðrúnu og kvóta þeirra innan
byggðarlagsins, en hann er sam-
tals eitthvað um 3700 þorskígild-
istonn. Auk þess á bærinn hlut í
sjávarútvegsfyrirtækinu Græðir
hf., sem hefur yfir að ráða 500-
600 þorskígildistonnum.
„Bæjarstjórnin er að vinna í því
að reyna að bjarga því sem bjarg-
að verður með kröfuhöfum. Við
munum koma hér á fót útgerð
með einhverju móti, og ég legg
það til að bærinn verði þar stór
aðili, en ekki stærstur, heldur
fólkið í Bolungarvík," sagði Jón
Guðbjartsson bæjarfulltrúi.
Greiðslustöðvun EG rann út í
gær og er framhald málsins í
höndum héraðsdómara Vest-
fjarða, en EG er talið skulda um
1500 milljónir króna. Hjá fyrir-
tækinu vinna um 120 manns, auk
þess sem um 80% af þeirri veltu,
sem fram fer í bæjarfélaginu, er í
kringum rekstur EG. Viðbúið er
að dómarinn taki sér nokkurra
daga frest til að kveða upp úr um
framhaldið, en lög munu heimila
honum allt að viku til að taka af
skarið.
Talið er að bæjarsjóður Bolung-
arvíkur komi til með að tapa allt
að 25-30 milljónum króna. Þar
fyrir utan munu þau fyrirtæki,
sem verið hafa í viðskiptum við
EG, tapa verulegum fjármunum,
þ.á m. Skeljungur. Talið er að fyr-
irtæki og einstaklingar muni tapa
allt að 400 milljónum króna, en
stærstu kröfuhafar munu hafa
trygg veð fyrir sínu.
-grh
llnnið að stofn-
un bæjarútgerðar