Tíminn - 13.02.1993, Side 8
8 Tíminn
Laugardagur 13. febrúar 1993
„Herferð okkar er hafín.
Henni lýkur með því að íslam
leggur undir sig Evrópu og
Ameríku. Aðeins íslam getur
frelsað þessa örvæntingar-
fullu veröld.“ Svo mælir
Sheikh Said Shaaban, súnn-
ískur trúarleiðtogi í Trípólí í
Líbanon. „íslam verður hug-
sjónahreyfíng 21. aldar,“ seg-
ir Hassan el-Turabi, súdansk-
ur klerkur sem í félagi við
hershöfðingja lands síns hef-
ur lýst það íslamskt lýðveldi
að íranskri fyrirmynd.
Á Vesturlöndum segja ýmsir, ekki
síst vinstrifrjálslyndir mennta-
menn, að of mikið sé gert úr heit-
og strangtrúarhreyfingum þeim
íslömskum, sem algengast er að
kalla bókstafstrúaðar (fúndament-
alískar). Á Vesturlöndum hafi
ýmsir, sem finni hjá sér þörf fyrir
grýlu í stað kommúnismans,
miklað fyrir sér og öðrum
íslömsku hættuna.
Ekki vantar hugsjón
Aðrir eru þeirrar skoðunar að
umrædd hætta sé geigvænlega
raunveruleg. Nú sjái bókstafsís-
lam sér ieik á borði að sækja fram
gegn fyrrverandi sovétblökk, lam-
aðri af margþættum og gífurleg-
um vandræðum, og Vesturlöndum
döprum í bragði út af miður góðu
gengi í efnahagsmálum, miklu og
viðvarandi atvinnuleysi og marg-
víslegum öðrum vanda heima fyr-
ir sem erlendis, sem þau eru óviss
um hvernig reynt skuli að með-
höndla. Fyrir hugsjónaeldmóði fer
ekki mikið þar, frekar en í sovét-
blökkinni fyrrverandi.
Þann eldmóð vantar hinsvegar
ekki í íslam. Evrópa hefur áður
fengið á honum að kenna, í fyrsta
sinn í bernsku íslams, þegar Arab-
ar á tæpri öld komu sér með hern-
aði upp einu af stærstu risaveld-
um sögunnar, er náði frá Atlants-
hafi austur að Tíbet. í Evrópu
voru herskarar íslams að því sinni
ekki stöðvaðir fyrr en inni í miðju
Frakklandi sem nú svo heitir; það
gerðu vígamenn Frankaveldis
(margir þeirra Iíklega heiðnir) í
orrustunni við Poitiers 732.
Næsta stóráhlaup íslams á Evrópu
gerðu Ósmans-TVrkir. Því var ekki
hrundið að fullu fyrr en Vín var
leyst úr umsátri þeirra 1683.
Marx og Múhameð
Wilfried Cantwell Smith, kanad-
ískur austurlandafræðingur, seg-
ir: „Fram að dögum Karls Marx og
kommúnismans var ekki gerð á
vestræna menningu nema ein
árás, er ógnaði henni að ráði. Þá
árás gerði Spámaðurinn (Múham-
eð).“
Nú kann að vera að íslam sé orð-
ið næstum eins vígreift og viljugt
að leggja undir sig heiminn og
það var í tvö ofannefnd skipti. Það
sem helst vanti til þess, er gjarnan
sagt, sé sameinandi ríki og/eða
leiðtogi.
Að sögn þýska vikuritsins Der
Spiegel eru múslímar nú alls um
1,2 milljarðar talsins. Kristnir
menn teljast 1,6 milljarðar, en
múslímum fjölgar örar. Útþensla
íslams nú, bæði landfræðileg og af
völdum fólksfjölgunar, er meiri en
nokkurra annarra trúarbragða. 46
ríki skilgreina sig sem íslömsk. ís-
lam er í sókn suður eftir Afríku og
hefur á síðustu áratugum sótt
Þriðja áhlaup íslams á Evrópu:
Varað við
„grænni
hættu“
með drjúgum árangri inn í Vestur-
Evrópu, ekki með því að snúa Evr-
ópumönnum til íslams, heldur
með svo stórfelldum innflutningi
fólks frá íslamslöndum að kalla
mætti þjóðflutninga.
12 milljónir
Að sögn Der Spiegel eru nú yfir
þrjár milljónir múslíma í Frakk-
landi, 1,7 milljónir í Þýskalandi og
yfir ein milljón í Bretlandi. En
ekki er grunlaust að yfirvöld Vest-
ur-Evrópuríkja hneigist til þess að
gera heldur minna en meira úr
fjölda innflytjenda frá þriðja
heiminum, íslamskra og annarra,
af ótta við viðbrögð innfæddra.
Bassan Tibi, sýrlenskur stjórn-
mála- og félagsfræðingur við há-
skólann í Göttingen, segir að ís-
Iamskir innflytjendur í Vestur-
Evrópu séu þegar orðnir um 12
milljónir, eða eitthvað álíka marg-
ir og íbúar Svíþjóðar og Noregs
samanlagt. Þar að auki eru um sex
milljónir múslfma á Balkanskaga
og allnokkrar í fyrrverandi Evr-
ópuhluta Sovétríkjanna.
Tibi segir að bókstafsmúslímar
ætli sér í raun að leggja undir sig
allan heiminn. Þeir einbeiti sér nú
að því að ná völdum í íslamslönd-
um. Þeir telja sig vera einu sönnu
múslímana og að ráðamenn
flestra íslamsríkja hafi í raun
gengið af trúnni og þar með gerst
„handlangarar vestrænnar heims-
valdastefnu er vilja ganga af íslam
dauðu,“ eins og Abbassi el- Mad-
ani, leiðtogi bókstafsíslams í Alsír,
orðar það.
Fyrir bókstafsmúslímum virðist
vaka að sameina íslamslönd í eitt
ríki, er þeir hafi náð völdum þar.
Takist það, verði þar með komið á
legg íslamskt risaveldi fært um að
greiða atlögu að Evrópu, líkt og
Arabaveldi fyrstu kalífanna og
Tyrkjaveldi gerðu.
Napóleon sundrar liöi Mam-
lúka I Pýramídabardaga 1798:
minnimáttarkennd eftir yfirráö
Evrópu.
Hatur sem
sameinar
Þetta bókstafsíslamska risaveldi
muni taka þar til sem frá varð að
hverfa við Poitiers 732 og Vínar-
borg 1683, samkvæmt spá sem nú
sést oft í fjölmiðlum. Þá hefst
„stormáhlaup á borgarvirki vel-
megunar, frelsis og lýðræðis,"
stóð um þetta í þýska blaðinu
Ziiddeutsche Zeitung. Vesturlönd-
um, segir það blað, ógnar nú í stað
„rauðrar" hættu úr austri „græn“
hætta úr suðri. (Grænt er helgur
litur f íslam.)
í augum Vesturlandamanna er
íslömsk heittrú miðaldafyrirbæri
og gagnstæð skynsemi. Þeir heyr-
ast oft furða sig á áhrifavaldi þess-
arar trúarhreyfingar. En hætt er
við að í þessu samhengi gleymi
Vesturlandamenn því sem oftar að
á síðustu 500 árunum eða svo hafa
Evrópa/Vesturlönd að vísu breyst
allmjög, en heimurinn að öðru
íranskar konur syrgja Khomeini: eftirmenn hans hafa augastaö á Miö- Asíu.