Tíminn - 13.02.1993, Side 13
Laugardagur 13. febrúar 1993
Tíminn 13
Þaö er hægt aö feröast ódýrt til meginlands Evrópu meö því aö taka Norrænu:
Ferðaáætlun Norrænu
hefur verið breytt
Ferðaáætlun Norrænu verður eilítíð
breytt í sumar. Ferjan mun ekki
koma við í Leirvík á Hjaltlandi og við-
komustaður í Danmörku verður Es-
bjerg í stað Hanstholm. Á síðasta
sumri ferðuðust um 16.000 ferða-
menn með Norrænu. Haukur Birgis-
son, framkvæmdastjóri Norrænu
Feröaskrifstofunnar, segir að menn
séu ákveðnir í að Qölga farjiegum á
næsta sumri. Hann segir að ferð með
Norrænu sé mjög ódýr fcröamáti.
Fyrsta ferð Norrænu hefst á Seyðis-
firði 3. júní. Ferðimar verða vikuleg-
ar. Síðasta ferðin verður farin 2. sept-
ember. Samtals verða því famar 14
ferðir.
Sú breyting hefur verið gerð að nú
mun Norræna sigla til Esbjerg í stað
Hanstholm. Sömuleiðis verður sú
breyting að ekki verður komið við í
Leirvík á Hjaltlandi. Eftir sem áður
getur fólk komist til Hjaltlands eða
Skotlands með því að nýta sér Nor-
rænu því að gamli Smyrill siglir frá
Þórshöfn til Aberdeen og Hjaltlands.
Lagt verður af stað frá Seyðisfirði á
fimmtudögum, komið til Þórshafnar í
Færeyjum að morgni föstudags og til
Esbjerg síðdegis á laugardegi. Ferðin
tekur því aðeins um tvo sólarhringa. í
bakaleiðinni er komið við í Noregi.
Esbjerg er sunnar en Hanstholm og
því er styttra fýrir fólk að fara sem vill
ferðast um meginland Evrópu.
Haukur sagði að íslendingar hefðu í
æ ríkari mæli nýtt sér ferðir Norrænu.
Á síðasta ári ferðuðust á milli 2.000-
3.000 íslendingar með skipinu. Hauk-
ur sagði að stefnt væri að því að gera
enn betur á þessu ári.
Haukur sagði alls konar fólk ferðast
með Norrænu, Qölskyldufólk, einstak-
linga, skólafólk og íþróttahópa, svo
einhverjir væru nefndir.
Haukur sagði að ferð með Norrænu
væri ódýr ferðamöguleiki, ekki síst
fyrir fjölskyldufólk sem ætlaði að taka
bflinn með. Hann nefndi sem dæmi að
fjögurra manna fjölskylda sem tekur
bflinn sinn með í ferjuna greiddi frá
um 20.000 krónum fyrir manninn
fram og til baka. Þá gæti fjögurra
manna fjölskylda keypt sérstakan Nor-
egspakka, þ.e. farið úr í Þórshöfn, gist
þar í þrjár nætur, haldið síðan til Nor-
egs og dvalið þar eins lengi og fólk
vildi. Þessi pakki kostar um 16.300
krónur á mann.
Haukur Birgisson, framkvæmdastjóri Norrænu feröaskrifstofunnar.
Tímamynd Árni Bjarna
Jóhanna Tryggvadóttir hjá Evrópuferöum hf. sem sérhæfa sig I feröum til Portúgals.
Evrópuferðir:
Sérhæfa sig í ferð-
um til Portúgals
Ferðaskrifstofan Evrópuferðir
hefur frá stofnun árið 1984 sér-
hæft sig í sölu á ferðum til Portú-
gals. Jóhanna Tryggvadóttir hjá
Evrópuferðum sagði í samtali við
Túnann að skrifstofan gæti boðið
uppá ieiguflugsverð til Portúgals
en flogið væri með áætlunarflugi
til Lissabon með viðkomu í Lond-
on. Þetta er í samvinnu við portú-
galska flugfélagið TaP-air.
Jóhanna Bjömsdóttir, fram-
kvæmdarstjóri Evrópuferða, sagði í
samtali við Tímann að Evrópuferð-
ir seldu ferðir til Portúgals allt árið
um kring. Um væri að ræða hefð-
bundnar ferðir á sólarströnd og
einnig væri mikið um golfferðir.
Sem dæmi um verð nefndi hún að
á mánudag er að fara fólk á vegum
skrifstofunnar til Algarve sem gist-
ir þar í 24 nætur á fjögurra stjörnu
glænýju hóteli á miðri ströndinni á
Algarve. Auk sérsaksturs fram og til
baka frá flugvellinum í Algarve
greiðir þetta fólk 75 þúsund krónur
fyrir ferðina með flugvallaskatti.
Gist er í rúmgóðum íbúðum sem
eru tveggja herbergja, stórt svefn-
herbergi, stofa og fullbúið eldhús.
Sem dæmi um verð á golfferðum
má nefna átta daga ferð til Algarve
með gistingu í tveggja manna her-
bergjum í sjö nætur á Hótel Golf-
ino. Sú ferð kostar 78 þúsund
krónur með morgunverði og golf-
gjöldum. Jóhanna tók fram að
möguleiki er að stoppa bæði í
London og í Lissabon, hvort sem er
á leið utan eða heim, og bætist þá
ekkert aukagjald við nema fyrir
gistingu.
r
KAUPMANNAHÖFN..........................22.900
GAUTABORG..............................22.900
ÓSLÖ...................................22.900
STOKKHÓLMUR............................24.900
FÆREYJAR...............................13.200
LONDON.................................22.900
GLASGOW................................16.900
AMSTERDAM..............................22.900
LÚXEMBORG..............................24.900
PARÍS..................................24.900
HAMBORG................................24.900
FRANKFURT..............................26.900
MUNCHEN................................26.900
ViNARBORG..............................26.900
ZURICH.................................26.900
MiLANÓ.................................26.900
BARCELONA..............................26.900
Bókað strax og til sölu til 26.
(ebrúar fyrir ferðir frá 15. april
til 30. september. Barnaafslátt-
ur er 33%. Flugvallaskattar
ekki innfaldir.
Munið nýja SPIES bæklinginn
1993.
FERÐASKRIFSTOFA
652266
BORGARVERKFRÆÐINGURINN í REYKJAVÍK
GARÐYRKJUSTJÓRI
SKÚLATÚNI 2, 105 REYKJAVlK. SlMI 632460, MYNDSENDIR 624034
Húsverndarsjóður
Reykjavíkur
(apríl verður úthlutað lánum úr Húsverndarsjóði Reykja-
víkur. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til viðgerða og
endurgerðar á húsnæði í Reykjavík, sem hefur sérstakt
varðveislugildi af sögulegum eða byggingasögulegum
ástæðum.
Umsóknum um lán úr sjóðnum skulu fylgja verklýsingar á
fyrirhuguðum framkvæmdum, kostnaðaráætlun, teikning-
ar og umsögn Árbæjarsafns.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 1933 og skal umsóknum,
stíluðum á Umhverfismálaráð Reykjavlkur, komið á skrif-
stofu Garðyrkjustjóra, Skúlatúni 2, 105 Reykjavík.
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður, tengdaföður og afa
Einar Olgeirsson
fyrrverandl alþingismann
sem andaðist 3. febrúar siðastliðinn að Hrafnistu f Hafnarfirði, fer fram !
Dómkirkjunni I Reykjavík mánudaginn 15. febrúar 1993 kl. 15.00.
Blóm og kransar eru afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er vinsam- p
legast bent á Hrafnistu f Hafnarfirði eða aðrar líknarstofnanir.
Sigríður Þorvarðardóttlr
Sólveig Kristfn Einarsdóttir, Lindsay O’Brien
Edda Þorsteinsdóttír
Einar Baldvin Þorstelnsson
Jóhanna Axelsdóttir
Gfsli Rafn Ólafsson
Þorvarður Tjörvi Ólafsson.