Tíminn - 08.05.1993, Qupperneq 7

Tíminn - 08.05.1993, Qupperneq 7
Laugardagur 8. maí 1993 Tíminn 7 Fjölmennur fundur í Árnesi í Trékyllisvík: Hádegisverðarhlé í björgunarskýli Slysavarnarfélagsins á Trékyllisheiði: Stefán Gíslason, fulltrúi Héraðsnefndar Strandasýslu, Hafdís Sturlaugs- dóttir, Kvenfélagasambandi Strandasýslu, og bílstjórarnir Eysteinn Gunnarsson og Ómar Pálsson.__________________________________________ í baksýn sjást Norðurstrandir. Ófeigsfjöröur er næstur á myndinni en yst til hægri sést I endann á Drangaskörðum. Efling at- vinnu í Stranda- sýslunni í Strandasýslu er nú í gangi sér- stakt átak til eflingar atvinnu í sveitum sýslunnar. Að átakinu standa Héraðsnefnd Stranda- sýslu, Búnaðarsamband Strandamanna, Kvenfélagasam- band Strandasýslu og Ferða- málafélag Strandasýslu og hafa þessir aðilar skipað sérstakan fimm manna starfshóp til að vinna að málinu. ■ Héraðsnefnd Strandasýslu hef- ur samið um það við Hagfélagið hf. í Vestur-Húnavatnssýslu að félagið aðstoði Strandamenn við þetta atvinnumálaverkefni. Mun Karl Sigurgeirsson, fram- kvæmdastjóri Hagfélagsins, starfa með starfshópnum sem verkefhisstjóri. Síðustu vikuna í aprfl efridi starfshópurinn til kynningar- funda víða um Strandasýslu. Á fundunum var leitað eftir hugmyndum heimamanna um atvinnutækifæri á hverju svæði um sig. Langfjölmennasti fund- urinn var haldinn í félagsheimil- inu Ámesi í Trékyllisvík föstu- daginn 30. aprfl. Á þann fund mættu 44 heimamenn úr Árnes- hreppi. Þar kom fram á annað hundrað hugmynda og í fundarlok voru skipaðir fjórir verkefhishópar til að vinna úr þessum hugmynd- um og kanna möguleika á að hrinda einhverjum þeirra í fram- kvæmd. Er stefnt að því að hóp- arnir hefji störf þegar á næstu dögum. Sams konar hópar hafa einnig verið myndaðir í öðrum hlutum sýslunnar. Þegar fundurinn í Ámesi var haldinn var enn ekki búið að ryðja landleiðina í Árneshrepp en hreppurinn er ævinlega án vegasambands nær allan vetur- inn. Starfshópurinn brá því á það ráð að aka norður Trékyllis- heiði á tveimur fjallajeppum. Á Trékyllisheiði er enginn bfl- vegur en síðustu vor hefur heið- in verið vinsæl leið fyrir jeppa og véisleða. Leiðin upp á heiðina liggur úr botni Steingrímsfjarð- ar og í þetta sinn var komið nið- ur á Eyrarháls norðan við Tré- kyllisvík. Ferðin gekk í flesta staði vel ef frá er talin bilun í kælikerfi annars jeppans. Var þá fenginn annar jeppi úr byggð til að bjarga málinu. Að þessum töf- um frátöldum reyndist heiðin allt að því helmingi fljótfamari en þjóðvegurinn. Hafnarfirði Til sölu eru íbúðir í: Fjölbýlishúsinu með sérbýliseinkennin: Enginn stigagangur. Sér inngangur í hverja íbúö. Engin sameiginleg lóð. Bílskúr eða lokað bílskýli getur fylgt með. Feiknagott útsýni yfir Hafnarfjörð og allt Reykjavíkursvæðið. 4ra herb. íbúðir á tveimur hæðum. Niðri er starfssvæði en uppi er svefn- og hvíldarsvæði. Góðar skjólgóðar svalir mót suðri. Veró: 8,9 mkr. 108m2 2ja herb. íb. á 1. hæð. Sér garður. Verð: 5,3/5,9 mkr. 60/65m2 Stallahúsum með skjól og útsýni: Mjög gott útsýni yfir Hafnarfjörð og flóann. Gott skjól í sólarátt okkar höfuðborgarbúa (Norðanáttinni frægu). Rúmgóðar og bjartar íbúðir með innbyggðum bílskúr. Stórar skjólgóöar svalir mót suðri. (Stallahús eru nokkurs konar sérhæðir en með sér inngangi, sem eru byggð utan í hlíðina.) Verð: 4ra herb. 10,9 mkr. 134m2 auk bílskúrs. 5ra herb. 11,9 mkr. 152m2 auk bílskúrs. íbúðirnar eru seldar tilbúnar undir tréverk. En einnig geta menn valið að kaupa þær Við erum sveigjanlegir með greiðslukjör og til viðræðu um að taka íbúðina þína uppí. Flest okkar hafa reynslu af að búa í blokk. „Nú er hann Jón okkar á fyrstu hæðinni enn einn ganginn að sjóða sér signa ýsu með vestfirskum hnoðmör, blessaður karlinn. Og við sem eigum von á gestum". „Hún Magga á þriðju var spyrja hvort við hefðum nokkuð gleymt að ryksuga ganginn og þurrka af. Fólk hefur svo sannarlega misjafnan hreinlætisþröskuld!" „Hvern fáum við til þess að slá blettinn ísumarleyfinu?" í sérbýlishúsunum okkar í Setbergshlíð eru engir stigagangar og enginn sameiginlegur blettur til að slá og þú getur verið enn betri vinur nágranna þinna. Söluaðilar eru: Ás fasteignasala, Strandgötu 31. Sími 65 27 90 Fasteignamarkaðurinn, Óðinsgötu 4. Sími 1 15 40 Laufás sf. fasteignasala, Síðumúla 17. Sími 81 27 44 Umsjón með framkvæmdum: Verkfræðistofa Stanleys Pálssonar. Framkvæmdaraðili er VEÐ hf. Kringlan 4. Sími 68 31 21. Stjórnarformaður: Pétur H. Blöndal. Stefán Gfslason, fréttaritari á HólmaviK.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.