Tíminn - 08.05.1993, Blaðsíða 19
Laugardagur 8. maí 1993
Tíminn 19
r
Attræð á morgun:
Kristín Pétursdóttir
Hvemig skyldi farandgestur minn-
ast Skagafjarðar?
í mínum huga verður hann eilíf-
lega umvafinn og brúnafullur af
grænum töðuilmi þess skýlausa
júlímánaðar 1951 er ég fór þar um
sveitir. Á kvöldin sigldi blásvartur
nökkvi Drangeyjar inn í rauða glóð.
Á nokkurt hérað þvflíka goðsögn
sem söguna af Gretti sterka er
glímdi hálfa ævina við sjálft myrkrið
í sál okkar allra og bugaðist ekki?
Við hlið hans verður Jakob, sem
glímdi eina nótt við guð sinn, eins
og hver annar skátadrengur.
Hvað em „lónerar" nútímans í
túlkun Humphrey Bogarts eða Clint
Eastwoods á við einmanann sem
glímdi við Glám?
Hvað vita tilvistarspekingar eins og
Sartre og Camus um angist, til-
gangsleysi, dauða og þá hörkulegu
bjartsýni að gefast ekki upp? Hvað
vita þeir sem höfundur sögunnar
um Gretti sterka vissi ekki?
Enginn dauðdagi er hetju verðugri
en að falla í Drangey, enda sá ég
hana oft stefna inn í eld himinsins.
Líka sá ég undir sól úr Hegranesi
Héraðsvötnin rísa eins og silfúrfljót
í tíbrá yfir Hólminum og búa sig
undir að fylla fjörðinn.
Þá er mér Skagafjörður hugstæður
í síðsumarsól fyrir fáum ámm er við
hjón ókum til gistingar út á Sauðár-
krók. Hefðarsetrið Reynistaður var
sem baðað í blóði og skyndilega
þóttist ég skynja og skilja harm
Gissurar jarls er hann sat í Ási í
Hegranesi veturinn eftir Flugumýr-
arbrennu. Herópið sem þeir Kol-
beinn æptu við Vötnin, er þeir fóm
að kvista niður Sturlunga á Örlygs-
stöðum, var svo stirðnað í þögult
öskur haturs að hann sýndist kátur
um veturinn og lét sér ekki fyrir
málsvefni standa. Hvflíkur rammi
vom ekki úlfgrá vetrarfjöll Skaga-
fjarðar sorg þessa Haukdælings.
En hvað skulu okkur hetjur og
höfðingjar? Hvað vilja aðskotadýr
eins og Grettir sterki og Gissur jarl
undir eilífan hljóm skagfirskra fjalla
— Tindastóll — Glóðafeykir?
„Hægt og hægt / fjúka fjöllin burt /
í fangi vindanna," segir Hannes.
Það kann að vera mikil list og viska
að kunna að deyja. Eitt er þó mikil-
vægara: —Að kunna að lifa.
Og þá minnist ég ekki stórtíðinda
og manndrápa úr þessu héraði held-
ur skagfirskrar stúlku og fjarðar
hennar eins og hann birtist þegar
hallar austur af Vatnsskarði.
Þar í dalverpi sunnan undir gróinni
hlíð í skjóli fyrir norðannæðingum
er bærinn Vatnshlíð og fram undan
honum vatnið.
Auðvitað er það firra, en mér finnst
það alltaf spegilslétt og lygnL Ætli
þetta vatn sé ekki auga eilífðarinnar
sem horfir sínum óræða draumi á
himininn. Ég sé dalinn fyrir mér áð-
ur en hann fylltist af véladyn. Þá
vöktu þar fiskar á kristalstæmm
morgnum — og spóinn vall.
Nú kemur mér jafnan í hug er ég
fer þar hjá: — Hér hljóp Stína í
Vatnshlíð um mýri og mó.
Þessi rauðhærða, músíkalska
stúlka verður áttræð á morgun, frú
Kristín Pétursdóttir í Grænuhlíð, og
þessar línur eiga að flytja henni
heillaóskir okkar hjóna og bama
okkar.
„Sjaldan verður ósinn eins / og
uppsprettuna dreymir," kvað Sig-
urður. Æskudraumar skagfirskrar
heimasætu, rómantísk dansspor og
ljóðakvöld á Kvennaskólanum á
Blönduósi — allt var þetta að baki er
leiðir okkar Iágu fyrst saman. Hún
átti líka að baki hjónaband og tvö
uppkomin böm, Pétur Ólafsson
tannlækni og Margrétu Björgvins-
dóttur B A
Það var sumarið 1967. Við Vigdís
og bömin fjögur sigldum yfir Atl-
antshafið hvíta á Gullfossi. Þar var
Kristín þá glöð, elskuleg og hjálp-
frá Vatnshlíð
söm skipsjómfrú á þessu „flaggskipi
íslenska flotans".
Þá var dönsuð jenka á öldum hafs-
ins í sumamóttinni. Nú eigum við
ekkert flaggskip, bamafólk þeytist
um Ioftin í órómantískum blikkrör-
um og flotinn á leiðinni undir ein-
hverja blámannafána í nafni há-
marksgróðans sem er ósnertanlegri
en Greta Garbo og ginnhelgari nú
en íaðir, sonur og andi heilagur voru
forðum, þó að enn leynist í Hlíðun-
um í Reykjavík skynsamt fólk sem
veit að ef mannkynið á að lifa verður
kapftalisminn að deyja.
Svo fluttumst við öll hér í Grænu-
hlíðina — við 1968 og þú tveimur
ámm síðar. Áfram hélst þú, Kristín,
að sigla um öll heimsins höf og
komst tíðum „færandi vaminginn
heim“ eins og rómantísk hetja í
kvæði eftir Jónas.
Og nú er dagur til að þakka fyrir
sambýlið.
Hvað er mikið og hvað er smátt í
heimi hér?
Er Gissur jarl með harm sinn í
Hegranesi meiri en glöð, rauðhærð
telpa sem hleypur við lömb í Vatns-
hlíð?
Er Grettir með angist sína og ofur-
mennskan kraft í Drangey meiri en
vitur, gömul kona sem stráir gleði
sinni og góðvild af efstu hæðinni í
Grænuhlíð?
Er til önnur meiri hamingja en sú
að þekkja gott fólk? Hefur ekki ein-
hvers staðar verið skrifað um það að
sannleikurinn verði ekki fundinn á
bókum, jafnvel ekki góðum bókum,
heldur hjá fólki með gott hjartalag?
Nú þökkum við þér, Kristín, fyrir þá
hamingju að hafa átt þig hér uppi á
næstu hæð öll þessi ár. Við þökkum
gleði þína og góðvild, íhlutunarleysi
þitt í okkar hagi og umburðarlyndi
þitt við öllu misjöfnu. Við þökkum
hjartalag þitt
Framar öðru þökkum við þó hvflík-
ur lífslistamaður þú ert. Auðvitað
hafa þær systur, angistin og sorgin,
heimsótt þig ekki síður en þá Gissur
og Gretti. En þú hefúr ekki leyft
þeim að eta hjarta þitt, heldur eflist
æska þín enn við hina frjóu líf-
snautn.
Ljóðelska þín og tónlistarást eru
öllum vinum þínum til yndis. Það
vantar eitthvað mikið hér í húsinu
þegar ekki berast gegnum loftið tón-
ar frá slaghörpu þinni og vinum þín-
um Inga T. og Sigfúsi. Skal því þá
ekki heldur gleymt að þú ert ein af
styrku stoðunum að baki því merki-
lega félagi Hugleik.
Þegar þú nú heldur upp á áttræðis-
afmæli þitt er það að vísu í þeim
þrönga, lognværa og búsældarlega
Eyjafirði hjá dóttur þinni og tengda-
syni, en ekki í þeirri einu sönnu
nóttlausu voraldar veröld þar sem
víðsýnið skín og fóstraði ykkur
granna þinn Stephan G.
Margt höfum við ýmsir reynt að
yrkja fallegt til þín um árin og eng-
inn orðað betur en Bjössi: „Það er
eins og sífelld sól / sé í þínum glugg-
um.“
Við Vigdís og bömin okkar sendum
þér kveðjur með þökk fyrir sambýlið
og óskir um mörg sólskinssumur
enn.
Sveinn Skorri Höskuldsson
---------------------------------------------^
UTBOÐ
Norðuriandsvegur, Skútustaðir-
Helluvað
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i lagningu
6,5 km kafla á Norðurlandsvegi milli Skútustaða
og Helluvaðs á Noröurlandi eystra.
Helstu magntölur Fyllingar 61.700 m3, neðra
burðarlag 32.300 m3 og fláafleygar 8.800 m3.
Verki skal að fullu lokiö 1. september 1994.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð rlkisins
á Akureyri og I Borgartúni 5, Reykjavlk (aða!-
gjaldkera), frá og með 10. þ.m. Skila skal tilboð-
um á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 24. mal
1993.
Vegamálastjórí
Framhaldsskólinn í
Austur-Skaftafellssýslu
Auglýstar eru lausar stöður kennara næsta skólaár. Meö-
al kennslugreina: (slenska, enska, viðskiptagreinar og
vélstjómargreinar. Auk þess er auglýst eftir sérkennara
að skólanum (hlutastarf), námsráðgjafa (hlutastarf) og
bókasafnsffæðingi (1/2 staða). Umsóknarfrestur er til 23.
maí nk. Umsóknir beríst skólameistara sem gefur nánarí
upplýsingar í síma skólans 97-81870.
F.h. Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu.
Skólameistarí.
Laus staða
skólameistara
Auglýst er laus staða skólameistara við Framhaldsskól-
ann í Austur- Skaftafellssýslu frá og með næsta skóla-
ári. Umsóknarfrestur er til 20. maí nk. Umsóknir berist
formanni skólanefndar sem jafnframt gefur nánari upp-
lýsingar í síma 97-81645.
F.h. Framhaldsskólans í Austur- Skaftafellssýslu.
Arí Jónsson, formaður skólanefndar.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Siðumúla 39.108 Reykjavfk. Sfml 678500. Fax 686270
Handavinnusýningar á vegum Félagsstarfs aldraðra í
Reykjavík árið 1993 verða sem hér segir
Aflagrandi 40, Norðurbún 1, Vesturgötu 7 og Löngu-
hlíð 3. Dagana 8., 9. og 10. maí.
Bólstaðarhlíð 43, Seljahlíö, Hvassaleiti 56-58, Hraun-
bæ 105 og Hæðargarði 31. Dagana 15., 16. og 17.
maí.
Sýningamar verða opnarfrá kl. 14-17.
Samsýning í Tjamarsal Ráðhúss verður frá 22. maí til
og með 27. maí.
óskast f eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn 11.
mal 1993 kl. 13-161 porti bakvið skrifetofu vora að Borgartúni 7, Reykja-
vlk og vlðar.
1 stk. Ford Explorer EB 4X4
1 stk. Toyota Land Cruiser STW 4X4
1 stk. Toyota Hi-Lux Double Cab 4X4
1 stk. Datsun King Cab 4X4
1 stk. Subaru Legacy station 4X4
6 stk. Subaru 1800 station 4X4
1 stk. Subaru 1800 station (skemmdur) 4X4
3 stk. Toyota Tercel station 4X4
1 stk. Nissan Sunny Wagon 4X4
1 stk. Dodge Aries
1 stk. Saab 900
5 stk. Volvo 240
1 stk. Toyota Corolla
1 stk. Lada Samara
2 stk. Lada station
1 stk. Suzuki Swift
1 stk. Ford Econoline sendibifreið
1 stk. Mazda T-3500 sendibifreið meö lyftu
1 stk. Volvo F-610 sendibifreið með lyftu
1 stk. Toyota Hi Ace sendibifreiö
1 stk. Mazda E-1600 sendibifreið
1 stk. Mercedes Benz 608 D með vökvakrana
1 stk. Volvo F-10 vörubifreiö
1 stk. tengivagn
1 stk. Hariey Davidson bifhjól
3 stk. Ski-doo vélsleðar
TB sýnis hjá Rafmagnsveftu riklslns Egltsstööum:
1 stk. Snow Trac beltabifreið
1 stk. Zetor 7045 dráttarvél
bensln
dlsel
bensin
dlsel
bensln
bensln
bensln
bensln
bensfn
bensin
bensln
bensfn
bensln
bensln
bensln
bensln
bensln
dfsel
dfsel
bensln
bensln
disel
dlsel
bensln
bensfn
bensfn
dlsel
1991
1987
1987
1984
1990
1986- 91
1986
1987- 88
1989
1989
1988
1988- 90
1990
1987
1986-90
1988
1987
1987
1984
1988
1988
1982
1980
1980
1980-84
1967
1983
Tll sýnis hjá Vegagerð riklslns, birgðastöð (Grafarvogl:
1 stk. dlselrafstöð 30 kw I skúr
1 stk. diselrafstöð 30 kw I skúr á hjólum
1 stk. dráttarbifreið I.H.C. F-230 D 6X6
Til sýnis hjá Vegagerð rikisins í Borgamesl:
1 stk. dlselrafstöð 32 kw I skúr á hjólum
1 stk. dlselrafstöö 32 kw I skúr á hjólum
2 stk. vatnstankar 10.000 Itr. með dreiflbúnaöi f. vörublla
1 stk. A. Barford Super 600 veghefill 6X6 meö snjóvæng
Tll sýnls hjá Vegagerð rikisins á fsafirðl:
1 stk. Champion 740-A veghefill 6X4
1 stk. Massey-Ferguson 699 dráttarvél 4X4
1972
1972
1965
1981
1976
1976
1980
1985
Tfl sýnis hjá Vegagerð rikislns á Akureyri:
1 stk. A. Barford Super 600 veghefill 6X6 m/snjót og væng 1976
1 stk. Toyota Coaster fólksfiutningabiffeið 19 farþega dlsel 1982
Til sýnbis hjá Vegagerð rikislns á Reyðarfitði:
1 stk. Champion 740-A veghefill 6X4 1982
Tfl sýnls hjá Vegagerð rikisins á Höfri f Homaflrðl:
1 stk. festivagn með vatnstanki 19.000 Itr.
Tilboðin verða opnuö á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að viðstöddum
bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðurv-
andi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 . 105 REYKJAVÍK