Tíminn - 08.05.1993, Blaðsíða 17

Tíminn - 08.05.1993, Blaðsíða 17
Laugardagur 8. maí 1993 Tíminn 17 Kaldrifjaður kynvillingur John Donadio lögreglumaður var á vakt í Pompano Beach deild Floridalögreglunnar föstudaginn 16. febrúar, 1990. Sólin var að koma upp, klukkan var liðlega 06.00 og vakt- inni virtist ætla að Ijúka án tíðinda þegar síminn hringdi og tilkynning barst um sáran mann á verkstæði viö Mcnab stræti. Þegar John kom á vettvang sá hann að hjúkrunarfólk var að stumra yfir liggjandi manni á bflastæði fyrir utan verkstæðið. Svo virtist sem maðurinn hefði orðið fyrir árás. Hann virtist í góðu líkamlegu ástandi og var á miðj- um þrítugsaldri. Þegar manninum var lyft á sjúkra- börumar, vætlaði blóð úr litlu skots- ári á bakinu á honum. Donadio álykt- aði strax að um skotvopn með Iitla hlaupvídd væri að ræða. Um það leyti sem sjúkrabfllinn keyrði á braut veitti Donadio athygli tveimur mönnum sem virtust í mikilli geðshræringu yfir atburðinum. Hann kynnti sig fyrir þeim og þeir sögðust þekkja fómarlambið, maðurinn héti Jeff Dryfka og væri starfsmaður á verkstæðinu. Þeir vom að mæta til vinnu þegar þeir sáu Jeíf skjögrandi á bflstæðinu. Hann hafði dottið tvisvar og starað á þá áður en hann hné end- anlega niður. Þá hringdu þeir strax í lögregluna. Fyrsta vísbend- ingin Aðeins 15 mínútum seinna fékk varðstjórinn tilkynningu um að líf Jeffs hefði Qarað út. Þegar lögreglan var að innsigla vettvanginn fannst svört Mazda bifreið, mannlaus, með dymar opnar og bflvélina í gangi. John þreifaði á vélarhlífinni og álykt- aði að vélin hefði gengið dágóða stund. Hægra afturdekkið var spmng- ið og illa útleikið sem benti til að keyrt hefði verið á því spmngnu. Inni f bfln- um fannst peningaávísun stfluð á Jef- frey Dryfka. Þar með útilokaði John Donadio að um ránsmorð væri að ræða. Hvorki bfllinn né ávísunin hefði verið skilin eftir ef svo væri. í starfi rannsóknarlögreglumanna em ráns- morð algengust en þar á eftir koma heimiliserjur eða einhvers konar til- finningalegt ósætti manna á meðal. Ekkert fleira markvert kom í ljós fyrir utan nafnspjald sem hugsanlega gat reynt vísbending í lausn málsins. Varðstjórinn gekk inn í fyrirtækið sem Jeff hafði unnið hjá og fékk að nota símann. Hann hringdi í númerið á nafnspjaldinu og í ljós kom að um var að ræða veitingahús í grenndinni. Á nafnspjaldið var ritað þjónustunúm- er starfsmanns sem hét Sue Ann Wamer, gengilbeina. Hún reyndist kærasta hins myrta. Varðstjórinn yfirheyrði samstarfs- menn Jeffs en ekkert kom sérstakt upp í þeim viðræðum. Honum var lýst sem hæglátum manni, fáir virtust þekkja hann náið en menn báru hon- um góða söguna. Næsta skref var að halda til veitinga- hússins og tjá Sue Wamer lát vinar- ins. Þegar henni voru sögð tíðindin hrópaði hún upp yfir sig: „Ó Guð, þetta óttaðist ég, hann hefur drepið hann, Jim hefur myrt hann.“ „Hver er Jim?“ spurði varðstjórinn. „Ég man ekki eftimafnið hans en hann vinnur í Lake Worth," svaraði gengilbeinan. „Og því heldurðu að hann hafi myrt hann?“ „Vegna þess að hann hótaði því, þeir vom elskhugar og bjuggu saman um árabil." Varðstjórinn frétti að Jim og Jeff hefðu staðið í ástarsambandi um all- langa hríðog Jim hafði verið haldinn þráhyggju gagnvart ástmanni sínum. Þegar samband þeirra hafði varað í nokkur ár og Jeff hugðist slíta því, hafði Jim sagt honum að hann mætti aldrei yfirgefa sig, annars myndi hann kála honum. „Og Jeff tók hótanir hans alvarlega. Skömmu eftir að hann sleit samband- inu, sprautaði hann bflinn í nýjum lit, lét sér vaxa sítt hár, litaði skegg sitt og breytti um póstfang. En svo virtist sem það hefði ekki dugað til. Áhugaleysi FBI „Hvemig stendur á að FBI lætur svona nokkuð gerast? Hvemig gat þetta gerst?“ hvíslaði kærastan hans í mikilli geðshræringu og féll í grát. Varðstjóranum var spum hversu mikið væri að marka þennan fram- burð. Honum þótti málsatvik full reyf- arakennd en ákvað þó að halda yfir- heyrslunni áfram. Hann gaf Sue Wamer tíma til að jafna sig en síðan hélt hún áfram frásögninni. Kvöldið áður hafði hún verið á göngu ásamt kærastanum þegar Jim birtist skyndilega fyrir framan þau. Hann starði á þau um hríð en hvarf síðan orðalaust Jeff komst í mikið uppnám og þrástagaðist £ „Hann er kominn, hann er kominn, ég vissi að hann kæmi, hann ætlar að ná mér.“ Aðeins tveimur kvöldum fyrr höfðu Jeff og Sue sett upp hringana og hún taldi að Jim hefði verið það kunnugt. Áður en þetta gerðist hafði Sue einn- ig fengið dularfullar hótanir um hríð í gegnum síma. Hún sagði foreldmm sínum frá Því sem höfðu samband við FBI lögregluna en þeir vildu ekkert gera í málinu eftir að þeir heyrði um forsögu Jeffs. Varðstjórinn fylgdi stúlkunni heim og hélt síðan til foreldra fómarlambs- ins. Er hann sat í bfl sínum á leiðinni til Suður Kalifomíu hugsaði hann með sér að fram að þessum hefði hann ekkert í höndunum nema eitt nafn, og það einugis fomafn, sem ekki var gott að segja hvort var skáldskapur eða ekki. Hann áleit að mögulega kæmist hann að einhverju bitastæðu á heima- slóðum Jeffs. Áður en hann heimsótti foreldra hans kom hann við í herbergi því sem Jeff hafði leigt. Þar fann hann m.a. skjöl og bréf þar sem eitt nafn kom margoft fyrir. James Barfield, til heim- ilis í Lake Worth, JIM. Morðhótanir Foreldarar Jeffs sögðu að þeir hefðu ásamt Jeff fengið morðhótanir í gegn- um síma allt frá október 1989. Þau höfðu haft samband við lögregluna í San Diego og FBI en komið að lokuð- um dyrum. Ástandið var orðið þannig að þau hringdu daglega í son sinn til að fullvissa sig um að allt væri í lagi. Daginn áður hafði Jim lýst áhyggjum sínum vegna þess að hann taldi að Jim væri kominn í bæinn til að gera alvöru úr hótunum sínum. Að síðustu var varðstjóranum bent á að hafa sam- band við konu að nafni Mary Scheck sem var vinkona Jeffs og þekkti einnig vel til Jims. Það var rétt um miðnættið eftir annasaman dag sem John Donadido varðstjóri hafði samband við Mary. Hún staðfesti það sem varðstjórinn hafði áður heyrL Þá lagði hún ríka áherslu á að Jim væri ekki maður sem léti sér nægja að tala um hlutina, hann væri það sjúkur að miklar líkur væru á að hann léti ekki staðar numið eftir morðið á Jeff. Hún lagði áherslu á að foreldrar hans, kærasta og hún sjálf væri í hættu. Brúnin þyngdist á varðstjóranum eft- ir þessar síðustu upplýsingar. Hann gerði sér ljóst að nú væri þetta ekki aðeins spuming um að fullnægja rétt- lætinu og finna morðingja Jefís, held- ur lægju líf við að finna hann sem fyrst áður en fleiri féllu í valinn fyrir hendi Jims. Dauðalistinn Hann tryggði í upphafi að allir sem kynnu að vera á „dauðalista Jims“ myndu njóta lögregluvemdar. En hann var ekki sannfærður um að það væri nóg. Hann sá það í hendi sér að leitað hafði verið til lögreglunnar um vemd en það hafði ekki gagnast Jeff sem nú var liðið lík. Þegar varðstjórinn leitaði sér upplýs- inga í höfuðstöðvum FBI könnuðust menn þar á bæ við að leitað hefði ver- ið til þeirra en ypptu öxium að öðm leyti. Varðstjórinn hélt heim til sín en varð ekki svefnsamt. Honum fannst hann vera fastur í blindskák brjálæð- ings sem hann hafði hvorki séð, né sönnunargögn £ En í þessari skák gat peðunum blætt og svartur kóngur an- stæðingsins gat hulist hvarvetna. Hann var að sjálfsögðu búinn að tryggja vakt umhverfis heimili Jims en var ekki vongóður um að til hans næðist í bráð. Klukkan korter í 04.00 þegar varð- stjórinn var búinn að vinna að málinu í 22 klukkustundir samfleytt, hringdi síminn og honum var tilkynnt að Jim væri kominn heim til sín. Hann mætti þegar á staðinn og lét menn sína um- kringja heimilið svo lítið bar £ Varð- stjórinn bjóst ekki við að Jim myndi láta frelsi sitt af hendi átakalaust, reynslan hafði kennt honum að þegar kynhverfir menn eiga í hlut, verður hefndin oft yfirgengilegri en ella ef þeir telja sig hafa verið svikna í tryggðum eða beittir öðmm órétti. Mörg slík mál sem John varðstjóra Jeffrey Dryfka var ofsóttur og af- lífaöur eins og dýr. vom kunnug, enduðu með að gripið var til byssunnar. Handtakan Hann hafði hins vegar rangt fyrir sér í þetta skiptið. James Barfield kom strax til dyranna og sagðist ekki hafa neitt að fela og sér væri mjög í mun að aðstoða lögregluna ef hann gæti orðið henni að Iiði. Andúð varðstjórans óx er hann sá hvemig Jim brást við. Hann sá að ekki yrði hlaupið að því að knýja fram játningu þar sem Jim virt- ist yfirvegaður og hafa allt á hreinu. Það staðfesti trú hans að morðinginn væri djöfullega snjall og án beinna sönnunargagna yrði vonlítið að sækja málið. Á leiðinni á lögreglustöðina var Jim spurður nokkurra spuminga. Hann sagðist vita hver Jeffrey Dryfka var en hann hefði ekki séð hann vikum sam- an. Þá var hann spurður hvort hann ætti kærustu en Jim hristi höfuðið og sagðist gefinn fyrir unga drengi. Varð- stjórinn fann hvemig gæsahúðin magnaðist vegna viðbjóðs á hinum gmnaða. „En þú veist það er ekki svo varð- stjóri?" spurði Jim skyndilega á móti. „Þú veist að ég hef verið ákærður og sakfelldur fyrir svo að segja allt nema morð hingað til og þar á meðal fýrir áhuga minn á litlum strákum," bætti hann við brosandi og varðstjórinn fann kalt vatn renna á milli skinns og hömnds. Vissulega vissi varðstjórinn það. Hann vissi að Jim hafði margoft setið inni fyrir kynferðisglæpi, og oft- ar en ekki höfðu böm orðið frrir barð- inu á honum. Eftir tveggja klukkustunda yfir- heyrslu án nokkurs sýnilegs árangurs, kvaðst Jim vera þreyttur og vildi fá að halda til síns heima. Þegar varðstjór- inn neitaði beiðni hans fauk skyndi- lega í kynvillinginn. Hann heimtaði lögmann og neitaði að láta taka af sér figraför, þar sem engar sannanir væm gegn honum. Með dómsúrskurði fékk varðstjórinn því framgengt að fingra- för vom tekin í morgunsárið. Hann vissi að hann hafði aðeins nokkrar klukkustundir til stefnu áður en hann neyddist til að láta Jim lausan þar sem hann hafði ekki vitni að morðinu, fingraför eða morðvopn, eða nokkuð annað áþreifanlegt gegn honum. Hins vegar lét hann stjómast af eðlishvöt sinni og hún sagði honum að ef hann léti Jim lausan, myndi einhver annar falla fyrir kúlum hans í valinn. Hann hafði aftur samband við FBI í von um að samvinnuþýðni þeirra hefði aukist og þá fékk hann þær upp- lýsingar sem hann hafði beðið eftir. FBI sagðist eiga hljóðritaðar upptökur af hótunum Jims þar sem því var lýst í smáatriðum hvemig hann hugðist ffernja morðið. Þetta var nóg til að ákæra James Barfield fyrir morðið á Jeffrey Dryfka. Áþreifanleg sönn- unargögn Mánudagsmorguninn 19. febrúar hittust varðstjórinn og liðsmenn hans á fúndi til að skipuleggja hvemig stað- ið yrði að leit sönnunargagna í mál- inu. Maður var sendur til að yfirheyra nágrannana og þar kom meðal annars fram að Jim hafði sýnt einum þeirra 25 kalíbera skammbyssu og sagt að hún yrði notuð til að drepa Jeff, sem hann talaði um öllum stundum. Ann- ar fór til að rannsaka morðstaðinn enn frekar og fann þar sígarettustubba af Marlboro tegund, en Jim keðju- reykti Marlboro og því stóðu vonir til að finna fingraför á stubbunum. Símareikningar gáfu til kynna að Jim hafði í 341 skipti ónáðað Jeff eða ætt- ingja hans á síðustu fjórum mánuð- um. Auk þessa alls fyrirskipaði varð- stjórinn að húsgarður Jeffs yrði stung- inn upp í von um að finna morðvopn- ið. Þar var fullkomlega skotið út í bláinn að sú leit bæri nokkum árang- ur og liðsmenn varðstjórans vom heldur óánægðir með starfann. En John Donadio varðstjóri lét sem oftar stjómast af hugboðum og það hafði upplýst mörg mál fram að þessu. Daginn eftir fékk hann heimild til húsleitar. Honum til nokkurra von- brigða kom ekkert út úr þeirri leit en það var varðstjóranum gleðiefni þegar rannsóknir staðfestu að fingraför Jims væru á sígarettustubbunum sem fundust á morðstaðnum. Seint um kvöldið fannst byssukúla í moldinni sem tekin var til rannsóknar. Ná- granni staðfesti að hann hefði séð Jim æfa sig í skotfimi skömmu áður í bak- garðinum og ef kúlan væri sömu teg- undar og sú sem banaði Jeff, væri stór sigur unninn. Þá gaf leigubflstjóri sig fram og sagðist hafa ekið miðaldra manni á bflastæðið fyrir framan verk- stæðið um svipað leyti og talið var að Jeff hefði verið skotinn. Hann var leiddur í sakbendingu og úr hópi 10 manna benti hann strax á Jim. Þannig streymdu sannanimar inn eins og eftir pöntun, og mál sem virt- ist nær ómögulegt að leysa í upphafi, var nú orðið höggþétt fyrir dómstól- um. Þrátt fyrir að morðvopnið fyndist aldrei var sannað að byssukúlunni í bakgarðinum var skotið úr sama vopni og því sem banaði Jeff. Þegar hér var komið sá James Barfi- eld að hugsanlega yrði dauðarefsing hlutskipti hans ef hann færi ekki að gerast samvinnuþýðari við lögregl- una. Þess vegna viðurkenndi hann að hafa myrt fyrrum ástmann sinn, hinn 26 ára gamla Jeffrey Dryfka. Hann hafði elt Jeff uppi eins og dýr og þegar sprakk á afturdekki fómar- lambsins, hafði Jeff ekki átt annan kost en að beygja að vinnustað sínum þar sem hann hugðist leita skjóls. En Jim var fyrri til. Jim slapp við raf- magnsstólinn en mun sitja innan veggja fangelsisins til dauðadags. Johm Donadio varðstjóri hlaut mikið lof fýrir þátt sinn í að upplýsa málið. Hver veit nema snarræði hans hafi bjargað einhverjum mannslífum hjá þeim sem efst voru á dauðalista James Barfield. Hins vegar Iá FBI fýrir ámæl- um um að fordómar hefði ráðið því að ekki var tekið alvarlegar á málinu en raun bar vitni, þegar leitað var til þeirra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.