Tíminn - 08.05.1993, Síða 9

Tíminn - 08.05.1993, Síða 9
Laugardagur 8. maí 1993 Tíminn 9 menum voru þó aldrei neitt leynd- armál og benda sterkar líkur til að nasistar hafi haft þau í huga sem fyrirmynd er þeir ákváðu að fara eins að við gyðinga. Með hliðsjón af þessu ætti að vera skiljanlegt að Armenar litu ekki á það sem alveg sjálfsagðan hlut að núverandi landamæri þeirra séu endanleg. Erfitt er að sjá að þeir geti haldið Fjalla-Karabak til fram- búðar nema því aðeins að Neðra- Karabak sé einnig á þeirra valdi. Heyrst hafa einnig armenskar raddir sem hvetja til þess að Ar- menía taki héraðið Nakhitsjevan, sem heyrir Aserbædsjan til en er á milli Armeníu og írans. Á bak við þetta liggur ekki einungis ósk Ar- mena um að ná aftur einhverju af því, sem tekið var af þeim með þjóðarhreinsun, heldur og að gera landamæri sín verjanlegri. Oft heyrist Armenum líkt við gyð- inga/ísrael, bæði út frá sögunni og núverandi kringumstæðum. Ar- menía og ísrael eru bæði að mestu umkringd fjandsamlegum ríkjum. ísraelar óttast að útrýming verði hlutskipti þeirra ef þeir bíði lægri hlut fyrir aröbum. Armenar óttast að bíði þeir ósigur í yfirstandandi stríði við Asera, sem njóta samúðar og að líkindum talsverðs stuðnings Tyrkja, muni Tyrkir og Aserar taka til þar þeir urðu frá að hverfa 1920 og ljúka við að útrýma Armenum. Með hliðsjón af fortíðinni, þ. á m. ofsóknunum gegn Armenum í As- erbædsjan fyrir fáeinum árum, verður ekki sagt að sá ótti sé ástæðulaus. Kvartað um þröskuld í umræðunni í Tyrklandi hefur Ar- menía upp á síðkastið verið kölluð fleinn í holdi tyrkneskra þjóða, á hliðstæðan hátt og ísrael sé við- víkjandi aröbum. Sagt hefur verið og skrifað í Tyrklandi að Armenfa, sem nær frá suðurlandamærum Georgíu til norðurlandamæra ír- ans, sé þröskuldur í vegi tyrk- neskra þjóða (Tyrkja annarsvegar, Asera og tyrkneskra Mið-Asíuþjóða hinsvegar) til sameiningar. Á bak við stuðning Tyrkja, óbein- an og beinan, við Aserbædsjan er auk pantyrkjahyggju keppni um áhrif þar og í fyrrverandi sovésku Mið-Asíu við íran. Drægju Tyrkir við sig að styðja Asera til stríðsins er ekki ósennilegt að þeir síðar- nefndu, sem eru sjítar eins og fr- Dagur Þorleifsson skrifar Armenskir stríösmenn í Fjalla- Karabak — ótti við framhald þjóðarmorðs. anir og nákomnir þeim í menning- arefnum, hölluðust að íran í von um stuðning þaðan gegn Armen- um. Týrkneskum ráðamönnum stendur um þessar mundir mikill stuggur af íransklerkum, er þeir gruna um að standa á bak við bók- stafsmúslíma í Tyrklandi, sem þar eru í sókn sem víðar. Helsta líflína Armena til um- heimsins er við Rússland, og segir kannski einhver að það minni á áð- uráminnsta atburði 1920. Ein- hverjar einingar úr sovéska hern- um fyrrverandi eru enn í Armeníu og kváðu þær hafa liðsinnt Armen- um eitthvað í stríðinu. Þar að auki fá Armenar vopn frá Rússum og mest af því litla sem berst af vörum inn í landið kemur frá Rússlandi. Rússland vill ógjaman að Tyrk- land og íran verði allsráðandi sunnan Kákasusfjalla. Öryggis- hagsmunir em þar að baki en einnig efhahagslegir; löndin þar em allauðug frá núttúmnnar hendi. Að þessu athuguðu virðast talsverðar líkur á að Karabakstríð- ið breiðist út. Engin Bandaríki að baki í efnahags-, atvinnu- og kjaramál- um er Armenía í kaldakoli. Við- skipti hennar vom á sovéska tím- anum mestanpart við önnur sovét- lýðveldi og samgönguleiðir Ar- mena við þau og orkuleiðslur þaðan til Armeníu lágu mestanpart yfir aserskt land. Þau tengsl hafa Aserar nú rofið. íbúar Armeníu hafa naumlega að borða, iðnfyrir- tæki þar hafa flest hætt starfsemi vegna orku- og hráefnaskorts og í höfuðborginni Jerevan hrósa menn happi ef heimilin þar hafa rafmagn tvær stundir á sólarhring. Armenía á sér engan bakhjarl í stjóm- og efnahagsmálum hlið- stætt því sem Bandaríkin em fsra- el. En af fréttum frá Armeníu að dæma virðist fólk þar yfirleitt stað- ráðið í að halda baráttunni áfram. Því finnst líklega að tyrkir hafa þegar tekið nógu mikið af Armen- um, þótt þeir fái ekki Fjalla-Karab- ak líka. Þar að auki hafa Armenar allnokkra ástæðu til að ætla að þeir berjist fyrir lífi sínu sem einstak- linga og þjóðar. Happdrættí VINNINGAR í 1. FLOKKI IBUÐARVINNINGUR KR. 3.000.000,- 79578 FERBAVINNINGAR KR. 100.000.- 10215 19255 26065 45410 77392 17974 206B4 31093 56042 79293 FERÐAVINNINGAR KR. 50. 000. - 14511 15884 17613 17882 24486 25451 29620 30422 31267 32504 32902 35009 38147 39153 41403 43551 48275 55044 59557 59767 64325 76483 68282 70138 74959 Geislaplata Öll númer undir 80.000 og þau sem ekki birtast hér að of- an fá geislaplötu með Kristjáni Jóhannssyni. Platan verð- ur afhent í umboðum Happdrættis DAS frá og með 27. maí gegn framvísun miðans. Frá Menntaskólanum við Sund Laus er til umsóknar næsta skólaár, kennsla í Ifffrasöi (af- leysing, u.þ.b. full staða). Ennfremur er með tilvísun til laga nr. 48/1986 auglýst laus til umsóknar kennsla í eðl- isfræði og stærðfræði. Þá er einnig laus til umsóknar af- leysing í stærðfræði á haustönn (80% staöa). Umsóknarfrestur er til 28. maí. Umsóknum ber að skila til rektors skólans. Rektor og kennslustjóri veita allar nánari upplýsingar í síma 91-33419. Rektor Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Vatnsveitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboðum I lagningu aðalæðar VR II, 4. áfangi. Mið- mundardalur-Grafarholt. Helstu magntölur eru: Þvermál pípna 800 mm Lengd 2.100 m Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 26. mal 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ÚTBOÐ Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Garðyrkjustjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboöum I endurmótun Amarhóls. Verkið er aðallega fólgið í endumýjun á steyptum mannvirkjum, gangstígum, grasflöt og gerð snjóbræðslukerfis. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu voni, Frlkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 25.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 19. mal 1993, kl. 11,00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.