Tíminn - 08.05.1993, Page 12
12 Tlminn
Laugardagur 8. maí 1993
Sjö ára vinnu við gerð gróðurkorts aflandinu lokið. Kortið er byggt á tólf myndum sem teknar voru úr gervitungli:
r
Nýtt gróðurkort af Islandi
I-anifmæHngar íslands hafa gcfift út gróðurkort af íslandi sem gert
er eftir gervitunglamyndum. Kortift er sett saman úr tólf gervi-
tunglamyndum sem teknar voru úr 705 kílómetra hæð á árunum
1986-1992. Kortið gefur gott yfirlit yfir heildarástand gróðurþekju
landsins og ekki síður yfir þá gróðureyðingu sem á sér stað á norð-
austurhluta landsins.
Sveinn Runólfsson land-
græðslustjóri segir að kortið
sýni vel hvar gróðureyðingin á
sér stað. Hann segir að við get-
um ekki sætt okkur við ásýnd
landsins eins og hún sé á norð-
austurhluta landsins.
Gervitunglið sem tók myndim-
ar heitir LandsaL Það tekur
myndir af sama stað á jörðinni á
sextán daga fresti. Eins og gefur
að skilja var landið oft þakið
skýjahulu þegar myndir vom
teknar af íslandi og þess vegna
tók sjö ár að fá nægilega góðar
myndir af landinu til að hægt
væri að nota þær við gerð gróð-
urkortsins. Sum árin fengust að-
eins ein eða tvær þokkalegar
myndir af landinu en önnur ár
fengust tíu nothæfar myndir.
Þessi tækni gefur marga nýja
möguieika til notkunar í land-
græðslu, virkjanagerð eða ann-
arri landnýtingu. Með þessari
tækni fyrirhuga Landmælingar
ísiands að koma sér upp gagna-
banka. Bankann má m.a. nota til
að fylgjast með breytingum á
gróðri landsins.
Gróðurkortið var unnið í sam-
vinnu við Landgræðslu ríkisins
og Rannsóknarstofnun landbún-
aðarins. Framleiðnisjóður land-
búnaðarins styrkti kortagerðina
með sex milljóna framlagi en
heildarkostnaður við hana var
15,5 milljónir. Það er nokkuð
iægri upphæð en upphaflega var
áætlað að verja til verksins.
Gróðurkortið var unnið í sam-
ræmi við ályktun alþingis frá
mars 1991.
Nýja gróðurkortið er til sölu hjá
Landmælingum íslands og kost-
ar 1.990 krónur.
-EÓ
Brauðostur
15%
LÆKKUN!
VERÐ NU:
679 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
ÞU SPARAR:
■ kílóið.
120 kr.
á hvert kíló.
OSTA OG
SMJÖRSALAN SE