Tíminn - 29.05.1993, Side 12

Tíminn - 29.05.1993, Side 12
12 Tíminn Laugardagur 29. maí 1993 j Óþrjótandi ferðamöguleikar og afþreying á Egilsstöðum Utimarkaðir, torfærukeppni, djass- hátíð og harmonikkuhátíð, knatt- spyrnumót og leikstarfsemi Egilsstaðabær er ungur bær sem byggöist viö krossgötur mik- ilvægra samgönguleiöa. Hér myndaölst þjónustukjami fýrir tæpum 50 árum og sfðan hefur þessi kjarni farlö ört stækkandl. Er svo komlð nú að Egilsstaðabær er 1500 manna bæjarfólag f örum vexti. Feröaþjónusta er stór atvinnugreln á Egilsstööum. Hefur lega bæjarins miklð að segja þar um, en ekkl síöur stórbrotin nátt- úrufegurð. Hailormsstaöaskógur, Snæfell, Hengifoss, Lagar- fljótiö, Héraössandurlnn, Borgarfjöröur eystri og Seyölsfjörður em Innan seillngar, svo fátt eitt sé nefnt. Fjölmargar veiöiár er að finna á Austurlandi og hér er ein þeirra, Skriödalsá. En það er ekki síður mikið að ger- ast í bænum sjálfum. Hér er rekið mjög gott tjaldsvæði, hótel, tvö gistiheimili, örstutt er í góðan golfvöll, lax- og silungsveiði. Það verður nóg að gera fyrir ferða- menn f nágrenni Egilsstaða í sum- ar, þegar hver stóratburðurinn rekur annan, og er um að gera fyr- ir fólk á ferðinni að kynna sér þær uppákomur sem eru þar f allt sumar. Tveir útimarkaðir Ferðaþjónustuaðilar munu opna sumarvertíðina formlega með myndarlegri kynningu á þjónustu sinni í byrjun júní. Vonast er til að sem flestir heimamenn notfæri sér þetta tækifæri og skoði með eigin augum það sem verið er að gera (ferðaþjónustu á Héraði. Sfð- an rekur hver atburðurinn annan. Tekin hefur verið upp sú ný- breytni að hafa tvo útimarkaði á Egilsstöðum f sumar. Á öðrum þeirra verður lögð áhersla á að selja einungis vörur sem unnar eru í fjórðungnum. Er þá um að ræða hvers konar minjagripi, til dæmis úr beini, hreindýrshorni og skinni, fatnað ýmiss konar og heimafengin matvæli svosem broddmjólk og silung en sfðsum- ars verða garðávextir í boði. Hinn útmarkaðurinn verður rekinn með svipuðu sniði og áður, þar sem ýmiss konar varningur verður seldur f bland við heimaunnar vörur. Veitingasala verður í tengslum við útimarkaðina og til stendur að halda jafnframt reglu- lega þemadaga þar sem sérstök áhersla verður lögð á ákveðna landbúnaðargrein, t.d. mjólkur- vörur, hesta, skóga o.s.frv. Verður þá slegið upp grilli og ýmsar uppá- komur í kringum þemað. Uti- markaðirnir verða opnir alla daga vikunnar í sumar. Torfærukeppnin og djasshátíðin 19. júní verður síðan hin geysi- vinsæla torfærukeppni. Hún hefur verið haldin á Egilsstöðum f nokk- ur ár og nýtur sfvaxandi vinsælda. Geysilegur fjöldi fólks hvaðanæva að af landinu kemur til að fylgjast með bæði skráðum og sérsmíðuð- um torfærutröllum. Keppni þessi er liður í fslandsmótinu og er haldin í námu þar sem efnið f nýja flugvöliinn var tekið. Eru aðstæð- ur þar hinar ákjósanlegustu og er keppnin alltaf mjög góð og spenn- andi. Strax í vikunni þar á eftir, eða dagana 24.- 27. júní, verður hin árlega djasshátfð sem haldin hefur verið á hverju ári frá árinu 1978 og er hún elsta samfellda djasshá- tíðin á landinu. Árni ísleifsson stendur fyrir þessari hátíð að vanda. Fyrsta kvöld hátfðarinnar leikur Norræni djasskvintettinn sem f eru þeir Sigurður Flosason - sax, Ulf Adaker - trompet, Lennart Gimmann - bassi, Eyþór Gunnars- son - pfanó og Pétur östlund - trommur. Daginn eftir leika vinir Dóra ásamt austfirsku blúsbandi. Laugardagskvöldið 26. júnf leikur Tríó Peters Gullin en Djassklúbb- ur Egilsstaða fékk 30 þúsund danskar krónur í styrk frá nor- ræna menningarsjóðnum vegna komu þessara flytjenda. Sama kvöld syngur ARNÍS djasskórinn ásamt Viðari Alfreðssyni trompet- leikara og Árna Scheving víbra- fónleikara. Stjórnandi kórsins er Árni ísleifsson og mun kórinn einnig taka þátt í RÚREK- hátfð- inni í Reykjavfk. Lokatónleikar hátíðarinnar verða á sunnudegin- um og þá munu Djasssmiðja Aust- urlands og Septett Tómasar R. Einarssonar leika. Septettinn leik- ur lög eftir Tómas og söngkona hjá þeim verður Móeiður Júníus- dóttir. Mót harmonikku- unnenda Áfram mun hressileg tónlist hljóma í Egilsstaðabæ, því vikuna á eftir verður haldið mót harmo- nikkumanna á Hótel Valaskjálf. Hingað flykkjast nikkarar af öllu landinu þann 1. júlí því þá um kvöldið verður landssambands- fúndur. Næstu dagana þar á eftir verða nikkurnar þandar. Á föstu- deginum verða tónleikar aðildar- félaganna. Þar munu tveir ungir Norðurlandabúar, Svíi og Finni, halda tónleika. Þessir piltar eru aðeins 17 ára gamlir og eru nú þegar vel þekktir fyrir leikni sfna á hljóðfærið. Sama kvöld leika Bragi Hlíðberg, Grettir Björnsson og Reynir Jónasson og í framhaldi af því verður slegið upp dansleik. Á laugardeginum 3. júlí verður haldið áfram með tónleika aðild- arfélaganna 17 og um kvöldið verða úrslit f lagakeppni lands- mótsins ásamt dansleik. Hvert að- ildarfélaganna sendir inn eitt lag í keppnina og verður sigurlagið val- ið úr þeim hópi. Knattspyrnumót kvenna og sumarhá- tíðUÍA Sömu helgi verður haldið knatt- spyrnumót kvenna og er búist við um 300 þáttakendum af öllu land- inu. í tengslum við mótið verða haldnir stórir útitónleikar í bæn- um. Sunnudaginn 4. júlf taka stúikurnar þátt í Egilsstaðamara- þoni ásamt öðrum keppendum. Egilsstðamarþon er orðinn árviss viðburður. Hefur það verið haldið árlega sl. 5-6 ár. Keppt er í 4 km. skokki, 10 km. skemmtiskokki, hálfmaraþoni og heilu maraþoni.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.