Tíminn - 29.05.1993, Blaðsíða 18

Tíminn - 29.05.1993, Blaðsíða 18
18 Tíminn Laugardagur 29. maf 1993 Norðmenn að digna í hrefnuveiðimálum: Tapið fjórfalt meira en arður af veiðunum? Fjáriugslegur skaði Norðmanna vegna tapaðra viðskipta við stórar verslunar- keðjur í kjölfar hrefnuveiða þeirra getur orðið að minnsta kosti fjórfalt meiri en hagnaðurinn af veiðunum. Risasamsteypan Unilever-Nordsee, sem kaupir næstum helming allra norskra sjávarafurða í Þýskalandi, mun ekki sldpta við norsk fyrirtæki nema þau fordæmi hrefnuveiðamar. Samtök Grænfriðunga ráðast gegn hrefnuveiðum Norðmanna á öllum vígstöðvum og hvetja fólk um allan heim til að sniðganga norskar verslunarvörur. Grænfrið- ungar beina spjótum sínum fyrst og fremst að norskri rækju í Bret- landi, laxi í Þýskalandi og skreið á ítalfu. Samtímis fordæmir Evrópuþing- ið í Strassborg ákvörðun Norð- manna um að hefja hrefnuveiðar á nýjaleik og mælast til þess að Nor- egur „verði (ef landið hlýtur aðild að EB) að fara að þeim lögum bandalagsins sem kveða á um vemdun hvala sem séu í útrým- ingarhættu." Þeirri tilgátu hefur verið velt upp að norsk stjómvöld hyggist nota hvalveiðamar sem skiptimynt í samningunum um aðild að EB til þess að kaupa full og frjáls yfirráð yfir fiskimiðum sínum. Arður sem tapast fjórfalt Norðmenn ætla sér að veiða 296 hrefnur; 160 í hagnaðarskyni og 136 í vísindaskyni. Aætlaður hagn- aður af ábataveiðunum er um 460 milljónir fslenskra króna en talið er að þjóðarbúið tapi á vísinda- veiðunum. Beint fjárhagslegt tap Norðmanna vegna andstöðu við hvalveiðar í útlöndum virðist ætla að verða að minnsta kosti fjórum sinnum meira en hagnaðurinn af ábataveiðunum. Útflutningsráð Noregs áætlar að tekjur af útflutn- ingi til Bandaríkjanna minnki um sem nemur 740 milljónum fs- lenskra króna. Þá er ótalinn tekju- missir af útflutningi til landa Evr- ópu. Afleiðinga hrefnuveiðanna er þegar farið að gæta í Noregi. Æ fleiri segjast hafa misst af samn- ingum vegna veiðanna. Þýska verslunarkeðjan Tengelmann hef- ur ákveðið að hætta viðskiptum við norsk fyrirtæki. Það eitt kann að minnka útflutningstekjur Norðmanna um einn milljarð ís- lenskra króna. Sömu sögu er að segja um þýska stórfyrirtækið Beck Lacroix sem keypti norskar vörur fyrir tæplega 400 milljónir íslenskra króna á síðasta ári. Aðrar stórar keðjur eins og Hertie og Karstadt fara nú að dæmi þeirra, en þær versla mest með norskan lax. Ný markaðshlutdeild tapast Verslunarsamsteypan Unilever- Nordsee keypti sjávarafurðir frá Noregi fyrir rúmlega 5,5 milljarða íslenskra króna árið 1992. Stjóm hennar hefur nú ákveðið að halda aðeins áfram viðskiptum við þau norsku fyrirtæki sem fordæma hvalveiðamar. Samkvæmt könn- un, sem norska viðskiptablaðið Dagens næringsliv gerði á dögun- um, er frekari þrýstings að vænta frá þýskum fyrirtækjum. Heildarútflutningur Norðmanna á sjávarafurðum til Þýskalands á síðasta ári nam sem svarar rúm- lega tólf milljörðum íslenskra króna. Það er 10% aukning frá ár- inu áður, - árangur sem nú tapast í einu vetfangi. Rökrétt fífldirfska Almenn umræða um þessi mál í Noregi er smátt og smátt að snú- ast gegn ríkisstjóminni. í leiðara í Aftenposten hinn 19. maí segir að ákvörðun norska þingsins um að hefja hrefnuveiðar hafi verið „rök- rétt“ en „fífldjörf': ,AHt bendir til að hún kosti okkur of mikið vegna tapaðra útflutningstekna. Þá má búast við að fleiri atvinnutækifæri við sjávarsíðuna glatist en hin sem ávinnast með hvalveiðum. Við eig- um á hættu að lenda í sjálfsmorðs- sveit hvalveiðanna." Kjell Martin Fredriksen, formað- ur útflutningsráðs Noregs, segist bera kvíðboga fyrir aðgerðunum í útlöndum. O Dag Koteng hjá landssamtökum norska sjávarút- vegarins tekur í sama streng: „Ef fram heldur sem horfir neyð- umst við til að biðja ríkisstjómina að endurskoða ákvörðunina um hvalveiðar," segir hann. Súrt epli Að svo stöddu telja norsk stjóm- völd ekki koma til greina að hvika frá fyrri ákvörðunum. Norskur markaðsfræðingur telur hins veg- ar að stjómin hafi nú þegar tapað slagnum og skynsamlegast sé að láta undan hinum alþjóðlega þrýstingi áður en verra hlýst af. Hann skrifar: „Huglaust? Vita- skuld. Hvikult? Ef til vill. Biturt, því að Noregur er í fullum rétti. En skynsamlegt!" —Þór Jónsson, Svíþjóð UMSJÓN: BJÖRN ÞORLAKSSON Hvað gcra heimsmeistaramir? Senn líður að því að heimsmeistaramir okkar íslensku haldi utan til spila- mennsku á Evrópumótið í bridge og verður íslenska sveitin að ná einu af fjórum efstu sætunum til að eiga kost á að verja titilinn í hausL Er ekki að efa að á brattann verður að sækja en árangur íslendinganna hefur verið mjög þokkalegur eftir „Yokohama ævintýrið" og þá sér í lagi þáttur Guðmundar P. og Þotiáks Jónssonar. Síðustu aftek þeirra á stórmótum eru 7. sætið í hin- um sterka Sunday Times tvímenningi 1993 og fjórða sætið á Evrópumótinu í tvúnenningl sem haldið var í Bielefelt á dögunum. Eftirfarandi spil er úr Sunday Times tvímenningnum 1992 þegar tvö ís- lensk pör voru boðin til sögunnar, Guðmundur Páll Amarson og Þor- lákur Jónsson annars vegar og Jón Baldursson og Aðalsteinn Jörgensen hins vegar, sem nú era reyndar hætt- ir að spila saman. A NORÐUR i D965432 DT732 VESTUR AUSTUR ♦ T72 * ÁDG93 VT742 V KD93 ♦ T87 ♦ ÁK *AK9 * 84 SUÐUR 4 K8654 ♦ ÁJ65 ♦ G + J65 vestur norður austur suður Kaplan Þorl. Glubok Guðm. 1+ pass 2+ 4 + 4+ dobl allir pass Guðmundur spilaði út tígulgosa. Brian Glubok drap og spilaði spaða- þristi að tíu blinds. Hjartatvistur til Guðlaugur R. verður IJarri góðu gamnl I sumar on hann og Öm ákváöu aö gefa ekkl kost á sér. Vonandl hafa arftakar þelrra ástæðu tll að lyfta báðum höndum I sumar. baka. Guðmundur skipti yfir í lauf og alltaf eftir þetta þegar hann komst inn og náði þess vegna af harðfylgi að hnekkja samningnum. Verður gaman að fylgjast með þeim Þorláki ásamt hinum fslensku pör- unum í sumar en þótt árangurinn yrði ekki eins og vonir standa til, þá er ljóst að með árangrinum í Yoko- hama varð sprenging í bridgelífi ís- lendinga. Ber þar helst að minnast aukningarinnar sem orðið hefur í þátttöku á íslandsmótum síðustu ár, auk þeirra fjölmörgu félaga sem hafa stækkað og dafnað upp á sfðkastið, mörg hver ný af nálinni sbr. Bridge- félag SÁÁ. Ólíklegt er að áhuginn á íþróttinni hafi nokkum tímann verið jafn almennur og því ber að fagna burtséð frá því hvort íslenska sveitin stenst þá miklu pressu sem hún er undir á næstu stórmótum. Þrciut 17 NORÐUR ♦ GT ♦ 983 ♦ ÁK862 + G32 SUÐUR ♦ D V ÁT2 ♦ 74 + ÁKDT954 suður vestur norður austur 1+ pass 1 + pass 3+ pass 4+ pass 5* pass pass pass Útspil: Tíguldrottning Hvemig er best að spila 5 lauf? Það sem sagnhafi þarf að varast er að drepa útspilið. Ellefta slaginn er aðeins hægt að fá úr tíguliitnum og líkumar verða meiri með því að dúkka útspilið. Geram ráð fyrir að vestur haldi áfram með tígulinn f öðram slag. Þá drepur sagnhafi á ás og stingur lftinn . NORÐUR + GT * 983 * ÁK862 * G32 VESTUR AUSTUR + Á984 * K76532 V D764 ¥ KG5 ♦ DGT9 ♦ 53 + 6 * 87 SUÐUR + D * ÁT2 * 74 + ÁKDT954 tígul með háu trompi. TTompin tekin og endað í blindum. Þá er spilað tíg- ulkóngi og tíguláttu og hjarta hent heima. Staðið slétt. Ef sagnhafi drepur fyrsta slag er ekki hægt að nýta tígulinn nema hann falli 3-3 (minni líkur en 2-4). Það skortir samgang á milli hand- anna. Með þvf að dúkka tígulinn f fyrsta slag er spilið alltaf tryggt hvort sem tígullinn er 4-2 eða 3-3. Sumarforidge í gang Þá er rúmlega vika síðan sumarbridge Reykvíkinga og nærsveitarmanna hófst undir stjóm Sveins R. Eiríkssonar. Spilað er öll kvöld f viku utan laugardagskvölda og hefst spilamennska alltaf kl.19.00. í ár er boðið upp á þá nýbreytni að spilarar geta keypt sér mánaðarkort í stað þess að borga hvert kvöld fyrir sig. Áuk hagræðingarinnar ætti að vera nokkur spamaður að þessu fyrir þá sem iðnastir era við kolann. Mánaðargjaldið er 6.000. Varnarþraut Það hefur aðallega borið á úrspils- þrautum í bridgeþætti Tímans að undanfömu. Þar sem hvítasunnu- helgin er framundan og frítími les- enda meiri en ella, fylgir hér vamar- þraut hinni löngu helgi. ANORÐUR 2 D954 \ DG83 VESTUR * KGT72 ¥ Á6 ♦ ÁK72 + T7 vestur norður austur suður l¥ 1+ 4^ Pass 4¥ Allir pass Þú spilar út tígulás, makker setur sexuna og suður fimmuna. Hverju spilarðu næst og hvers vegna? Það era tveir vamarslagir á rauðu ásana og von til þess að fá spaðaslag. Þar sem suður er á hættu þegar hann opnar, hlýtur makker að vera með lítinn punktastyrk. Því er ekki von til að spilið sé niður, önnur en stunga f spaða. Til að vinna ekki einn slag en gefa annan er nauðsynlegt að spila spaðakóngi. Allt spilið: . NORÐUR + D954 * DG83 * D * KD93 VESTUR AUSTUR * KJT72 + 8 ¥ Á6 ¥ 94 ♦ ÁK72 ♦ T98643 + T7 + G854 SUÐUR + Á63 * KT752 * G5 * Á62 Um leið og trompi er spilað, drepur vestur og spilar spaðagosa. Fram- haldið þarf ekki að rekja.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.