Tíminn - 29.05.1993, Side 16

Tíminn - 29.05.1993, Side 16
16 Tíminn Laugardagur 28. maí 1993 IÐNSKÓLINN í REYKJAVÍK Innritun fyrir haustönn fer fram í lönskólanum í Reykja- vík, á Skólavörðuholti, dagana 1.-4. júní, kl. 10.00- 18.00. Innritað verður í eftirtalið nám: I. Dagnám. 1. Samningsbundið iðnnám (námssamningur fylgi um- sókn) 2. Bókagerð (prentun, prentsmíð, bókband) 3. Fataiðnir 4. Grunndeild í háriðnum 5. Grunndeild í málmiðnum 6. Grunndeild í rafiðnum 7. Grunndeild í tréiðnum 8. Framhaldsdeild í bifreiðasmíði 9. Framhaldsdeild í bifvélavirkjun 10. Framhaldsdeild í hárgreiðslu II. Framhaldsdeild í hárskurði 12. Framhaldsdeild í húsasmíði 13. Framhaldsdeild í húsgagnasmíði 14. Framhaldsdeild í rafeindavirkjun 15. Framhaldsdeild í rafvirkjun og rafvélavirkjun 16. Framhaldsdeild í vélsmíði og rennismíði 17. Almennt nám 18. Tölvubraut 19. Tækniteiknun 20. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi) 11. Kvöldnám (öldungadeild) 1. Meistaranám (auk annarra gagna fylgi sveinspróf) 2. Almennar greinar 3. Grunnnám í rafiðnum 4. Rafeindavirkjun 5. Tölvubraut 6. Tæknibraut (lýkur með stúdentsprófi) 7. Tækniteiknun Innritun er með fyrirvara um þátttöku í einstökum deild- um og áföngum. Öllum umsóknum skal fylgja staðfest afrit prófskírteina með kennitölu. IHafnarfjarðarbær — lóðaúthlutun Hafnarflarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum fyrir (búðarhús í Mosahlið. Um er að ræða lóðir fyrir tveggja hæða einbýlishús, parhús og raöhús, ennfremur parhús á einni hæð. Einnig eru nokkrar lóðir lausar á Hvaleyrartiolti. Lóðimar verða til afhendingar ( sumar. Umsóknarfrestur er til og með mánudagsins 14. júní n.k. Eldri umsóknir þarf að endumýja. Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu bæjarverkfræðings, Strandgötu 6. Bæjarverkffæðingurinn í Hafnarfirði. -----------------------------'N ÚTBOÐ Reykjanesbraut — vegamót við Vogaveg og Gríndavíkurveg Vegagerð rikisins óskar eftir tilboðum i ofan- greint verk. Helstu magntölur: Fyllingar og buröarlög 5.800 m’, skering I berg 2.400 m3, malbik 17.000 m2, umferðareyjar 1.200 m2. Verki skal lokiö 27. ágúst 1993. Útboösgögn verða afhent hjá Vegagerð rfkisins ( Borgartúni 5, Reykjavlk (aðalgjaldkera), frá og með 1. júni n.k. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14:00 þann 14. júnl 1993. Vegamálastjóri __________ Góóar veislur enda vel! Eftireinn -ei aki neinn y UMFERÐAR RÁÐ Þingflokkur Kvennalista krefst þess að Alþingi verði kallað saman vegna niðurskurðar aflaheimilda og fyrirheit ríkis í kjarasamningum: Gagnrýnir Lands- bankann harðlega Þingflokkur Kvennalista átelur harðlega hvemig staðið hefur verið að því að ná fram spamaði i rekstri Landsbankans sem aðallega birtist í uppsögnum 76 starfsmanna hans. Þá krefst þingflokkurinn þess að Alþingi verði kallað saman vegna óhjákvæmilegs niðurskurðar afla- heimilda og einnig vegna fyrirheita ríkisstjómar í kjölfar nýgerðra kjarasamninga. Þingflokkurinn telur að í ljósi þeirra atburða sem gerst hafa í Landsbankanum, svo og þær frétt- ir sem borist hafa af einstökum starfsmönnum Búnaðarbankans, vakni upp spumingar um stjórn- arhætti bankanna og hæfni stjóm- enda þeirra sem skipaðir em í krafti pólitísks kvótakerfis. Þing- flokkurinn ítrekar einnig nauðsyn þess að skipuð verði óháð nefnd til að gera úttekt á vanda bankakerfs- ins og þeir sem þar hafa stjómað á undanfömum ámm standi ábyrgir gerða sinna. Kristín Ástgeirsdóttir formaður þingflokksins segir að mikill urgur sé í þingflokknum vegna afstöðu fulltrúa Kvennalistans í banka- stjóm Landsbankans. En fulltrúi Kvennalistans, Kristín Sigurðar- dóttir, gekk í lið með fulltrúum stjómarliða í bankastjóminni og vísaði frá tillögu fulltrúa Alþýðu- bandalagsins sem naut stuðnings fulltrúa Framsóknar þess efnis að teknar yrðu upp viðræður við starfsmannafélag Landsbankans með það í huga að reyna að milda þær aðgerðir sem bankinn hefur ákveðið að grípa til. Þessi afstaða fulltrúa Kvennalist- ans í bankastjórninni mun hafa farið mjög illa fyrir brjóstið á bankastarfsmönnum en yfirgnæf- andi meirihluti þeirra er kvenfólk. „Hún gerði það reyndar á þeim forsendum að þær viðræður og samráð væm í gangi og vildi ekki að bankastjómin fengi skammir. Það er einnig ljóst að við og hún emm ekki samstíga í þessu máli þótt hún sé ávallt með mjög góð rök fyrir sínu máli. Það er auðvitað staðreynd að þarna hefur verið haft ákveðið samráð en ekki ná- kvæmlega um þessar uppsagnir sem komu alveg fyrirvaralaust, þótt þær hafi legið í loftinu. Hins- vegar em vinnubrögð bankans í málinu alveg fáheyrð og mér skilst að þeir séu alveg í msli yfir því Samkeppni um brota- járnið að ganga af fyrir- tækjum í þessum rekstri dauðum: Stálfélagið að drepa Hringrás? Forráðamenn Hringrásar telja að markvisst sé unnið að því ýta Hringrás útaf brotajárasmarkaðn- um þannig að Stálfélagið geti eitt setið að brotajámssöfnun hér á landi. Þeir gagnrýna að Stálfélagið skuli hafa haldið áfram að taka á móti brotajárni eftir að félagið varð gjald- þrota. Þeir benda á að það hafi kost- að þrotabúið um 40 milljónir króna að halda móttökunni opinni í þá 14 mánuði sem hún var opin. Þeir benda á að lánardrottnar Stálfélags- ins hafi sagt að móttökunni væri haldið opinni til að gera verksmiðj- una söluhæfari. Nú berist hins vegar fréttir af því að Fura hf, sem keypt hefur tæki Stálfélagsins, sé farin að flytja brotajámshaugana úr landi. hvað þeir hafa klúðrað þessu hryllilega, jafnframt sem þetta hefur auðvitað skaðað bankann," segir Kristín Ástgeirsdóttir. Iályktun þingflokksins þar sem krafist er að Alþingi verði kallað saman kemur fram að nauðsynlegt sé að Alþingi fjalli um það hvemig bregðast skuli við og ræði mögu- leika á nýrri tekjuöflun eða spam- aði í þeirri breyttu stöðu sem óhjá- kvæmileg skerðing aflaheimilda hefur á stöðu þjóðarbúsins. Sömuleiðis telur þingflokkurinn nauðsynlegt að Alþingi fjalli um hvemig ríkisstjórnin geti efnt lof- orð sín í tengslum við gerð kjara- samninga án þess að auka byrðar láglaunafólks eða einstakra stétta svo bænda, sjómanna og fisk- vinnslufólks. -grii BLAÐBERA VANTAR SELTJARNARNES • Eiðismýri • Skeljagrandi • Keilugrandi - Selbraut - Austurströnd • Vesturströnd Lindarbraut • Melbraut o.fl. TT Ath! Blaðburður er holl og góð hreyfing i: { j !.í líminn Lynghálsi 9. Sími 686300 - kl. 9 til 17 Vinnubúðir til sölu Landsvirkjun áformar að selja, ef viðunandi tilboð fást, vinnubúðir á eftirfarandi stöðum til brottflutnings: Við Blöndustöð í Austur-Húnavatnssýslu 6 sjálfstæð svefnhús stærð 2,5 x 3,9 m 2 sjálfstæðar húseiningar — 2,5 x 5,1 m 1 íbúðarhús (4 húseiningar 2,5 x 7,5 m) — 10,5 x 7,5 m 1 íbúðarhús (5 húseiningar 2,5 x 7,5 m) — 12,5 x 7,5 m 2 parhús, 4 íbúðir (2,5 húseiningar, 2,5 x 7,4 m) — 12,5 x 7,4 m 1 mötuneytis- og svefnherbergjasamstæða. I samstæðunni eru samtals 46 húseiningar af stærðinni 2,5 x 7,4 m = 851 m2, 80 manna matsalur, eldhús, frystir, kælir, hreinlætisein- ingar og 44 einstaklingsherbergi. Við Búrféllsstöð í Ámessýslu 8 sjálfstæð svefnhús stærð 2,5 x 3,9 m 2 sjálfstæðar húseiningar — 2,5 x 5,1 m 1 frystir — 2,6 x 4,1 m 1 inngangur og snyrting — 2,0 x 4,2 m Dagana 4.-5. júní 1993 munu starfemenn Landsvirkjunar sýna væntanlegum bjóðendum húsin, en aðeins frá kl. 10:00-18:00. Nánari upplýsingar veitir innkaupastjóri Landsvirkjunar. Tilboð þurfa að berast Landsvirkjun, innkaupadeild, Háa- leitisbraut 68,103 Reykjavík, eigi síðar en 9. júní 1993. B LANDSVIRKJUN

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.