Tíminn - 04.09.1993, Qupperneq 8

Tíminn - 04.09.1993, Qupperneq 8
8 Tíminn Laugardagur 4. september 1993 Hugmyndir reifaðar um samvinnu, samstarf og sameiningu skóla á háskóiastigi: Verða fjórir skólar að einum uppeldishá- skóla? Það hefur ekki verið skipuð sérstök nefnd til þess að fjalla um og vinna að rammalöggjöf um háskólastigið. Hins vegar hefur verið skipuð nefnd til þess að vinna að rammalöggjöf um uppeldismenntun. Hún tengist enn einni nefndinni sem Þórir er formaður fyrir, sam- starfsnefnd um uppeldismenntun skóla á háskólastigi. í henni eiga fulltrúa Háskóli íslands, Kennarahá- skólinn, Tónlistarskólinn, Myndlist- arskólinn, íþróttakennaraskólinn, Þroskaþjálfaskólinn og Fósturskól- inn. Áheyrnarfulltrúa eiga Háskól- inn á Akureyri og Leiklistarskólinn. Þessi nefnd vinnur að svipuðum málum og samstarfsnefnd háskóla- stigsins, en hún fjallar f.o.f. um kennara- og uppeldismenntun. Markmiðið er að tryggja aukið sam- starf og samvinnu á milli þessara skóla, en þar er m.a. lögð áhersla á samnýtingu kennslukrafta og tækja- búnaðar, bæði í sambandi við kennslu, rannsóknir og þjónustu. Þessi vinna hefur m.a. leitt til þess að Þroskaþjálfaskólinn og Kennara- háskólinn hafa tekið upp formlega samvinnu. Reyndar hafa verið settar fram hug- myndir um róttæka samvinnu. Til að mynda hefur það verið lagt til að stofnaður verði sérstakur uppeldis- háskóli, sem aðild ættu að til að byrja með Þroskaþjálfaskólinn, Kennaraháskólinn, íþróttakennara- skólinn og Fósturskólinn. Þessi mál eru enn til athugunar innan við- komandi skóla og eins í samstarfs- nefndinni. -ÁG Veröur háskólunum breytt í háskóla? Undanfarín misseri hefur faríð fram umfangsmikil hugmynda- vinna um framtíð kennslu á háskólastigi á Islandi. Að þessarí vinnu hafa komið fulltrúar allra skóla á háskólastigi og menntamálaráðuneytis. Markmiðið er að setja háskólastiginu vinnureglur, sameina skóla og stofnanir, auka samvinnu, sam- ræma námsmat, ná fram hagræðingu og um leið einfalda kerf- ið. Róttækasta hugmyndin er að hafa einn háskóla á landinu, en líklegasta niðurstaðan er að þeir verði þrír til fjórír. Þórir Ólafsson, rektor Kennaraháskóla Islands. Tímamynd Arni Bjarna Fulltrúa í svonefndri samstarfs- nefnd háskólastigsins eiga allir þeir skólar sem að einhverju leyti geta talist á háskólastigi. Nefndin er skip- uð af ráðherra, en hún hefur fundað nokkuð ört s.l. ár. Fulltrúi Kennara- háskólans og varaformaður nefndar- innar er Þórir Ólafsson, rektor Kennaraháskóla íslands. „Þama hefur verið unnin heilmikil vinna," segir Þórir, „og stjórnendur þessara skóla hafa ekki síst lagt mikla áherslu á að kynnast því starfi sem fram fer hver hjá öðrum. Við höfum t.d. haldið þessa fundi til skiptis í skólunum og viðkomandi stofnanir þá um leið kynntar fyrir öllum." En sjá menn fyrir sér að þetta leiði til fækkunar, sameiningar og sam- vinnu skóla á háskólastigi í framtíð- inni? „Jú, það er það sem við erum að reyna að tala fyrir," segir Þórir. „Ef við nefnum sem dæmi Þroskaþjálfa- skólann, Fóstruskólann og íþrótta- kennaraskólann. Þetta eru litlir skólar. Meira að segja á okkar mæli- kvarða. Það er fráleitt að ímynda sér að þeir geti orðið sjálfstæðir háskól- ar. Það er stefnan víða um heim að reyna að sameina skóla á háskóla- stigi og samnýta aðstöðu, tækjabún- að, bókasöfn og sem mest af þeirri þjónustu, sem svona skólar þurfa að veita. Við erum að verða nokkuð sammála um að þetta muni gerast, en það er bara spuming hvernig það verður gert og hvenær. Þetta verður að gerast fyrr eða síðar.“ skoða og reyndar mjög margir und- irhópar í þessari samstarfsnefnd há- skólastigsins," segir Þórir. „Eitt af því er samnýting kennara, sem hefur m.a. leitt til þess að við höfum gert samstarfssamning sem gildir um þessa formlegu háskóla þrjá: Há- skólann á Akureyri, Kennaraháskól- ann og H.í. Þar hefur þegar verið undirritaður samningur á milli skóla um samnýtingu kennara, sem ráðuneytið á reyndar eftir að stað- festa." Annað verkefni samstarfsnefndar- innar hefur verið að skoða eininga- mat og námsmat, til þess að tryggja að nemendur eigi sem greiðasta leið milli skólanna, skipti þeir um skóla Líklegt að háskólamir verði þrír til fjórir „Það lengsta, sem hægt væri að ganga, væri að stofna bara einn Há- skóla Islands, þar sem hinir skólarn- ir væru deildir innan hans. Það er auðvitað ekkert útilokað að deildir úr Háskóla íslands gætu verið úti um land. Háskólinn á Akureyri gæti sem best verið deild innan H.í. sem gegndi ákveðnu hlutverki. Þetta þekkjum við vel bæði frá Noregi og Finnlandi. Háskólinn í Helsinki er með útibú um allt Finnland. Þegar búið er að stofna sjálfstæða skóla er oft erfitt að stíga skrefið til baka, en það hlýtur að verða gert að einhverju leyti á næstunni. Mér finnst líklegt að hér verði kannski þrfr til fjórir háskólar. Margt bendir til þess að Háskólinn á Akureyri sé kominn til að vera sem sjálfstæð stofnun. Síðan eru það Háskóli ís- lands, Uppeldisháskóli og Listahá- skóli sem eru í burðarliðnum. En þama þurfa stjórnvöld að marka heildarstefnu. Mér sýnist reyndar allt vera að þokast í þá átt og fullur vilji hjá ráðuneytinu í þá veru.“ Samstarfssamningur H.Í., H.A. og Kennara- háskólans „Það er mjög margt sem verið er að á meðan á námi stendur. Þórir segir að þessi vinna hafi vissulega skilað árangri. Þar hafi fulltrúar skólanna farið yfir málin í sameiningu, en enn sem komið er liggi ekki fyrir sam- eiginleg ályktun. „Stærsta málið, sem við höfum ver- ið að skoða, er undirbúningur að rammalöggjöf um háskólastigið," segir Þórir. „Það hefur verið mikil umræða, m.a. á fundum með menntamálaráðherra, um hvort setja eigi háskólastiginu heildar- rammalöggjöf, ekki síst vegna hinna mörgu skóla sem eru núna á þessu svonefnda „gráa svæði", þ.e.a.s. á mörkum háskólastigs og framhalds- skólastigs. Þar má nefna skóla eins og Fósturskólann, Þroskaþjálfaskól- ann, íþróttakennaraskólann, Versl- unarháskólann, Tækniskólann og fleiri." Háskólinn, Kennaraháskól- inn og Háskólinn á Akur- eyri hafa þegar gert með sér samning um samnýtingu kennara, sem ráðuneytið á reyndar eftir að staðfesta.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.