Tíminn - 04.09.1993, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. september 1993
Tíminn 13
LTANUM...
SKA BOLTANUM... KYNNING Á ÍTALSKA BOLTANUM... KYNNING
UDINESE
Lið Udinese bjargaði sér frá falli á síð-
asta leiktímabili með sigri á Brescia í
leik um það hvort liðið fengi að halda
sæti sínu í 1. deild. í sumar var fyrr-
verandi 1 ands 1 iðsþjálfari ítala, Azeglio
Vicini, ráðinn til liðsins og við hann
eru bundnar miklar vonir. Þrír bestu
menn síðasta tímabils hafa verið seld-
ir, en í staðinn hefur liðið fengið til
sín marga unga og efnilega leikmenn.
Argentínski markaskorarinn Abel Bal ■
bo var seldur til Roma, en í staðinn
fékk Udinese varnarmanninn Fabio
Petruzzi, tengiliðinn Francesco
Statuto og framherjann gamalkunna,
Andrea Camevale, frá Rómarliðinu.
Leikstjórnandinn Francesco
Dell’Anno fór til Inter og þaðan fékk
Udinese markvörðinn Massimiliano
Caniato, varnarmanninn Stefano
Rossini og framherjann Marco Del
Vecchio. í stöðu Dell’Anno keypti lið-
ið Oberdan Biagioni frá Foggia, vam-
armaðurinn Vincenzo Montalbano
kom frá Modena og tengiliðurinn
Willi Pittana kom aftur frá Catania
þar sem hann var í láni. Tveir efnileg-
ir Ieikmenn voru keyptir frá Aless-
andria, markvörðurinn Graziano
Battistini og bakvörðurinn Valerio
Bertotto.
Auk Dell’Anno og Balbo missti Udi-
nese bakvörðinn Alessandro Orlando
til AC Milan og markvörðinn Paolo Di
Sarno til Lucchese.
Marzi (til Catanzaro) liðið í sumar og
hinn 34 ára framherji Franco De
Falco lagði skóna á hilluna.
Sennilegt byrjunarlið: Sardini, Ac-
cardi, De Agostini, Sgarbossa,
Zanutta, Torrisi, Morello, Scienza,
Ekström, Picasso, Padovano.
ROMA
Carlo Mazzone, sem kom Cagliari f
Evrópukeppnina með glæstum enda-
spretti á síðasta tímabili, hefur tekið
við sem þjálfari Roma og vonast eig-
endur liðsins til að hann nái að gera
liðið aftur að því stórveldi sem það áð-
ur var. Tveir reyndir markverðir voru
keyptir, þeir Fabrizio Lorieri frá Asc-
oli og Andrea Pazzagli frá Bologna.
ítalski landsliðsmiðvörðurinn Marco
Lanna kom frá Sampdoria fyrir 350
milljónir og argentínski framherjinn
Abel Balbo frá Udinese fyrir álíka upp-
hæð. Þrír Ieikmenn undir 21 árs
landsliðs Ítalíu hafa snúið aftur til
Roma, eftir að hafa verið í Iáni hjá
Lecce. Gabriele Grossi er 21 árs
vinstri bakvörður, Alessio Scarchilli
20 ára sóknarmaður og Gianpiero Ma-
ini 21 árs tengiliður, en allir vöktu
þeir áhuga meistara AC Milan á síð-
asta vetri. Þá kom Andrea Borsa, 21
árs bakvörður, úr láni frá Carrarese og
19 ára framherji, Walter Lapini, var
keyptur frá Siena.
Framherjinn Andrea Camevale og
vamarmaðurinn Fabio Petruzzi fóm
til Udinese sem hluti af greiðslunni
fyrir Abel Balbo, markvörðurinn Gi-
useppe Zinetti fór til Ascoli sem hluti
af greiðslunni fyrir Fabrizio Lorieri og
Fausto Salsano snéri aftur til síns
gamla félags, Sampdoria, sem hluti af
greiðslunni fyrir Marco Lanna. Þá var
bakvörðurinn Dario Rossi lánaður til
Modena.
Sennilegt byrjunariið: Lorieri,
Garzya, Carboni, Piacentini, Bene-
detti, Lanna, Hassler, Giannini, Balbo,
Mihajlovic, Rizzitelli.
SAMPDORIA
Gaman verður að fylgjast með hvem-
ig liði Sampdoria vegnar í vetur með
þá Ruud Gullit og David Platt í broddi
fylkingar. Gullit var á enda samnings-
tímabils síns hjá AC Milan og þurfti
Sampdoria því einungis að borga um
50 milljónir fyrir hann, en sjálfur fékk
Gullit um 70 milljónir. David Platt er
nú orðinn dýrasti leikmaður heims
eftir að hafa skipt þrisvar um lið á jafn
mörgum ámm fyrir háar upphæðir.
Sampdoria borgaði Juventus rúmlega
350 milljónir fyrir hann. Bakvörður-
inn sterki, Marco Rossi, var keyptur
frá Brescia og Fausto Salsano er kom-
inn aftur til Sampdoria eftir þrjú ár í
herbúðum Róma. Giovanni Dall’Igna,
20 ára miðvörður, og Roberto Breda,
23 ára vamartengiliður, komu frá
Spal þar sem þeir hafa leikið sem
lánsmenn. Hinn gamalreyndi mið-
vallarspilari, Alberigo Evani, var feng-
inn að láni frá AC Milan fyrir einungis
10 krónur.
Enski landsliðsmiðvörðurinn Des
Brian Laudrup sætti sig ekki við að spila með Fiorentina i 2. deild og
var þvi lánaður til AC Milan.
Sennilegt byrjunariið: Battistini,
Pellegrini, Kozminski, Sensini, Cal-
ori, Desideri, Rossini, Rossitto,
Branca, Statuto, Camevale.
Walker hélt aftur til Englands og var
seldur til Sheffield Wednesday fyrir
um 250 milljónir. Félagi hans úr
vörninni, Marco Lanna, fór til Roma
fyrir um 350 milljónir. Hinn efnilegi
leikstjórnandi, Eugenio Corini, var
lánaður til Napoli og þangað fór einn-
ig framherjinn Renato Buso. Tveir
ungir miðvallarleikmenn hafa verið
lánaðir til smærri liða til að öðlast
reynslu, þeir Nicola Zanini til Manto-
va og Enrico Chiesa til Modena.
Sennilegt byijunarlið: Pagliuca,
Mannini, Rossi, Gullit, Vierchowod,
Bucchioni, Lombardo, Jugovic,
Mancini, Platt, Evani.
TÓRÍNÓ
Bikarmeistarar Tórínó hafa gert tals-
verðar breytingar á leikmannahópi
sínum frá síðasta tímabili. Markvörð-
urinn gamalreyndi, Giovanni Galli,
var keyptur frá Napoli og varamaður
hans verður Luca Pastine, sem var í
láni hjá Casertana á síðasta tímabili.
Angelo Gregucci, harður miðvörður,
var fenginn frá Lazio, Daniele Delli
Carri, 21 árs miðvörður, snéri aftur
eftir eitt tímabil í láni hjá Lucchese og
króatíski bakvörðurinn Robert Jami
kom frá Bari. Á miðjuna er kominn
Marco Osio frá Parma, sem hóf feril
sinn hjá Tóríno, en var seldur þaðan
árið 1986 og innherjinn Benito Car-
bone kom frá Ascoli. Sóknarmaður-
inn snjalli frá Umguay, Enzo Franc-
escoli, var keyptur frá Cagliari og er
honum ætlað stórt hlutverk í vetur.
Liðið hefur orðið að sjá á bak nokkr-
um af sínum bestu mönnum og ber
þar fyrst að nefna markvörðinn Luca
Marchegiani, sem fór til Lazio, og
belgíska Ieikstjómandann Enzo Scifo,
sem fór til Mónakó. Brasilíski fram-
herjinn Walter Casagrande fór til Fla-
mengo, bakvörðurinn Antonio AIoisi
til Cagliari og hinn umdeildi harðjaxl,
Pasquale Bmno, var seldur til Fior-
entina. Auk þeirra fór varamarkvörð-
urinn, Raffaele Di Fusco, til Napoli.
Sennilegt byrjunarlið: Galli, Ann-
oni, Jami, Fortunato, Gregucci, Fusi,
Sordo, Venturin, Silenzi, Osio, Poggi.
Ruud Gullit byrjaði vel
með Sampdoria um
síðustu helgi og skor-
aði þá mark í 2-0 sigri
liðsins.
KitchenAid
ORÐSENDING
Okkur er ánægja að tilkynna að við höfum tekið að okkur um-
boð á íslandi fyrir KitchenAid. Hrærivélar og úrval fylgihluta
er nú fyrirliggjandi hjá okkur og söluaðilum um land allt.
íslenskur leiðarvísir fylgir öllum vélum og hússtjómarkennari
okkar, Dröfh H. Farestveit, veitir faglega ráðgjöf.
KitchenAid' — Mest seldu hrærivéiar á ísiandi í 50 ár!
/f/:
Einai*
Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 TC 622901 og 622900