Tíminn - 06.11.1993, Síða 5
Laugardagur 6. nóvember 1993
Tíminn 5
Bubbi Morthens með nýja plötu, Lífið er Ijúft:
Þaö er svo gott að elska
Fyrir 13 árum sagðist hann „aldr-
ei, aldrei ætla að vinna ísbirninum
í,“ sem frægt varð um land allt.
Þrátt fyrir það hefur líf og vinna
fískverinmarfólks verið Bubba
Morthens afar hugstætt og ófá yrk-
isefni hefur hann sótt til þess fólks
sem vinnur hörðum höndum við
að skapa landsmönnum dýrmætan
gjaldeyri, þótt laun þess og kjör
séu ekki í neinu samræmi við mik-
ilvægi starfsins. Það kom því ekki
svo mjög á óvart þegar nýja platan,
Lífíð var ljúft, var kynnt opinber-
lega í frostlausum frystiklefa í
fyrrum húsnæði Bæjarútgerðar
Hafnarfíarðar í vikunni.
Þar göptu við berar og þurrar
ammoníaks-leiðslumar sem áður
mögnuðu upp margra gráðu kulda
til vamar dýrmætum sjávarafúrð-
um, á meðan þær biðu útskipunar í
næsta skip sem flutti þær á erlenda
markaði.
í stað kulda og frosthljóða fry-
stiklefans hljómuðu þar ljúfir tónar
nýjustu afurðar Bubba Morthens,
Lífið er ljúft, og gestir gæddu sér á
mat og drykk.
Jákvæður
„Lífið er ljúft, það er engin spum-
ing. Eftir að ég gifti mig og eignað-
ist böm og varð meira heimiliskær
en áður þá hef ég uppgötvað það, á
gamals aldri, að lífið er alveg meiri-
háttar ljúft.“
- Hvemig getur lífið verið ljúft á
tímum atvinnuleysis, minnkandi
kaupmáttar og annarra þrenginga
sem venjulegur launamaður þarf að
búa við?
„Það skapar hver maður sinn hug-
arheim sjálfúr. Eftir að hafa verið
búinn að syngja í mörg ár um erfið-
ar aðstæður fólks í þjóðfélaginu þá
hugsaði ég með mér, af hveiju ekki
að snúa blaðinu við og gera eitt-
hvað sem enginn býst við af mér;
gera heila plötu þar sem ekkert er
nema jákvæðni."
Bubbi segir að ástæðan fyrir þess-
ari jákvæðu afstöðu sé m.a. að sýna
fólki fram á að það sé í sjálfu sér já-
kvætt að reýna að vera jákvæður og
kannski ekki vanþörf á. Hann segir
að þótt Matthías, ritstjóri Mogga, sé
að skamma forsætisráðherra þá sé
það gert með jákvæðu hugarfari.
Hvemig hafa viðtökumar verið út
um landið við þessum jákvæða boð-
skap þar sem sífellt er verið að
skerða kvótann og taka lífsbjörgina
frá fólkinu sem býr við sjávarsíð-
una?
„Fólk tekur alveg ótrúlega vel í
þennan jákvæða boðskap sem ég
Brynja Gunnarsdóttir og Bubbi Morthens ásamt barni þeirra.
predika á tónleikum vítt og breitt
um landið. En auðvitað tala ég líka
um ástandið og stór hluti af minni
tónleikadagskrá fjallar einmitt um
þessa hluti sem fólkið býr við og á
við að etja í sínu daglega lífi. Mín
skilaboð til fólksins em jafnframt
þau að gefast aldrei upp og reyna
með öllum tiltækum ráðum að vera
jákvæður. Við þolum áföllin í lífinu
betur ef við reynum að sjá t.d. bros-
legu hliðarnar, jafnvel þótt það sé
varla glæta framundan."
Bubbi segir að þetta skipti mjög
miklu máli, enda sé hann ekki sam-
mála því að það sé hamrað enda-
laust á bölmóðnum. Hann óttast
heldur ekki að þverrandi ráðstöfun-
artekjur fólks muni koma niður á
sölu plötunnar.
„Platan mín er umhverfis- og
manneskjuvæn og heilsubætandi.
Ég hef þá staðfestu trú að platan
muni létta fólki stundimar í
skammdeginu og einnig í erfiðleik-
um dagslegs lífs. Ég trúi því líka að
ég færi jafnvel fólk saman sem hef-
ur kannski verið að reisa veggi sín í
rnilli."
- Eitt lag á plötunni heitir Þeir
hafa trúðinn en vantar trúbador.
Hvað er þama á ferðinni?
„Þetta er minn boðskapur og yfir-
lýsing til íslenskra stjórnmála-
manna og stjómmála almennt hér-
lendis. Um leið er ég að segja við
fólk að það leggi við hlustir sína
eigin rödd og fari eftir sínu innsæi.
Að fara ekki eftir því sem aðrir segja
og öðmm finnst. Það er boðskapur
lagsins."
Ástaróður til Brynju
- Lífið er ljúft fjallar um ástina,
fjölskylduna, hjónabandið o.s.frv.
Var það eitthvað öðru fremur sem
rak þig til að gera þessa plötu eða er
hún sjálfsprottin, ef svo má segja?
„Hún er sjálfsprottin, þannig séð.
Sem listamaður þá sest ég aldrei
niður og velti því fyrir mér hvað
muni seljast og hvað ekki, heldur
reyni að fara eftir mínu eigin inn-
sæi. En málið er að ég hef aldrei áð-
ur gert svona plötu, um þessar til-
finningar sem ég þekki nú en
þekkti ekki áður. En síðast en ekki
síst þá langaði mig til að votta eig-
inkonu minni ást mína á þennan
máta.“
- Það ættu kannski fleira að gera?
„Hvers vegna ekki? En það er að
vísu dálítið dýrt,“ segir Bubbi og
hlær.
- Þegar hlustað er á nýju plötuna
fer ekki hjá því að þar gæti veru-
legra áhrifa frá bandarískri sveita-
tónlist?
,ýVmerísk áhrif. Það er rétt og
verður að viðurkennast, hreint út
sagt. Menn halda kannski að ég hati
Ameríkana af því að ég vil herinn úr
Tlmamynd, Pjetur.
landi. En það er nú ekki þannig.
Margt af því allra besta í tónlistinni
hefúr komið frá Bandaríkjunum og
sérstaklega hefur bandaríska þjóð-
lagatónlistin haft sterk ítök í mér
og það má rekja langt aftur í tím-
ann,“ segir Bubbi Morthens. -GRH
Brynja Gunnarsdóttir:
011 hiónabönd eru erfið
en petta er voða Ijúft
„Þetta er auðvitað alveg yndisleg til-
finning þegar hann opinberar svona
ást sína til mín. Þetta mættu fleiri eig-
inmenn gera við sínar konur," segir
Brynja Gunnarsdóttir, eiginkona
Bubba Morthens. En nýja platan, Lífið
er ljúft, er tileinkuð henni, ást þeirra,
hjónabandinu og fjölskyldunni.
Hún segir að það sé engum vand-
kvæðum bundið fýrir sig að bera heila
plötu á bakinu ef svo má að orði kom-
ast.
„Það er mjög auðvelt. Við erum búin
að búa saman í átta ár og höfum upp-
lifað ýmislegt á þeim tírna."
Brynja segir að það sem eiginmaður-
inn geri komi alltaf á óvart. En í þessu
tilviki ekki svo mjög þar sem hún var
meira og minna viðstödd þegar hann
var að semja lögin á nýju plötuna á
heimili þeirra hjóna.
„Hann vinnur heima og því hefur það
pínulítil áhrif á heimilislífið.“
Hún neitar því ekki að það geti á
stundum verið dálítið erfitt að vera
gift þekktum tónlistarmanni. Hins
vegar reyna þau eftir megni að vemda
fjölskylduna og einkalífið frá fjölmiðl-
umog öðrum.
„Öll hjónabönd eru erfið og því þarf
að leggja rækt við þau. En þetta er
voða ljúft og ég þekki raunar ekkert
annað. Þetta er mitt fyrsta hjóna-
band.“
Brynja segist ekki eiga neitt sérstakt
óskalag á plötunni en það séu nokkur
lög á henni sem henni finnst vera öðr-
um betri.
„Ég syng meira með þessari heldur
en Kúbu-plötunni."
Það hefur verið haft á orði að nýjan
platan sé nokkurs konar B-hlið Konu-
plötunnar, en sú plata fjallaði m.a. um
skilnað Bubba ffá fýrri konu hans og
þeim tilfinningum sem því fýlgir.
,Jriér finnst Konu-platan ofsalega
góð, en mér finnst þær ekkert líkar.
Eins og Bubbi hefur sjálfur sagt, þá
var Konu-platan um skilnað og
bömmer, en þessi er um ástina.“
-CRH
FÉLAGSMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Umsókn um framlög
úr framkvæmdasjóði
fatlaðra 1994
Stjórn Framkvæmdasjóðs fatlaðra auglýsir eftir
umsóknum um framlög úr sjóðnum árið 1994.
Um hlutverk sjóðsins vísast til 40. gr. laga nr.
59/1992 um málefni fatlaðra.
Umsóknum skal skila til hlutaðeigandi Svæðis-
skrifstofu málefna fatlaðra sem veita nánari upp-
lýsingar.
Svæðisskrifstofa Reykjavíkur, Nóatúni 17, Reykja-
vík
Svæðisskrifstofa Reykjaness, Digranesvegi 5,
Kópavogi
Svæðisskrifstofa Vesturlands, Bjarnarbraut 8,
Borgarnesi
Svæðisskrifstofa Vestfjarða, Mjallargötu 1, (safirði
Svæðisskrifstofa Norðurlands vestra, Ártorgi 1,
Sauðárkróki
Svæðisskrifstofa Norðurlands eystra, Stórholti 1,
Akureyri
Svæðisskrifstofa Austuriands, Tjarnarbraut 39 e,
Egilsstöðum
Svæðisskrifstofa Suðuriands, Eyrarvegi 37, Sel-
fossi
Umsóknum skal skila til svæðisskrifstofa fyrir 1.
desember 1993.
Félagsmálaráðuneytið,
3. nóvember 1993.